Morgunblaðið - 07.12.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1986
31
ST. JÓSEFSSPÍTALI
í HAFNARFIRÐI
ur í meltingarsjúkdómum. Á
röntgendeild e_r prófessor Ásmund-
ur Brekkan. Á handlækningadeild
eru auk mín Víglundur Þór Þor-
steinsson kvensjúkdómafræðingur,
Ami Bjömsson sérfræðingur í líta-
lækningum, Bragi Guðmundsson
sérfræðingur í bækiunarlækning-
um, Bjöm Þ. Þórðarson háls, nef
og eymalæknir og Jóhannes Gunn-
arsson í almennum skurðlækning-
um.
Sjúklingafjöldinn sem hefur legið
hér á spítalanum er ótrúlega hár.
Eg hef að vísu ekki tölur um hversu
mikill hann er frá upphafí en síðustu
árin, eftir að nýja viðbyggingin var
tekin í notkun, hefur fjöldinn á ári
verið á bilinu 1.700 til 1.800 sjúkl-
ingar og fer öruggiega yfír 2.000
á þessu ári. Til samanburðar má
geta þess að fyrsta heila starfsárið
vom hér 339 sjúklingar."
Barnaskólinn
„Jafnframt rekstri spítalans hafa
systumar starfrækt bamaskóla hér
í Ilafnarfírði," segir Jónas og víkur
talinu aftur að starfsemi St. Jósefs-
systranna. „Þessi skóli var fyrst til
húsa í tveimur litlum timburhúsum
sem þær áttu hér á lóðinni, en að-
sókn varð brátt svo mikil að úrbóta
var þörf. Var þá ráðist í það stór-
virki að reisa hér mikið og myndar-
legt skólahús, handan götunnar og
var það tekið í notkun árið 1938,
eða í lok kreppunnar. Þetta var
mikil og vönduð bygging og sýndi
stórhug systranna á þessu sviði sem
og í öðrum framkvæmdum sem þær
réðust í. Starfsemi skólans stóð
lengi eða þar til hann þótti ekki
lengur falla inn í skólakerfíð og var
hann þá lagður niður. Eftir það var
rekið hér dagheimili fyrir ungböm
og var þessi rekstur, ekki síður en
spítaiareksturinn, til mikilla hags-
bóta fyrir Hafnfírðinga. Bama-
heimilið var síðan flutt úr gamla
húsnæðinu í nýtt, sem tekið var í
notkun fyrir þremur árum. Þegar
ljóst var að bamaheimilið yrði flutt
úr gamla skólahúsinu var farið að
íhuga hvemig nota mætti það í
þjónustu spítalans. Kom þá upp sá
stórhugur í systrunum, eins og jafn-
an áður, að byggja tengiálmu milli
spítalans og skólans. Átti sú teng-
iálma að bæta úr þröngum húsa-
kosti við ýmsar þjónustugreinar
sjúkrahússins svo og stuðla að
aukningu nýrra sjúkrarúma. Var
unnið markvisst að þessari upp-
Jónas Bjarnason yfirlæknir í hópi samstarfsfólks á St. Jósefssprtala. Til hægri er Jósef Ólafsson, yfirlæknir
á lyflæknisdeild.
byggingu, allar teikningar tilbúnar
og leyfi fer.gið frá bæjaryfírvöldum
til að hefjast handa þegar reiðar-
slagið dundi yfír, systumar ákváðu
að hætta spítalarekstri í Hafnar-
fírði.
Ástæðan var fyrst og fremst sú,
að þær systur voru orðnar rosknar
og treystu sér ekki til að halda
starfseminni áfram. Reynt var að
fá nýjar í þeirra stað en það tókst
ekki. Um tíma vom hér Mercysyst-
ur frá írlandi, sem hjálpuðu upp á
sakimar en þær ílentustu ekki og
hurfu aftur til sinna heima. Fyrir
okkur, sem unnu hér á spítalanum,
var þetta reiðarslag og við gátum
ekki hugsað þá hugsun til enda að
sjúkrahúsið yrði rekið áfram án
systranna. Og víst er um það að
söknuðurinn var mikill þegar þær
fluttu alfamar úr húsinu til sinna
nýju heimkynna í Garðabæ. En
tíminn læknar öll sár og við höfum
smám saman aðlagst nýrri tilvem
hér.“
Ný og fullkomin röntgen-
deild
„Systumar hafa þó áfram stutt
dyggilega við við bakið á okkur í
þeirri uppbyggingu sem hér hefur
átt sér stað á síðustu ámm. Lokið
var við innréttingu á gamla skóla-
húsnæðinu fyrir læknastofur og var
það tekið í notkun á síðasta ári.
Þá var fyrr á þessu ári lokið við
St. Jósefsspítali ð vígsluárinu 1926
Bjami heitinn Snæbjömsson fyrrum yfiríæknir ásamt systur Albínu
og systur Evalíu, en þær störfuðu með honum allan hans starfstíma
á St. Jósefsspftala.
***nk<4 ■
ÁRA
stækkun rannsóknarstofu spítal-
ans, húsnæðið stækkað um rúmlega
helming og öll aðstaða þar bætt til
mikilla muna frá því sem áður var.
Fjöldi rannsókna, sem rannsóknar-
stofan framkvæmir, hefur vaxið
gífurlega jafnfætis því sem aukin
umsvif hafa orðið hér í húsinu. Er
hún nú fær um að gera flestar þær
rannsóknir sem þarf að gera innan
sjúkrahússins.
Loks má svo nefna síðasta áfang-
ann sem við emm nú að fagna á
sextugsafmælinu, en það er að við
emm nú að taka í notkun nýja og
fullkomna röntgendeild. Naut
spítalinn þar góðvildar bæjarbúa í
ríkum mæli með fijálsum fjárfram-
lögum þeirra. Hefði aldrei verið
hægt að ráðast í svo fjárfrekt fyrir-
tæki ef velvildar bæjarbúa hefði
ekki notið við. Segja má að ekki
hafi verið vanþörf á að taka til
hendinni í röntgendeildinni þar sem
tækjakostur, sem þar var fyrir, var
tekin í notkun á 40 ára afmæli
spítalans, eða fyrir tuttugu ámm.
Er með ólíkindum hvað röntgen-
læknum spítalans, sérstaklega
Ásmundi Brekkan prófessor og yfír-
lækni, hefur tekist að fá út úr gömlu
tækjunum. Með nýju tækjunum
verður spítalinn nú búinn til að
sinna flestum eða öllum röntgen-
rannsóknum sem fram fara hér
innanhúss, auk þess sem hún getur
tékið við §ölda rannsókna fyrir
bæjarfélagið og nágranabæina og
þarf þá ekki lengur að leita til
Reykjavíkur með slíkar rannsóknir.
Nú em tímamót í sextíu ára sögu
St. Jósefsspítala í Hafnarfírði. Nýj-
ir eigendur taka brátt við sjúkra-
húsinu og við vonum að fordæmi
systranna í öll þessi ár verði höfð
að leiðarljósi við rekstur sjúkra-
hússins í framtíðinni. Að hann fái
áfram að starfa óáreittur á sem
breiðustum gmndvelli með hag
bæjarbúa og nágranabæjanna í
huga og að unnið verði áfram að
uppbyggingu stofnunarinnar eftir
því sem þörf krefur hverju sinni.
Ég vil að lokum koma á fram-
færi innilegu þakklæti okkar
Hafnfírðinga til St. Jósefssystra
fyrir það fómfúsa og óeigingjama
starf sem þær hafa unnið hér við
sjúkrahússtörf á undanfömum
sextíu ámm. Megi þeim auðnast
að sjá þennan stað blómstra áfram
eins og hann hefur gert undir þeirra
forsjá," sagði Jónas Bjarnason yfir-
læknir að lokum.
Texti: Sveinn Guðjónsson
Herraterylenebuxur frá kr. 1200,
kokka- og bakarabuxur á kr. 1000,
kokkajakkar kr. 1000,
drengjabuxur frá kr. 700.
Saumastofan, Barmahlíð 34,
gengið inn frá Lönguhlíð. Sími 14616.
Hádegisverðarfundur
Breytingar I skattamálum
Félag viðskiptafræðinga og hagfræð-
inga heldur hádegisverðarfund í
Þingholti á Hótel Holti fimmtudaginn
11. desember kl. 12.00—13.30. Þar
mun Geir H. Haarde aðstoðarmaður
fjármálaráðherra ræða um breytingar Goir h. Hoarde
og nýjustu viðhorf í skattamálum.
Mætum tímanlega.
Stjórnin
ATHYGLISVERÐ BÓK
UM DULRÆN MÁLEFNI
DRAUMAR
OG ÆÐRI
HANDLEIÐSLA
Ingvar Agnarsson skráir í þessa bók af hógvœrð
og vandvirkni frásagnir Aðalheiðar Tómasdóttur,
eiginkonu sinnar.
Helgi Vigfússon skrifar formála.
Aðalheiður Tömasdóttr
Dyngja
bókaútgáfa, Borgartúni 23 105 Reykjavík, s 91-36638, 91-28177 og 91-30913.