Morgunblaðið - 22.11.1986, Page 27

Morgunblaðið - 22.11.1986, Page 27
27 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986 Frá þingi Bandalags háskólamanna. EINKASIMSTOÐ 777 sölu er 4ra ára EMS 150 einkasímstöð Siemens fyrir meðalstórt fyrirtæki. Bæjarlínu- fjöldi er 18 línur og 90 innan- húslínur, 3 skammvalsminni samtals 900 númer. 2 skipti- borð fylgja. Hægt er að fá stöðina gegn kaupleigusamn- ingi eða með greiðsluskilmál- um. Allar upplýsingar gefur [#J Svernr Jónsson ‘sima 20580- lúnadarbankínn Sjöunda þing BHM sett í gær: BHM stendur að ýmsu leyti á vegamótum - sagði Gunnar G. Schram, formaður BHM meðal annars í setningaræðu þingsins SJÖUNDA þing Bandalags há- skólamanna var sett í gær. Aðalmál þingsins er umræða um meginmarkmið og framtíðar- stefnu BHM. Gunnar G. Schram, fráfarandi formaður Bandalags- ins, setti þingið, en síðan flutti Sverrir Hermannsson, mennta- málaráðherra, ávarp. Að því loknu voru flutt framsöguerindi um markmið og framtíðarverk- efni BHM og um fjölgun og eftirspurn eftir háskólmenntuðu fólki. „Að ýmsu leyti stendur Bandalag haskólamanna nú á vegamótum. Um það bil helmingur félagsmanna okkar eru ríkisstarfsmenn, sem eft- ir lagabreytingar á síðustu tveimur þingum hafa myndað með sér öflug launþegasamtök innan bandalags- ins. Nú hafa þau tíðindi gerst að í sjónmáli eru ný lög um kjarasamn- inga opinberra starfsmanna sem munu væntanlega færa félögum háskólamanna verkfallsrétt og hverju einstöku félagi sjálfstæðan samningsrétt. Þessar breytingar munu óhjákvæmilega kalla á nokkr- ar skipulagsbreytingar á starfi launamálaráðs og breytingar á lög- um bandalagsins af því tilefni," sagði Gunnar G. Schram meðal annars í setningarræðu sinni. „En jafnframt veldur þessi nýja staða því að nauðsynlegt er og raunar óhjákvæmilegt, að fram fari Fráfarandi formaður BHM, Gunnar G. Schram, setur þingið. endurmat á verkefnum og fram- tíðarstefnu BHM með það í huga að gera bandalagið að sterkara og virkara afli í störfum sínum að þeim mörgu málum sem allir háskóla- menn landsins eiga sameiginleg á hvaða vettvangi sem þeir starfa," sagði Gunnar ennfemur. Þinginu verður framhaldið í dag, en því lýkur í kvöld með móttöku hjá menntamálaráðherra. kerfa sem nota sterkt opnunarpass og allskonar opnunarsagnir sem þýða ekki neitt. Ég held að þetta drepi áhuga almennings á spilinu. Byijandi þarf að læra nokkrar frumreglur og ein þeirra er sú að opnunarsagnir þýði að spilarinn eigi opnun og ákveðna lengd í opnunar- litnum. Þegar þessi byrjandi sér spilara opna t.d. á 1 spaða sem þýðir að hann eigi 0-5 punkta og kannski eyðu í spaða, þá verður hann ringlaður og missir áhugann." - En nú varst þú einn af frum- heijunum í þróun gervisagnkerfa? Það er rétt en kerfið mitt var samt brids. Opnunarsagnir lofuðu opnun og styrk í litnum og það var mjög auðvelt að veijast því. Nú er fyrst og fremst hugsað um að eyði- leggja fyrir andstæðingunum." Undanfarið hefur Belladonna ferðast mikið um Ítalíu til að spila brids, og hann er einnig farinn að halda námskeið, m.a. f Portoroz. Bridsklúbbinn sem hann átti í Róm hefur hann selt. Finnst honum jafn- gaman að spila brids nú á sjötugs- aldri og þegar hann var þrítugur? „Á eftir fjölskyldu minni er brids stóra ástin mín og ég nýt þess jafn- vel meira að spila nú en áður. Spilið gefur fólki á öllum aldri eitthvað. Ef unglingar spila brids leiðast þeir síður út í eiturlyf eða áfengi. Á miðjum aldri heldur bridsiðkun heil- anum í þjálfun, og í ellinni getur spilið fyllt í skörð sem missir ást- vina , heilsu eða atvinnu skilur eftir sig. Það er ánægjulegt hve mörg lönd eru farin að hvetja unglinga til að stunda brids. Þar er sérstak- lega hægt að nefna Holland þar sem skipaður hefur verið sérstakur ráð- herra til að sjá um hugaríþróttir. Þar er hægt að ganga inn í íþrótta- hallir og finna 16 ára unglinga spila keppnisbrids í einum sal og tefla í skákmóti í öðrum." — Hvemig leggst mótið á Loftleið- um í þig? „íslendingar hafa alltaf verið erf- iðir andstæðingar og við vorum alltaf smeikir við þá á Evrópumót- unum. Þeir voru líka held ég þeir fyrstu í Evrópu sem tóku upp sagn- kerfin okkar á sínum tíma, og því var ekki svo gott að glíma við þá.“ Og nú brosti Belladonna breitt. - En hvaða sagnkerfi ætlið þið að spila f mótinu? “Eðlilegt kerfi, þar sem hálita- opnun lofar 5-lit, tígulopnun 4-lit og opnunarsagnir á öðru sagnstigi eru sterkar. Og öll dobl á öðru og þriðja sagnstigi eru úttektardob. Ég hef þetta svona til að passa upp á makker," segir Belladonna og bendir á Jeretic. „Ég spilaði einu- sinni gegn þér í Portoroz. Þú doblaðir mig í þrem bútum og ég vann þá alla!“ Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í Valhöll Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10— 12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öilum borgarbúum boðið að not- færa sér viðtalstíma þessa. Laugardaginn 22. nóvember verða til viðtals Páll Gísla- son, formaður framkvæmdanefndar byggingastofnanna í þágu aldraðra og veitustofnanna Reykjavíkur og Guð- rún Zoéga í stjórn skólamálaráðs, fræðsluráðs og veitustofnanna. ' Hllla semmá^ skástilla fyrir stórar v flöskur. y ' Femur I hurb: ' Nóg pláss í skápnum. hnTTTnri; Massíf hurb meb Alvöm 4-stjömu frystihóif. VAREFAKTA er vottorð dönsku neytendastofnunarinnar um eiginleika vara, sem framleiðendur og innflytjendur geta sent hemi til prófunar, ef þeir vilja, meJ öftrum orium, ef þeir þora! EKTA DÖNSK GÆDIMED ALLT Á HREINU - fyrir smekk og þarfir Norðurtandabúa - gzði á góðu verðl! ^ þorir og þofir KALDAR STAÐREYNDIR um það sem máli skiptir, svo sem ksiisvift, fiystigetu, einangtun, styrk- leika, gangtíma og rafmagnsnotkun. Hátúni 6a. sími (91) 24420

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.