Morgunblaðið - 22.11.1986, Qupperneq 7
7
MORGUNBLAÐDD, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986
Morgunblaðifl/Þorkell
„Þegar klukkan i Dómkirkjunni slær heyrist það um allan Vesturbæ-
inn.“ Skúli Halldórsson tónskáld.
Laugardagshöll:
Nýtt tónverk frumflutt
eftir Skúla Halldórsson
NÝTT tónverk eftir Skúla
Halldórsson verður frumflutt i
dag. Verkið nefnist „Borgin
okkar“ og er samið í tilefni 200
ára afmælis Reykjavíkurborg-
ar.
„Ég fékk þá hugmynd seint á
síðasta ári að semja verk í tilefni
afmælis borgarinnar og tileinka
það Reykjavíkurborg,“ segir Skúli
en hann mun afhenda Davíð
Oddssyni borgarstjóra handrit
verksins á tónleikunum sem
haldnir verða í Laugardalshöll
klukkan 15.
„Tónverkið er í þremur hlutum,
fyrsti heitir Morgunn, annar Nón
og sá þriðji Aftann. Fyrstu tveir
hlutar verksins sem Sinfóníu-
hljómsveitin flytur eru gleðióður
til Reykjavíkur. í þriðja kaflanum
syngur Karlakór Reykjavíkur,
sem á 60 ára afmæli um þessar
mundir, við ljóð Matthíasar Jo-
hannessen, ljóðið heitir Hörpu-
sláttur og er fyrsta ijóðið í fyrsta
bók Matthíasar „Borgin hló“.“
- Hvers vegna valdirðu þetta
ljóð?
„Ég var búinn að leita talsvert
að heppilegu ljóði, m.a. í ljóðum
Tómasar, en hann yrkir lítið um
borgina í heild sinni, ljóðin eru
oft bundinn við ákveðna staði og
auk þess hefur mikið verið samið
við þau. Svo var það einn daginn
að Steinunn kona mín, sem er
mjög ljóðelsk, var að hlusta á
útvarpið og í því var þáttur sem
fjallaði um Reykjavík í augum
skálda. Þar var meðal annars flutt
þetta ljóð Matthíasar, Steina vissi
að mig vantaði ljóð og benti mér
á þetta og þar með var kveikjan
komin. Þetta er elskulegt ljóð og
stemning í því.“
Skúli hefur búið í Reykjavík frá
14 ára aldri. „Ég er Vesturbæing-
ur og eins og allir Vesturbæingar
vita er auðvelt að fá innblástur
þar, mikil stemning, kettir og ró-
mantík. Þegar klukkan í Dóm-
kirkjunni slær heyrist það um
allan Vesturbæinn og ég nota
klukkusláttinn í þessu verki, hann
er táknrænn fyrir borgina.Ég
byijaði á þessu verki á útmánuð-
um og lauk því í oktober."
- Ertu að semja eitthvað
núna?
„Já, en ég vil ekki segja frá
því á þessu stigi málsins."
r mm opsasmmm
VIÐ ÓSKUM JÓNI PÁLI TIL HAMINGJU
MEÐ SIGRA SlNA
AB TUDOR • - .UB
SWEDEN Laugaveg 180 — s= 84160
HRINGDUl
og fáðu áskriftargjöld-
in skuldfærð á
greiðslukortareikntng
SIMINN ER
691140 691141
CHEVROLET MONZA
1987 árgerðirnar eru komnar — Beinskiptir — Sjálfskiptir — Aflstýri — 4ra og 3ja dyra s
— Framhjóladrifinn — Þægilegur — Öruggur — Sparneytinn j