Morgunblaðið - 09.09.1986, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
B 5
1. deild kvenna:
Lokahátíð
FÉLAG íslenskra knattspyrnukvenna hélt lokahátíð sína í veitingahús-
inu Hollywood á sunnudaginn. Þar var útnefnd besti leikmaður íslands-
mótsins og sá efnilegsti. Kristín Arnþórsdóttir, Val, sem jafnframt var
markahæsti leikmaður 1. deildar var kjörinn besti leikmaðurinn og
Halldóra Gylfadóttir, ÍA, sú efnilegasta.
Hátíðin hófst kl. 19.00 og komu
Valsstúlkur síðastar til veislu í rútu
frá Hlíðarenda og tóku leikmenn
annarra liða á móti þeim fyrir utan
Hollywood. Einng voru þar saman-
komnir nokkrir leikmenn 1. deildar
karla og veittu þeir gestum for-
drykk. Síðan var borðhald og
skemmtiatriði. Heiðursgestir voru
Svanfríður Guðjónsdóttir, Albert
Guðmundsson og Hannes Þ. Sig-
urðsson. Hátiðin fór vel fram og
mikil stemmning með gesta.
„Átti alveg eins von á
því að hljóta titilinn“
— sagði Kristín Arnþórsdóttir besti leikmaðurinn
„ÉG átti alveg eins von á að
hljóta þennan titil. Mér hefur
gengið vel í sumar og eins Vals-
liðinu í heild,“ sagði Kristín
Arnþórsdóttir, Val, eftir að hún
varð kjörinn besti leikmaður ís-
landsmótsins í kvennaknatt-
spyrnu í lokahófi 1. deildar-
kvenna sem þær héldu í
Hollywood á sunnudagskvöld.
„Þetta er búið að vera frábært
sumar hjá okkur Valsstelpunum.
Unnið íslandsmeistaratitilinn og
bikarinn. Það er mikil breidd hjá
okkur og samstaðan góð. Allar
þurfa að berjast fyrir stöðu sinni.
Það eru margar góöar stelpur
sem eru fyrir utan og bíða eftir
tækifæri og var oft erfitt fyrir
Róbert, þjálfara, að velja byrjun-
arliðið, “ sagði Kristín.
Kristín er vel að þessu kjöri
komin. Hún var langmarkahæst
í 1. deild , skoraði alls 21 mark.
Einnig gerði hún 7 mörk í bikar-
keppninni. Hún hefur leikið
knattspyrnu með Val í 7 ár eða
frá því hún var 14 ára. Hún leikur
einnig með Val í meistaraflokki
kvenna í handknattleik. Það má
því segja að allt hennar Iff snúist
um íþróttir.
-Hefur þú nokkur tfma aflögu
fyrir utan íþróttirnar?
„já já, það má alltaf finna sér
tíma. Annars er ekki mikið aflögu
fyrir utan skólann. Ég fer í
íþróttaskólann að Luagarvatni í
vetur og er þá hægt að sameina
skólann og áhugamálið. Reikna
með að leika handbolta í vetur
með Val og siðan verður knatt-
spyrnan númer eitt næsta.
sumar." - Kristín hefur einnig
verið fastamaður í íslenska
kvennalandsliðinu í knatt-
spyrnu. Hvernig líst henni á
framtíð kvennaknattspyrnunnar
á íslandi?
„Það eru margar efnilegar
stelpur að koma upp núna og
það er framför í kvennaboltanum
að mínu mati. Þó er allt of lítið
gert fyrir landsliðið og vantar þar
meiri samæfingu og tíma. Eins
og þetta hefur verið hjá lands-
liðsnefndinni, þá hefur verið
kallað saman landsliö tveimur
vikum fyrir leik og er það allt of
seint. Það þarf að byrja miklu
fyrr og ef það er gert þá er hægt
að búast við árangri.“
-Nú hefur þú verið dugleg við
að skora mörk, hver er galdur-
inn við það?
„Það er ekki gott að segja. En
ég hef skorar flest mín mörk eft-
ir stungusendingar innfyrir. Ætli
ég sé bara ekki fljótari en hinar,
sagði Kristín að lokum.“
MorgunblaöiÓ/Þorkell
• Halldóra Gylfadóttir til vinstri og Kristfn Arnþórsdóttir gátu svo
sannarlega brosað sfnu breiðasta eftir útnefninguna í Hollywood á
sunnudagskvöldið.
„Þetta var æðislegt“
• Kristfn Arnþórsdóttir hefur borið höfuð og herðar yfir stallsystur
sínar í knattspyrnunni í sumar. Hún var markahæst f 1. deild með
21 mark. Hér er hún í landsleik þar sem hún hefur átt fast sæti.
Fullt hús hjá Val
ÁRANGUR Vals í 1. deild kvenna
var glæsilegur á þessu keppn-
istfmabili sem nú er nýiokið.
Þær unnu alla sína leiki f deild-
inni og kórónuðu sfðan keppn-
istímabilið með því að vinna
bikarkeppnina. Kristín Arnþórs-
dóttir Val varð markahæst með
21 mark. Breiðablik varð f öðru
sæti og Akranes í þriðja. Hauk-
ar falla í 2. deild og upp kemur
Stjarnan úr Garðabæ.
— sagði Halldóra Gylfadóttir efni-
legasti leikmaðurinn
„Þetta var æðislegt. Ég átti alls
ekki von á þessu, “ sagði Halld-
óra Gylfadóttir, ÍA, sem kosinn
var efnilegasti leikmaður 1. deild-
arkvenna. Halldóra sem er 18 ára
lék einnig með íslenska kvenna-
landsliðinu í sumar.
Halldóra er uppalin í Bolung-
arvík og þar spilaöi hún með
stákunum í 4. og 5. flokki og lék
með þeim í íslandsmóti og Vest-
fjarðamóti. Flutti síðan suður og
lék 14 ára gömul með 1. deildarliði
UBK í Kópavogi og varð með þeim
íslandsmeistari og bikarmeistari
1982. Hún tók sér frí frá knatt-
spyrnunni 1983 en síðan flutti hún
upp á Akranes og varð íslands-
meistari með þeim 1984 og 1985.
Hún veröur í Fjölbrauarskóla Vest-
urlands á Akranesi í vetur og ætlar
að Ijúka þaöan stúdentsprófi.
-Er mikill áhugi á kvennaknatt-
spyrnu á Akranesi?
„Já, það snýst allt um knatt-
spyrnu á Skaganum. Stjórnin er
góð og það er stutt vel viö bakið
á okkur. í meistarflokki mæta um
20 stelpur en í yngri flokkunum
er mjög mikið af stelpum sem eiga
eftir að ná langt. Kvennaboltinn
er á uppleið. Stelpurnar hafa oröið
miklu meira auga fyrir spili og
boltatæknin er betri en áður."
-Ert þú ánægð með árangurinn
í sumar?
„Já, við uröum í 3. sæti í íslands-
• Fulltrúar úr 1. deild karla tóku á móti stúikunum þegar þær mættu til lokahófsins.
mótinu og erum sáttar við það
miðaö við endurnýunina í liðinu.
Það voru átta stúlkur sem voru í
liðinu i fyrra sem hættu, þannig
að þetta lofar góðu. Viö ætlum aö
æfa á fullu í vetur og það er stefnt
að því að fara á æfingarmót í
Þýskalandi í janúar. Við stefnum
svo á íslandsmeistaratitilinn
næsta sumar".
Leiftur sigurvegari
í 3. deild karla
— eftir að hafa unnið ÍR-inga 3:2 á laugardaginn
LEIFTUR frá Ólafsfirði sigraði á
laugardaginn í 3.deildinni — liðið
bar sigurorð af ÍR í úrslitaleik
deildarinar á aðalleikvanginum á
Akureyri, 3:2, eftir að IR hafði
verið yfir, 2:0, í leikhléi. Bæði lið-
in leika í 2. deild að ári.
Það var Halldór Halldórsson
sem kom ÍR yfir snemma leiks eft-
ir að Leiftur hafði sótt mun meira.
Markið kom því mjög gegn gangi
leiksins. Páll Rafnsson, marka-
skorarinn mikli hjá ÍR, bætti öðru
marki við eftir hlé. Útlitið var því
ekki bjart hjá Ólafsfirðingunum —
en þeir sýndu og sönnuðu að þeir
gefast aldrei upp. Helgi Jóhanns-
son minnkaði muninn snemma í
síðari hálfleik og Hafsteinn Jakobs-
son jafnaði leikinn úr vítaspyrnu
eftir að Óskari þjálfara hafði verið
brugðið inni í teig. Það voru svo
ekki nema tvær mínútur eftir af
leiknum er Óskar Ingimundarson
skoraði sigurmark Leifturs af
stuttu færi. Það var vel við hæfi
að þjáifarinn ræki smiðshöggið á
góðan árangur liðsins í sumar —
með þvi að skora markið sem
tryggði því sigur í deildinni.
Fögnuður fjölmargra Ólafsfirð-
inga, sem komu til Akureyrar á
leikinn, var gífurlegur þegar Bragi
Bergmann dómari flautaði til leiks-
loka. Ekki fögnuðu leikmenn minna
og fékk Óskar þjálfari „flugferð"
mitt í fagnaðarlátunum er félagar
hans „tolleruðu" hann.
Leikurinn var fjörugur. Leifur
sótti heldur meira í fyrri hálfleikn-
um þrátt fyrir að ÍR-ingar næðu
tveggja marka forystu. Spil ÍR-inga
var þó heldur öruggara, en dæmið
snerist síðan við í síðari hálfleikn-
um. Þá voru Leiftursmenn mun
ákveðnari og uppskáru eftir því.
ÍR-ingar voru ekki nægilega
ákveönir í síðari hálfleiknum og því
fór sem fór. Er upp var staðið var
sigur Leifturs sanngjarn. Þeir
bræður Hafsteinn og Sigurbjörn
Morgunblaðið/Skapti.
• Guðmundur Garðarsson, fyrirliði Leifturs, hampar 3. deildar bik-
arnum.
Jakobssyni, Guðmundur Garðars-
son fyrirliði og Óskar þjálfari voru
bestu menn liðsins en hjá ÍR voru
flestir góðir í fyrri hálfleiknum en
döluðu í þeim síðari.
-SH.
Afturelding
sigraði í 4. deild
AFTURELDING úr Mosfellssveit
sigraði í 4. deild er þeir unnu
Sindra frá Hornafirði, 3:1, i úr-
slitaleik á Valbjarnarvelli á
laugardaginn og leika í fyrsta sinn
í sögu félagsins í 3. deild.
Elvar Grétarsson skoraði fyrst
fyrir Sindra á fyrstu mínútum leiks-
ins. Afturelding efldist við mótlæ-
tið og skoruöu þrjú mörk fyrir
leikhlé. Mörk þeirra gerðu Óskar
Þ.Óskarsson, Gísli Bjarnason og
Stefán Hreiðarsson.
Seinni hálfleikurinn var jafnari
enn sá fyrri en þó átti Afturelding
hættuiegri marktækifæri. Besta
færið fékk Lárus Jónsson er hann
átti skot í stöng af stuttu færi.
Leikurinn var mjög grófur og
hart barist. Rikard Ö. Jónsson og
Gísli Bjarnason voru bestir hjá Aft-
ureldingu og hjá Sindra bar mest
á Ásgeiri Gunnarssyni og Her-
manni Bragsyni.
Þessi lið leika bæði í 3. deild á
næsta ári og koma örugglega til
með að standa sig vel þar. Ármann
og Leiknir falla í 4. deild.
• Frá úrslitalelk Aftureldlngar og Sindra i 4. deild.