Morgunblaðið - 14.12.1986, Qupperneq 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
ROTHSCHILD
ROTHSCHILD lávarður fv.
starfsmaður brezku leyniþjón-
ustunnar MI5, hefur neitað
ásökunum um að hann hafi verið
sovézkur njósnari og „fimmti
maðurinn" í njósnamálunum í
Bretlandi eftir stríð. Þessar
ásakanir hafa komið fram í sam-
bandi við tilraun brezku stjórnar-
innar til að af stýra því að bók
eftir Peter Wright, annan fyrr-
verandi starfsmann MI5, verði
gefin út í Ástraliu.
Rothschild lávarður: opið bréf
Ióvenjulegu bréfí til „Daily
Telegraph", sem birtist á
forsíðu, skoraði Roth-
schild á yfírmann MI5,
„eða annan ábyrgan að-
ila“, að hreinsa sig af
þessum ásökunum. Hann
sagði að MI5 hefði undir
höndum „óvefengjanlegar sannan-
ir“ um að hann hefði aldrei verið
erindreki Rússa og aldrei unnið með
njósnurunum Guy Burgess, Donald
Maclean, Kim Philby og Anthony
Blunt, sem gengu Rússum á hönd
í Cambridge fyrir stríð. Hann hafði
ekkert viljað um málið segja þar til
bréfíð birtist og áskorunin á sér
ekki hliðstæðu.
Bréfíð neyddi Margaret Thatcher
forsætisráðherra til að gefa yfirlýs-
ingu á þingi, en hún þótti sýna
einkennilega hálfvelgju. Hún sagði
aðeins að „engar sannanir" gegn
Rothschild lægju fyrir, en vildi ekki
hreinsa hann af sök og minntist
ekki á mikilsverð störf hans í þjóð-
arþágu, eins og þingheimur virtist
vilja.
Bréfíð ber vott um Rothschild
hafi tekið nærri sér að nýjar sögu-
sagnir hafa komizt á kreik vegna
þess að hann var góður vinur
Blunts, sem frú Thatcher afhjúpaði
sem sovézkan njósnara 1979. Nafn
Rothschilds hefur talsvert borið á
góma í réttarhöldum í máli Wrights
í Sydney í Ástralíu. Wright kveðst
hafa farið að ráðum Rothschilds og
veitt blaðamanninum Chapman
Pincher upplýsingar um baráttu
sína gegn sovézkum „moldvörpum"
í MI5.
Síðan hafa þingmenn úr Verka-
mannaflokknum haldið því fram að
Rothschild hafí sett Wright í sam-
band við Pincher til að eyða þrálát-
um grunsemdum um að hann hafi
verið „fimmti maðurinn". Pincher
byggði bók sína „Starf þeirra er
svik“ („Their Trade Is Treachery")
Rothschild lávarður og Tess:
stríðsheljur
Peter Wright (t.v.) ræðir við lögfræðing sinn, Malcolm Turnball,
fyrir utan dómshúsið í Sydney
Anthony Blunt:
fjórði maðurinn
Kim
Philby:
Rothschild fékk
hann til að játa
að miklu leyti á upplýsingum
Wrights og hélt því fram að Sir
Roger Hollis, yfirmaður MI5
1956-1865, hefði verið sovézkur
njósnari.
Lögfræðingar Rothschilds hafa
ráðlagt honum að segja ekkert um
samband hans og Wrights, sem er
mikilvægt atriði í málaferlunum í
Ástralíu. En hann kvaðst hafa skrif-
að bréfið til „Daily Telegraph" „svo
að ekki verði taiið að þögn gefi eitt-
hvað annað til kynna en að ég sé
algerlega saklaus af þeim ásökun-
um, sem á mig hafa verið bornar
síðan 1980, að ég hafi verið „fimmti
maðurinn.“.“
Sósíalisti
Hugmyndirnar um að Rothshild
kunni að hafa verið „fimmti maður-
inn“ stafa af því að hann var
sósíalisti og þekkti Blunt, Burgess
og Philby þegar þeir voru við nám
í háskólanum í Cambridge fyrir
stríð. Hann þekkti líka Michael
Straight, auðugan Bandaríkja-
mann, sem gekk einnig í þjónustu
Rússa, en sneri við þeim baki og
kom upp um Blunt.
Nathaniel Mayer Victor Roth-
sehild barón er höfuð brezkrar
greinar frægrar Gyðingaættar fjár-
málamanna, sem hafa verið æði
umsvifamiklir beggja vegna Ermar-
sunds síðan í Napoleonstríðunum.
Hann stundaði nám í klassískum
fræðum í Harrow-skóla til 16 ára
aldurs, en fékk þá áhuga á raunvís-
indum og hlaut styrk til vísinda-
náms í Trinity College í Cambridge.
Þar fór fljótt mikið orð af honum
fyrir gáfur, en hann hafði mestan
áhuga á veizlum og íþróttum, lag-
legum stúlkum og Bugatti-kapp-
akstursbíl, sem hann ók.
Victor Rothschild, eins og hann
hét þá, gerðist sósíalisti og kynntist
Blunt, Burgess og fleirum „Postul-
um“ úr illræmdu og leynilegu
málfundafélagi, sem svo var nefnt.
Þar sem kommúnistar höfðu starfað
í fimm manna „sellum" frá 1917
hafa menn mikið velt því fyrir sér
síðan Blunt var afhjúpaður, löngu
eftir að Burgess, Maclean og Philby
flýðu til Moskvu, hver „fimmta
maðurinn“ hafi verið, þótt ekki sé
víst að hann hafí verið til.
Ekki var óalgengt á þessum tíma
að ungir menntamenn úr brezkri
yfírstétt aðhylltust sósíalisma og
teldu kapítalsima hafa gengið sér
til húðar. Rothschild neitar því hins
vegar að hann hafi verið marxisti
og segist ekki hafa haft mikinn
áhuga á hugmyndafræði, en haft
áhyggjur af atvinnuleysi og fasisma
sem aðrir.
Rothschild starfaði í MI5 öll
stríðsárin, Hann varð einn færasti
og djarfasti sprengjusérfræðingur
Breta og var sæmdur einu æðsta
heiðursmerki þeirra, Georgs- orð-
unni, fyrir að gera sprengjur
óvirkar. Tess Mayor, sem var hon-
um til aðstoðar, var einnig heiðruð
og varð síðari kona hans (hann á
tvo syni og fjórar dætur). Chapman
Pincher segir að Rothschild hafi
stjómað leynilegri rannsókn á flug-
slysinu, sem varð pólska hershöfð-
ingjanum Sikorski að bana í
Gíbraltar, og yfirheyrt Otto Skorz-
eny, sem bjargaði Mussolini.
Leig’ði Burgess
Rothschild hefur oft verið sakað-
ur um að hafa leigt Burgess hluta
húss síns í Bentinck-stræti í London
í stríðinu. Sjálfur bjó hann í Dor-
chester-hótelinu þegar hann var í
borginni, því að þjónar hans vom
kvaddir í herinn.
Pincher segir að sannleikurinn
sé sá Rothschild og fyrri kona hans
hafi boðið Tess Mayor og annarri
vinkonu þeirra frá Cambridge-
árunum húsnæðið á leigu. Þær hafí