Morgunblaðið - 22.11.1986, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986
Ljjósm. Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Renault Espace 2000-1. Útlitið gefur til kynna hverslags bíll er á ferð. Straumlínulögun og inn-
rými sem mest má verða. Rúðurnar em litaðar og halda sólargeislunum í skefjum.
Ævintýralegnr
fjölhæfnibíll
Hér er ein hugmyndin um nýtmgu Espace-vagnsins. Er þetta
ekki ferðaskrifstofa?!
__________Bílar
Þórhallur Jósepsson
Nokkur hópur fólks þarf á að
halda bíl, sem gerir allt! Er hann
til? Varla, en sumir bílar eru §61-
hæfari en aðrir og fyrir skömmu
reyndi ég einn slíkan: Renault
Espace 2000-1. Sá er sannarlega
ótrúlegur! Hann getur verið lúxus-
vagn heldra sfandsins, vinnubíll
verkfræðingsins, sportbfll útilífs-
fólksins eða bara rúmgóður fjöl-
skyldubfll. Og ekki er einungis
notagildið óvenjulegt, útlitið er
sérstætt og búnaðurinn líka. T.d.
er ekki nauðsynlegt að taka hönd
af stýri til þess að stilla útvarpið!
Þægindin í fyrirrúmi
Þessi sem hér um ræðir, er
sérlega vel búinn og því dýrastur
Espace-bflanna. Meðal búnaðar
eru tvær sóllúgur, fullkomið út-
varps- og kassettutæki með stilli-
rofum á þremur stöðum, þ.á m. á
stýrisstammanum. Þá eru snún-
ingsstólar að framan og er hægt
að snúa þeim aftur og mynda á
þann hátt setustofu eða fundar-
herbergi í bflnum. Klæðning er
sérlega vönduð, læsingar mið-
stýrðar, speglar og hliðarrúður
að framan eru rafknúin og sæti
eru fyrir sjö. Hér er aðeins fátt
eitt talið, allur ber bíllinn það með
sér, að vera gerður fyrir kröfu-
harða kaupendur.
Vélin er fjögurra strokka tæpra
tveggja lítra og skilar af sér 110
hestöflum. Hámarkshraðinn er
170 km/klst. og hann snarar sér
upp í hundraðið á tæpum tólf sek-
úndum. Þrátt fyrir þetta vélarafl
er eyðslan undralítil, 6,8 lítrar á
hundraðið þegar ekið er á 90 km
hraða, 8,8 lítrar á 120 og í blön-
duðum akstri 10,8 lítrar. Eitt af
því sem heldur eyðslunni niðri er
lítil loftmótstaða, 0,32 er stuðull-
inn og þykir gott, jafnvel fyrir
venjulega fólksbfla.
Ljúfur og lipur
Þótt Espaca minni á sendibíl í
útliti má segja að fleira eigi hann
ekki sameiginlegt með þeim
vinnuhestum. Hann er einkar
þægilegur í akstri, vökvastýrið
íétt og nákvæmt. Rými er gott
eins og vænta má, það er reyndar
aðalsmerki hans hve gjömýtt er
allt rými sem hugsanlega er hægt
að nýta á einhvem veg. Fjöðrun
er mjúk í léttum akstri, tekur
stífar á með auknu álagi, holumar
renna bara framhjá óþæginda-
gefíð þeim kaffisopa á meðan far-
ið er yfir verkáætlanir, hann flytur
vinnuhópa á milli staða, hann fer
í langferðir og um helgar er farið
í bfltúr með allan krakkaskarann
og skíðadótið; allt í einum og sama
bflnum. Æ fleiri bflaframleiðendur
bjóða nú orðið slíka bfla sem þenn-
an, nefna má Mitsubishi Space
Wagon (aðeins minni), og Chrysl-
er T115. Fróðlegt verður að
fylgjast með því, hvortþessir fjöl-
hæfnibflar vinna hug Islendinga,
fram að þessu hefur verðið ann-
ars vegar og lítið framboð hins
vegar valdið mestu um að þeir
hafa lítið sést hér, einnig það að
þessi gerð bíla er tiltölulega ný
af nálinni; Renault Espace kom
t.d. fyrst á markað árið 1984.
Hann kostar nú frá 820.000 kr.
í einföldustu útgáfu og upp í hálft
tólfta hundrað þúsunda með öllum
búnaði: Espace 2000-1.
Þægileg sæti og mikið rými, smámunageymslur eru hvar sem
við verður komið. Aftur í er gott pláss líka, þ.e. í miðsætunum,
þrengra er í aftasta bekk.
laust. Það ætti ekki að vera
vandamál að halda veislu, akandi
á milli byggðarlaga, og hjálpar
þar til, að hljóðeinangrun er góð.
Viðbragðið er mjúkt og fullnægj-
andi, ekkert spark, samt finnst
vel fyrir átökum. Helsti mínusinn
er hemlamir, þeir eru ónákvæmir
og þarf að stíga nokkuð fast á
þá. Útsýni er framúrskarandi gott
fram og til hliðanna, en sætarað-
imar skyggja nær alveg á aftur-
giuggann. Stjómtækin eru
aðgengileg og skipti lipur. Séu
fætur ökumanns langir þá er stý-
rið fullframarlega þegar mikið er
að gera við snúningana, en það
kemur ekki að sök á beinum vegi.
Einn með öllu
Ég sé hann fyrir mér, manninn
sem fær sér svona bfl. Hann þarf
oft að fara út um allar jarðir með
teikningar að sýna verkamönnum
á vinnustöðum, hann þarf að geta
Helstu tölur
Vél: 4 strokkar, 110 hö.
Slagrúmmál: 1195 sm8.
Hám.hraði: 170 km/klst.
Viðbr. 0-100:11,9 sek.
Gírkassi: 5 gíra.
Dyra^öldi: 5
Sætaljöldi: 5-7
Lengd: 4250 mm.
Breidd: 1777 mm.
Hæð: 1660 mm.
Þyngd: 1200 kg.
Farmþyngd: 600 kg.
Dekk: 185/65 R14
Helsti búnaður
Diskahemlar að framan, skálar
að aftan, hjálparafl.
Sjálfstæð gormafjöðrun á hveiju
hjóli.
Aflstýri.
Afturrúðuþurrka m. sprautu.
Miðstýrðar læsingar.
Rafknúnar rúður framhurða.
Rafstýrðir útispeglar.
Útvarp og segulb.
Fiat framhalds Uno = Duna
Fiat Uno + skott = Fiat Duna! Hér er hún, mynduð í hinu gamla
höfuðvígi Fiat, Lingotto-byggingunni f Tórínó. Þar var aðalsam-
setningarverksmiðja Fiat í áratugi, en nú er húsið notað til
kynninga og sýninga.
Fiat Uno þarf varla að kynna
fslendingum. Sá bíll er hér þegar
í ýmsum mismunandi útfærslum,
sem þó byggja allar á sama
grunni. Hann er bamslega sak-
laus fjölskyldubíll, sést á ferð um
götumar með innkaupapoka og
krakkaorma innanborðs, til engra
tryllitakta líklegur. Hann sést
einnig með örlítið breyttu útliti
og hefur þá fengið auknefnið „ei
turbo" og er þá allt eins líklegt
að hann hverfi sjónum manns í
reykskýi spólandi dekkja, músin
sem stekkur!
Nú hefur hlaupið vöxtur í Uno-
inn, hann er kominn með skott!
Að vísu verður Uno áfram eins
og hann hefur verið, en með því
að bæta skottinu á hann er verið
að svara eftirspum þeirra sem
vilja bfl í þessum stærðar- og verð-
flokki og þurfa jafnframt að flytja
með sér farangur. Þessi íturvaxni
Uno heitir svo alls ekki Uno eftir
allt saman, nei, hann skal heita
Duna! Við verðum líklega að
skipta um kyn á kerrunni og tala
um stóru systur!
Ekki er látið sitja við það eitt
að bæta kistunni aftan á Úno-inn
til að hann verði Duna, klæðning-
in breytist einnig, sérstaklega
mælaborðið og hvalbakurinn. Það
er alveg nýtt. Þá er einnig skutbíll
í boði og í báðum útgáfum verður
hægt að Ieggja aftursætin niður
til að auka enn á farangursrýmið.
Duna verður væntanlega fáan-
leg hér á fslandi upp úr áramótum
og ef að líkum lætur verður hún
u.þ.b. 5—10% dýrari en litli bróð-
ir, eigum við að giska á hálft
fjórða hundrað þúsunda? Ef geng-
ið verður ekki fallið að mun, þá
ætti það að vera nærri lagi.
Hér er gengið enn lengra, skutbíll og hlerinn opnast alveg niður
í gólf.