Morgunblaðið - 22.11.1986, Side 54
54
MORGUNBIxAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVÉMBÉR 1986
fclk í
fréttum
Leikfélag Verzlunarskólans:
Morgunverðar-
klúbburinn
sýndur
Leikfélag Verzlunarskóla ís-
lands, Allt milli himins og
jarðar frumsýndi á föstudagskvöld
leikritið „Morgunverðarklúbbinn",
eða The Breakfast Ciub. Handrit
að leikritinu var, með miklum dugn-
aði og framtakssemi, unnið upp úr
samnefndri kvikmynd, sem sýnd
var fyrir nokkru síðan í Laugarás-
bíói við metaðsókn.
Leikritið flallar um fimm krakka,
sem öll eiga það sameiginlegt að
eiga í refsingarskyni að sitja eftir
heilan laugardag í skólanum og
semja ritgerð um sjálfa sig og eigin
vandamál. — í fyrstu eru þau lokuð
gagnvart hvert öðru, en þegar á
líður daginn kynnast þau betur og
vingast.
Hver persóna verksins hefur
mjög ákveðin einkenni — ein er
„töffari", önnur gáfnaljós, sú þriðja
geðklofi, ijórða íþróttavesalingur,
fimmta pjattrófa. Þá eru ótaldir
kennarinn og húsvörður skólans.
Leikritið verður sýnt dagana 24.,
25. og 26. nóvember.
afmæíistertan
“» seni
Hressir að vanda, Gylfi Ægisson og Hemmi Gunn.
Ævintýramaðurinn
Gylfi Ægfisson
áraafmæli
Sem sjá má var mikill fjöldi fólks samankominn til þess að samfagna fyrirtækinu í tilefni af
80 ára afmælinu.
Gylfi Ægisson lætur ekki deig-
an síga og nú síðast sendi
hann frá sér söngævintýrið Valla
og snæálfana, en Gylfi er iöngu
orðinn landskunnur fyrir lagasmíð-
ar sínar og söng. Ævintýrið á sér
stað í Snæfellsjökli á Snæfellsnesi,
en þar gerast ýmsir dularfullir at-
burðir, sem Valii og hundurinn
Kobbi lenda í, ásamt vinum sínum
snæálfunum.
Fjöldi ungra leikara kemur fram
ásamt hundinum Kobba, Gylfa
Ægissyni og síðast en ekki síst
Hermanni Gunnarssyni (Hemma
Gunn), sem er sögumaður og jökul-
og ijallhress að vanda.
Athygli er vert að allur hljóð-
færaleikur er í höndum Gylfa eins,
sem auk þess samdi öll lög og
texta, útsetti og stjómaði upptöku
einn og óstuddur. Þá myndskreytti
hann umslagið að framan. Má þetta
teljast eindæmi í íslenskri tónlistar-
sögu.
Hluti af myndskreytingum á plötuumslagi.
Haraldur Sturlaugsson ávarpaði gesti i upphafi
afmælisfagnaðar ins.
Starfsfólk HB & co. afhenti fyrirtæki sínu veglega afmælisgjöf og afhenti Agnar Sigurðsson
hana. Hér er hann ásamt þeim Rannveigu Böðvarsson og Haraldi Sturlaugssyni, sem veittu
gjöfinni viðtöku. Hér sést Haraldur þakka starfsmönnum gjöfina.