Morgunblaðið - 14.12.1986, Blaðsíða 16
V^terkurog
O hagkvæmur
auglýsmgamiðill!
s flfoqpssiMitltófe
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
Kristín Thorlacius
to Venus og That Hideous Strength.
Fyrsta Namíusagan kom út árið
1950: Ljónið, nomin og skápurinn,
en alls urðu þar sjö á jafn mörgum
árum.
Á stríðsámnum síðari var Lewis
með fasta þætti í BBC sem nutu
mikilla vinsælda og komu síðar út
í bókarformi undir heitinu Mere
Christianity. Andrés Bjömsson fv.
útvarpsstjóri hefur þýtt verk eftir
Lewis, m.a. smákver sem heitir
Rétt og rangt. Lewis giftist fremur
seint og missti konu sína eftir fárra
ára sambúð. Hann skrifaði um
reynslu sína af sorginni og var sú
frásögn seinna gefin út í bókar-
formi. Séra Gunnar Bjömsson þýddi
þá bók og las í útvarp, ekki alls
fyrir löngu. Lewis gaf út sjálfsæfi-
sögu sína, Surprised by Joy, árið
1955. Eftir að C.S.Lewis fór frá
Oxford árið 1954 settist hann að í
Cambridge og gerðist prófessor
þar. Hann dó í Oxford 22. nóvemb-
er 1963.
Um fyrstu kynni sín af verkum
C.S. Lewis sagði Kristín Thorlac
ius:„Ég komst yfir Namíubækumar
sjö árið 1970. Þá fór maðurinn
minn til Englands og kom með þess-
ar bækur heim með sér. Ég las þær
og varð mjög hrifín af þeim. Ég
þýddi fyrstu bókina án þess að hafa
útgefanda að henni, en það hef ég
ekki gert fyrr né síðar. Ég hef þýtt
margar bækur bæði áður og eftir
að ég réðst í að þýða fyrstu Namíu-
bókina, en alltaf eftir pöntun
útgefanda.
Ifyrstu bækumar tvær las mað-
urinn minn, Rögnvaldur Finnboga-
son, í útvarpið. Ég er kennari og
ég las þýðingu mína á fyrstu bók-
inni fyrir krakka sem ég kenndi og
fann að þau höfðu gaman af. Ég
bauð útgefendum þýðinguna en
enginn hafði áhuga fyrst, kannski
af því þetta eru ævintýri. Svo sló
AB til og hefur gefið út þijár þýð-
ingar mínar á Namíubókum C.S.
Lewis og ég vona að þær fjórar sem
eftir em komu út seinna. Þessar
bækur em bæði fyrir böm og full-
orðna, því þetta em iíka spennusög-
ur á öðrum þræði.
Þessar bækur em fullar af krist-
inni siðfræði án þess að um nokkra
predikun sé að ræða, maður tekur
varla eftir neinu slíku en tekur hins
vegar oft eftir hversu sterka rétt-
lætiskennd höfundur hefur. Ég
vona að allir sem lesa þýðingu mína
á Siglingu Dagfara hafi eins mikla
ánægju af lestrinum og ég hafði
af vinnu minni við þýðinguna.“
Guðrún Guðlaugsdóttir
Ævintýrið heillar
Almenna bókafélagiö gefur út bókina Sigling
Dagfara eftir C. S. Lewis íþýðingu Kristínar Thorlaciusar
Einhvers staðar lengst inni í
sálinni varðveitum við eitt-
hvað af því bami sem við
einu sinni vorum. Þetta litla barn
hefur undur gaman af ævintýmm.
Kannski hefur lífsgangan, löng og
stríð svipt mörg okkar hæfileikan-
um til að segja ævintýri, en fæst
okkar em þó svo grátt leikin að við
höfum ekki gaman af að láta segja
okkur ævintýri. Slík sagnagerð
kemur auðveldlega til skila lífsvið-
horfum höfundar, við meðtökum í
því formi alls kyns dóma um hvað
sé rétt og hvað sé rangt án þess
að við rísum upp til andmæla, það
er að segja ef ævintýrið er skemmti-
legt. írski rithöfiindurinn Clive
Staple Lewis kunni þá list að koma
viðhorfum sínum til skila á mynd-
auðugu og viðburðaríku ævintýra-
máli. Nýlega er komin út bókin
Sigling Dagfara hjá Almenna bóka-
félaginu eftir Lewis, í þýðingu
Kristínar Thorlaciusar. Áður em
útkomnar tvær bækur um sams
konar efni eftir sama höfund. Sigl-
ing Dagfara er ævintýri sem gerist
í töfralandinu Namíu og víðar. Þijú
böm hverfa inni í mynd af skipi og
lenda í ævintýralegri skipsferð. Eitt
barnanna, drengur að nafni Elfráð-
ur verður nýtt og betra bam eftir
að hafa lent í ýmsum mannraunum.
Þetta er efni sem ekki er nýtt í
sögu bókmenntanna, en alltaf verð-
ur lesandinn jafn ánægður þegar
svo giftusamlega tekst til, batnandi
manni er best að lifa, allir eiga
auðvelt með að setja sig í þau spor
Kristín Thorlacius, þýðandi bók-
arinnar, er búsett á Snæfellsnesi,
prestfrú að Staðastað. Hún varð
góðfúslega við þeirri beiðni blaða-
manns Morgunblaðsins að segja
deili á rithöfundinum C.S. Lewis.
Hann fæddist á írlandi 29. nóvemb-
er árið 1898 og var faðir hans
lögfræðingur í Belfast en móðirin
lauk BA prófi frá Qeen’s College í
Belfast sem var óvenjulegt af konu
á þeim tíma. Lwwis ólst upp ásamt
eldri bróður sinum hjá foreldrum
sínum í stóm húsi í útjaðri Belfast.
í húsinu vom gangar og skot og
háaloft og í Narníuævintýmnum
bregður hann oft upp myndum af
slíkum húsum, þar sem böm eiga
sér leyniveröld. Bemska hans var
hamingjusöm þar til hann missti
móður sína tíu ára gamall. í bók-
inni Frændi töframannsins, sem er
ein af Namíubókunum, lýsir hann
einmitt reynslu drengs sem á dauð-
veika móður - en í ævintýrinu tekst
að bjarga lífi hennar á yifrnáttúm-
legan hátt.
C:S: Lewis var tíu ára sendur í
skóla í Englandi þar sem beitt var
vægðarlausum líkamsrefsingum en
tólf ára gamall fór hann í mennta-
skóla í Belfast. Hann hóf háskóla-
nám í Oxford átján ára gamall en
þá var heimstyijöldin skollin á og
hann fór í herinn og var sendur í
vesturvígstöðvanna, særðist og var.
sendur heim til Englands. Eftir að
stríðið lauk hann háskólanámi í
Oxford í klassiskum fræðum og
heimspeki og árið 1925 var hann
ráðinn þar til kennslu næstu fimm
árin en var þar allt fram til ársins
1954.
Á heimili hans í Magdalen Col-
lege í Oxford söfnuðust saman
nokkrir vinir hans vikulega og lásu
úr verkum sínum hver fyrir annan.
Einn þeirra var Tolkien, höfundur
Hringadrottinssög'' (I/>rd of the
Rings). C.S Lev . alinn upp í
kristinni trú en á skó: iámnum var
hann atheisti. Um þr+-igt fór hann
að gaumgæfa tm af alvöm og
gætir kristinnar lifsskoðunar og
trúar mjög í öllum verkum hans.
Hann segir sjálfur í bréfi til vinar
síns að hægt sé að læða í huga
fólks eins miklu af kristinni guð-
fræði og maður vill, kunni maður
einungis að klæða hana í dular-
gervi skáldskapar.
-MC.S.Lewis skrifaði vísindaskáld-
sögur á fjórða tug aldarinnar t.d.
Out of the Silent Planet, Voyage
VIÐ VITUM EKKI HVE KitchenAkJ HRÆRIVÉLARNAR ENDAST LENGI
... þær sem fyrst komu á markaðinn eru liö-
lega þrítugar og ekkert lát á þeim. Framleið-
andinn hefur ekki séö ástæöu til aö breyta
þeim allan þennan tíma. Þær eru nefnilega góö-
ar eíns og þær eru. Þaö sannar reynslan.
nniuóti
glSAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3 SIMI 681910