Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 34

Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 34
m mkmmm, -tÆimmn. •*í A ■A BíóhöNin: Draugagangurinn helduráfram Hanna og systur hennar Lee og Holly. Frá vinstri: Mia Farrow, Barbara Hershey og Dianne Wiest. Regnboginn: Hanna og systur hennar Woody Allen stendur nú á hátindi ferils síns. Hver mynd hans á fætur annarri fær góða dóma gagnrýnenda og fólk er aftur farið að flykkjast á þær. Kvikmyndahúsin hór kepptust við að sýna myndir hans þar til kom að Stardust Memories áríð 1980. Hún þótti ekkert sérstök, fékk að minnsta kosti slappa aðsókn úti og það var nóg til að hún var ekki sýnd hér. Það sama var að segja um næstu mynd hans, A Midsumm- er Night's Sex Comedy frá 1982. íslenskir kvikmyndahúsagestir urðu af henni vegna þess að hún þótti ekki gróðavænleg. En með Zelig (1983) komst Hershey, Max Von Sydow, Allen aftur í sviðsljósið hér heima en þá höfðum við ekki séð mynd eftir hann síðan Manhattan var sýnd í Tónabíó. Á eftir Zelig kom Broadway Danny Rose, þá The Purple Rose of Cairo og núna er Hanna og systur hennar (Hanna and Her Sisters) vænt- anleg í Regnbogann en Allen lauk við hana á þessu ári. Vegur Allens hefur farið vax- andi með hverri nýrri mynd síðustu þrjú árin og er ekki ólík- legt að kvikmyndasagnfræð- ingar framtíðarinnar komist að þeirri niðurstöðu þegar þeir líta til baka á feril Woody Allens að það tímabil sem hann nú gengur í gegnum sé hans frjó- samasta, forvitnilegasta og vandaðasta sem kvikmynda- gerðarmanns til þessa. Hanna og systur hennar er 14. myndin sem Woody Allen skrifar handrit að og leikstýrir og í henni er fjöldi þekktra leik- ara: Michael Caine, Mia Farrow (fimmta myndin sem hún leikur í fyrir Woody Allen), Barbara Dianne Wiest, Carrie Fisher (Star Wars), Maureen O’Sulli- van (móðir Miu), Sam Waters- ton og auðvitað Woody Allen sjálfur. í kynningu með myndinni segir að hún komi inn á gamal- kunn viðfangsefni Allens eins og líf, dauða, ást, losta, fram- hjáhald, fjölskyldubönd, trúmál og listir. í stuttu máli segir myndin frá Hönnu (Mia), systrum hennar Lee (Hershey) og Holly (West), fjölskyldum þeirra og foreldr- um. Elliot (Caine) er maður Hönnu en hann er hræðilega skotinn í Lee og á í miklum erfiðleikum með að segja henni frá því, sérstaklega af því hann er giftur systur hennar. Lee er gift listamanninum Frederick (Sydow) og er sæmilega ánægð þar til Elliot fer á fjörurnar við hana. Holly er ógift og hálfgerð- ur vandræðagemlingur og Mickey (Allen) er fyrrverandi eiginmaður Hönnu en hann er sjúklega hræddur um að hann sé haldinn banvænum sjúk- dómi. Woody Allen í hlutverki Mickeys. FF I FIMI rVirM-yNDANNA Bíóhúsið: Að lifa og deyja í LA — nýjasta mynd Williams Friedkin Bandaríski leikstjórinn Will- iam Friedkin hefur gert enn eina mynd um löggur en nýjasta mynd hans, To Live and Die in LA (Að lifa og deyja í Los Ange- les), verður sýnd í Bíóhúsinu bráðlega. Hápunkturinn á ferli Friedkins var önnur löggumynd, The French Connection (Franska sambandið) frá 1972. Fyrir hana hlaut Friedkin Óskar- inn sem besti leikstjórinn það árið en Franska sambandið fákk verðlaun sem besta myndin. Síðan gerði hann The Exorcist (Særingarmaðurinn) en þekkt- asta mynd hans að þessu ritið að fyrri myndinni fyrir Spielberg og þeir hafa fengið sömu leik- ara og voru í henni til að fara með hlutverk fjölskýldumeðlima Freeling-fjölskyldunn- ar. Þau Jobeth Will- iams og Craig T. Nelson leika foreldr- ana Diane og Steve eins og áður og krakk- ana leika sem fyrr Heather O’Rourke og Oliver Robins. Julian Beck leikur Henry Kane, fulltrúa hins illa á jörðinni, en þetta var hans síðasta hlutverk því hann lést skömmu eftir tökur. Grais segir: „Þessarar myndar verður fyrst og fremst minnst vegna leiks Julians. Hann fær mann til að skjálfa.” Skömmu fyrir dauða sinn var Beck spurður að því hvort honum veittist erfitt að leika vonda menn. „Nei, alls ekki,” sagði hann. „Ég hef leikið marga vonda menn í leikhúsum. Vondir menn eru hluti af raunveruleikanum og það er í verkahring leikara í kvikmyndum og á sviði að túlka þá. Eða eins og einhver sagði: Það eru ekki til þeir mannlegu eigin- leikar sem ég þekki ekki.“ Lögreglumennirnir handsama sendftík peningafalsarans í mynd- inni Að lifa og deyja f LA. blómatímabili loknu er sjálfsagt Cruising með Al Pacino. Að lifa og deyja í LA er um lögreglumanninn Richard Chance (William L. Petersen). Hann vinnur hjá leyniþjónustunni og einn daginn finnst vinur hans og samstarfsmaöur myrtur eftir að hafa fundið aðsetur afkasta- mikils peningafalsara. Chance vill hefna vinar síns og leitar pen- ingafalsarans með eina ákveðna reglu til að fara eftir: þegar besti vinur þinn hefur verið drepinn, gilda engar reglur. Myndin er gerð eftir skáldsögu Poltergeist II sýnd á næstunni Draugar og djöfuls- púkar hafa ekki aldeil- is yfirgefiö hina ástkæru Freeling-fjöl- skyldu úr mynd Stevens Spielberg, Poltergeist. Rétt þeg- ar hún hélt að óhætt væri að fara aftur í rúmið kemur Polter- geist II: The Other Side (Draugagangur II: Hin hliðin), sem gerist fjórum árum seinna. Djöfulskapur- inn heldur áfram með tilheyrandi látum, öskrum og ópum, en myndin verður sýnd í Bíóhöllinni á næst- unni. „Þetta er ekki venjuleg framhalds- rnynd," segir annar handritshöfundurinn, Michael Grais, „held- ur er haldið áfram með sömu mynd það- an sem frá var horfið. Við höfum reynt að kafa nokkuö dýpra í mál er varða andatrú og dulhyggju í þessari mynd og ég held að okkur hafi tekist nokk- uð vel með hana.“ Grais og Mark Vict- or framleiða og skrifa handritið að Drauga- gangur II en Brian Gibson er leikstjóri og er þetta hans fyrsta mynd í fullri lengd. Þeir Grais og Victor skrifuðu einnig hand- Freeling-fjölskyldan: Martröðinni er ekki lokið. }

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.