Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 32

Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 32
32 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986 /t $acjb] ieg þér o£> ecj \jar júoSi'rvKi „ Sirákar- ínn &em er ÚKIegastur iii cá komast eitthonX'?" ást er___ \U . að lesa stjörnuspána sam- TM Reg. U.S. Pat. Off.-all riflhts reserved © 1986 Los Anfleles Tlmes Syndlcate Smakka það aldrei þegar ég á að koma fram! Með morgunkaffinu 53? * POLLUX Mamma vill ekki skipta sér af honum! HÖGNI HREKKVÍSI Fjallalömb og sauðahangikjöt Kæri Velvakandi. I þætti þínum þann 28. þ.m. skrifar „Sauðþrár" hugleiðingar um hið nýja fjallalamb. Hann ræðir þar um hina nýju auglýsingaherferð um fjallalambið svonefnda, og ég er honum sammála í því að sú auglýs- ingaherferð er æði frumleg og höfðar ekki til gamalla sveita- manna. En þeir sem að auglýsing- unum standa hafa talið vænlegra til árangurs að láta fjallalambið koma sem sendingu af himnum of- an, en að auglýsa kjöt af venjuleg- um jarðbundnum dilkum, en vafalaust mun haglendið þar efra vera eins gott. En þetta fellur sjálf- sagt vel að þeirri auglýsingatísku sem nú er viðhöfð á öllum markaðs- vörum og samkeppnin er greinilega hörð. Eg get hinsvegar ekki verið sam- mála þeim „Sauðþráa" um það að aðeins fráfærulömb og graslömb séu þau einu og sönnu fjallalömb. Eftir því ættu engin íjallalömb að vera til nema þeir fáu undanflæm- ingar sem fyrirfinnast á hvetju hausti, því fráfærur lögðust niður hér á landi fyrir 60 til 70 árum. Jú, fjallalömb eru til, því öll þau lömb sem ganga á afréttum og öðrum íslenskum fjöllum sumar- langt eru fjallalömb þó þau gangi með mæðrum sínum, hvað sem all- ar orðabækur segja, og væri kominn tími til að höfundar þeirra endurskoðuðu þetta atriði. Hinsveg- ar hefír það farið í vöxt á síðari árum að lömbin gangi sumarlangt í heimahögum, t.d. á sunnlensku mýrunum (og víðar) en það eru engin fjallalömb, en sjálfsagt eru þau seld sem slík þegar á markað- inn er komið. Og fjallalömbin þekkjast vel úr þegar þau koma af afréttunum á haustin samanvið mýrarféð, fjallaféð er drifhvítt á lagðinn en mýrarféð er alltaf blakkt. En svo við komum aftur að aug- lýsingaherferðinni, sem oft og tíðum er æði skrautleg og í hæsta máta vafasöm, þá er oft og tíðum spunninn slíkur blekkingavefur að manni óbýður. Margir hafa sjálf- sagt tekið eftir því að á haustin og þá sérstaklega fyrir jólin keppast verslanir við að auglýsa sauða- hangikjöt þó að það sé Ijóst að í öllu landinu eru til sárafáir sauðir, enda hafa seljendur viðurkennt fyr- ir mér að hér sé um að ræða kjöt af eins og tveggja vetra ám sem þarf alls ekki að vera verra, en það er í fæstum tilfellum sauðakjöt, en ennþá hafa þessir seljendur tekið fram að það kæmi að ofan. Og á meðan við gæðum okkur á kjöti af fjallalömbunum frá því í fyrra bíðum við þess að fjallalömbin í ár komi til byggða og þá fáum við ennþá betra bragð í munninn af jarðbundnum grösum heiða og afréttalanda. Steindór Guðmundsson 11 Víkverji skrifar Isíðasta tölublaði af Víðförla, sem gefinn er út af Biskupsstofu, er birtur hluti bréfs, sem biskup ís- lands hefur nýlega skrifað prestum og sóknarnefndum með ábending- um um notkun kirkna. Þar segir, að ekki séu til fastmótaðar reglur um notkun kirkna utan venjulegra messugjörða og helgiathafna. Hins vegar gildi það meginsjónarmið, að í kirkju fari ekkert það fram, sem getur raskað helgi hennar. Það sé á valdi sóknarpresta og sóknar- nefnda að taka ákvarðanir um afnot kirkju í einstökum tilfellum. Komi upp ágreiningur skuli leita álits prófasts, sem geti borið ágreinings- málið undir biskup, ef honum þykir ástæða til, áður en málinu er ráðið til fullnaðarlykta. Höfuðsjónarmiðið sé að hafna hverri notkun kirkju, sem ekki sé samboðin helgi hennar. í bréfínu segir biskup, að hann telji eðlilegt að nota kirkjur til skólasetningar og skólaslita, til tón- leikahalds, trúrænnar söng- og hljómlistar og helgileika. Hins veg- ar geti orkað tvímælis að leyfa afnot af kirkjunni, þegar um annars kon- ar hljómlist er að ræða. í þeim tilvikum sé rétt að ganga úr skugga um, að efni texta og tónsmíða sé samboðin helgi kirkjunnar. xxx á víkur biskup að því álita- máli, hvort við hæfi sé að klappa í kirkju eða ekki. Leyfí til þess verði að vera fyrir hendi hjá sóknarpresti og sóknarnefnd. Bisk- up minnir á, að lengst af hafi sá siður viðgengist, að ekki sé klappað í kirkju og verði þess vegna að taka á því máli með allri gát. Síðan segir í bréfi biskups: „Bann við lófaklappi í kirkju get- ur ekki orðið algild regla, heldur verður að taka tillit til staðbundinna óska og veita leyfí, ef sóknarprestur og sóknamefnd verða á eitt sátt um það. Þegar hljómleikar eru í kirkjum, er gott að taka það fram í upphafi, hvort ætlast sé til þess að klappað sé eða ekki. í stað lófa- klapps hefur fólk stundum látið í ljós hrifningu sína og þakklæti með því að rísa úr sætum. Ljós skulu yfirleitt ekki tendmð á altari við önnur tækifæri en guðs- þjónustu og aðrar helgiathafnir." XXX Margar kirkjur em prýðilegar til tónleikahalds. Um árabil hefur til dæmis verið efnt til tón- leika í Bústaðakirkju. Sömu sögu er að segja um Skálholtskirkju, þar sem sumartónleikar hafa unnið sér fastan og merkan sess í tónlistarlíf- inu. í Bústaðakirkju er klappað en ekki í Skálholtskirkju. Í Reykjavík er bannað að klappa í Háteigs- kirkju. Þegar teknar em ákvarðanir um það, hvemig þessu skuli háttað í kirkjum, er unnt að setja reglur, sem til dæmis banna lófaklapp nema í lok tónleika, þ.e. að hvorki sé klappað þegar tónlistarmenn ganga til sætis né í lok einstakra verka. Til skamms tíma var það siður, ef Víkveiji man rétt, að í Kristskirkju var ekki klappað fyrr en í lok tónleika. Þá ræðst það stundum af þeim verkum, sem flutt em, hvort áheyrendum finnst við- eigandi að klappa eða ekki. Nú líður að því, að unnt verði að vígja Hallgrímskirkju í þriðja og síðasta sinn. Þar hafa sjálfboðaliðar lagt dijúgan skerf af mörkum und- anfarnar vikur til að unnt verði að ná því marki, að vígslan verði hinn 26. október næstkomandi. Miklar vonir eru bundnar við það, að Hallgrímskirkja verði vel fallin til tónlistarflutnings. Er mikilvægt, að strax frá upphafi verði vandlega hugað að því, hvaða reglur eiga að gilda um tónleikahald í því mikla Guðshúsi. Vafalaust munu margir vilja klappa listamönnum lof í lófa þar, þegar fram líða stundir. A stundum skapast næsta vand- ræðaleg staða á tónleikum í kirkj- um, þegar fólk veit ekki, hvort það má klappa eða ekki. Þess vegna er sú ábending biskups réttmæt, að þess sé getið í upphafi tónleika, ef bannað er að láta í Ijós hrifningu sína með lófaklappi. Einnig mætti hafa það sem reglu, að upplýsingar um þetta séu í prentaðri tónleika- skrá. H

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.