Morgunblaðið - 22.11.1986, Side 61
fóoF’GÍJÍ'fójLAÍirÐ; LÁú&&fc&Gtjtí 22.’ÍJóVúkúfeíf Vék
Verða störf þessara manna nokkurntima séð í réttu ljósi nema gerður sé samanburður á þeim og verk-
um starfsbræðra þeirra i útlöndum?
Af hverju er Hjálparstofnun-
in ekki borin saman við syst-
urstofnanir í útlöndum?
Nýlega var birt skýrsla nefndar
sem hafði með höndum það verkefni
að kanna fjárreiður Hjálparstofnunar
kirkjunnar. Niðurstöður nefndar-
manna vekja athygli fyrir að vera
byggðar á rökum sem hægt er að
kalla allt að því gamaldags. Vekur
þar mest undrun gagnrýni á ferðalög
og laun starfsmanna, sem virðist
bera vott um vanskilning á starfsemi
sjálfseignarfyrirtækja. Það sem þó
er undarlegast er hlutdræg umfjöllun
ríkisútvarpsins. Sú uppsetning frétta
sem Ríkisútvarpið gerðist sekt um
mánudagskvöldið 3.11. er óútskýran-
leg af „apparati" sem þykist hlut-
laust. Öll uppsetning fréttarinnar var
einhliða gegn Hjálparstofnun kirkj-
unnar og viðtöl klippt „heppilega".
Engin tilraun var gerð til að útskýra
þær spumingar sem nefndarmenn
vörpuðu fram, heldur blésu frétta-
menn þær upp einsog þeir væru að
handfjatla blöðru. Dæmi um vandað-
an og hlutlausan fréttaflutning er
uppsetning DV á þessari frétt þriðju-
daginn 4.11. Svo ekki sé talað um
Morgunblaðið sama dag sem birti
skýrsluna í heild sinni svo að hver
og einn gæti dæmt fyrir sig.
Helgarpósturinn birtir aftur grein
sem einsog oftast virðist birt til að
búa til skoðun, ekki til að vera frétt
sem fólk getur metið hlutlaust útfrá
eigin forsendum. f raun er þetta ein-
hver dularfull grein þar sem blaða-
maður fer lofsorðum um eigin
blaðamennsku og hól til nefndar sem
gefur skýrslu sem timræddur blaða-
maður á auðvelt með að rangtúlka
sem sjálfshól. Það er óþarft að eyða
fleiri orðum á þess háttar blaða-
mennsku. Hins vegar eru á sömu
blaðsíðu kökurit með þeim vísvitandi
blekkingum að hjálparfólk geti kom-
ist ókeypis til Eþíópíu, að starfsmenn
eigi að lifa á loftinu, að frseðslustarf
og safnanir eigi að vinnast af sama
launalausa fólkinu án þess að það
kosti peninga, að hjálparfólk geti
sofið undir beru lofti og borðað það
sama. En þetta er auðvitað allt í
smáu letri til að enginn reyni að átta
sig á þessu, letrið er svo smátt að
það fer kannski best að það gleym-
ist, en’ ljótt er að sjá að blað geti
birt einhver kökurit útí loftið, þar sem
jafnfáránlegar röksemdir eru prent-
aðar sem skýringar í allt að því
ósjáanlegu smáu letri. Augljóslega
eiga hér kökuritin að villa um fyrir
grandalausum lesendum ellegar er
um áberandi vanhæfni blaðamanns
að ræða og þá er það vissulega prívat
leyndarmál HP og má kannski tala
um einhvers konar gagnrýnisvert
hjálparstarf í því tilfelli. Til að kóróna
allt saman dettur blaðið ofaná rétta
fyrirsögn „Vísvitandi blekkingar“.
Það má telja blaðinu til hróss. Helgar-
pósturinn felur sinn sora undir
formerkjum rannsóknarblaða-
mennsku (sbr. hlægilegan leiðara um
sannleiksást HP í HP fyrir nokkru),
sem útaf fyrir sig er stórvarasöm í
jafnlitlu landi og okkar, fyrir nú utan
hvað þetta blað hefur margsannað
lesendum sínum vanhæfni sína á
þessu sviði.
Það er aftur alvarlegra mál að
nefndin fyrmefnda skuli gagnrýna
ferðalög starfsmanna stofnunarinnar
á jafn óskilgreindan hátt og raun ber
vitni. Það vita allir sem til þekkja
hvað hjálparstarf í viðkomandi lönd-
um er viðkvæmt mál og nauðsynlegt
að aðgerðir séu samræmdar frá hin-
um ýmsu löndum. Nóg er óreiðan
fyrir í þessum löndum að ekki bætist
ofaná að hjálparstofnanir héðan og
hvaðan þvælist hver fyrir annarri og
auki á óreiðuna, að ekki sé talað um
hvað er í húfi og hvað nauðsynlegt
er að störf þessi séu samræmd og
skipulögð. Þó að þarft sé að viðhalda
gagnrýni á óþarft tal og nefndastúss
útum allan heim er ekki hægt að sjá
að það sé forsenda gagnrýni nefndar-
innar á ferðalög stofnunarinnar.
Furðulegt er að ekki skuli reynt að
bera Hjálparstofnun kirkjunnar sam-
an við systurstofnanir annars staðar
í heiminum til að fá fram raunhæfan
samanburð. Ég hef kynnt mér starf-
semi hjálparstofnana bæði hérlendis
og erlendis og veit að Hjálparstofnun
kirkjunnar myndi koma mjög vel útúr
þeim samanburði. Ber álit nefndar-
innar vott um vanþekkingu á þessu
sviði?
Annað sem vekur furðu og þá sér-
staklega í umfjöllun blaða er umfjöll-
un um laun. I umfjöllun fyrmefndra
Qölmiðla, reyndar einnig DV, er því
haldið fram að ferðalög sem eru
nauðsynleg fyrir starfsemi stofnunar-
innar og kostnaður við þau séu laun
til starfsmanna. Það eru margir í
stofnunum hér og hvar útum allan
bæ, sem væru fljótir að rísa upp á
afturfætuma ef þeir væm skikkaðir
til að vera tiibúnir að fara til útlanda
hvenær sem er vegna starfsins, vita-
skuld án fjölskyldu, og líta á það sem
launagreiðslu. Það er liðin tfð að þetta
þyki lúxus, hvaðþá launauppbót. Of-
aná þessa furðulegu túlkun em laun
Ómissandi Velvakandi.
Aðeins nokkur orð í þetta sinn:
Svo er málum komið að ég get
ekki þagað yfir því hve þakklát ég
er Guðmundi Guðmundarsyni fram-
kvæmdastjóra fyrir grein sem hann
skrifaði í Morgunblaðið 4. nóvember
síðastliðinn. Þar ræðir hann mjög
opinskátt og réttilega um hortitta-
samsetninginn, sem tröllríður fslensk-
um bókmennta-vettvangi. Það er rétt
eins og sumum finni^t nóg að raða
orðum lóðrétt á blað, þá sé það skáld-
skapur, þótt ekki finnist í þeim
verkum nokkur vitglóra. Svo er þetta
verðlaunað, þegar búið er að semja
við það lag, sem á víst að breiða yfir
hortittina. Óbundin ljóð geta verið
hreinar perlur, það viðurkenni ég,
starfsmanna birt án þess að gefið sé
upp hvort að um mikla eftirvinnu sé
að ræða, hvað þá að reynt sé að graf-
ast fyrir um hvort sú eftirvinna sé
réttlætanleg, heldur eru heildarlaunin
birt og gagnrýnd. Niðurstaða fyrr-
nefndra fjölmiðla verður því dökk
mynd af starfsemi Hjálparstofnunar
kirkjunnar án þess að forsendur þess
séu líkt því sannfærandi og raun ber
vitni. Það vita allir að það er ómögu-
legt að verða eitt né neitt án þess
að það kosti fómir, þetta hefur
gleymst í umflöllun fyrmefndra flöl-
miðla um Hjálparstofinun kirkjunnar,
vegna þeirrar staðreyndar að vondar
fréttir vekja meiri athygli en góðar
fréttir. Gagnrýni er jákvæð svo fremi
að hún sé í höndum fólks sem hefur
þroska til að vera gagnrýnið á eigin
gagnrýni. Það er komin tími til að
fólk átti sig á að annars dæmir hún
sig sjálf og ætti ekki að seljast nema
úr hillum klámblaða.
Hvemig er það annars, er ekki
fráleitt að gagnrýna eina fyrirtæki
kirkjunnar sem skilar • hagnaði og
eykur veltu sína, þó það hafí gerst
sekt um mistök sem allir sjá að eru
smávægileg, meðan að önnur fyrir-
tæki sem rekin em með gríðarlegu
tapi og em sek um stórvægileg mis-
tök em gagnrýnislaus. Er þetta ekki
bara enn eitt dæmið um fréttaþurrð
HP og markmiðslausa stefnu í rann-
sóknarblaðamennsku þess? Emm við
kannski rétt einu sinni að hengja
bakara fyrir smið vegna þess að til
er blað einsog HP? Em ekki ein-
hvetjir fleiri að velta þessu fyrir sér
og er þá ekki tími til kominn að taka
upp pennann? Eða er enn til fólk sem
vill lenda í því að vera gagnrýnt af
HP? Þú þarft ekki að hafa gert neitt
af þér, það þarf bara einhveijum að
vera nógu illa við þig og þú ert orð-
inn lifibrauð Helgarpóstsins. Er ekki
komið nóg?
6071-5157
þótt ég sjálf noti ekki þá aðferð, eða
formleysi.
Ég er sammála Guðmundi að ljóð
borgarafmælisins var ekki samboðið
svo virðulegri hátíð. Langtí frá. Þá
veit maður hvað úthlutunar- neftidir
verðlaunaflár kunna að meta, enda
hefur það oft sannast gegnum árin.
Þetta sýnir best að seta f slíkum
nefndum er vandasöm og á færra
færi að rækja þau embætti af rétt-
sýni og sanngimi.
Þetta átti nú ekki að verða neinn
ámynningar fyrirlestur, aðeins mikið
þakklæti til Guðmundar fyrir skrif
hans. Það ætti að verðlauna hann
fyrir greinina.
Filippía Kristjánsdóttir
Ekki nóg að raða orð-
unum lóðrétt á blað
Ertu að byggja — Viltu breyta — Þarftu að bæta
JQ
•O
(0
3
£
(0
a
(0
£
ja
3
cs
‘55
s
«0
<0
3
t:
Ui
LÆKKAÐ VERÐ
Afsl.
Málning ............ 15%
Penslar, bakkar,
rúllusett ......... 20%
Veggfóður og veggdúkur. 40%
Veggkorkur ......... 40%
Veggdúkur somvyl ...“50%
LÆKKAÐ VERÐ
til hagræðis fyrir þá sem eru að
BYGGJA - BREYTA EÐA BÆTA
Líttu við í LITAVERI því það hefur
ávallt borgað sig.
m
3
c
o>
o>
O"
vc
(O
(Q .
1
fi>
I
J
J
c
fi>
o»
O’
Ertu að byggja — Viltu breyta — Þarftu að bæta
/rm autBslar
AKLÆÐIOG GOLFMOTTURIFLESTAR
GERÐIR 8IFREIDA
Áklæðin eru hlý og teygjanleg
Fjölbreytt litaúrval
MOTTURNAR FÁST í RAUÐUM, BLÁ-
UM, BRÚNUM OG GRÁUM LITUM
KYNNIÐ YKKUR VERÐ 0G GÆÐl
FÁST Á NÆSTU BENSÍNSTÖÐ
AÐALFUNDUR
LANDVERNDAR
í Risinu, Hverfisgötu 101, Rvk.
UMHVERFISMÁLIIU
OG STJÓRNMÁLA-
FLOKKARNIR
Laugardagur 22. nóv. 1986
Kl. 10.00 Hvererstefnastjómmálafiokkannaíumhverfismálum?
Framsögumenn frá: Alþýðubandalagi Hjörleifur
Guttormsson, Alþýðuflokki Árni Gunnarsson, Fram-
sóknarflokki Davíð Aðalsteinsson, Kvennalista
Kristín Halldórsdóttir, Sjálfstæðisflokki Vigfús Jóns-
son.
Kl. 14.00 Umhverfismálin og stjórnarflokkarnir.
Framsögumenn:
1. Hörður Bergmann fulltrúi.
2. Friðjón Guðröðarson sýslumaður.
Umræöur.
Sunnudagur 23. nóv. 1986
Kl. 10.00 Venjuleg aðalfundarstörf.
Kl. 14.00 Fiskeldi og umhverfi.
Framsögumenn:
1. Gunnar Steinn Jónsson líffr.
2. Sigurður Pálsson málari.
Umræður um framsöguerindi.
Ráðstefnan er öllum opin.