Morgunblaðið - 07.12.1986, Blaðsíða 37
J
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1986
37
Samdráttur hjá Lands-
l' virkjun í undirbúnings-
vinnu nýrra virkjana
- sagði forstjóri Landsvirkjunnar
LANDSVIRKJUN á nú fimm
verkhannaðar virkjanir með
orkugetu, sem nemur alls um
3.300 GWli á ári og eru virkjanir
þessar nánast komnar á útboðs-
stig. Hinsvegar hefur dregið
verulega úr áframhaldandi vinnu
þar sem hin nýja orkuspá frá
1985 gerir ráð fyrir mun minni
aukningu í raforkueftirspurn
hins almenna markaðar á næstu
árum en áður og i öðru lagi ætla
samningar um nýjan orkufrekan
iðnað að taka lengri tíma en von-
ir stóðu til.
Þetta kom m.a. frám í ræðu
Halldórs Jónatanssonar, forstjóra
Landsvirkjunar, á 25 ára afmæli
Félags ráðgjafaverkfræðinga fyrir
nokkru. „Af þessum ástæðum hefur
nú óhjákvæmilega komið til sam-
dráttar hjá Landsvirkjun í undir-
búningi nýrra virkjana og það svo
að um munar. Hér er þó vonandi
aðeins við tímabundna erfiðleika að
etja í þeirri viðleitni okkar að riýta
vatnsaflið sem mest og best. í því
skyni getur þróun orkufreks iðnað-
ar hér á landi skipt sköpum. Einnig
er hugsanlegt að flytja megi raf-
orku héðan eftir sæstreng til
Skotlands á það hagkvæman hátt
að hún geti orðið samkeppnisfær
við orku frá kola- og lqamorku-
stöðvum, en sá möguleiki er nú í
athugun hjá Landsvirkjun. Ekki
má heldur gleyma þeim möguleik-
um, sem eru fyrir hendi í því að
auka raforkunotkun í almennum
iðnaði hér innanlands og til hús-
hitunar, beint eða með samkeyrslu
við hitaveitur."
Halldór sagði að orkuspáin frá
1985 skakkaði um 400 GWh á ár-
inu 1990 og um 1.200 GWh árið
2000 miðað við það sem orkuspáin
frá 1981 gerði ráð fyrir og er þá
ekki tekið tillit til aukningar (orkuf-
rekum iðnaði. „Miðað við hina nýju
spá ætti ekki að þurfa að gang-
setja fyrstu vél Blönduvirkjunar
fyrr en 1991 og orkan frá virkjun-
inni ætti að nægja til næstu
aldamóta komi ekki til neinna við-
bóta í orkufrekum iðnaði."
Halldór sagði að íslenskir ráð-
gjafar hefðu nú að mestu komið í
stað þeirra erlendu að því er snert-
ir verkfærðiþjónustu í þágu virlq-
anaframkvæmda hér á landi. Á
fyrstu starfsárum Landsvirkjunar,
1966 til 1970, var hlutdeiic
íslenskra ráðgjafa í heildarkostnaði
fyrirtækisins 18% og erlendra 82%.
A síðustu fimm árum hefur þetta
hinsvegar snúist við og er þá
íslenski hlutinn orðinn 87% og sá
erlendi 13%.
Ráðgjafarkostnaður Landsvirkj-
unar sem hlutfall af árlegri fjárfest-
ingu var um 6% á ári að meðaltali
á því 20 ára tímabili sem fyrirtæk-
ið hefur starfað. Hæst var hlutfallið
1973, eða 18%, en þá voru störf i
hámarki við undirbúning Sigöldu-
virkjunar. Lægst var hlutfallið
1977, eða 2%, en þá voru fram-
kvæmdir við Hvalfjarðarlínu í
hámarki og fjárfesting tiltölulega
mikil miðað við ráðgjafarkostnað,
að sögn Halldórs.
Á 20 ára tímabili hefur heildar-
kostnaður Landsvirkjunar vegna
aðkeyptrar verkfræðilegrar ráð-
gjafar numið alls um 2.243 millj.
kr. á verðlagi 1. júli 1986. Þar al
eru 1.066 millj. kr. vegna íslenskra
ráðgjafa og 1.177 millj. kr. vegna
erlendra ráðgjafa.
„Erlendis þekkist að ráðgjafar
bjóði í þjónustuverk og að samið
sé fyrirfram um verkþóknun. í
slíkum tilvikum velur verkkaupi
þann ráðgjafa, sem hann metur
hæfastan tæknilega séð til að vinna
verkið, en jafnframt er að sjálf-
sögðu tekið tillit til kostnaðar. Að
því er ég best veit, hefur þessi leið
enn sem komið er ekki verið farin
hér á landi í neinum mæii," sagði
Halldór.
„í samningum Landsvirkjunar og
ráðgjafa eru engin ákvæði um há-
mark vinnustundaijölda vegna
einstakra verkþátta, enda oft erfitt
að koma slíkum hámarksákvæðum
við. Því er það að miklu leyti undir
ráðgjöfunum sjálfum komið hve
margar vinnustundir fara í hlutað-
eigandi verk. Aðhaldið verður hér
fyrst og fremst að felast í starfs-
heiðri ráðgjafans og hinu almenna
eftirliti verkkaupans, sem hinsveg-
ar getur aldrei verið í aðstöðu til
að telja hveija klukkustund," sagði
Halldór.
Já, Skátabúöin byrjar skíöavertíöina á glæsilegan hátt.
Mikill afsláttur á glerfínum skíöavörum.
Skíði, bindingar, skór og buxur. Allt toppvörur á toppveröi.
Ekki missa af þessu stórkostlega tækifæri.
♦
SKATABUÐIN
Snorrabraut 60 sími 12045
FLJÚGIÐ í JÓLAFRÍIÐ
Flugleiðir hafa nú sett upp yfir
50 aukaflug innanlands fyrir
jólin.
Við gerum okkar besta til þess
að koma öllum á ákvörðunar-
stað áður en hátíðin gengur í
garð.
Vinsamlega bókið far tíman-
lega, því síðustu ferðir fyrir jól
fyllast fljótt.
Til þess að forðast biðraðir á
flugvelli bendum við farþegum
okkar á að kaupa farmiða í
söluskrifstofum okkar eða hjá
ferðaskrifstofum.
Söluskrifstofur Flugleiða eru:
Lækjargötu 2 (Nýja bíó).
Hótel Esju við Suðurlands-
braut.
Álfabakka 10 (í Mjóddinni).
Farpantanir í síma 26622.
FLUGLEIÐIR