Morgunblaðið - 14.09.1986, Page 7

Morgunblaðið - 14.09.1986, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1986 C 7 órs Laxness fa^nað í Stokkhólmi 1956. Prá vinstri: fafræðingur, Þorunn Björnsdóttir, Peter Hallberg, iir Nordal, Ólöf Nordal, Kristín Hallberg, Jón Helga- itdur Laxness og Halldór Laxness. fornsögurnar fara eftir annarri reglu en fróðleiks- og skemmtibækur gefn- ar út núna. Hann var því í höfuðatrið- um ekki sammála því að gefa út fornsögurnar á „Morgunblaðs“máli sem þá var kallað. Sjálfur varð hann að standa vörð um sína útgáfu. Hann tók ekki nýju stafsetninguna á íslend- ingasögunum illa upp, því hans útgáfa var lærð útgáfa og ekki fyrir alla.“ „ Varstu ánægður með það sem Sigurður skrífaði um þín verk?“ „Ég var alltaf ánægður með það sem Sigurður sagði um bækur. Hann var mikill viskubrunnur. Þegar Vef- arinn kom út, þá var það slíkt kollrak að fólk tók sér til höfuðs, nema Jón Helgason og Sigurður Nordal. Krist- jáni Albertssyni þótti það líka ein besta bók sem hann hafði lesið. Þess- ir jöfrar tóku því vel sem sæmilega var gert, en drógu fjöður yfir það sem var illa gert og fyrirgáfu það.“ „Hverjar voru skoðanir Sigurð- ar á Gerplu ?“ „Einhverntíma í Kaupmannahöfn las ég upp úr Gerplu fyrir Sigurð og SIGURÐUR NORDAL ALDARMINNING' Ólöfu, en þau hjón voru ekki hrifin af því. Ólöf var merkileg kona á allan hátt. Sigurði fannst óþarfí að vera að semja Gerplu, en mig langaði að hann léti það gott heita. Ég kom reyndar oft til hans í Kaupmanna- höfn þegar hann var sendiherra. Hann varð ekki uppnæmur, því síður að hann ryki upp á nef sér eins og sumir smákallar heima. Hann sá aldr- ei nauðsyn á þessu sem von var, en sá sem stóð að baki mér í blíðu og stríðu var reyndar Jón Helgason. Gerpla, sem er 20. aldar fornsaga, hvarf af markaðnum á stuttum tíma. Brátt var hún gerð að skólabók í unglingaskólum. Sigurði hefur sjálf- sagt ekki líkað Gerj)la; mér líkar hún ekki heldur. En við gerð hennar fékk ég tilfinningu fyrir íslenskri tungu á ýmsum stigum." „Af hveiju heldurðu áð Sigurð- ur hafi hætt að yrkja?“ „Sigurður Nordal gegndi mörgum opinberum skyldum og embættum auk ken'narastarfs við háskóla og það er ekki hollt fyrir ljóðskáld. Betra að vera á lausum kjala og fijálsum flæk- ingi ef maður vill vera ljóðskáld; en þó einkum og sérílagi lenda í allskon- ar sálarkreppum, helst æ ofaní æ. Það tilheyrir því fagi. Sigurður var allur í lærdóminum ef hann átti lausa stund. Ég skil það. Það er óttalegt dundur að setja saman kvæði. Maður má ekki hafa neinar áhyggjur: og maður verður líklega helst að drekka. Ég hef víst sjálfur farið mikils á mis í því efni.“ „Hvernig kom Sigurður þér fyr- ir sjónir?“ „Hann var enn meiri galgopi en ég í aðra röndina. Það var afar gaman að heyra hann lýsa persónu sem hefði átt heima í sorglegum skrípaleik. Hann hafði gaman af því að útmála fyndnar kröggur Péturs og Páls. Hann hafði á valdi sínu sérstaka hæðni gagnvart miinnum sem voru miklir í lofti. Hann var aldrei umtals- illur um menn né málefni, en átti ágæta fyndni í fórum sínum sem maður hlær kannski að enn þann dag í dag: sagði þó skringisögu aðeins í þröngum hópi. Hann hafði afar glöggt sálfræðilegt auga fyrir fólki og hljóp aldrei útundan sér í mati á hlutum. Vegna aldursmunar vorum við ekki nánir vinir, en við vorum alltaf mátar. Og þrátt fyrir að upp kæmu hlutir milli okkar sem hægt var að deila um, voru þau skoðanaskipti ekki svo mikilsverð að við nenntum að rekast í því að koma mismunandi sjónarmiðum undir einn hatt. Hann hafði lundarlag, gáfur, skóla og upp- eldi sem tilheyrir andlcgri hástétt: ég bar hann aldrei saman við neinn. Æskuverk hans voru ákaflega tiifr- andi lestur, og gefið mál að hann hafði sterka skáldlega æð. Einu sinni spurði ég hann í þá átt hvort Dísa af Skaganum væri huldukona eða mennsk. Þar voru þær ráðgátur sem ekki var búist við lausn; og hefði mér þótt miður ef hann hefði gert tilhlaup til svars." „Hvernig voru áhrif Fornra ásta á önnur ung skáld?“ „Fornar ástir höfðu áhrif á unga menntakynslóð sem er sérstæð. Höf- undurinn kemur inní bókmenntirnar sem einhverskonar huldumaður. Hann bregður einkennilegu ljósi yfir huldukenndar i>ersónur og mýtur sem aðeins skáld geta fundið upp. Það er hægt að vera verkmaður í hjáverk- um; cn ekki skáld. Um hæfileika Sigurðar Nordal sem skálds efast enginn maður; en hann lagði hiifuð- áherslu á að styrkja menningarþátt- inn í þjóðskipulagi hins unga íslands okkar daga. Og í því samhengi er mynd hans björt og nafn hans vegur þungt." Ég man að ég las aðallega eftir Jón Trausta, fyrst söguna um Sigurberg sleggju, síðan seinna um þorradæg- ur, kaflann þegar Ólafur er dáinn og skilur bömin ein eftir og þau breyta sænginni í ævintýraheim. Sigurður valdi margt skemmtilegt. Hann las t.d. kvæði Gunnare Pálssonar vinar síns um Eggert Ólafsson og sagði líka eitthvað af dauða Eggerts og hvað þjóðin hafði fundið þá til. Hann las einu sinni ýmsa kafla um sóldýrk- un Islendinga, hvemig sólþrá þeirra birtist í bókmenntunum. Við kynntumst síðan mjög fljótt. Ég hitti Nordal hjá Páli Isólfssyni. Svo tókum við upp kunningsskap. Hann fer að vilja að ég heilsi upp á sig. Við fómm saman í gönguferðir og röbbuðum um allt mögulegt. Svo ákváðum við eina vomótt árið 1926, heima hjá mér, að stofna tímarit sam- an. Nordal stakk upp á þessu og við skrifuðum strax niður þá sem við vildum hafa með. Þetta vom allt góðir vinir og kunningjar Sigurðar. Nordal hlakkaði mikið til og var vel upplagður. Hann vildi hafa klúbb í kringum þetta. Við leigðum herbergi í Landsbankanum, þá var einnþá eitt- hvað húsnæði sem var leigt þar út. Við létum smíða stærsta borð á ís- landi og sátum þar síðan á einhvers konar ráðuneytisfundi. Það vom miklir kjaftafundir. Við ræddum jafn- óðum allt efni sem ritinu barst og einnig okkar eigið efni, og í sam- bandi við það margt annað. Við hittumst ekki reglubundið en að minnsta kosti hálfsmánaðarlega. Þetta vom mjög skemmtilegir og fjör- ugir fundir. Við höfðum svo allir lykil Á þessari mynd sjást Kristján Eldjárn þá- verandi þjódminja- vörður, Olafur Noregskonungur, Ás geir Asgeirsson for- seti og Sigurður Nordal þegar Noregs- konungur heimsótti Þjóðminjasafnið 1. júní 1961. að herberginu og höfðum þar mikið af útlendum blöðum. Þar gátum við síðan setið, unnið og iesið. Vökubræð- ur lögðu misjafnlega mikið efni til ritsins en Sigurður skrifaði geysimik- ið. Ágúst Bjamason stjórnaði fjár- málunum og hafði með höndum útgáfustjórnina en að öðm leyti stjórnuðum við saman á fundi öllu því sem máli skipti." „Heldurðu að Vaka hafi haft mikil áhrif?“ „Tímaritið þótti gott og var tölu- vert útbreitt en um áhrif þess er erfitt að segja. Engri ákveðinni stefnu var fylgt, enda margir menn og með ólíkar skoðanir sem lögðu þar til efni. En það var áreiðanlega vel metið, því vel tekið og ekkert því til fyrirstöðu að það gæti borið sig, þegar þeir misstu áhugann. Árið 1929 skrifaði Nordal mér þegar ég var kominn til Suðurlanda og sagði mér að þeir ætluðu að fara að gera annað og þeir sæu fram á að þeir mundu lítið leggja fram af efni sjálf- ir. Þeim fannst óviðkunnanlegt að gefa það út með mestmegnis af að- fluttu efni. Hann stakk upp á því að ég fengi tímaritið og ætti það, og sagðist ætla að leggja það til. En svo kom skömmu síðar annað bréf, þar SJÁBLS. 8.C

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.