Morgunblaðið - 07.12.1986, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1986
38
Heiðursmaðurinn
Cary Grant
„Allir eldast, nema Cary Grant.“ (Grace Kelly)
Cary Grant, sem lést úr hjartaslagi í Bandaríkjunum fyrir
viku, var skapaður úr hreinni fantasíu, mun meira svo en
aðrar stjörnur, sem skapaðar hafa verið í Hollywood. A með-
al örfárra samtíðarmanna, sem hægt er að kalla jafningja
hans, var eitthvað í æfisögum þeirra, eitthvað í sambandi við
tímann sem þeir lifðu á og staðinn sem þeir komu frá, hvort
sem það var New York Cagneys eða Nebraska Henry Fonda,
sem loddi við þá og fylgdi þeim hvar sem þeir fóru. Þessi
sannleikskorn tengdu kvikmyndapersónur þeirra við raun-
veruleikann og léðu því sem þeir gerðu á tjaldinu, hversu
ólíkindalegt sem það var, ákveðinn trúverðugan hljóm. Það
gerði þá sérstaka I hópi keppinautanna og minnisstæða þegar
mörg hlutverk sem þeir léku voru það ekki. Þessu var öfugt
farið með Grant.
Þannig kemst bandaríski rithöf-
undurinn og kvikmyndagagmýn-
andinn Riehard Schickel að orði í
breska blaðinu Observer fyrir þrem-
ur árum í tilefni af væntanlegu
áttræðisafmæli Cary Grants. Og
hann heldur áfram: Grant byggði
af yfirlögðu ráði upp persónu, sem
tengdist engu í lífi hans eða þeim
tímum sem hann lifði á. Hann lék
yfírleitt ekki það sem hann hafði
verið heldur það sem hann vildi að
hann hefði verið þegar hann var
ungur; ekki minningu um eitthvað
raunverulegt heldur minningu um
draum. Kvikmyndapersóna hans
var stílfæring sem byggði á stílfær-
ingum sem voru áður til staðar og
hann hafði kynnst í skemmtanaiðn-
aðinum. Og þótt hann hafi orðið
nafnfræg stjama innan tveggja ára
frá því hann fyrst kom fram í kvik-
mynd árið 1932, varð hann ekki
slík í fyllstu merkingu þess orðs
fyrr en nokkrum ámm seinna þegar
myndirnar sjálfar voru færðar í
stílinn, hinar brjálæðislegu gaman-
myndir fjórða áratugarins, sem
gátu meðtekið þessa sköpun hans,
væri rétt með farið.
Og svo hélt hann áfram þar til
einn daginn að hann fann sjálfan
sig í hlutverki manns sem ekki
hreppti stúlkuna (í myndinni Walk,
Don’t Run árið 1966). Hann tók
því vel og sagði pressunni að annað
hefði verið smekkleysa miðað við
aldur hans. Svo á endanum hætti
hann að vera hann en varð hin frek-
ar draugalega, gráhærða fígúra,
sem við þekktum ekki nema af ein-
staka ljósmyndum teknum af
honum á flugvöllum eða í veitinga-
húsum. Hann skrifaði engar
æfíminningar, engar játningar
komu frá honum.
Grant fannst að hann ætti í meiri
vanda með að finna út hver hann
var en flestir aðrir. Hann hafði
ekki, að honum fannst, hugmynd
um hver hann væri. Eða, ef hann
vissi það, var ekki alveg viss um
að honum líkaði það sem hann var,
eða að aðrir gerðu það. Svo virðist
sem hann hafí af ráðnum hug byggt
upp persónu sem hann kunni vel
við og var í rónni með. Hann hélt
þessu fram af nokkurri seiglu hin
síðari ár. „Ég þóttist vera ákveðin
Hann sá leikprufu með Grant og
bauð honum samning þegar í stað.
Um þetta leyti skipti Archie Leach
um nafn og fór að kalla sig hinu
hljómþýða nafni Cary Grant.
„Cary“ var nafnið á persónunni sem
hann hafði leikið síðast og „Grant“
valdi hann af lista kvikmyndavers-
ins yfir eftimöfn. En nafnið Archie
Leach hvarf þó ekki í gleymskunnar
dá því í myndinni Arsenic and Old
í ljós við dauða föður hans, Eliasar
Leach, að sá hafði látið setja eigin-
konu sína inn á geðveikrahæli án
þess nokkum tímann að segja sjmi
sínum frá því. Þegar þetta kom í
ljós heimsótti Grant móður sína í
Bristol tvisvar á ári þar til hún lést
árið 1973, 94 ára að aldri.
Grant lék í sinni fyrstu bíómynd
árið 1932 og hún hét This is the
Night. Síðar á sama ári lék hann á
1946: Með Ingrid Bergman í
Notorious.
og líttu við hjá mér einhvern
tímann" (Come up ’n’ see me some-
time).
1981: Á efri árum.
manngerð á hvíta tjaldinu og ég
varð að þessari manngerð úti í
lífínu. Ég varð að mér,“ sagði hann
í viðtali. Og árið 1981 fjallaði hann
enn um þetta, líka í viðtali. „Ég
veit ekki til þess að ég hafi neinn
stíl. Ég stillti bara sjálfan mig inn
á blöndu af Jack Buchanan, Noel
Coward og Rex Harrison. Ég þótt-
ist vera einhver sem ég vildi vera
og á endanum varð ég hann. Eða
hann varð ég. Eða við hittumst.
Þetta er samband."
Hvað sem öllu því líður fæddist
Archibald Alexander Leach, sem
átti eftir að verða heimsfrægur
undir nafninu Cary Grant, þann 18.
janúar árið 1904 í Bristol. Hann
var enn skólastrákur þegar hann
strauk að heiman og fór að vinna
hjá gamanleikflokki, sem hann svo
ferðaðist með til Bandaríkjanna
árið 1920. Hann snéri aftur til Bret-
lands árið 1923 og lék smáhlutverk
í mörgum gamansöngleikjum.
Framleiðandinn Arthur Hammer-
stein sá hann og tók hann með sér
aftur til Bandaríkjanna og fékk
honum hlutverk í söngleiknum
„Golden Dawn“ í New York. Hann
lék í fleiri söngleikjum fram til árs-
ins 1931 að hann keyrði i notaða
Packardinum sínum vestur yfír
Bandaríkin til Hollywood.
BP Schulberg var þá forstjóri
Paramount-kvikmyndaversins.
1938: Cary Grant með Katharine Hepburn í Bringing Up Baby
í bernsku: Archie Leach sem
barn í Bristol.
Lace mátti sjá það á legsteini og í
His Girl Friday sagði Grant á einum
stað: Sá sem sagði þetta við mig
síðast var Archie Leach, aðeins viku
áður en hann skar sig á háls.
Um þrítugt var Cary Grant orð-
inn upprennandi Hollywood-stjama
og það var um það leyti sem hann
komst að sannleikanum um móður
sína, sem hafði horfíð honum þegar
hann var 10 ára gamall. Það kom
1940: Með Rosalind Russell í His Girl Friday.
móti Marlene Dietrich í Blonde
Venus, sem Josef von Stemberg
Ieikstýrði. Árið eftir lék hann m.a.
á móti kynbombunni Mae West í
tveimur myndum, She Done Him
Wrong og I’m No Angel. Hún hafði
valið hann til að leika á móti sér,
og það var við hann sem hún sagði
hina frægu setningu: „Komdu upp
Um 1936 hafði Grant leikið í 20
myndum. Nokkrar næstu þar á eft-
ir urðu til að festa hann í sessi sem
fremsta gamanleikara Hollywood,
Topper (1937), The Awful Truth
(1937) og Bringing Up Baby
(1938), sem Howard Hawks leik-
stýrði en Katharine Hepum lék á
móti Grant. Þau þóttu sérlega góð