Morgunblaðið - 07.09.1986, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. S3EPTEMBER 1986
B <21
lék lengst af á sínum ferli í Þórs-
café. Hljómsveitin hafði jafnan á
að skipa hinum hæfustu söngvurum
sem margir hveijir hlutu sinn söng-
frama undir leiðsögn Kristjáns
Kristjánssonar. I þeim hópi voru
meðal annarra Sigrún Jónsdóttir,
Ellý Vilhjálms, Ragnar Bjarnason
og Oðinn Valdimarsson, svo aðeins
nokkrir séu nefndir.
Til gamans skal hér gripið niður
í blaðagreinar frá þeim tíma er
vegur KK-sextettsins var hvað
mestur. Hér er klausa úr Morgun-
blaðinu frá árinu 1959: „Um
haustið 1954 ræður Ragnar Jóns-
son, forstjóri Þórscafés KK-sextett-
inn til að leika fímm kvöld vikunnar
í „gamla" Þórscafé. Hefur hljóm-
sveitin átt sinn stóra þátt í að gera
það samkomuhús eftirsóttasta
danshús borgarinnar, ekki síst síðan
starfsemin var flutt í hin vistlegu
húsakynni í Brautarholti 20.“
í Þjóðviljanum í júlí árið 1960
segir meðal annars: „Undanfarin
ár hafa nýir dansstaðir sprottið upp
hér í Reykjavík, hver á fætur öðrum
og þeir gömlu hafa smátt og smátt
dalað niður og misst sína föstu
gesti að mestu. Þó er einn gamall
staður, að vísu í nýjum og glæsileg-
um húsakynnum, sem á sífellt
vaxandi vinsældum að fagna, en
það er Þórskaffí. Þeir sem þangað
koma eru sammála um, að
skemmtilegri og betri dansstaður
Um þann atburð sagði Alþýðublaðið
m.a.: „Nú þegar hinn óviðjafnanlegi
KK-sextett er hættur leik sínum í
Þórskaffi, tóku Lúdómenn og Stef-
án við og unga fólkið mun halda
áfram að dansa í Þórskaffi, sjómenn
og ungar og laglegar stúlkur. -
Lúdómenn eru prýðisvel samspilað-
ir, enda búnir að leika lengi saman
og hlotið miklar vinsældir unga
fólksins. Vonandi verða þeir jafn
heppnir í Þórskaffi."
I takt við tímann
Þetta var í þá „gömlu góðu daga“
og vissulega mætti nefna fjölmarga
fleiri sem komið hafa við sögu þessa
vinsæla skemmtistaðar í gegnum
árin. Astæðulaust er þó að dvelja
í fortíðinni því Þórscafé hefur ætíð
verið í takt við tímann og lagað sig
að breyttum kröfum hveiju sinni.
Miklar breytingar urðu á rekstri
staðarins þegar vínveitingaleyfíð
fékkst árið 1976. Þá varð mikil
stækkun og breytingar á húsakynn-
um og diskóteki komið upp á neðri
hæðinni, en lifandi tónlist hélst
áfram á efri hæðinni. Nú á 40 ára
afmælinu gengur Þórscafé enn í
gegnum eitt breytingaskeiðið. Á
neðri hæðinni er komið nýtt og full-
komið diskótek með betri hljóm-
burði og tilheyrandi ljósasýningu.
Þá hafa verið gerðar breytingar á
innréttingum, bæði niðri og í efri
KK-sextettinn, ein vinsælasta hljómsveit sem leikið hefur í Þórscafé
frá upphafi. Hljómsveitin lék þar lengst af á árunum 1954 til 1962.
sé vandfundinn, þó víðar væri leitað
en hér í Reykjavík.
í Vísi í nóvember 1960 er eftir-
farandi kiausa: „Þórskaffí hefur nú
starfaði í 15 ár og haft „opið á
hveiju kvöldi", eins og það er orðað
í auglýsingum frá því. Hefur það 2
hljómsveitir er leika þar fyrir dansi
til skiptis öll kvöld vikunnar. - Fimm
kvöld leikur þar hljómsveit Krist-
jáns Kristjánssonar eða KK-sextett-
inn, en söngvarar með sveitinni
hafa verið Elly Vilhjálms og Þor-
steinn Eggertsson. Hin kvöld
vikunnar leikur hljómsveit Guð-
mundar Finnbjömssonar, en
söngvari er Hulda Emilsdóttir, sem
hefur náð sívaxandi vinsældum fyr-
ir sinn ágæta söng og góðu
framkomu á sviðinu. - Auk þess sem
fólk höfuðstaðarins hefur sóst mik-
ið eftir að skemmta sér á Þórskaffí
undanfarin ár, ekki síst síðan starf-
semin var flutt í hin glæsilegu
salarkynni í Brautarholti 20, em
menn utan af landsbyggðinni þar
mjög tíðir gestir, sér til upplyfting-
ar meðan þeir dvelja í bænum."
Skylt er að geta annarrar hljóm-
sveitar sem gerði garðinn frægan
í Þórscafé, en það var ein vinsæl-
asta hljómsveit rokktímabilsins,
Lúdó og Stefán. Þeir félagar tóku
við í Þórscafé þegar KK-sextettinn
hætti um áramótin 1961 og 1962.
sal, sem nú tekur fleiri gesti í sæti
en áður. Glæsilegur marmarabar
hefur verið settur upp á efri hæð
og ýmsar aðrar breytingar em á
döfínni. Þá má nefna að ný og full-
komin hljómflutningstæki hafa
verið sett upp í efri sal, sem bæta
mjög hljómburð og aðstöðu til
skemmtisýninga.
Fertugsafmælisins verður minnst
með ýmsu móti á þessu ári þótt
aðalhátíðin verði nú um næstu
helgi. í ráði er að setja upp vand-
aða og fjölbreytta skemmtidagskrá
fyrir veturinn og meðal annars gert
ráð fyrir að erlendir skemmtikraftar
komi í heimsókn. Ný hljómsveit,
dans- og dægurlagasveitin Santos,
hefur verið ráðin við húsið í vetur
og mun hún halda uppi fjörinu í
efri sal á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Diskótekið er sem fyrr í
neðri sal og verður það að auki
opið öil fímmtudagskvöld í vetur.
Þá er í ráði að opna sal á þriðju
hæð nú í vetur og ýmsar fleiri breyt-
ingar eru í undirbúningi.
Það er því ljóst, að starfsemi
þessa elsta veitingahúss í höfuð-
borginni hefur síður en svo dvínað
með árunum. Framkvæmdir þar
undanfarnar vikur og vetrardag-
skráin á fertugsafmælinu bera þess
vott að enn skuli stefnt upp á við.
Mikið úrval
af áklæðum
Heimalist
Húsgagnaverslun með raðsett og
svefnsófa og dýnur af öllum stærðum.
HEIMALIST HF
HÚSCACNAVERSLUN
Síðumúla 23, 108 Reykjavík,
sími 84131, pósth. 8409