Morgunblaðið - 22.11.1986, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986
Fimm börn
dóu úr
matareitrun
Moskvu, AP.
FIMM börn létust og 60 voru flutt
í sjúkrahús vegna þess, að fóstra
á dagheimili við verksmiðju í
Úkrainu hélt, að natriumnítrat
væri salt og setti það út í súp-
una, sem hún gaf bömunum.
Trud, málgagn sovésku verka-
lýðsfélaganna, sagði frá þessum
atburði í gær en tók ekki fram
hvenær hann gerðist. Var í blaðinu
farið mjög hörðum orðum um
verkamennina í verksmiðjunni,
kúluleguverkgmiðju í borginni
Kharkov, og sagt, að þeir hefðu
skilið eitrið eftir í anddyri bama-
heimilisins. Hafa nokkrir menn
verið handteknir.
Trud kenndi einnig um almennu
hirðuleysi og agaleysi í sovéskum
verksmiðjum og því, að allt of fátt
fólk hefði verið við störf á bama-
heimilinu. Fóstran sá t.d. um
matinn þennan dag vegna þess, að
hvorki forstöðumaður bamaheimil-
isins né kokkurinn höfðu látið sjá
ERLENT
Japan:
Eldgos ógnar allri byggð á eynni Oshima
Allir íbúar eyjarinnar fluttir burt
Tókýó, AP.
OLLUM íbúum eyjarinnar Os-
hima í Japan, en þeir eru um
11000, var í gær fyrirskipað
að yfirgefa heimkynni sín, eftir
að mikil eldsprunga opnaðist í
eldfjalli á eynni. Rann mikill
hraunstraumur niður fjallið og
stefndi hann í átt að bæjarfé-
lagi, sem stendur skammt frá
eldsprungunni.
Síðdegis í gær höfðu 3000 manns
verið fluttir burt með skipum, sem
send voru til eyjarinnar og gert
var ráð fyrir því, að allir íbúamir
yrðu famir þaðan um kvöldið.
Aður en gosið hófst, gekk mik-
il jarðskjálftahrina yfir eyna.
Síðan opnaðist skyndilega 600
metra löng eldsprunga í eldfjallinu
Mihara og tók að gjósa af miklum
krafti.
Gos hófst raunar í eldfjallinu á
laugardaginn var, en það var ann-
ars staðar og talið hættulítið allri
byggð. Eyjan Oshima er hluti af
eyjaklasa, sem liggur í um 110
km fjarlægð fyrir sunnan Tókýó.
Deilur magnast í Washington:
Krafíst afseignar öryggis-
málaráðgjafa Reagans
Washington, Reuter.
WILLIAM CASEY, yfirmaður
dalltbandarísku leyniþjónustunn-
ar, CIA, sagði í gær að nokkrar
þjóðir hefðu aðstoðað Banda-
ríkjamenn við vopnaflutninga til
Iran nú fyrir skömmu, að því er
Jim Wright fulltrúadeildarþing-
maður frá Texas, tjáði frétta-
mönnum eftir fund leyniþjón-
ustunefndar deildarinnar með
Casey.
Wright, sem er demókrati og
væntanlega næsti forseti fulltrúa-
deildarinnar, sagði að Casey hefði
veitt nýjar upplýsingar og sagt
hvaða þjóðir hefðu verið þama að
verki. Hann nefndi þar til ísraela,
en neitaði að segja meira. Er hann
var spurður hvort flutningamir
hefðu farið fram að beiðni Banda-
ríkjastjómar, sagðist hann álíta að
svo væri. Upplýsingar þessar hafa
valdið aukinni gagnrýni á stjómvöld
í Washington fyrir samskiptin við
íran og hvöttu leiðandi þingmenn
í öldungardeildinni Reagan forseta
til þess að viðurkenna að vopna-
sendingamar hefðu verið mistök og
sögðu að rannsaka þyrfti málsatvik
öll.
Gangrýnin hefur m.a. beinst að
öryggismálaráðgjafa forsetans,
John Poindexter og ýmsir orðið til
þess að krefjast afsagnar hans.
Undir þessa kröfu tók dálkahöfund-
urinn George Will, sem talinn er
þekkja vel til mála í Hvítahúsinu,
í grein er hann skrifaði í dagblaðið
The Washington Post, í gær. Sagði
Fídel Ramos krefst breyt-
inga á ríkisstjórn Aquino
Mantla, AP.
FIDEL V. Ramos, yfirmaður alls
herafla Filipseyja, lýsti þvi yfir
í gær að herinn vildi að gerðar
yrðu breytingar á ríkisstjóm
Corazon Aquino. Hann sagði að
ósk þar að lútandi hefði ekki
verið lögð fram.
Ramos sagði að yfirmenn hersins
vildu að ráðherrar, sem að þeirra
mati væru of vinstrisinnaðir, yrðu
látnir víkja. Hann nafngreindi þá
hins vegar ekki.
Heimildir herma að Ramos hafí
á fundi með Aquino 21. október sl.
krafizt brottvikningar nokkurra
ráðherra en hún hafí synjað erind-
inu á þeirri forsendu að hún væri
ekki tilbúin til aðvíkja mönnum, sem
staðið hefðu með henni í gegnum
sætt og súrt á undanfömum árum.
Hermt er að meðal ráðherranna,
sem herinn vilji burt, séu Joker
Arroyo, forsetaritari, Aquilino Pi-
mentel, sem fer með málefni bæjar-
og sveitarstjóma og Augusto Sanc-
hez, verkalýðsmálaráðherra.
Að sögn Teodoro Benigno, tals-
manns stjómarinnar, átti Ramos
hálfrar annarrar klukkustundar
fund með Aquino í gær. Hann neit-
aði að skýra frá hvað þeim fór á
milli, en talið er að óskir hersins
um breytingar á stjóminni hafi ver-
ið aðalefni fundarins.
Sá orðrómur gekk fjöllunum
hærra í byrjun mánaðarins að yfir-
menn i hemum, sem hliðhollir væru
Juan Ponce Enrile, vamarmálaráð-
herra, hefðu lagt á ráðin um að
velta úr stóli ýmsum ráðherrum og
gera frú Aquino að valdalausum
þjóðhöfðingja. Ramos beitti sér
gegn því og sögðu fjölmiðlar hann
hafa afstýrt stjómarbyltingu.
Yfírlýsing Ramosar í gær kemur
hins vegar í kjölfar fjölmennustu
útifunda og mótmælaaðgerða til
styrktar vinstrimönnum. Rúmlega
eitthundrað þúsund manns flykkt-
ust út á götur Maníla og tóku þátt
í útför verkalýðsleiðtogans Rolando
Olalia. Mótmælagöngur og sam-
komur stóðu daglangt og var helzta
krafa dagsins að Enrile „og öðrum
fasistum" yrði vikið úr starfi.
Agapito „Butz“ Aquino, mágur
frú Aquino og einn helzti ráðgjafí
hennar, sagði í gær að hann hefði
komizt á snoðir um ráðabrugg sem
fól í sér að gerð yrði árás á eynni
Mindanao, syðst á Filipseyjum. Ár-
ásinni áttu að stjóma yfirmenn í
hemum, sem hliðhollir eru Marcosi,
fyrrum forseta. Ætlunin var að
skella skuldinni á Nur Misuari, leið-
toga uppreisnarmanna múhameðs-
trúarmanna. Aðgerðimar hefðu átt
að grafa undan stjóm Aquino. Hann
sagði að bandaríska leyniþjónustan,
CLA, hefði að öllum líkindum átt
aðild að því að skipuleggja árásina
á Mindanao. Hann sagðist einnig
halda að CLA hefði verið viðriðin
önnur áform um að grafa undan
stjóm frú Aquino.
hann að Reagan forseti liði nú fyr-
ir það, að hafa sem ráðgjafa menn,
er sístir væru til þeirra starfa af
öllum er gengt hefðu ráðgjafastörf-
um frá lokum síðari heimsstyijald-
ar. Taldi hann þurfa „nýtt blóð“ í
Hvítahúsið og færi vel á því, að
byija á að skipta um öryggismála-
ráðgjafa. Annað stórblað The Los
Angeles Times, hafði eftir ónafn-
greindum embættismönnum, að
George Shultz, utanríkisráðherra
og William Crowe, yfírmaður
bandaríska herráðsins hefðu hvatt
forsetann til að láta Poindexter
víkja úr starfi. í sömu frétt sagði
að ýmsir aðilar í starfsliði Hvíta-
hússins reyndu að koma Shultz,
utanríkisráðherra frá, þar sem hann
hefði opinberlega lýst sig andvígan
hinum leynilegu samskiptum við
íran. Er Larry Speakes, talsmaður
Bandaríkjaforseta var spurður
hvort Poindexter myndi láta af
störfum, svaraði hann „ Ég hef
ekki heyrt hann segja það“.
Ummæli Robert McFarlane, fyrr-
um öryggismálaráðgjafa forsetans,
er fór til íran til að ná sambandi
viðírani, þess efnis að Shultz, ut-
anríkisráðherra hafí allan tímann
vitað hvað var að gerast, hafa vak-
ið feikilega athygli. Sagði hann á
fundi í fyrrakvöld að hann hefði
látið Shultz vita jafnóðum hvemig
málum miðaði. Utanríkisráðherr-
ann hélt í gær til Kanada til fundar
við starfsbróður sinn þar og vildu
starfsmenn á skrifstofu hans í
Washington ekkert um málið segja.
McFarlane sagði einnig, að rangt
hefði verið að senda vopnin til íran,
en hingað til hefur hann varið þá
ákvörðun.
Stokkhólmi, frá Erik Liden, fréttaritaca
Morgunblaðsins.
HÁLFU ári eftir kjamorkuslysið
í Chernobyl hafa 70% Svía enn
miklar áhyggjur af afleiðingum
geislunarinnar. Kemur þetta
fram i skoðanakönnun, sem
geislavarnir sænska ríkisins gen-
gpist fyrir.
Fram kemur, að miðaldra konur,
sem búa í miðaustur-Svíþjóð, hafa
mestar áhyggjur enda féll mest af
geislavirku úrfelli á þeim slóðum.
Tveir af hveijum þremur Svíum,
sem þar eru búsettir, hafa reynt
að forðast mengunina með ein-
hveijum hætti, fyrst og fremst með
því að sneiða hjá nýmeti alls kon-
ar, grænmeti, kjöti og fiski. Það
sama á við um 50% þeirra, sem búa
í öðrum landshlutum.
Chemobylslysið fékk meira á
Svía en morðið á Olof Palme. Þegar
spurt var um mesta áhyggjuefnið
nefndu það 60% en 25% Palme. 15%
höfðu mestar áhyggjur af hryðju-
verkum.
Svíþjóð:
Óttast enn
geislunina
Byggð á eynni Oshima var talin í yfirvofandi hættu í gær vegna eldgossins og var áformað að flytja alla íbúana burt þá strax um kvöldið.