Morgunblaðið - 14.12.1986, Side 12

Morgunblaðið - 14.12.1986, Side 12
12 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 Er verið að drekkja þjóðinni í happdrættismiðum? HARÐNANDI samkeppni er á skyndihappdrættismarkaði líknar- og íþróttafélaganna og gætir þess ekki hvað sízt í póst- kössum landsmanna og í auglýs- íngum fjölmiðla. Þeir eru orðnir 1.400 talsins sem tilkynnt hafa Hagstofunni, að þeir vilji láta af- má nöfn sín af þvi eintaki þjóð- skrár sem notað er til útsendinga happdrættismiða. Forráðamenn styrktarfélaga, sem byggt hafa afkomu sína á þessum frjálsu framlögum almennings, hafa áhyggjur af því hversu markaður- inn er orðinn aðþrengdur, en auk skyndihappdrættanna eru rekin hérlendis þijú stór landshapp- drætti, eins og kunnugt er. Til viðbótar hefur verið mikil þátt- taka í getraunum íþróttasam- bands íslands en nýjasta tiltækið á markaðnum, „lottóið", ógnar nú veldi ÍSÍ og ef til vill fleiri stórra félaga, sem gera út á mið happ- drættanna. Fram til 25. nóvember sl. hefur dómsmálaráðuneytið gefið út 114 skyndihappdrættis- leyfi á þessu ári með útgefnum 3,2 milljónum miða að verðmæti rúmlega einn mUljarður króna. Upphæð vinninga í þessum happ- drættum er tilgreind 164,5 millj- ónir króna. Dregið er í 26 happdrættum í þessum mánuði, flestum á Þorláksmessu og að- fangadag. Þá hefur og orðið vart við, að almenningur beri ekki sama traust til Iíknarfélaga og fyrrum og ljóst virðist að ekki verður lengur beðið með að hið opinbera setji reglur og auki eftir- lit með framkvæmd skyndihapp- drætta. Slíkar reglur hafa nú verið í undirbúningi í dómsmála- ráðuneytinu í áraraðir. Þegar félagasamtök, eða þeir aðr- ir sem hyggjast hefla Qáröflun með útgáfu happdrættismiða, ákveða að hefjagt handa ber þeim fyrst sam- kvæmt lögum að fá heimild dóms- málaráðuneytisins. Með þessari samantekt er birtur listi, sem unnin var fyrir Morgunblaðið í dómsmála- ráðuneytinu, yfir veitt leyfi á árinu, eða fram til 25. nóvember sl., enn- fremur yfir fjölda happdrættismiða og vinninga. Að sögn starfsmanns ráðuneytisins hefur einvörðungu ve- rið sótt um leyfi til minni happdrætta eftir 25. nóvember, en það hefur ekki allt hlotið afgreiðslu. Aðstandendur flestra stærri skyndihappdrættanna hafa tekið þann kost að senda happdrættismiða heim til fólks með gíróseðlum. Til þess að fá útskrift samkvæmt þjóð- skrá þarf leyfi hjá Hagstofu Islands eða tölvunefnd, en fólki er heimilt að láta afmá nöfn sín af þeim skrám % r^r Morgunblaðið/RAX sem til þessa eru notaðar. Pjórtán félög og félagasamtök hafa fengið leyfi Hagstofunnar það sem af er þessu ári, auk nokkurra sóknar- nefnda og líknarfélaga sem fengið hafa leyfí til að hagnýta þjóðskránna vegna fjáröflunar innan eigin vé- banda. Eitt happdrættanna hefur valdið nokkrum umræðum í tölvunefnd, en það er happdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Það hefur í áraraðir gefið út happdrættismiða með símanúmerum landsmanna. Tölvunefnd hefur gefíð leyfi til þess að félagið noti gögn Pósts og síma í þessum tilgangi, þ.e. símaskrána. Hjá nefndinni liggur nú til meðferðar kæra frá manni sem segist hafa kraf- ist þess, að samkvæmt ákvæðum laga yrði nafn hans afmáð af skrá þessari. Það hafi hins vegar ekki verið gert. Málið er til athugunar hjá tölvunefnd og hefur verið sent til umsagnar Póst og símamálastjóra. Að sögn framkvæmdastjóra happ- drættisins, Kristínar Ingvarsdóttur, á ekkert að vera í veginum fyrir því að fólk geti látið afmá nöfn sín og símanúmer, ef það hefur samband við skrifstofu styrktarfélagsins í tíma fyrir útgáfu happdrættismiðanna. Að sögn Jóns Thors ritara tölvu- nefndar byggir leyfisveitingin til Styrktafélagsins fyrst og fremst á því, hversu lengi félagið hefur haft þennan hátt á við útgáfu happdrætti- smiðanna, en hann var spurður hvort notkun símanúmera gengi ekki nokk- uð nærri ákvarðanafrelsi einstakl- ingsins. Undirrituð veit t.d. dæmi þess að ellilífeyrisþegi, sem ekki taldi sig hafa efni á að kaupa heimsendan happdrættismiða, varð fyrir töluverð- um óþægindum þegar vinningur kom á símanúmer hans. Með því að láta taka númerið af útsendingarskrá á fólk ekki að eiga á hættu að slíkt gerist, því símanúmer viðkomandi er þá ekki prentað. Hið sama á að gilda, ef happdrætti yrðu gefín út á nafnnúmer, heimilisföng, fæðingar- númer eða annað það sem notkun þjóðskrár gæti boðið upp á. Hallgrímur Snorrason hagstofu- stjóri var spurður álits á þessu og hvort ekki væri gengið nokkuð langt í að heimila félögum aðgang að þess- um skrám. Hann sagði m.a.: „Hagstofan hefur í samráði við tölvu- nefnd heimilað aðgang að þjóðskrá í þessu skyni í þágu ýmissa félaga- samtaka, einkum líknarfélaga. Hefur þá verið horft til þess, að félagasam- tök þessi gegna mikilvægu hlutverki í þjóðfélaginu, sem ella væri hlut- skipti hins opinbera að styrkja og þá nauðsynlegt að kosta af skattfé. Þó er engu að síður nauðsynlegt, að henni sé ekki beitt í óhófi, þannig að fólk fái ekki í sífellu póstsending- ar, sem það hefur ekki óskað eftir og ekki eru nauðsynlegar vegna þarfa hins opinbera. Til að tryggja rétt fólks í þessum efnum eru jafn- framt ákvæði í lögum um kerfís- bundna skráningu, er varða einkamálefni, þess efnis, að skylt sé að verða við óskum manna um að nöfn þeirra seu afmáð af skrám, sem notaðar eru til útsendinga auglýs- inga, dreifibréfa, áróðurs og þess háttar. Fólk getur sent Hagstofimni bréf þar að lútandi og við höfum sérstök eyðublöð sem eiga jafnframt að liggja frammi á skrifstofum stærstu sveitarfélaganna víðs vegar um landið. Nöfn þeirra verða þegar afmáð af því eintaki þjóðskrárinnar sem notuð er í þessu skyni, þegar okkur berast um það slík boð.“ Talsmenn þeirra happdrætta, sem sent hafa út happdrættismiða með gíróseðlum nú fyrir jólin og rætt var við, sögðu velflestir skil á greiðslum tregari nú en áður. Kenndu flestir aukinni samkeppni um, en menn hafa leitt að því líkur, að þau happ- drætti, sem hafa verið mest áberandi á auglýsingamarkaðinum, veiji allt að tveimur milljónum króna í auglýs- ingar í ár, jafnvel meira. Samkvæmt upplýsingum frá happ- drættunum er ekki óeðlilegt að ætla, að a.m.k. helmingur tekna fari í kostnað. Eitt af stærstu styrktarfé- lögunum, sem ekki verðu nafngreint hér, en er með mjög rótgróið happ- drætti, hafði til dæmis 8,6 milljónir króna í brúttótekjur af happdrætti fyrir jólin í fyrra. Tekjur, þegar heild- arkostnaður, - vinningar þar með taldir, - hafði verið dreginn frá, voru hins vegar 4,4 milljónir króna. Af átta vinningum gengu sex út. Þegar rætt er um vinninga er eftir- tektarvert, að nú auglýsa nokkur happdrættanna, að aðeins sé dregið úr seldum miðum, þ.e. að nú eigi allir vinningar að lenda hjá kaupend- um happdrættismiðanna. Þetta atriði hefur verið nokkuð mikið rætt, en hvert er eftirlit með útdrætti og af- hendingu vinninga allra þessara happdrætta? Ef miðað er við þær tölur, sem fram koma í skránni yfir leyfísveitingar dómsmálaráðuneytis- ins, þá nema vinningar u.þ.b. 16% af heildarverðmæti útgefínna miða. Þessi tala er mjög mismunandi, eins og sjá má á meðfyigjandi skrá. Sam- kvæmt því sem næst verður komist má reikna með að ef helmingur miða selst þýði það að helmingur vinninga gangi út, en hér er væntanlega að- eins um líkindareikning að ræða. Ýmis óheppileg atvik, svo ekki sé meira sagt, sem fjallað hefur verið um undanfarin og almenn umræða um þessi mál kallar tvímælalaust á ákveðnar reglur um þessi happ- drætti og aukið eftirlit. Þó svo engin Happdrættisleyfi út- gefináárinu 1986 Samtök aldraöra, Reykjavík Leyfi útg. 6. janúar 1986. Vinningar samtals að verðmæti kr. 491.312, þ. á m.flugmiðarfráArnar- flugi og Flugleiðum, myndbandstæki, segulbandstæki o.fl. Dregið 20. mai 1986. Miðafjöldi 14.000. Verö hvers miða kr. 150.-. 4. bekkur Verzlunarskóla íslands Leyfi útg. 16. janúar 1986. Vinningar samtals að verðmæti kr. 180.432, hljómtæki, ferð til London, Ijósmyndavörur, hjól, úttekt í Gullhöll- inni, plötur, matur á Hótel Holti, Ijós, reiötúr, Nýtt líf. Dregið 18. marz 1986. Miöafjöldi 6.000. Verð hvers miða kr. 180.-. Slysavamasveitin Vopni, Vopnafirði Leyfi útg. 20. janúar 1986. Vinningar samtals að verðmæti kr. 100.000, sjónvarp, örbylgjuofn, tjald, svefnpokar, björgunarhnífar, bakpokar. Dregið 31. marz 1986. Miöafjöldi 1.500. Verð hvers miða kr. 250.-. Félag heymarlausra, Reykjavík Leyfi útg. 22. janúar 1986. Vinningar samtals að verðmæti kr. 1.042.000, húsgögn, myndbandstæki, myndbandsupptökutæki, utanlands- ferðir. Dregiö 10. júlí 1986. Miðafjöldi 25.000. Verð hvers miða kr. 250.-. Knattspymufólag Reykjavfkur, knattspyrnudeild Vinningar 12 myndbandstæki af Philips-gerð, samtals að verðmæti kr. 715.200. Leyfi útgefiö22.janúar 1986. Dregiö 8. mai 1986. Miöafjöldi 25 þús. Verð hvers miða kr. 150.-. íþróttafólagið Leiknir Leyfi útg. 23. janúar 1986. Vinningar 5 vöruúttektir hjá Sportvali samtals að verðmæti kr. 50 þúsund. Dregiö 3. marz 1986. Miðafjöldi 1.000. Verð hvers miða kr. 250.-. Fimleikasamband íslands Leyfi útg. 3. febrúar 1986. Vinningar 4 tölvur á samtals kr. 88 þús. og 8 vöruúttektir í Útilífi samtals að verðmæti kr. 80 þús. Dregiö 1. april 1986. Miöafjöldi 10 þús. Verð hvers miöa kr. 100.-. Ferðasjóður SVS, Bífröst Leyfi útg. 4. febrúar 1986. Vinningar samtals að verðmæti kr. 134.150, þ. á m. saumavél, hrærivél, skiði, ferðatæki, hnakkur, ryksuga, pottasett o.fl. Dregið 10. apríl 1986. Miðafjöidi 4.000. Verð hvers miða kr. 200.-. Slysavarnafólag fslands Leyfi útg. 4. febrúar 1986. Vinningar 7 íbúðir í húsinu Löngumýri 18—24 í Garðakaupstað, samtals að verðmæti kr. 11.200.000. Dregiö 8. april 1986. Miðafjöldi 224.000. Verð hvers miöa kr. 300.-. Byggingamefnd Færeyska sjómannaheimilisins Leyfi útg. 5. febrúar 1986. Vinningar samtals aö verðmæti kr. 220.000, myndsegulbandstæki, flug- feröir, vöruúttektir í Hagkaupum. Dregið 15. september 1986. Miöafjöldi 13 þús. Verö hvers miöa kr. 100.-. Barnaskóli Vestmannaeyja Leyfi útg. 5. febrúar 1986. Vinningar samtals aö verömætl kr. 14.770, þ. á m. flug með Flugleiöum og ferð með Herjólfi. Dregiö 28. febrúar 1986. Miöafjöldi 784. Verð hvers miöa kr. 100.-. Knattspymudeild Vals Leyfi útg. 11. febrúar 1986. Vinningar 10 myndsegulbandstæki samtals að verðmæti kr. 430.000. Dreg- ið 19. júni 1986. Miöafjöldi 1.000. Verð hvers miða kr. 2.500.-. Drætti frestaö til 15. ágúst 1986. Hestamannafólagið Þytur, V-Hún. Leyfi útg. 11. febrúar 1986. Vinningar samtals að verðmæti kr. 104.000, þar af helztir hnakkur, ferð með Arnarflugi og úttekt i KVH. Dregiö 13. marz 1986, Miðafjöldi 3.000. Verð hvers miða kr. 200.-. Slysavarnadeildin Gró, Fljótdalshóraði Leyfi útg. 11. febrúar 1986. Vinningar samtals að verömæti kr. 125.500, videotæki, vöruúttektir o.fl. Dregið 26. marz 1986. Miöafjöldi 2.500. Verð hvers miða kr. 300.-. Drætti frest- að til 1. april 1986. Blindrafólagið Leyfi útg. 14. febrúar 1986. Vinningar 2 bifreiðir samtals að verð- mæti kr. 1.190.000. Dregiö 18. júní 1986. Miðafjöldi 35 þús. Verð hvers miða kr. 200.-. Hestamannafólaglð Hörður Leyfi útg. 17. febrúar 1986. Vinningar samtals að verðmæti kr. 210.000, stærsti vinningur reiðhestur .fyrir kr. 100.000. Dregið 1. ágúst 1986. Miðafjöldi 6.000. Verð hvers miða kr. 150.-. 9. bekkur grunnskóla Eskifjarðar Leyfi útg. 24. febrúar 1986. Vinningar samtals að verðmæti kr. 16.400. Dregiö 2. maí 1986. Miðafjöldi 400. Verð hvers miðar kr. 100.-. Foreldra- og kennarafólag Safamýrarskóla, Reykjavfk Leyfi útg. 24. febrúar 1986. Vinningar samtals að verðmæti kr. 83.962. Dregið 14. apríl 1986. Miða- fjöldi 3.000. Verð hvers miða kr. 100.-. Drætti frestaö til 5. maí 1986. Alþýðuflokksfólögin f Kópavogi Leyfi útg. 5. marz 1986. Vinningar 10 ferðavinningar samtals að verðmæti kr. 300.000. Dregiö 10. júní 1986. Miðafjöldi 9.000. Verö hvers miða kr. 200.-. Drætti frestaö til 15. júlf 1986. Sóknamefnd Árbæjarsafnaðar Leyfi útg. 5. marz 1986. Vinningar 15 ferðavinningar samtals að verðmæti kr. 500.000. Dregið 3. maf 1986. Miöafjöldi 20.000. Verð hvers miða kr. 150.-. Drætti frestaö til 10. maí 1986. Drætti frestaö til 17. maí 1986. Hagsmunafólag hestaeigenda ó Stokkseyri Leyfi útg. 6. marz 1986. Vinningar samtals að verðmæti kr. 57.000, stærsti vinningur vesturgamall hestur á kr. 30 þús. Dregiö 18. júní 1986. Miðafjöldi 1.000. Verð hvers miða kr. 200.-. íþróttabandalag Akraness 4"

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.