Morgunblaðið - 09.09.1986, Page 1
í'ti
-u
í>i:
IT jji
1 ifvj
I tn
JIC
j ffi
íUí
m
íslandsmótið 1. deild:
Guðmundur jafnaði
markamet Péturs
Sjá bls./6b og 7b
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
BLAÐ
Morgunblaðiö/Júlíus
Allir mættir og til í slaginn!
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu var á æfingu í gær á Laugar-
dalsvellinum og þar voru allir 15 leikmenn liðsins mættir. Góður
andi virtist í liðinu og sagöi Sigi Held að allt væri eins og það ætti
að vera, góður andi, gott veður og vonandi góður leikur framund-
an. Allir leikmenn tóku á af miklum krafti f gær og það var
greinilega mikill hugur í mönnum.
„Mér líst vel á þennan leik og við erum ekkert hræddir við Frakk-
ana þó svo þeir séu Evrópumeistarar. Þeir eru jafn margir og við og
því er ekkert að óttast,“ sagði Bjarni Sigurðsson markvörður liðsins
eftir æfinguna.
Byrjunarliðiö viröist verða þannig að Bjarni mun standa í markinu.
Ágúst Már, Gunnar Gíslason og Sævar Jónsson verða í vörninni og
þar verður Ágúst trúlega aftastur. Sigurður Jónsson verður hægra
megin á miðjunni og Atli Eðvaldsson vinstra megin og munu þeir
trúlega leika aftarlega og aðstoða vörnina eins og kostur er. Ásgeir
og Guðmundur Þorbjörnsson verða síðan á miðjunni og Ragnar
Margeirsson fyrir framan þá en í fremstu víglínu verða þeir Arnór
og Pétur.
Það var sem áður segir létt yfir strákunum á æfingunni í gær og
þá sáust margar fallegar sendingar og glæsileg skot. Sérstaklega
átti Ásgeir fallegt skot af um 20 metra færi. Boltinn small í þver-
slánni og inn án þess að Bjarni ætti möguleika á að verja enda
skotið firnafast. Vonandi að Ásgeir og félagar verði óhræddir við
að skjóta í leiknum á miðvikudaginn því mörkin koma víst ekki nema
skotið sé að marki.
Barnsley
vill fá
Sigurð
BARNSLEY tapaði fimmta leikn-
um í röð í 2. deild á laugardaginn
og er útlitið slæmt hjá félaginu.
Alan Clarke, framkvæmdastjóri
Barnsley, er á höttunum eftir nýj-
um leikmönnum, sem geta styrkt
liðið og hefur hann sérstaklega
áhuga á að fá Sigurð Jónsson,
en hann var lánaður hjá Barnsley
í fyrra.
Getraunir:
Enginn
með tólf
ENGINN hafði 12 rétta og aðeins
einn seðill kom fram með 11 rétt-
um í síðustu leikviku íslenskra
getrauria. 11 réttir gáfu kr.
665.615.
Sautján voru með 10 rétta og
fékk hver röð kr. 16.780 í sinn hlut.
Alls voru seldar 950 þúsund raðir
og er það mikil aukning frá síðustu
leikviku. Fram var söluhæsti aðil-
inn þessa vikuna.
11 réttir kom á miða frá Hellu
og voru sjö aðilar sem fylltu út
leikkerfi og fékk eina stúlkan í
hópnum að ráða föstu leikjunum.
Rétt röð var þessi:
X22-2X2-222-21X
Heimsmet
JORDANKA Donkova, Búlgariu,
setti heimsmet í 100 metra
grindahiaupi kvenna á Balkan-
leikum f Júgóslavíu á sunnudag-
inn. Tími hennar var 12,26
sekúndur.
Piltalandsliðið í handknattleik:
Strákarnir stóðu
sig vel í
ÍSLENSKA piltalandsliðið í hand-
knattleik tók þátt í alþjóðlegu
móti í Noregi um helgina. Þrjú lið
urðu efst og jöfn með 4 stig, en
íslenska liðið hafði lakasta
markahlutfallið og hafnaði því í
3. sæti.
ísland vann Noreg 19:18 í fyrsta
leiknum, tapaði síðan fyrir Vestur-
Þýskalandi 21:22 og vann loks
Frakkland 25:24.
Áður hefur verið greint frá leikn-
um við Noreg, en á móti Þýska-
landi léku strákarnir mjög vel í fyrri
hálfleik og höfðu yfir 12:10 í hálf-
leik. Á tímabili var forystan fjögur
mörk, en strákarnir gáfu eftir í lok-
in og töpuðu með einu marki.
Héðinn Gilsson skoraði 5 mörk i
leiknum, Konráð Ólafsson, Sigurð-
ur Sveinsson og Halldór Ingólfs-
son 4 mörk hver, Árni Friðleifsson
3 og Þorsteinn Guðjónsson eitt
mark.
Leikurinn við Frakka var mjög
harður. Frakkarnir voru grimmir
og ætluðu sér greiniiega að vinna,
Noregi
en íslenska liðið gaf ekkert eftir
og var alltaf eitt til þrjú mörk yfir
i leiknum. Halldór Ingólfsson skor-
aði 7 mörk, Héðinn Gilsson 5,
Sigurður Sveinsson 4, Árni Frið-
leifsson 3, Konráð Ólafsson og
GuðmundurGuðmundsson 2 hvor,
og Guðmundur Pálmason og Þor-
steinn Guðjónsson sitt markið
hvor.
Noregur, Þýskaland og ísland
fengu öll 4 stig, en markatala
Norðmanna var best. Að sögn
Friðriks Guðmundssonar, farar-
stjóra, tókst ferðin mjög vel sem
æfingaferð, en aðbúnaöur var
slæmur og meiðsli settu strik í
reikninginn. Allir í hópnum fengu
að spila og komu markverðirnir
mjög vel út og Sigurður Sveinsson
átti jafnbestu leikina.
Æfingar halda áfram hjá liðinu
einu sinni í viku í vetur, en líklegt
er að þýska liðið komi til íslands
í febrúar og Norðurlandamótið
verður haldið hér á landi næsta
vor.
9 Þegar frönsku landsliðsmennirnir komu á hótel Sögu í gær beið eftir þeim ungur drengur, Gú-
staf Teitsson að nafni. Gústaf sem er 13 ára safnar eiginhandaráritunum og á meðal annars
eiginhandaráritanir allra leikmanna Liverpool, Aberdeen, skoska landsliðsins, Monaco og nú franska
landsliðsins. Eiginhandaráritunum heldur hann til haga í fallegri bók og hér sést hann með einni
skærustu stjörnu Frakka, Jean Tigana.
Morgunblaðiö/Július