Morgunblaðið - 07.10.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1986
33
Iceland strikes goid
By Julian Uharwood in Reykjavik
mHF.RK is total amfusio0Jll.theJglaa.dk cagital
Greinin úr The Daily Telegraph.
The Daily Telegraph:
Gullæði á íslandi
ísland, íslenska þjéðin og aðstæður allar hér á landi hafa verið mik-
ið til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum að undanförnu, vegna
fundar Ronald Reagan, Bandaríkjaforseta og Mikhail Gorbachev,
Sovétleiðtoga, í Reykjavik um næstu helgi. Umfjöllun þessi hefur
yfirleitt verið jákvæð, en Julian Isherwood, fréttaritari breska blaðs-
ins, The Daily Telegraph , dregur upp heldur dökka mynd af
ástandinu hér og fégræðgi ísiendinga í forsíðufrétt er birtist i blað-
mu sl. laugardag. Fer hún hér á
Fyrirsögnin er „Gull finnst á ís-
landi í ringulreið leiðtogafundarins".
„Algjör ringulreið ríkir í Reykjavík,
höfuðborg ísiands, þar sem ákvörðun
ríkisstjómarinnar um að hýsa fund
Reagan og Gorbachev, virðist hafa
verið tekin án þess að tekið væri til-
lit til þess, að hina litlu borg skortir
allar aðstæður og búnað til að halda
slíkan fund. Nú þegar von er á a.m.k.
3000 embættis-, leyniþjónustu-,
biaða- og tæknimönnum næstu daga
til þess að undirbúa leiðtogafundinn,
minnir borgin mest á gullgrafarbæ,
þar sem skortur er á fjarskiptum og
húsnæði, verðlag stígur upp úr öllu
valdi og gripið er til klúðurslegra
lausna á vandanum.
Framtakssamir borgarar í þessari
89.000 manna borg virðast hafa
ákveðið að bæta slæma stöðu ríkis-
fjármáia með því að selja hæstbjóð-
anda, allt sem falt er.
Til dæmis var húskofi fyrir utan
borgina leigður út, án nokkurs búnað-
ar, fyrir 2.000 dollara (um 80.000
ísl.kr.) á sólarhring. Hótel og gisti-
heimili hafa hækkað verðskrár sínar
um 20-250% og flestir veitingastaðir
flarlægðu matseðla með föstu verði
á, þegar eftir að tilkynningin um
fundinn barst og hafa nú í staðinn
lista með „sveigjanlegu" verði.
eftir í lauslegri þýðingu.
Ríkisstjóm iandsins og stjómar-
andstaða gerðu mjög sérkennilegt
samkomulag sem veitti Hermanns-
syni, forsætisráðherra, sérstakt vald
til þess, að rýma fjögur helstu hótel
borgarinnar svo hægt væri að fá
gistirými fyrir 400 manna fylgdarliði
leiðtoganna beggja. Eftir leiðtoga-
fundinn verða lögin síðan lögð fyrir
hið 900 ára gamla Aiþingi, elsta þing
í heimi. Helsta hótel borgarinnar,
Hótel Holt sagði þó að það myndi
ekki reka út sína gesti, „Við emm
einkafyrirtæki", sagði taismaður
þess, „Ríkisstjómin getur fundið sér
herbergi annars staðar.
Það vakti almenna kátínu, þegar
hafist var handa við þjálfun 15 manna
liðs, eina innlenda hers eyjarinnar,
sem ætlað er að verja ísland fyrir
hryðjuverkamönnum. ísland mun
engu að síður líkjast hemumdu ríki
í næstu viku, er hinir 4.700 banda-
rísku hermenn á Keflavíkurflugvelli
og ótiltekinn fyöldi sovéskra og
bandarískra öryggisvarða taka við
gæslu Ieiðtoganna tveggja.
Fjarskipti eru einnig mikið vanda-
mál og þar sem Reykjavík er óvön
álagi þvf sem alheimsfjölmiðlum
fyigja, fer nú fram æðisgengin tilraun
til að flytja inn auka tæknibúnað“.
Eduard Shevardnadze
Gennady Gerasimov
frekari ákvörðun um hann. í flest-
um opinberum yfirlýsingum frá
Kreml er lögð áhersla á, að rætt
verði um geimvamaáætlunina
bandarísku og bann við kjamorku-
vopnatilraunum en Bandaríkja-
menn vilja hins vegar lítt undir það
taka.
Sovéskir embættismenn hafa-
einnig lagt áherslu á, að betri horfur
væm nú á samkomulagi um meðal-
drægu eldflaugamar í Evrópu.
Shevardnadze, utanríkisráðherra,
Anatolv Dobrynin
Viktor Karpov
sagði í Mexfkó sl. sunnudag, að á
fundinum í Reykjavík myndu Sovét-
menn leggja fram málamiðlunartil-
lögu um það mál og reyna að
komast að formlegu samkomulagi.
Pravda, málgagn sovéskakom-
múnistaflokksins, birti á sunnudag
grein þar sem mikillar bjartsýni
gætir með Reykjavíkurfimdinn.
Sagði þar, að fundurinnværi sam-
eiginlegt átak, sem gæfi „vonir um,
dað í Reykjavík takist að brjóta í
blað, öllum heimi til blessunar".
lceland Mobilizes to llost
Stqterpoiver ConJ'er, nre
Ri lklAViK i.íUlU J ZHT" ' "
í'.'tn.io.nl her» mij. i.I,, „ ,, n . .",ur‘' *
rirpífclw * j‘ (
iiTlu/. ,U' rcimc ii>..iimy,'n »»! '
n..4y j-»i »1.»..»“,^.
»••!«... j
d ll.F Ml.l Uir I#;
V j in
/ j II
iNit .12,2211 ui/iift
* *.
I
t‘cr> iiirinlvi .
*' 4II,| | ....
'"•4 ■'M.wryn r»c:n.,
]
INTERNATIONAL
Enbun
iTilh The New York Time. and Tlie V, aehin^on »*—*
T,, .;..;lv VvnNtsno;o<TOH»i i.
Talks Oiuldlncludéj
Role in AfghanistanJ
Shevardnadze Says
on A*A — Thr S.MIM auhUiY pr—nc in Af|haouUn u hídj lo 1
hc * l.«p«. .4 ihr Ulkt in UcUr.il bciawn Praudcnl K.ntlJ Hrtui »nd *
SUihtd S (i.Hbrclin. auoiiUni u» UhSoimi f.>a<> duoí.ui, bluard
A Sho.rdnadir
Souei odiculi k*d tuj tbti ducUu dMTRUmanl *oukl I* MaWi
krt iirm (oi cmti.k/tlioa ui ihc Ulkt (Xt 11 Ukl II u> Kr>kjtvik.
rrr-'-p.
' I>TUIINIHI IWT
Judge Telh
fíjissini
v AA
I TeailersJgrn’on
In Irelundon Oct. I l-I-
;,f En Route to Reykjavik,
.-iS'strÆKeagan May Have
„Ræða heimsins
gagn og nauðsynj-
ar í Reyldavík“
Fréttavika í
Bandarikjunum
Ágúst Ingi Jónsson
TÓLF norrænir blaðamenn á
Kennedyflugvelli í New York
þriðjudaginn í siðustu viku.
Mikill hiti og leiðindahangs,
ekkert annað að gera en að
bíða eftir vélinni tíl Orlando.
Spjallað um allt og ekki neitt.
Blaðafulltrúi Flugleiða kemur
röltandi að hópnum og segir
stutt og laggott: „Þið hafið
heyrt fréttirnar. Gorbachev og
Reagan ætla að hittast og ræða
heimsins gagn og nauðsyqjar i
Reykjavik.“ Dauðaþögn. Síðan
er boðberinn vændur um ósann-
sögli og beðinn að reyna eitt-
hvað annað. Sver og sárt við
leggur að rétt sé og satt.
Einhvem veginn þannig frétti
undirritaður af stórveldafundi
Gorbachevs og Reagans. Fram-
undan voru dagar heimsfrétta þar
sem ísland var beint eða óbeint f
sviðsljósinu. Án þess að skrökva
stórt þá var hægt að fylgjast með
fréttum af Reykjavíkurfundinum
í sjónvarpi og útvarpi í Banda-
ríkjunum samfleytt frá morgni og
fram eftir nóttu alla síðustu viku
og enn á fréttastreymið eftir að
aukast næstu dagana. ísland var
á allra vörum og skandinavískum
ferðafélögum fannst nóg um alla
athyglina.
frekar átt að svara. Blöðin
greindu lesendum frá legu íslands
með því að birta landakort og al-
mennar upplýsingar fylgdu með
um mannfjölda, trúarbrögð, efna-
hag og slíkt.
Fljótlega vom helztu stöðvam-
ar komnar með fiokka frétta- og
tæknimanna til íslands og við
tóku beinar útsendingar. Spjallað
var við ráðherra, blaðafulltrúa og
lögreglustjórann í Reykjavík.
Gamla kunningja mátti greina í
beinni útsendingu úr miðborginni,
veðrið heima við frostmark, rok
og rigning eða slydda. Allt í einu
var Agnes Bragadóttir komin á
skjáinn og útskýrði snöfurmann-
lega að eskimóar fyndust ekki á
íslandi og híbýlin væru ekki úr
snjó.
Helztu sérfræðingar Banda-
ríkjamanna um utanríkis- og
afvopnunarmál vom kallaðir til
sögunnar og Henry Kissinger var
í fjölmörgum fréttatímum einn
daginn. Hinum og þessum mögu-
leikum var velt upp og alls staðar
var ísland beint eða óbeint inni í
myndinni. Daniloff, fréttamaður-
inn, sem Sovétmenn gerðu að
þjóðhetju í Bandaríkjunum, var
mjög í sviðsljósinu. í ræðu á
fundi, sem undirritaður sat, sagði
hann Reykjavíkurfundinn mikii-
vægt skref og leiddi vonandi til
betri samskipta rílq'anna. Hann
verður væntanlega á staðnum sem
fréttamaður fyrir tímarit sitt.
Beinar útsendingar
úr miðbænum
Fyrst í stað vom fréttimar af
fundinum heima hlaðnar spennu
og óvissan var mikil um aðdrag-
andann og hvers vegna ísland var
valið. Kvikmyndir frá íslandi vom
greinilega af skomum skammti
og hvað eftir annað vom birtar
faliegar stemmningsmyndir af
Tjöminni í Reykjavík eða
Hallgrímskirkju í fréttatímum
sjónvarpsstöðvanna meðan ein-
hver heimsþekktur fréttahaukur-
inn reifaði stöðu mála. Langt
viðtal var við Matthías utanríkis-
ráðherra í einni útvarpsstöðinni
og var hann meðal annars spurður
spuminga, sem veðurstofan hefði
í kennslustund
til Steingríms
í hinum vinsæla skemmtiþætti
Johnny Carsons, sem tugir millj-
óna fylgjast með, var talað um
ísland svo dæmi sé tekið. Það var
sama hvort fylgst var með ABC,
NBC, CBS, CNN eða hvað þessar
stöðvar heita nú allar; fundarstað-
urinn og umhverfi hans var
rækilega kynnt, umfjöllunin var
jákvæð og lítið um rangfærslur.
Á sunnudagsmorgni var Brink-
ley, sá frægi fréttamaður, með
sinn vikulega þátt þar sem hann
spyr viðmælendur spjömnum úr.
í hörkuþætti fengu Daniloff og
Shultz utanríkisráðherra að finna
til tevatnsins. í iok þáttarins sagði
Brinkley á þá leið að á íslandi
væri enginn her, ekkert stríð,
engir glæpir, engin eiturlyf og
engar skuldir og spurði hvort
ekki væri mögulegt að forsætis-
ráðherrann á íslandi tæki þá
Reagan og Gorbachev í kennslu-
stund.
Á hátíð sem Walt Disney-fyrir-
tækið hélt fyrir yfir 6 þúsund
blaðamenn víða að úr heiminum
var toppfundurinn alls ekki aðal-
málið, en þegar fréttist að þama
væm íslendingar á ferð vildu
menn ólmir fá að vita ailt. Sumir
vissu um landhelgisstríð, skákein-
vígi eða fund Pompidous og
Nixons, aðrir meira, en margir
miklu minna um Island. Eftir
þessa síðustu daga vita allir
Bandaríkjamenn eitthvað um ís-
land. Og ekki bara Bandaríkja-
menn. Alls staðar f heiminum
hefur verið skrifað um fundinn í
Reykjavík.
Taísverðum tíma og rúmi var
eytt í fréttir um væntanlegan
fundarstað og eftir að ljóst varð
að einkafundir leiðtoganna yrðu
að Höfða var sérstaklega fjallað
um þessa byggingu. Fréttir af
reimleikum þar vöktu athygli
fréttamanna og léku þeir sér
gjaman að orðunum host og
ghost.
Forsíðufréttir
stórblaða daglega
í Orlando hitti blaðamaður
þann merka mann Helge Ingstad,
landkönnuðinn og rithöfundinn
norska, sem sýndi fram á að nor-
rænir menn vom á Nýfundnalandi
500 ámm áður en Kólumbus kom
til Ameríku. Niðurstöður rann-
sókna hans koma heim og saman
við sögumar eins og íslendingar
hafa alltaf talið. 86 ára er hann
orðinn, en enn þá við rannsóknir
og fylgist vel með. Hann sagði
það stórkostlegt fyrir ísland að
að fá þennan fund og komast á
svo jákvæðan hátt í sviðsijósið.
Hann sagði menn ekki gera sér
grein fyrir mikilvægi slíkrar kynn-
ingar. Ingstad veit hvað hann er
að tala um og taldi á fíngmm þau
skipti sem Noregur hefur verið
aðalfrétt á forsíðu New _ York
Times. Þessa dagana er ísland
þar á degi hveijum.