Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986
Konur og prófkjör
eftir Álfheiði
Ingadóttur
Á undanfömum mánuðum hefur
mikið verið rætt um kosti og galla
prófkjörs. Sl. laugardag, 15. nóv-
ember, efndi Kvenréttindafélag
íslands til hádegisfundar um próf-
kjör og varpaði þar fram spuming-
unni hvort prófkjör séu rétta ieiðin
fyrir konur inná þing. Þijár konur
höfðu framsögn á fundinum, auk
mín þær Sólveig Pétursdóttir, Sjálf-
stæðisflokki og Unnur Stefánsdótt-
ir, Framsóknarflokki. Þar sem þessi
mál em nú mjög í brennidepli, vil
ég stikla hér á stóm í mínu svari
við þessari spumingu KRFÍ.
Prófkjör em ekki rétta leiðin fyr-
ir konur inná þing. Ég efast reyndar
um að prófkjörin séu rétta leiðin
inná þing fyrir karlana heldur, og
að prófkjör séu yfírhöfuð rétta leið-
in fyrir flokkana sjálfa til að velja
fólk á lista. En það em víst nógir
til að hafa áhyggjur af körlum um
þessar mundir og af flokkunum
reyndar líka.
Prófkjör em sem sagt ekki rétta
leiðin fyrir konur inná þing að mínu
mati, en þau virðast nú um stundir
vera eina leiðin hjá hinum hefð-
bundnu stjómmálaiflokkum. Meira
að segja minn flokkur, Alþýðu-
bandalagið, sem löngum hafði
sérstöðu í þessum eftium, hefur
verið að fikra sig í átt að prófkjöri
hér í Reykjavík, þó að það sé reynd-
ar ennþá nefnt forval. í því felst
mikil öfugþróun að mínu mati.
Prófkjör vora fyrir nokkmm
ámm lausnarorðið á öllum vanda.
En á síðustu mánuðum og misseram
hefur gagnrýni á þessa aðferð við
að velja fólk á framboðslista orðið
æ háværari. Meira að segja Sjálf-
stæðisflokkur og Alþýðuflokkur,
sem um árabil litu á prófkjörin sem
trúarsetningu, reyna nú aðrar leið-
ir. Eg vil nefna tvö nýleg dæmi:
Útlit er fyrir að aðeins verði kos-
ið um 4. sætið í prófkjöri krata hér
í Reykjavík og hermir sagan að það
sé m.a. vegna skilyrðis eins þátttak-
andans, sem ekki vill taka þátt í
prófkjöri.
Of fáir gáfu kost á sér í próf-
kjöri Sjálfstæðismanna í Reykjanesi
og þar var því hætt við prófkjör.
Dýrkeypt en þröngt val
I ofangreindum dæmum kristall-
ast helstu ókostir próflq'örs, en þeir
em einkum fems konan
1. Prófkjömm fylgja mikil flárút-
lát í auglýsingum og hringing-
um og þess em dæmi að menn
opna kosningaskrifstofur og
gefa út heil blöð um ágæti sitt
og stefnumál. Almennt þurfa
nýliðar að kosta öllu meira til
í þessum efnum.
2. Fólk sem stendur utan flokk-
anna og jafnvel stuðningsmenn
annarra flokka eiga greiða leið
að þátttöku í prófkjömm, hvort
heldur þau em opin eða menn
verða að undirrita stuðnings-
yfírlýsingu. Þetta eykur líkum-
ar á smölun heilia hópa inn í
prófkjörin og veldur um leið
ójafnri stöðu hinna ýmsu þátt-
takenda.
3. Persónulegur metnaður er oft
settur ofar heildarhagsmunum
þegar út í slaginn er komið.
Samheijar berast á banaspjót-
um — ekki kannski frambjóð-
endumir sjálfir, heldur
áköfustu stuðningsmenn
þeirra. Af þessum átökum leiða
oft mikil sárindi og jafnvel að
leiðir skiljast eins og dæmin
sanna. Þá geta kosningabanda-
lög, sem stuðningsmenn ein-
stakra frambjóðenda mynda,
valdið einlitri niðurstöðu, úti-
lokun og þar með þröngri
skírskotun listans.
4. Ofantaldir ókostir valda því
loks að upp á síðkastið hafa
tiltölulega fáir gefíð kost á sér
til þátttöku í prófkjöri og því
er val kjósenda í raun og vem
þröngt.
Konum hefur fjölgað
þrátt fyrir próflgörin
Við höfum nú orðið reynslu af
prófkjömm af ýmsu tagi í áratugi.
Vissulega hefur konum fjölgað á
listum flokkanna en ég leyfl mér
að fullyrða að það er ekki vegna
prófkjöranna, heldur þrátt fyrir
þau. Fjölgun kvenna í framboði
hefur orðið mun minni en aukning-
in á þátttöku kvenna í pólitísku
starfí. Prófkjör eins og þau em nú
rekin em nefnilega sérstaklega
andstæð konum að mínu mati. Og
við skulum líta nánar á hvemig
þeir ókostir, sem ég taldi upp hér
að framan, hitta konur sérstaklega.
1. Peningaútlátin. Ég held að
konur eigi ekki endilega erfíð-
ara en karlar með að fá
stuðningsmenn sína til að halda
úti kosningaskrifstofu eða
greiða auglýsingar. Það em því
ekki peningaútlátin sem valda
því að konur eiga erfiðara upp-
dráttar í prófkjöri en karlar.
Reynslan af auglýsingastríðinu
kringum síðasta prófkjör Sjálf-
stæðisflokksins hér í Reykjavfk
segir sína sögu. Sú kona sem
mest lagði út til auglýsinga
stóð jafnfætis mörgum körlum
í því efni, en náði mun skemur
en aðrar konur sem ekki aug-
lýstu eins mikið.
2. Smölunin. Karlar hafa hins
vegar meiri möguleika á smöl-
un inn í prófkjörin. Þess em
„Ég tel að í þessum efn-
um dugi einungis
kvótakerfi á framboðs-
iistiun. Flokkarnir
verða að setja sér það
markmið sjálfir að
fjölga konum í forystu-
sveit og vinna mark-
visst að því. Þetta er sú
krafa sem ég geri til
mins flokks. Því var
það að við konur til-
kynntum á síðasta
landsfundi AB að á
hausti komanda, 1987,
myndum við leggja
fram tillögu um laga-
breytingu í þessum
anda: Að kvótakerfi,
sem gilt hefur hjá AB,
taki jafnt til framboðs
sem til annarra trúnað-
arstarfa fyrir flokk-
inn.“
Sólveig Pétursdóttir
dæmi að heilu íþróttafélögin,
skákfélögin, starfsmannahóp-
amir og skólafélögin beinlínis
ráði niðurstöðum prófkjörs,
enda þótt það séu einu afskipti
viðkomandi einstaklinga af
flokksstarfínu. Þama koma
karlaklúbbamir líka að góðum
notum. Ég held að konur al-
mennt hafí ekki svona batterí
á bak við sig í sama mæli og
karlar, þó auðvitað geti ein-
staka kona haft ráð á heilum
Álfheiður Ingadóttir
hópum manna, eins og dæmin
sanna.
3.Persónuleg átök. Konur em
viðkvæmari en karlar fyrir al-
menningsálitinu og við vitum
að það em gerðar miklu meiri
kröfur til kvenna í opinbem lífí
og umræðu en karla. Þær taka
líka held ég nær sér róg og ill-
mælgi, hafa ekki eins harðan
skráp — sem betur fer! Konur
forðast því þennan slag í ríkara
mæli en karlar, fínnst ekki taka
því. Þar við bætist áð harka,
metnaður og sjálfsálit — þeir
eiginleikar sem einna best virð-
ast duga til árangurs í prófkjöri
— em taldir neikvæðir, þegar
þeir birtast hjá konum.
Unnur Stefánsdóttir
Að kynna „nýjar“
konur
Á fundi KRFI höfðu framsögu
þijár „nýjar“ konur úr þremur
flokkum. Tvær hafa þegar lokið
prófkjörsbaráttu sinni og náð ágæt-
um árangri, sem ég óska þeim til
hamingju með. Mín barátta er rétt
að byija. En við skulum aðeins at-
huga, hvaða verði þessi þátttaka
okkar er keypt — af því að við emm
„nýjar" konur, því það skiptir máli
í þessu sambandi.
Hvemig em „nýjar" konur
kynntar? Hvemig em þær vegnar
og metnar almennt, hvort heldur
er í venjulegu boði eða í prófkjöri?
Á allt annan hátt en karlar, það
vitum við. Þær em hlutgerfðar —
þær em dætur feðra sinna, konur
mannanna sinna en ekki sjálfstæðir
einstaklingar.
Ég hef ekki haft persónuleg
kynni af þeim Unni Stefánsdóttur
og Sólveigu Pétursdóttur, en ég
hef fylgst með þeim báðum úr íjar-
lægð hvorri á sínum vettvangi;
Unni, sem hafnaði í 3. sæti Fram-
sóknarflokksins á Suðurlandi og
Sólveigu, sem hafnaði í 8. sæti hjá
Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík.
Ég veit t.a.m. að Unnur er formað-
ur Landssambands Framsóknar-
kvenna og hef fylgst með því
hvemig hún og aðrar konur þar
hafa unnið markvisst að því að
fjölga konum í forystusveit flokks-
ins, sem ekki veitir af. En hvaða
mynd var dregin upp af þessari
konu í prófkjörsslagnum? Sú helst
að hún væri kona Hákons Sigur-
grímssonar og dóttir Stefáns
Jasonarsonar — og svo lá hún und-
ir ámæli fyrir að hafa beitt for-
mannstitli sínum í Landssamband-
inu gegn — auðvitað — öðmm
konum í flokknum! Ég hef líka
fylgst með Sólveigu Pétursdóttur
frá því í borgarstjómarkosningun-
um í vor og veit hvaða verk hún
hefur tekið að sér á þeim vett-
vangi. En hvaða mynd var dregin
upp af henni í prófkjörsslagnum?
Sú að hún væri tengd Geir Hall-
grímssyni, faðir hennar væri fyrr-
verandi formaður Óðins og einna
helst skildist manni að hún ætti um
6000 ættingja og þeir einir hefðu
kosið hana í prófkjörinu, aðrir ekki!
Ég ætla ekki að gerast langorð um
sjálfa mig, en eftir 10 ára starf í
Álþýðubandalaginu, m.a. í fram-
kvæmastjóm flokksins og borgar-
stjóm, er talað um að ég sé
viljalaust verkfæri í höndum stórra
karla, sem stefnt sé gegn þeirri
einu konu sem fyrir er í þingliði
AB! Ég þarf ekki að taka fram að
ég er eins og aðrar „nýjar konur
dóttir föður míns og ég hlýt líka
að minnast á nýjustu uppfinningu
DV og HP, dylgjur um að ég hafí
reynt að koma í veg fyrir að karl-
amir fengju að hafa fullskipað
fótboltalið í forvalinu, vera 11 en
ekki 10 á móti 3 konum!
Er nokkur furða að konur séu
tregar til að taka þátt í þessum ljóta
fjölmiðlaleik? í prófkjöri er sam-
heijum stillt upp sem hreinum
andstæðingum. Það er ekkert eðli-
legra en að valið sé milli ólíkra
einstaklinga. Menn hafa mismun-
andi áherslur og skírskotun, þótt
þeir séu í sama flokki, en þegar
stuðningur byggist eingöngu á því
að einhver er á móti öðmm fram-
bjóðanda, þá er hann lítils virði að
mínu mati. Ég býð mig ekki fram
gegn einum eða neinum og ætla
öðmm það ekki heldur. Ég býð mig
fram fyrir máleftii míns flokks og
Essesœasw-
PEPS
0.331
Sanitas h.f. hefur nú fyrst íslenskra fyrirtækja hafið framieiðslu á gosdrykkjum í handhægum 3
Diet Pepsi og á næstunni munu fleiri vinsælar tegundir fylgja í kjölfarið s.s. 7UP, Diet 7UP, Mjx,