Morgunblaðið - 07.12.1986, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1986
9
HUGVEKJA
Draumar
eftir Einar J. Gíslason
Hvað segir Biblían um drauma?
Eigum við að trúa draumum? Svo
er spurt. Skal nú leitast við að
skýra frá því sem Biblían segir
um drauma.
Alls staðar á söguslóðum Biblí-
unnar trúðu menn að draumar
væru ein af þeim leiðum, sem Guð
næði til mannanna. Frásagnir í
Gamla- og Nýjatestamentinu
staðfesta að Guð talar í gegnum
drauma. Ekkert svæði í mannlegu
lífi er undantekið frá áhrifum
Guðs. Þegar Abímelek konungur
tók Söru konu Abrahams í hús
sitt þá dreymdi Abímelek að Guð
kæmi til hans í draumi og segði
við hann: „Sjá þú skalt deyja
vegna konu þeirrar, sem þú hefir
tekið, því hún er gift kona.“ 1.
Mós. 20. kap. 3. v. Svo mikil áhrif
hafði draumurinn á Abímelek
konung, að um morguninn er
hann vaknaði árla dags, kallaði
hann til sín þjóna sína og ráð-
gjafa. Greindi hann frá draumum
sínum. Urðu menn hans mjög
óttaslegnir. Versið 17. greinir frá
að Abraham bað fýrir Abímelek
og Guð læknaði Abímelek og stór-
kostieg bænasvör veittust kon-
ungi Abímelek. Hann trúði því
sem hann dreymdi og fór eftir því!
Ein göfugasta söguhetja Biblí-
unnar var Jósef Jakobsson.
Ógæfa hans hefst með draumi,
sem endar með mannsali hans og
margra ára fangavist. I fanga-
vist. í fangelsinu voru tveir
meðfangar hans, er dreymdu
drauma. Jósef réð drauma þeirra
en báðir rættust. Tveim árum eft-
ir þetta dreymir Faraó konung
draum. Var hann staddur við ána
Níl og dreymdi fallegu kýmar sjö,
er komu upp úr ánni. Hann
dreymdi einnig magrar og ljótar
kýr, er komu á eftir þeim fallegu.
Þá vaknaði Faraó. Nú dreymir
hann áfram, sjö öx er óxu á einni
stöng, þrýstileg og væn. Og sjá,
sjö öx, grönn og skrælnuð af aust-
anvindi, svelgdu í sig fallegu öxin.
Faraó vaknaði og varð mjög órótt
í skapi. Hann trúði á drauma og
vildi vita ráðningu drauma sinna.
Faraó lét kalla Jósef Jakobsson
úr fangelsinu, gerði hann það í
skyndi. Mikið lá við. Konunginn
dreymdi og mikið lá við að fá
ráðninguna á draumunum. Jósef
var vandanum vaxinn. Því andi
Drottins bjó í honum. Hefst nú
I„Þegar spámaður er á meðal yÖar, þá
birtist ég honum í sýn eÖa tala við
hann í draumi. “
ein af stórkostiegustu frásögnum
Biblíunnar, sem grundvallaðist á
draumum og tekið var eftir þeim.
1. Mós. 41.
í 4. Mósebók 12. kap. 6. versi
er skrifað: „Þegar spámaður er á
meðal yðar, þá birtist ég honum
í sýn eða tala við hann í draumi."
Þetta er sögn Drottins.
Bæði Jósef og Daníel hófust til
æðstu metorða í ríkjum sínum.
Frami þeirra beggja var tengdur
draumum, sem konungar rílqanna
dreymdi á sitthvorum tíma í sitt-
hvoru landi; fengu vísdóm og náð
Drottins til lausnar í miklum
vanda.
í þrengingum sínum skrifar Job
í 33. kapitula bókar sinnar, 14.
versi: „Því vissulega talar Guð
einu sinni, já tvisvar,_ en menn
gefa því ekki gaum. I draumi, í
nætursýn. Þá er þungur svefn-
höfgi er fallinn yfír mennina. Sjá
allt þetta gerir Guð, tvisvar eða
þrisvar við manninn. Til þess að
hrífa sál hans frá gröfínni." Gef-
um draumum okkar nákvæman
gaum. Þeir geta verið tal Drottins
og viðvörun til okkar. Allir sem
lesa Nýjatestamentið kannast við
hvemig engill Drottins vitjaði Jó-
sefs manns Maríu í draumi, með
endurtekningum. Matt. 1. og 2.
kapitular. Eða viðvörun konu
Pílatusar til manns síns. Matt. 27.
19.
Postulasagan 18. kap. vers 9
greinir frá hvemig Drottinn talaði
við Pál, svo ekki var um að villast.
Gefum gaum, því sem ber fýrir
okkur. Því vissulega talar Guð.
4-50.000.000
Verslunar- og skrifstofuhúsnæði óskast
Höfum fjársterka kaupendur að verslunar- og skrifstofu-
húsnæði af ýmsum stærðum í miðborginni og austur-
borginni (Múlahverfi). Byggingarréttur má fylgja.
Hér er um að ræða ákveðna kaupendur, sem kaupa
rétta eign strax.
SaziDM
EKnnmiDLunm
ÞINGHOLTSSTR/ETI 3 SIMI 27711
Sölustjóri: Sv*rrir Kristinsaon
Þorloifur Guörnundsson, sölum.
Unnstsmn B*ck hrl., sími 12320
Þórólfur Halldórsson, Itfgfr.
LITGREINING MED
CROSFIELD
64SIE
LASER
LYKILLINN AÐ VANDAÐRI
LITPRENTUN
MYNDAMÓT HF.
Nýjar íbúðir í miðbænum
Vorum að fá í einkasölu fjórar 2ja herb. íbúðir við Garða-
stræti 9 í Reykjavík. Stærð frá 65 fm til 80 fm. Seljast
tilb. undir tréverk með frág. sameign úti og inni. Hagst.
verð. Til afh. hinn 1. júní nk.
Teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
Ath.: aðeins 4 íbúðir eftir í 6 íbúða húsi
28444
Opið 1-3 í dag
HttSEIGNIR
VEL TUSUNDI 1 Q
SIMI 28444 Wm. vHltt
FJÁRFESTINGARFÉIACIÐ
VERÐBREFAMARKAÐURINN
Genaiðidaq 7. DESEMBER 1986 Markaósfrettir
Veðskuldabréf - verðtryggð
Veðskuldabréf - óverðtr.
Lónst.
2afb.
áárl
Nafn-
vextir
HLV
Sölugengi m.v.
mism. ávöxtunar-
kröfu
12% 14% 16%
1 ár
2 ár
3 ár
4 ár
5 ár
6ár
7ár
8ár
9ár
10 ár
4%
4%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
95
91
90
88
85
83
81
79
78
76
93
90
87
84
82
79
77
75
73
71
92
88
85
82
78
76
73
71
68
66
Lánst. 1 afb. áári Sölugengi m/v. mism. nafnvexti
20% HLV 15%
1 ár 89 84 85
2 ár 81 72 76
3ár 74 63 68
4ár 67 56 61
5ár 62 50 56
KJARABRÉF
Gengi pr. 5/12 1986 = 1,798
Nafnverð
Söluverð
5.000 8.990
50.000 89.900
Tekjubréf:
Hlutabréf:
TEKJUBRÉF
Gengi pr. 5/12 1986 = 1,085
Nafnverð
Söluverð
100.000 108.500
500.000 542.500
Þú ert á föstum launum hjá sjálfum þér
ef þú átt Tekjubréf.
Kaupirðu hlutabréf í Hlutabréfasjóðnum hf.
getur þú fengið skattaafslátt á næsta ári.
Upplýsingabæklingar um Tekjusjóðinn hf. og Hlutabréfasjóðinn hf.
fást hjá okkur.
Hringið í síma 28566 og við sendum þér bæklinga strax.
f jármál þín -sárgrein okkar
Fiárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 slmsvari allan sólarhringinn
ÓSA/SlA