Morgunblaðið - 22.11.1986, Page 64
Kröfugerð verkalýðshreyfmgarinnar í komandi kjarasamningnm mótuð um helgina:
ASÍ vill róttækar breyt-
ingar á skattakerfinu
Launanefnd ræðir umframhækkun framfærsluvísitölu eftir helgi
Jón Páll Sigmarsson
sterkasti maðtir
heims
JÓN Páll Sigmarsson endur-
heimti titilinn „sterkasti maður
heims“ i samnefndri keppni, sem
lauk í Frakldandi í gser. A mynd-
inni lyftir Jón Páll Sigmarsson
140 kg steini í keppninni.
Sjá bls. 62.
LAUNANEFND ASÍ og VSÍ kemur saman til fundar klukkan 9 á
mánudagsmorguninn til þess að ákveða hvort laun skuii hækka i
samræmi við hækkun framfærsluvísitöhi 1. nóvember umfram þau
mörk sem gert var ráð fyrir í kjarasamningunum í febrúar. Samn-
ingsbundin launahækkun 1. desember er 2,5%, en verði hækkun
framfærsluvísitölunnar að fullu bætt ættu laun að hækka um tæp
4,6% 1. desember.
■ ■*»».
Launanefndin er skipuð fjórum
mönnum, tveimur frá hvorum aðila.
Verkefni hennar er meðal annars
að meta launahækkanir í tilfellum
sem þessum og ber henni að reyna
að ná samkomulagi. Aðilar fara til
skiptis með oddaatkvæði í nefndinni
og hefur það verið í höndum ASÍ
frá þvf samningamir voru gerðir,
þar sem til þessa hefur ávalit orðið
samkomulag í nefndinni.
Ráðgerð eru mikil fundarhöld hjá
Alþýðusambandi íslands og lands-
samböndum innan þess um helgina,
þar sem kröfugerð í komandi kjara-
samningum verður mótuð og
ákveðið hvemig að henni skuli stað-
ið, en núgildandi kjarasamningar
renna út um áramót. Landssam-
böndin eru með formannafundi í
dag og á morgun verður formanna-
fundur ASÍ haldinn. Þá verður
sambandsstjómarfundur Alþýðu-
sambandsins á mánudag og þriðju-
dag.
Verkamannasambandið var með
sambandsstjómarfund í gær og
voru þar nokkuð skiptar skoðanir
Ólympíuskákmótið:
íslendingar deila
efsta sætinu með
Sovétmönnum
„ÞAÐ LEGGST nokkuð vel í okk-
ur að tefla við Rússa, þegar þeir
eru nýbúnir að tapa tveimur
. .skáknm í sömu umferð," sagði
Margeir Pétursson f samtali við
Morgunblaðið í gærkveldi.
„Ég tel víst, að Rússar stilli upp
sínu sterkasta liði, því þeir verða
að vinna," bætti Margeir við en
íslendingar komust upp að hlið
Sovétmanna í efsta sæti með góðum
sigri á Aigentínu á ólympíuskák-
mótinu í gær. Helgi gerði jafntefli
við Campora, Jóhann vann Panno,
Jón L. gerði jafntefli við Garcia
Palermo og Margeir vann Ricardi.
Þriðji 3—1 sigurinn í röð og í dag
tefla íslendingar við Sovétmenn.
„Það er lítið að marka efsta
sæti okkar núna, því við eigum eft-
að tefla við allan topinn," sagði
Margeir. Önnur úrslit í gær: Sov-
Jusupov—Short 1—0, Vaganjan—
Chandler 0—1);
Staða efstu þjóða: 1.—2. Sov-
étríkin og ísland, 17‘A v. 3.-5.
England, Bandaríkin og Rúmenía,
17 v. 6. Júgóslavía, I6V2 v. og 2
biðskákir.
Sjá skákgrein bls. 36.
um hvemig standa skuli að samn-
ingagerðinni. Meðal annars mættu
andstöðu hugmyndir Dagsbrúnar
um að gera bráðabirgðasamninga
til 1. maí og að félögin sjái hvert
fyrir sig um uppstokkun á launa-
kerfum.
Forsvarsmenn ASÍ hafa lýst því
yfir að í samningunum verði settar
á oddinn kröfur um sérstaka hækk-
un lægstu launa, að færa kauptaxta
að greiddu kaupi og að auka hlut
fastra launa í heildartekjum, enda
eru ákvæði þar að lútandi í samn-
ingunum frá því í febrúar. Þá er
Morgunblaðinu kunnugt um að inn-
an ASÍ em í undirbúningi tillögur
um róttækar breytingar á skatta-
kerfinu, þar sem það yrði mjög
mikið einfaldað. Meginbreytingam-
ar felast í því að sameina tekjuskatt
og útsvar í einn skatt, sem verði
ákveðin prósenta af launum, jafn-
framt því sem tekið verði upp
staðgreiðslukerfi skatta. Þá verði
tekinn upp sérstakur afsláttur til
launamanna, sem verði föst krónu-
tala og frádráttarliðum verði
fækkað. Einnig verði skattleysis-
mörk hækkuð. Ef af verður er gert
ráð fyrir að hægt sé að taka þetta
nýja skattakerfi upp á næsta ári.
Með þessu móti yrði skattbyrðinni
jafnað án þess þó að tekjur hins
opinbera minnkuðu. Einn viðmæl-
enda Morgunblaðsins lét svo um
mælt að það kæmi sér ekki á óvart
að skattkerfisbreyting yrði stóra
málið í þessum samningum á svip-
aðan hátt og húsnæðismál vom
stóra málið í síðustu samningum.
Þessar hugmyndir verða kynntar
á formannaráðstefnu ASÍ á sunnu-
dag.
Stofnun nýs hlutafélagsbanka:
Samvinnu- og Alþýðubanka
boðin þátttaka í viðræðum
étríkin—England 2-2 (Kasparov- i MATTHÍAS Bjarnason viðskipta-
Miles 1-0, Sokolov—Nunn 0-1, f ráðherra hefur boðið stjórnend-
um Samvinnubankans og
~“ Alþýðubankans að taka þátt f
samningaviðræðum um stofnun
nýs banka með sameiningu allra
einkabankanna og Útvegsbank-
ans. Matthías sagði í gær að það
væri ákveðinn vilji stjómvalda
að öllum einkabönkunum gæfist
tækifæri til að taka þátt í viðræð-
um um stofnun nýja bankans og
stæði þeim það nú til boða. Það
væri síðan stjómenda þeirra að
taka ákvörðanir um hvort þeir
vildu taka þátt.
Viðskiptaráðherra boðaði í gær
til fyrsta fundar þeiira aðila sem
þegar hafa lýst áhuga á stofnun
hins nýja hlutafélagsbanka, það er
Frá fyrsta samningafundinum um stofnun nýs einkabanka. Matthias
Bjamason viðskiptaráðherra situr við borðsendann og stjórnar fund-
inum. Honum til vinstri handar við borðið sitja: Þórhallur Ásgeirsson
ráðuneytisstjóri, Ami Gestsson formaður bankaráðs Verslunarbank-
ans, Baldvin Tryggvason formaður Sambands íslenskra sparisjóða
og Sigurður Hafstein framkvæmdastjóri sama sambands. Við borðs-
endann á móti ráðherranum situr Davíð Scbeving Thorsteinsson
formaður bankaráðs Iðnaðarbankans og næstur honurn Ragnar
Önundarson bankastjóri Iðnaðarbankans, þá Höskuldur Ólafsson
bankastjóri Verslunarbankans, Geir Hallgrimsson seðlabankastjóri,
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri og Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra. Bragi Hannesson bankastjóri Iðnaðarbankans sat
einnig þennan fund.
Seðlabankans, Iðnaðarbankans,
Verslunarbankans og Sambands
íslenskra sparisjóða. Matthías sagði
í gær að fundurinn hefði verið gagn-
legur, menn komið fram með
skoðanir sínar og upplýsingar og
farið yfir það helsta sem um væri
að ræða. Ákveðið hefði verið að
halda viðræðunum áfram. Bjóst
hann við að næsti fundur yrði hald-
inn í næstu viku. Á fundinum
tilkynnti viðskiptaráðherra um vilja
stjómvalda til þátttöku hinna einka-
bankanna og að fundinum loknum
kom hann boðum um þetta til Al-
þýðubankans og Samvinnubank-
ans.
Matthías sagði að reynt yrði að
vinna að þessu máli eins hratt og
mögulegt væri, en ómögulegt væri
að segja til um hvenær niðurstaða
fengist.