Morgunblaðið - 07.10.1986, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1986
LEIÐTOGAFUNDURIIMN í REYKJAVÍK
Tvö rússnesk skip á leið til íslands:
Gorbachev væntan-
lega um borð í Baltiku
Rússar óska eftir að starfsemi við
höfnina, þar sem skipin munu liggja
falli niður
um helgina, auk þess sem reynt
yrði, samkvæmt þeirra óskum, að
takmarka mjög umferð um svæðið.
Sovétmenn óskuðu eftir því að
umferð um höfnina yrði ekki meiri,
en nauðsynlegt væri, sérstaklega
fundardagana," sagði Gunnar.
Sovéskir öryggisverðir hafa sýnt
öryggisráðstöfunum umhverfis
höfnina miklu meiri áhuga en í
nágrenni við Hótel Sögu og þykir
það enn benda til þess, að Gorbac-
hev hafi aðsetur þar.
TVÖ sovésk skip, Georg Ots og
Baltika eru á leið hingað til lands
og er talið líklegast að Gorbac-
hev búi um borð í því síðar-
nefnda, á meðan hann dvelur hér
á landi.
Nú er verið að dýpka höfnina við
Ægisgarð, þar sem sovésku skipin
eiga að liggja, auk þess sem verið
er að jafna jarðveg og útbúa bfla-
stæði. Þá þarf að flytja skip úr
höfninni, svo sem hvalbátana.
Gunnar B. Guðmundsson, hafti-
arstjóri, var í gær spiirður hverjar
óskir Sovétmenn hefðu haft fram
að færa, vegna skipanna. „Sovét-
menn hafa óskað eftir því, að
starfsemi við Ægisgarð á vegum
Reykjavíkur og hafnarinnar, fari
ekki fram á meðan á fundinum
stendur og þeir óska jafnvel eftir
því að hún liggi einnig niðri á föstu-
dag,“ sagði Gunnar. Haftiarstjóri
sagði, að hann hefði heyrt látið að
því liggja að Gorbachev myndi búa
á Baltiku, en hann hefði ekki feng-
ið það staðfest.
Gunnar sagði, að yfirvöld hefðu
óskað eftir því við hafnarstjóm, að
farið yrði að óskum Sovétmann-
anna, og því yrði ekki um neina
starfsemi að ræða við Ægisgarð
Unnið er af kappi við
framkvæmdir við
Ægisgarð. Nauðsyn-
legt reyndist að dýpka
höfnina við Ægisgarð,
svo að Baltika og
Georg Ots, sovésku
skipin, sem eru vænt-
anleg, geti lagst að.
Þá eru vinnuvélar að
slétta jarðveginn við
Ægisgarð, og und-
irbúa bílastæði, sem
verða væntanlega not-
uð af sovésku sendi-
nefndinni og
fréttamönnum.
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Raisa Gorbacheva
Eiginkonur leiðtoga risaveldannar
Raisa Gorbachev
kemur til Islands
Nancy Reagan kemur ekki
ÁKVEÐIÐ var í fyrradag að Raisa Gorbachev kæmi hingað til
lands í fylgd með eiginmanni sinum. Ekki hefur verið ákveðið
hver dagskrá Raisa verður, en þegar útlínur hennar liggja fyr-
ir, verða þær Iagðar fyrir frú Gorbachev til samþykktar.
Talsmaður Hvíta hússins
greindi frá því i gær að Nancy
Reagan, eiginkona Bandaríkjafor-
seta, yrði ekki með forsetanum í
íslandsförinni.
Bandarískir blaðamenn, sem
her eru staddir, sögðu í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins í
gær, að talsverðrar óánægju gætti
meðal ráðamanna í Washington
með þá ákvörðun að eiginkona
Gorbachevs yrði með í förinni til
íslands. í fyrsta lagi hafí þeim
borist fregnin seint á sunnudags-
kvöldi, frá íslandi, og í öðru lagi,
hafi ávallt verið um það rætt, að
Reykjavíkurfundurinn yrði vinnu-
fundur, og því ekki ástæða til
þess að eiginkonumar væru með
í förinni.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í gær,
að hann hefði orðið var við mis-
skilning vestan hafs vegna komu
frú Gorbachevs hingað til lands.
Hann sagði að ýmsir teldu, að
íslendingar hefðu boðið frú
Gorbachev hingað. „Þetta er al-
gjör misskilningur því það var
bara haft samband við mig kl.
17 á sunnudag og mér greint frá
því að frúin hefði áhuga á að
koma hingað," sagði Steingrímur.
„Hún er að sjálfsögðu velkomin,"
sagði Steingrímur, „og það er
Nancy Reagan einnig."
Hús við Höf ða
tæmd o g vöktuð
Götur í nágrenninu og nærri dvalarstöð-
um leiðtoganna verða einnig lokaðar
ÖLL húsin umhverfís Höfða, fundarstað leiðtoganna, verða að
öllum líkindum tæmd og öryggisvörðum komið þar fyrir, sam-
kvæmt upplýsingum Steingríms Hermannssonar forsætisráð-
herra. Hann sagði jafnframt að umferðaræðum í kringum Höfða,
og öðrum byggingum þar sem leiðtogarnir kæmu til með að
dvelja yrði lokað.
„Það bendir allt til þess að
húsin umhverfís Höfða verði
tæmd, og umferðaræðum þar í
kring lokað," sagði forsætisráð-
herra í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins. Hann kvaðst
ekki telja mikla örðugleika a
þessu, þar sem fundurinn yrði um
helgi, og hér væri svo til eingöngu
um skrifstofuhúsnæði að ræða,
auk þess sem um helmingur þess-
ara húsa væri í eigu rikisins.
Sovéskir læknar og öryggis-
verðir fóru i gær í fylgd Olafs
ólafssonar landlæknis i Borg-
arspitalann og kynntu sér
staðhætti og þá þjónustu sem
þar er að fá. Auk þess skoðaði
, sovéski læknirinn, sem fór fyr-
ir Sovétmönnunum neyðar-
bílinn, og tæki hans og tól.
Forsætisráðherra taldi fullvíst að
fólk yrði samvinnuþýtt í þessu
eftii, enda hefði svo verið á öllum
sviðum.
Forsætisráðherra sagði, að ör-
yggisverðir yrðu í húsunum
umhverfís Höfða og uppi á þaki
þeirra. Hann sagði, að götum yrði
einnig lokað í nágrenni þeirra
staða þar sem leiðtogamir hefðu
aðsetur sín. Ljóst væri að Reagan
myndi dvelja í bandaríska sendi-
ráðinu. Steingrímur sagðist gera
sér grein fyrir þvf að íbúar í ná-
grenni bandaríska sendiráðsins
yrðu fyrir einhveijum óþægind-
um, vegna lokana, en nú væri
verið að reyna að fínna lausn á
því, svo sem með útgáfu sérstakra
íbúapassa.
Eins og annars staðar kemur
fram er nú talið, að Gorbachev
búi um borð í skipinu Baltiku í
Reykjavíkurhöfn.