Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986
B 33
Námskeið
Ákveðni-þjálfun og
mannleg samskipti
fyrir þá sem vilja læra á markvissan hátt að vera
ákveðnari í framkomu, bæta samskipti sín við
aðra og auka sjálfstraust sitt.
í hópvinnu mun þátttakandi læra:
• Hverjir veikleikar og styrkleikar
eru í mannlegum samskiptum.
• Áhrifsjálfsmats hans áframkomu.
• Ákveðnari tjáningarmáta.
Leiðbeinandi:
Baldvin H. Steindórsson
sálfræðingur
Lengd: Sjö skipti frá kl. 18—20
Byrjar fimmtudag 11. september
Upplýsingaroginnritun virkadagafrákl. 11 — 12
í síma 622442 og í dag og á kvöldin í síma 671509
Baldvin H. Steindórsson
SÁLFRÆÐIÞJÓM USTA
Þessir hringdu . . .
Hvar eru
verðlaunin?
Guðmundur Garðar Brynjólfs-
son hringdi:
„Mig er, eins og Amari sem skrif-
aði í Velvakanda á sunnudaginn
var, farið að lengja eftir verðlauna-
peningi sem ég átti að fá fyrir
körfuhittni á Reylqavíkurmóti
bama í Hljómskálagarðinum 18.
ágúst.
Ég hef verið að bíða eftir að fá
peninginn sendan eða spumingu
Amars svarað."
Víða þarf
að dytta að
einhverju
J.H. skrifar:
„Eg bý á Akureyri og kann
vel við mig þar og mér þykir
vænt um að aðrir hugsa líka um
að fegra bæinn eins og ég geri.
í Morgunblaðinu fyrir nokkr-
um dögum var smágrein eftir
mann úr Reykjavík sem ræðir
um nauðsyn þess að fegra um-
hverfið og finnst mér það
þakkarvert. Ég vona bara að
þetta sé aðeins upphafið. Það
er margt sem þyrfti að minnast
á, fór þessi maður ekki eftir
göngugötunni? Er ekki eitthvað
þar sem þyrfti að laga? Það er
sjálfsagt víða sem þyrfti að
dytta að einhveiju.
Það væri gaman og án efa
til gagns ef rætt yrði meira um
þessi mál.“
Hagræðing í
stórmörkuðum
Ein óþolinmóð hringdi:
„Mig langar til að beina því til
þeirra sem reka stórmarkaði og
aðrar kjörbúðir þar sem er fleiri en
einn búðarkassi, að þeir hafi sér-
stakan kassa fyrir þá sem greiða
með reiðufé.
Þegar fólk er með ávísanahefti
eða greiðslukort er alskyns um-
stang í kringum það sem tefur fyrir
afgreiðslunni og væri mikil hagræð-
ing fyrir þá sem hyggjast greiða
með reiðufé að geta farið í sérstaka
röð þar sem afgreiðslan gengur
hraðar fyrir sig.
Svona aðgreining tíðkast víða
erlendis og hlýtur að flýta fyrir
afgreiðslu."
Þættirnir um
Fyrirmyndarföður
leiðinlegir
Jón hringdi:
„Mig langar til að bera fram
kvörtun til sjónvarpsins vegna þátt-
anna „Fyrirmyndarfaðir" sem
sýndir eru á laugardagskvöldum.
Það er fyrir neðan allar hellur
að bjóða íslensku þjóðinni upp á
þessa lágkúru viku eftir viku. Þess-
ir þættir eru fyrst og fremst gerðir
fyrir ameríska svertingja. Þeir eru
að mínu mati leiðinlegir, bamaleg-
ir, tilgerðarlegir og falskir og sýna
á engan hátt raunveruleg samskipti
fólks. Hvorki hvítra né svartra."
Skilríkja saknað
Gísli J. Sigurðsson hringdi og
sagðist hafa tapað brúnu seðlaveski
á Lækjartorgi föstudaginn 29.
ágúst. Honum þætti gott að fá aft-
ur skilríkin sem voru í veskinu. Ef
einhver hefúr veskið í fórum sínum
getur hann hringt í síma: 72549
eða sent skilríkin á það heimilisfang
sem á þeim er.
Þakkir til Jónu Hansen og sr.
Franks M. Halldórssonar
Að aflokinni sérstaklega ánægju- Þá viljum við og þakka fyrir ferð
legri Skotlandsferð í júní sl. viljum til ísrael með ykkur fyrir nokkrum
við færa Jónu Hansen og sr. Frank árum.
M. Halldórssyni bestu þakkir fyrir Guð blessi ykkur.
alúð og umhyggju sem þið sýnduð Flínborg og Sigurjón.
okkur ferðafélögunum.
Kvenúr fannst
Sigríður Guðmundsdóttir
hringdi og sagðist hafa fundið kven-
úr fyrir utan Osta- og smjörsöluna
við Snorrabraut þann 28. ágúst sl.
Sá sem kannast við að hafa týnt
úri getur haft samband í síma:
14987.
*
Okurteist
afgreiðslufólk
Þórður Kristjánsson hringdi:
„Um daginn var ég á ferð í Borg-
arfirði og kom þar að verslun við
Hvítárvelli. Þar stansaði ég til að
bjóða samferðafólki mínu upp á ís.
Þegar ég bað piltinn sem var að
afgreiða þama um aðstoð sagði
hann si svona: „Þið getið leitað
sjálf.“
Ég varð hálf hvumsa við, en lét
mig þó hafa það að kaupa ísinn úr
því að ég var búinn að bjóða fólkinu
upp á hressingu. Ég verð að segja
að svona framkoma er ekki beinlín-
is líkleg til að örva viðskiptin og
undarlegt að fólk sem sýnir svona
fádæma ókurteisi skuli ráðið í af-
greiðslustörf.
Það verður aldrei of brýnt fyrir
fólki í þjónustustörfum að það gæti
ávalt fyllstu kurteisi við viðskipta-
vini. Ég get ekki hugsað mér að
versla aftur á stað þar sem ég fæ
svona svör og get ekki ímyndað
mér að nokkur maður sækist eftir
því. Kurteisi og þjónustulund eru
undirstöðuatriði mannlegra sam-
skipta og forsenda þess að allir séu
ánægðir, bæði viðskiptavinir, af-
greiðslufólk og aðrir.“
Hvenær verður
myndin um
Guðlaug sýnd?
Sjómaður frá Vestmannaeyjum
hringdi:
„Okkur félögunum, nokkrum sjó-
mönnum frá Vestmannaeyjum,
leikur forvitni á að vita hvenær
heimildarkvikmyndin sem sjónvarp-
ið lét gera um hið frækilega sund
Guðlaugs Friðþórssonar til Vest-
mannaeyja verði sýnd opinberlega.
Heyrst hefur að í mjmdinni séu
mjög glæfraleg atriði og bíðum við
spenntir eftir því að fá að sjá mynd-
ina.
Myndin var tekin í fyrra haust,
bæði hér í Eyjum og uppi á landi
og hafa nokkrir Eyjamenn séð hana
og látið vel af.“
Fyrsti
skoladagur
Gleðin skín úr augunum
og ánægjan með skólatöskuna
og skólafötin leynir sér ekki.
Bjóðum sérstakt verð þessa fyrstu skóladaga.
3.500 kr. fyrir 6 myndir og eina stækkun
13x18 í sv/hv eða lit.
Upplýsingar í síma 681919.
Munið að panta jólamyndatökuna tímanlega.
gefurréttamynd
r/S4
( Jt
' v