Morgunblaðið - 07.09.1986, Page 22
22 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986
Sínfóníuhljómsveitin
í heimsókn á Þingeyri
bínirovri
Þingeyri.
Sinfónluhljómsveit íslands er
nú á tónleikaför um Vesturland
og Vestfirði og föstudaginn 5.
sept. var hún okkur sannkallaður
gleðigjafi.
í stuttu spjalli, er ég átti við Sig-
urð Bjömsson framkvæmdastjóra
kom fram, að 10% af skemmtana-
skatti er varið til þessara ferða
hljómsveitarinnar um iandið. Hann
gat þess, að eins og nafn hljómsveit-
arinnar bæri með sér, væri hún eign
allrar þjóðarinnar en alls ekki einka-
bam Reykjavíkur.
Þetta er fyrsta tónleikaferðin á
þessu ári, því vegna Listahátíðar
gat hljómsveitin ekki sinnt skyldum
sínum við landsbyggðina fyrr.
Sigurður kvað það venju að fara
tvær lengri ferðir á ári, vor og
haust, auk styttri ferða í ná-
grannabæi. Helst kysi hann að
hljómsveitin gæti heimsótt lands-
byggðina oftar, en oft hamlaði
ferðaveður; „eins og við könnumst
við hér, heiðar færar að morgni en
ófærar að kvöldi og allt þar á milli".
Venjulega skipta þeir landinu til
tónleikaferða í þrjá hluta : Vestur-
land ásamt Vestíjörðum, Norður-
land og Austurland á hálfs annars
árs fresti. í þessari ferð væru fyrir-
hugaðir sjö tónleikar, þar af fimm
á Vestfjörðum. Á laugardagskvöld-
ið yrðu þeir á ísafírði og þá væri
Önfirðingum gefinn kostur á að
komast sér að kostnaðarlausu til
ísaflarðar, því bíllinn, sem flytur
hljómsveitina renndi til Flateyrar
og sækti þá er vildu heimsækja þá
til ísafjarðar og skilaði þeim heim
að loknum tónleikum. Þetta hefði
verið gert fyrir tveimur árum er
Sinfóníuhljómsveitin var á ferðinni
og það sama væri áformað nú. Gat
Sigurður þess sérstaklega, að þetta
væri gert, vegna þess að ekkert
húsnæði á Flateyri rúmaði svo stóra
hljómsveit og harmaði hann það.
Hópurinn er nú sækir okkur
Dansskóli
$ax&
kv*0"'
**
ðSBrt'K
og,
ftee
sbAe
Da»
£ðr«frá33a
Sérnámskeið;
Eingöngu rokk, tjútt og
jitterbug.
Eingöngu gömlu
dansarnir.
Innritun daglega í
síma 656522 og
31360 ffrá kl.
13.00—19.00.
Kennslustaðir;
Skeifan 17. (Ford húsið)
Gerðuberg, Fellahellir (Breiðholti)
Frostaskjól (KR heimilið)
Hafnarfjörður: íþróttahús Hafnarfjarðar v/Strandgötu
Keflavík: Grófin F.Í.D.
Krakkar ath.
Frábærir jazzdansar úr
söngleiknum Time sem er
mjög vinsæll í London.
Meiriháttar spor og æðisleg
músík.
vÖ
V
<s°
✓
4?
.J&
s
— DANSSKÓU
AUÐAR HARALDS
>S: 656522 og 31360
heim, er 45 manns; ekki fullskipuð
hljómsveit, en þar ræður sama lög-
mál; húsin á þessum stað eru það '
lítil að tekið hefur verið til þess
ráðs að stækka að mun sviðin. Til
þess að það sé hægt, hafa ráða-
menn á hvetjum stað brugðist vel
við og leyst vandann, hljómsveitinni
að kostnaðarlausu og sagðist Sig-
urður kunna þeim bestu þakkir fyrir
þá fyrirgreiðslu. Enn fremur gat
hann þess, að sveita- og bæjar-
stjómir sýndu þeim þann heiður að
þjóða þeim til matarveislu, hvar á
landinu sem þeir kæmu og væru
þessar ferðir sérstaklega ánægju-
legar, því þeim væri alls staðar
fagnað heils hugar og tekið með
kostum og kynjum. Við sem til
þekkjum, vitum þó, að það er langt
í frá að svo stór hópur geti hvílst
eða látið fara vel um sig, frá því
að þeir renna í hlað eftir strangt
ferðalag, þar til þeir renna úr hlaði.
Það sá ég eigin augum í grunnskól-
anum á fostudaginn þar sem þetta
spjall fór fram. Menn hölluðu sér
út af á hörðum bekkjum, sátu á
stólum nemendanna og skiptust á
um að nota hreinlætisaðstöðuna,
en því miður er ábyggilega langt í
land þar til hægt verður að mæta
þessari þörf á þessum litla stað.
Maturinn beið þeirra og ábyggilega
hefur ekkert í þeim efnum verið til
sparað, enda sannkallaðir auðfúsu-
gestir á ferð, er setja ekki fyrir sig
óþægindin, er fylgja slíkri för.
í lokin kynnti Sigurður bílstjór-
ana báða, þá Steindór Guðmunds-
son og Odd Gunnlaugsson, sem
hefur verið bílstjóri í ferðum hljóm-
sveitarinnar síðastliðin 10 ár og
sagðist Oddur ekki geta haft betri
farþega en hljómsveitarmennina og
fylgdarlið.
Tónleikarnir hófust kl. 20.30 og
svo sannarlega sótti þar enginn ull
í geitarhús, efnisskráin var fjöl-
breytt og kenndi margra grasa:
Verdi, Beethoven, Sigfús Einars-
son, Rossini, Weber og Mannfredini.
Hijómsveitinni var forkunnar vel
tekið; fyrir hlé söng einsöngvarinn
Katrín Sigurðardóttir með hljóm-
sveitinni þrjú lög við mikinn fögnuð
áheyrenda, enda öllum ógleyman-
leg, er sáu hana í Grímudansleik
Verdis og trompetleikaramir Ásgeir
Steingrímsson og Lárus Sveinsson
léku af hreinni list og krydduðu
bragðlauka Dýrfirðinga. Ekki má
gleyma stjómandanum Erhard Dee-
kert sem er fæddur Vínarbúi. Vín
og aftur Vín; hver vildi ekki sitja í
hljómleikasölum Vínarbúa og hlusta
á Vínartónleika undir stjóm hans?
Sigurð Bjömsson þarf ekki að
kynna, hann er þjóðkunnur tónlist-
armaður og ópemsöngvari. Honum
og hans líkum þökkum við Dýrfírð-
ingar dásamlegt kvöld á síðsumri.
Hulda
ACPnDIT
r^tiAvuiw
imm
CLASS HEIlSUSTlJDÍÖ
INNRITUN ER HAFIN í VETRARNÁMSKEIÐIN —
SÍÐAST FYLL TIST FLJÓTT!!
VIÐ BJÖÐUM UPPÁ MORGUN, HÁDEGIS OG SÍÐDEGISTÍMA.
Frúartíma — AREO 1
Byrjendatíma — AERO 2
Framhaldstíma — AERO 3
Púl tíma — AERO 4
Ath! Innifalið í verði er aðgangur að tækjasal — FRÁBÆR AÐSTAÐAH
Innritun er hafin í síma: 39123 og 35000
KENNARAR:
• ASA PÁRSSON — Einn af bestu Aerobic kennurum Svía.
• MAGNÚS SCHEVING — íþróttaþjálfari.
• FRÍÐA HALLDÓRSDÓTTIR — Eimleika þjálfari.
• HELENDA JÓNSDÓTTIR— Danskennari.
• ELSA SIGFÚSDÓTTIR — Danskennari.
Skeifunni 3. Rvik. Simar: 39123 & 35000