Morgunblaðið - 07.09.1986, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986
B 35
Geralds Petievich en áður en bók
hans kom út sendi hann Friedkin
handritið að henni til yfirlestrar.
Hann var viss um að bók sín
væri sömu tegundar og myndin
Franska sambandið, sem hann
dáði mjög, og vonaði að hún
kveikti áhuga Friedkins. Leik-
stjórinn varð strax hrifinn af
sögunni og ákvaö að gera mynd
eftir henni.
Petievich segir: „í stuttu máli
sagt er myndin um tvær löggur
sem fá það á heilann að hafa
hendur í hári frægs glæpa-
manns. í leit sinni að honum
stíga þeir oft yfir velsæmismörk-
in sem skilja að glæpamenn og
löghlýðna borgara og verða í
rauninni hálfgildings glæpamenn
sjálfir. Og þeir verða að gjalda
fyrir syndir sínar."
Allir helstu leikarar í myndinni
eru með öllu ófrægiren þekktast-
ur er kannski Dean Stockwell
(Paris, Texas). Aðrir leikarar eru:
Willem Dafoe, sem leikur pen-
ingafalsarann, John Pankow,
sem leikur aðstoðarmann
Chance, Debra Feuer, sem leikur
ástkonu og hjálparkokk falsarans
og John Turturro leikur senditík
hans.
Flugan —
nýjasta mynd
Cronenbergs
Nýjasta mynd David Gronen-
bergs (The Dead Zone) heitir
Flugan (The Fly) og er um Seth
nokkurn Brundle (Jeff Goldblum),
sem fyrir ólukku (að sjálfsögðu)
breytist í flugu. Þannig er að
Brundle greyið er að fást við eitt-
hvert tæki sem hann hefur sjálfur
fundið upp og brýtur niður móli-
kúlhluta og sendir þvert yfir
tilraunastofuna þar sem hlutirnir
fá aftur sína upprunalegu mynd
i öðru tæki.
En hvað haldið þið að getist svo
einn daginn? Brundle hlammar sér
í tækið og bzzzz — það eltir hann
fluga. Allt fer af stað og út kemur
einskonar bræðingur af manni og
flugu.
Flugan er endurgerð á sam-
nefndri B-mynd frá árinu 1958 en
síðan þá hefur auðvitað förðunar-
og gervadeildinni fleygt fram og
mannfluga Cronenbergs þykir með
eindæmum ógeðsleg. Brundle
plokkar af sér eyrun og blæðir
mjólkurhvítum vökva „og ég vil
ekki einu sinni segja ykkur hvað
hann borðar", skrifar gagnrýnandi
í The New York Times og bætir
því við að skrýmslið í Alien líti út
eins og góðhjörtuð amma í saman-
buröi við mannfluguna.
Aumingja Jeff Goldblum (eftir-
minnilegur úr mynd John Landis,
Into the Night) þurfti á allri sinni
þolinmæði að halda til að sitja
kyrr í þær fimm til sex stundir sem
það tók að klína gerfinu á hann
og síðan að leika í því í upp undir
12 stundir á dag.
Og svo er líka ástarsaga í mynd-
inni því um það leyfi sem Brundle
breyttist í flugu kynntist hann ungri
blaöakonu sem ætlaði að skrifa
um tilraunir hans og þegar tímar
liða verður hún ólétt. En spurning-
in er hvort hún varð ólétt af
Brundle eða mannflugunni
| Brundle.
Skólaritvélar
og léttbyggð vél sem þolir auðveldlega hnjask
og ferðalög.
Olympia ritvélamar eru allt í senn
skóla-, ferða- og heimilisritvélar. Ódýrar og
fáanlegar í mörgum gerðum.
Carina áreiðanleg vél, búin margs
konar vinnslu sem aðeins er á stærri ritvélum.
Traveller de Luxe fyrirferðarlítil
Reporter rafritvel með leiðréttingarbún-
aði. Fisléttur ásláttur auk annarra kosta stórra
skrifstofuvéla þótt Reporter
sé bæði minni og ódýrari.
Ekiaran
Fleira þarf í dansinn
en fagra skóna
Hefur þú lengi ætlað að læra að
dansa en ekki látið verða af því? Pá er
þér óhætt að láta drauminn rætast því
HÝI DAriSSKÓLinn er rétti staðurinn
fyrir þig. Hvers vegna? í fyrsta lagi er
nÝI DAnSSKÓLinn nútímaskóli sem
stenst alþjóölegar kröfur. í öðru lagi
kappkostum við að sinna hverjum og
einum nemanda persónulega með sí-
vökulli leiðsögn, enda er fjöldi nem-
enda í tíma takmarkaður viö 26!
Kennarar skólans sækja reglulega
námskeið erlendis og skólinn hefur
hlotið viðurkenningu n.D.U. (samnor-
ræna danskennarasambandsins).
Vlö kennum barnadansa með leik-
rænni tjáningu, gömlu dansana, sam-
kvæmisdansa, jassdans, rokk og bugg
(tjútt í nýjum búningi).
Kennsla hefst 15. september í Ár-
múla 17, Reykjavík og á Linnetstíg 3,
Hafnarfirði.
Innritun daglega kl. 10—12 og
14 — 18 í síma 38830 og 52996.
Munið systkina- og fjölskylduaf-
sláttinn.
Takmarkadur nemendafjöldi
tryggir betri árangur.
NÝI DANZKÓLM
Ármúla 17, Reykjavík og Linnetstíg 3, Hafnarfirði
i
V
vis/snsdv