Morgunblaðið - 14.12.1986, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
C 13
*
c
ástæða sé til að vantreysta þeim
fjölda fólks, sem með fómfúsu og
oft áralöngu starfi stendur að slíkum
happdrættum, ætti það ekki síst að
vera þeim til vemdar, að slíku eftir-
liti verði komið á. Það ætti alla vega
að geta komið í veg fyrir að styrktar-
félagi berist happdrættismiði með
svofelldri áritun: „Endursent með
Hjálparstofnunarkveðju."
í dag virðast einu opinberu af-
skiptin af happdrættunum fólgin í
því að fógetaembætti annast útdrátt
vinninga, en samkvæmt upplýsing-
um frá Þorkeli Gíslasyni hjá borgar-
fógetaembættinu fer dráttur í
auknum mæli fram með notkun tölvu
Háskóla íslands. Að útdrætti loknum
er það einvörðungu mál aðstandenda
happdrættisins hvort og þá hvemig
vinningsnúmer eru auglýst og hvem-
ig staðið er að afhendingu vinnninga.
Eitt atriði er hér enn til athugunar
en það er skattskylda vinninga. Til
að vinningur sé skattfrjáls þarf sérs-
takt leyfi flármálaráðuneytis. Að
sögn Snorra Olsen hjá fjármálaráðu-
neytinu hafa flestir þeir sem fengið
hafa leyfi til að reka happdrætti sótt
um slíkt skattfrelsi, en mörkin á
veitingu eru, að um sé að ræða menn-
ingarmál, mannúðarmál eða kirkju-
lega starfsemi. Hann kvað þessa
útlistum mjög sveigjanlega, enda
féllu til dæmis íþróttahrejrfingin og
Hjálparsveitir skáta undir þessar við-
miðanir að þeirra mati. Snorri sagði,
að stjómmálaflokkamir fengju ekki
niðurfellingu skattskyldu, enda
hefðu þeir ekki farið fram á slíkt svo -
hann vissi.
Snorri var spurður, hvort ráðuney-
tið hefði ekki neitað neinum um
niðurfellingu. Hann svaraði því til,
að hann vissi eingöngu um eina neit-
un, en það hefði verið umsókn um
happdrætti Hlaðvarpans. „Þær sóttu
um niðurfellingu á happdrætti hér
fyrir nokkm síðan en sögðu þá, að
hluta vinningsijár yrði varið til kaupa
á skuldabréfum, en það fannst okkur
ekki innan þessara marka. Þær
fengu þvi ekki leyfi þá, en við sam-
þykktum síðan í gær leyfi handa
þeim í nýju happdrætti, enda höfðu
þær þá kippt hlutunum í lag, eftir
að hafa fengið leiðbeiningar frá ráðu-
neytinu", sagði hann, er rætt var við
hann á miðvikudag.
Eitt af elstu skyndihappdrættum
landsins, sem enn er við líði, er happ-
drætti Sjálfstæðisflokksins, en það,
auk happdrætta annarra stjóm-
málaflokka, hefur sérstöðu að því
leyti að vinningar eru ekki skatt-
frjálsir. í því tilefni var rætt við
Kjartan Gunnarsson framkvæmda-
stjóra Sjálfstæðisflokksins um
reynsluna af innheimtuaðferðum, en
á þeim bæ hafa verið reyndar allar
þær aðferðir sem þekkjast í þeim
efnum. Hann sagði að oftast hefði
umboðsmannakerfí flokksins verið
notað, það er að umboðsmenn sjálf-
stæðisfélaganna á hverjum stað
hefðu annast innheimtuna og þá með
þeirri aðferð að ganga fyrir hvers
manns dyr. Gíróseðlaaðferðin, sem
virðist nú angra marga, hefur og
verið reynd og nú síðast greiðslu-
kortakerfið, það er að fólki hefði
verið gefinn kostur á að skuldafæra
upphæð miðanna á greiðslukort með
því að hringja inn númer sín. Um
afraksturinn sagði hann m.a.:
„Heimarukkunin með umboðs-
mannakerfínu, það er að senda heim
til hvers manns eftir greiðslu, hefur
gefið langbezta raun, en sú aðferð
er einnig sú kostnaðarsamasta.“
Kjartan sagði að lokum, að auðvit-
að hefði hin feykilega samkeppni sem
orðin væri á markaðnum áhrif. Hann
sagði og, að happdrætti Sjálfstæðis-
flokksins, sem nú væri orðið 35 til
40 ára, væri orðið fastur liður í starf-
semi flokksins þannig að engum
hefði dottið í hug að fella þá fláröfl-
unarleið niður.
Velflestir sem kaupa miða í happ-
drættum styrktarfélaganna gera það
væntalega í því skyni að styrkja
g^ott málefni, þó auðvitað spilli von
um vinning ekki fyrir. Þá er sú stað-
reynd gullvæg, sem hagstofustjóri
bendir á, að velflest ef ekki öll við-
komandi félagasamtök gegna mikil-
vægu hlutverki í þjóðfélaginu, sem
ella yrði efalaust hlutskipti hins opin-
bera að reiða fram framlög til. Með
þessum hætti má ætla, að fólk leggi
sitt af mörkum að eigin vilja og
mætti. Það hefur þó hvarflað að
fleiri en einum að nú sé mál að linni.
Vaxandi fjöldi þeirra sem láta taka
nafn sitt af „happdrættis-eintaki"
þjóðskrárinnar bendir til að fleiri séu
sama sinnis og einn viðmælandi
greinarhöfundar, sem dæsti þungt í
jólaundirbúningnum í síðustu viku:
„Það á hreint að drekkja manni í
þessu happdrættisgírómiðum."
Texti: Friða Proppé
Þessir hafa hagnýtt
sér þjóðskrá
Eftirtalin leyfi hafa verið gefin
út af Hagstofu íslands til aðgangs
að þjóðskrá til útsendinga á happ-
drættismiðum. Listinn er yfír þetta
ár, þ.e. frá 1. janúar til 8. desem-
ber sl.
Nokkuð misjafnt er til hvaða
hópa í þjóðfélaginu viðkomandi
happdrætti senda miða. Sum happ-
drættin senda öllum á ákveðnum
aldri, til dæmis frá 16 ára og fram
að ellilífeyrisaldri, aðrir aðeins ein-
um á hverjum heimili o.s.frv.
Leyfishafi: _ Dags.
Handknattleikssamb. ísl. 201186
Flugbjörgunarsveitin 051186
SÁ A landshappd ræ tti 211086
Sjálfsbjörg — lands-
samband fatlaðra 030986
Styrktarfélag vangefinna 250886
Ólympíunefnd 080886
Hjartavemd 040686
Samtök um byggingu
tónlistarhúss1 140586
SÁÁ landshappdrætti 030486
Hjálparsveit skáta
Hafnarf. 110386
Krabbameinsfél. Rvíkur 110386
Landssamband hjálparsveita
skáta 060386
Slysavaraafél. Ingólfur 300186
Slysavaraaf élag Islands 160186
Auk þess hefur Hagstofan heim-
ilað nokkrum sóknamefndum og
líknarfélögum að hagnýta þjóðskrá
vegna fjáröflunar innan eigin vé-
banda.
1 Hcimildin hefur ekki verið notud.
Þorvaldur Þorsteinsson:
Skilaboðaskjóðan
Þorvaldur Þorsteinsson er ungur
myndlistarmaður. Skilaboðaskjóðan er fyrsta
bókin sem hann semur í máli og myndum og
gefur út, en hann hefur lengi párað hjá sér hitt og
þetta. Sagan um Putta, Möddumömmu,
dvergana, Nátttröllið og skilaboðaskjóðuna er
einstaklega frumlegt og skemmtilegt ævintýri
handa bæði litlum og stórum bömum og vinum
þeirra.
Verð: 890,-
Mál og menning
Sagan um Skilaboðaskjóðuna gerist í
Ævintýraskóginum þar sem ævintýrin eru alltaf
að gerast. Skemill uppfinningadvergur hefur
fundið upp eins konar ævintýralegt
segulbandstæki, skilaboðaskjóðu sem geymir tal
manna og skilar því frá sér þegar hún er opnuð.
Pegar dvergamir sýna Möddumömmu stoltir
hvað skilaboðaskjóðan getur grunar engan að
hún eigi eftir að koma að góðum notum í
baráttunni við Nátttröllið...
Leyfi útg. 6. marz 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
314.000, utanlandsferð, örbylgjuofn,
myndbandstæki, saumavél, hrærivél,
ryksuga, reiðhjól. Dregið 29. apríl 1986.
Miöafjöldi 5.500. Verð hvers miða kr.
250.-. Drætti frestaö til 25. júní 1986.
Landssamband hjðlparsveita skáta
Leyfi útg. 13. marz 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
11.606.000,15 bifreiöir, 40 mynd-
bandstæki, 40 saumavélar, 40 hljóm-
tækjasamstæður og 3.000 hjálparpakk-
ar. Dregið 12. júní 1986. Miðafjöldi
195.000. Verð hvers miöar kr. 350.-.
Sóknarnefnd Víðistaða-
sóknar, Hafnarfirði
Leyfi útg. 13. marz 1986.
Vinningar 32 málverk eftir ýmsa
listamenn, samtals að verðmæti kr.
612.000. Dregiö 24. apríl 1986. Miða-
fjöldi 13.268. Verð hvers miða kr. 200.-.
Hestamannafálagið Fákur
Leyfi útg. 14. marz 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
305.000, stærsti vinningur gæðingur á
kr. 100.000. Dregið 20. mai 1986. Miöa-
fjöldi 10.000. Verð hvers miða kr. 100.-.
Samband fslenzkra kristniboðsfélaga
Leyfi útg. 20. marz 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
503.000, stærsti vinningur bifreið á kr.
372.000. Dregið8. ágúst 1986. Miða-
fjöldi 20.000. Verð hvers miöar kr.
150.-.
Tónlistarskóli Ragnars
Jónssonar, Reykjavík
Leyfi útg. 20. marz 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
6.250.000,12 bifreiöir á samtals kr.
4.930.000 og 43 vinningar hljóðfæri að
eigin vali á samtals kr. 1.320.000. Dreg-
ið 16. júni 1986. Miðafjöldi 125.000.
Verð hvers miða kr. 300.-. Drætti frest-
að til 4. júlí 1986.
Björgunarsveitin Tálkni, Tálknafirði
Leyfi útg. 24. marz 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
51.000. Dregiö 23. april 1986. Miða-
fjöldi 1.500. Verð hvers miða kr. 200.-.
SÁÁ, Samtök áhugafólks
um áfengisvandamálið
Leyfi útg. 26. marz 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
10.420.000, 6 sumarhús á samtals kr.
5.200.000,12 bifreiðir samtals að verð-
mæti kr. 3.720.000 og 100 Tivolíferðir
til Kaupmannahafnará alls kr.
1.500.000. Dregið 18. maí 1986. Miöa-
fjöldi 195.000. Verð hvers miða kr.
300.-. Drætti frestað til 7. júní 1986.
Knattspyrnufélag Akureyrar
Leyfi útg 26. marz 1986.
Vinningar 10 ferðavinningar samtals að
verðmæti kr. 200.000. Dregiö 1. októ-
ber 1986. Miðafjöldi 6.000. Verð hvers
miða kr. 200.-.
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
Leyfi útg. 2. apríl 1986.
Vinningar 10 bif reiðir samtals að verð-
mæti kr. 3.850.000 og 90 vinningar
vöruúttektir samtals að verðmæti kr.
2.250.000. Dregiö 17. júní 1986. Miða-
fjöldi 183.000. Verð hvers miða kr.
200.-.
Öldrunarráð Grindavíkur
Leyfi útg. 3. apríl 1986.
Vinningar 3 bifreiðir samtals að verð-
mæti kr. 855.000, 3 utanlandsferðirá
samtals kr. 78.000 og 2 myndbands-
tæki á samtals kr. 70.000. Dregið 17.
júni 1986. Miöafjöldi 24.000. Verð hvers
miöarkr. 250.-.
Sóknarnefnd Þóroddsstaðasóknar,
Þingeyjarprófastsdæmi
Leyfi útg. 9. april 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
38.000, stærsti vinningur ferð fyrir tvo
til Reykjavíkur á kr. 12.000. Dregið 1.
maí 1986. Miöafjöldi 1.000. Verð hvers
miða kr. 200.-.
Fjölbrautaskóli Suðurlands, Selfossi
Leyfi útg. 9. apríl 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
114.000, myndverk eftir ýmsa lista-
menn. Dregið 15. maí 1986. Miðafjöldi
5.000. Verð hvers miða kr. 100.-.
Knattspyrnufélag Akureyrar
Leyfi útg. 14. april 1986.
Vinningar 20 ferðavinningar samtals að
verðmæti kr. 400.000. Dregið 30. júní
1986. Miðafjöldi 12.000. Verð hvers
miða kr. 200.-. Jafnframt afturkallað
leyfi útg. 26. marz 1986.
Sjálfstæðisflokkurinn
Leyfi útg. 15. apríl 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
1.749.780, 3 bifreiöir og flugferöir til
útlanda. Dregið 27. maí 1986. Miða-
fjöldi 90.000. Verð hvers miða kr. 250.-.
Alþýðubandalagið
Leyfi útg. 15. apríl 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
528.000, flugferðir utan lands og innan.
Dregið 15. júní 1986. Miöafjöldi 15.900.
Verð hvers miða kr. 200.-.
Framsóknarflokkurinn
Leyfi útg. 18. april 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
910.000, sumarhús á kr. 400.000, sól-
arlandaferöir, sportvörur og úr. Dregið
14. júní 1986. Miðafjöldi 43.000. Verð
hvers miöa kr. 150.-.
Handknattleiksdeild Fram
Leyfi útg. 21. apríl 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
173.000, utanlandsferðir og grafiklista-
verk. Dregið 15. júni 1986. Miðafjöldi
5.000. Verð hvers miða kr. 200.-.
Drætti frestað til 30. júlí 1986.
íþróttabandalag ísafjarðar
Leyfi útg. 22. apríl 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
34.200, þ. á m. reiðhjól, helgarferð til
Reykjavíkur og vöruúttektir. Dráttur:
Bingóhappdrætti þar sem dregið er
daglega, 10 tölur á viku fyrstu 3 vikurn-
ar og eftir það 1 tala daglega, þartil
vinningshafi gefur sig fram og skal hann
þá hafa fyllt út allt spjaldið. Sá, sem
fyrstur fyllir út spjaldið, fær fyrsta vinn-
ing o.s.frv. Fái tveir eða fleiri bingó
samtímis, skal dregið um vinninginn.
Sá, sem hlýtur hæstu tölu fær þann
vinning og hinireftirtöluröð næstu
vinninga, allt að 5. vinningi Verð hvers
miða (bingóspjalds) kr. 50.-.
Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands
Leyfi útg. 28. apríl 198S. 2. flokkur
smámiðahappdrættis er hefst 1. júli
1986. Vinningar í flokknum alls 1.090
að tölu að verðmæti kr. 937.400 sam-
tals. Dráttur fer fram áður en prentun
miða hefst, á vegum notarii publici i
Þýzkalandi og miðarnir innsiglaðir,
þannig að á innsigluðum hluta hvers
miöa komi fram, hvort og þá hvaða vinn-
ingur hafi komiö upp á miöann. Miða-
fjöldi allt að 50.000. Verð hvers miða
kr. 50.-.
Knattspyrnusamband íslands
Leyfi útg. 28. apríl 1986.
Vinningar samtals að verðmæti kr.
1.000.000, ein bifreið, utanlandsferðir
og bensinúttektir. Dregið 24. septem-