Morgunblaðið - 22.11.1986, Qupperneq 16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986
stofna ekki lífí fólks í hættu með
verkföllum," sagði Helgi ennfrem-
ur.
Helgi sagði að á undanfömum
árum hefði BSRB ekki náð fram
nægilega miklu af kröfum sínum
þegar samið var um aðalkjarasamn-
ing, en ýmsir hópar hefðu náð fram
kröfum í sérkjarasamningum. Þetta
hefði skapað óánægju vegna sam-
anburðar milli starfshópa, en þetta
vandamál ætti að vera úr sögunni
þegar samningsrétturinn væri al-
farið í höndum einstakra félaga.
Samningamálunum
miðstýrt af höfuðborg'-
arsvæðinu
Hann sagði að bæjarstarfsmenn
hefðu haft þá sérstöðu umfram
starfsmenn ríkisins að samnings-
rétturinn væri formlega í höndum
einstakra bæjarstarfsmannafélaga.
Launanefnd sveitarfélaga hefði hins
vegar haft með höndum gerð að-
alkjarasamnings fyrir öll sveitarfé-
lögin nema Reykjavík, Akureyri og
nú síðast Siglufjörð, sem hefði dreg-
ið sig út úr nefndinni, og raunin
hefði orðið sú að samningamálunum
hefði verið miðstýrt af höfuðborgar-
svæðinu. Hann sagði að það væri
megn óánægja með þetta hjá bæjar-
starfsmannafélögum og það væri
krafa þeirra að semja beint við sína
atvinnuveitendur. Það væri hins
vegar spuming hver framkvæmdin
yrði þegar samningsrétturinn væri
alfarið hjá hveiju aðildarfélagi fyrir
sig.
Helgi sagðist telja að hlutverk
BSRB myndi breytast mjög mikið
ef samningsréttarmálið næði fram
að ganga, sem og þær breytingar
sem samþykktar hefðu verið á
skipulagi Bandalagsins. „Ég held
að hlutverki BSRB sem sameigin-
legum baráttuvettvangi se steftit í
voða, því ég er ekki viss um að það
geti myndast svo sterk samstaða
að það styrki félögin við samninga-
gerð. Hins vegar er auðvitað
hugsanlegt að hlutverk BSRB verði
hliðstætt hlutverki ASÍ á hinum
almenna vinnumarkaði," sagði
Helgi.
Bætir samning'saðstöð-
una
„Við erum fylgjandi því að láta
rejma á þessar hugmyndir um
breytingu á samningsréttinum. í
reynd hefur Hjúkrunarfélag íslands
haft mjög takmarkaðan rétt. Sam-
kvæmt því sem við vitum í dag lítur
út fyrir að hluti hjúkrunarfólks fái
rétt til þess að fara í verkfall og
það myndi bæta samningsstöðu
Breytingar á samn-
ingsréttinum til góðs
Rætt við nokkra fulltrúa á þingi BSRB
rétturinn verður þá alfarið í höndum
aðildarfélagana og ég tel að jafn-
framt eigi að láta félögin úrskurða
um það sjálf hveijir eigi og hveijir
eigi ekki að vinna í verkfalli. Þeim
er fyllilega treystandi til þess að
Einar Már Sigurðarson.
„Ég er þeirrar skoðunar að það
hafi í nokkum tima verið ástæða
til þess að endurskoða samnings-
réttinn. Hann hefur verið
óbreyttur nokkuð lengi og þær
reglur sem hafa gilt eru í ósam-
ræmi við það sem gildir á
almennum vinnumarkaði. Þetta
ósamræmi hefur gert það að
verkum, að mjög erfitt hefur
verið fyrir opinbera starfsmenn
að ná fram sambærilegum laun-
um og gilda á vinnumarkaðinum
almennt. Að þessu leyti er þetta
mjög jákvæð breyting,“ sagði
Helgi Andrésson, formaður
Starfsmannafélags Akraness.
Betri aðstaða til að
jafna launamun
„Ég bind vonir við að eftir að
samningsréttarmálið næst í gegn
þá verði betri aðstaða til þess að
jafna þann gífurlega launamun sem
ríkir í landinu á milli kynja annars
Helgi Andrésson.
vegar og á milli hins opinbera og
einkageirans hins vegar. Samnings-
Pálína Sigurjónsdóttir.
„Það er mjög erfitt
starf framundan“
- segir Kristján Thorlacius, formaður BSRB
„Það er mjög erfitt starf
framundan. Það verður að
sjálfsögðu unnið að fullum
krafti af okkar hálfu að því að
fullgera frumvarpsdrögin. Það
var allgóð samstaða á þinginu
um sjálf frumvarpsdrögin og
það er mitt mat að allur þorri
þingfulltrúa hafi geta fallist á
þau,“ sagði Kristján Thorlac-
ius, formaður Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja i
samtali við Morgunblaðið eftir
að þingi BSRB lauk á miðviku-
dagskvöldið, er hann var inntur
eftir skoðun sinni á niðurstöðu
þingsins. Þingið samþykkti að
visa til stjómar BSRB og form-
anna aðildarfélagana að full-
gera frumvarp um samnings-
réttarmál Bandalagsins, en
viðræður þar að lútandi hafa
staðið yfir við rikisvaldið að
undanförnu.
„Hins vegar hefur staðið á list-
um, sérstaklega frá heilbrigðis-
málaráðuneytinu og Reykjavíkur-
borg, yfír þær stofnanir og
starfsheiti sem eiga að starfa í
verkfalli og menn vildu ekki á
þinginu una því að sjá ekki þessa
lista og vita hvað þeir þýddu,
áður en málið yrði endanlega af-
greitt. Það hefur staðið mjög á
þessum listum. Því var lofað að
listi yrði komin frá Heilbrigðis-
ráðuneytinu fyrir hádegi á síðari
degi þingsins til þess að það gæti
vegið og metið hann og ég veit
að það hefur verið rekið mjög á
eftir því að samskonar listar yrðu
samdir hjá Reykjavíkurborg. Því
miður lágu þessir listar ekki fyrir
og málið er þess vegna í þeirri
stöðu sem það er,“ sagði Kristján.
Kristján sagði að tíminn til þess
að fjalla um þetta mál væri orðin
mjög naumur. Því hefði hann flutt
um það tillögu á þinginu að for-
menn félagana yrðu eftir til þess
að fara jrfír listana og vinna að
málinu með þeim sem stæðu f
þessum viðræðum. Þá hefði verið
samþykkt að fundur formanna
jrrði haldinn á sunnudaginn kem-
ur. Kristján sagðist enga skýringu
hafa á þeim drætti sem orðið hefði
á framlagningu listanna. Hann
sagði að hann vonaði að sú stað-
reynd að listana vantaði stefndi
ekki árangri í samningsréttarmál-
inu í hættu því hann liti svo á,
að það væri ekki bara aðildarfé-
lögum BSRB í hag að fá þetta
frumvarp í gegn, heldur einnig
ríkinu og sveitarfélögunum.
„Það er mitt mat að það styrki
mjög stöðu BSRB að þetta frum-
varp verði að lögum og raunar
Kristján Thorlacius í rœðustól á þingi BSRB. Morgunblaðið/Einar Falur
marki það tímamót í starfí BSRB,
ef við fáum þennan rétt með því
móti sem um hefur verið talað af
hálfu ríkisins. Hvað það snertir
er þetta tímamótaþing og einnig
hvað skipulagsmálin varða. Það
er búið að samþykkja gjörbreytt
skipulag, sem felur það í sér að
félög hafí miklu frjálsari aðgang
að BSRB en áður var. Sú breytta
uppbygging sem þessi skipulags-
brejrting felur í sér og það að
félögin fái verkfallsrétt tel ég að
styrki mjög BSRB. Ég vona að
ef allir leggist á eitt beggja vegna
samningnaborðsins, þannig að
þessi brejrting fáist í gegn sem
fyrst,“ sagði Kristján Thorlacius.