Morgunblaðið - 14.12.1986, Síða 21

Morgunblaðið - 14.12.1986, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 C 21 í g-óðum félagsskap veiðifélaga, Eyjólfur Konráð, Helgi Bergs, Helgi Eyjólfsson, Jóhannes Nordal, Kristinn og Svanbjörn Frímannsson. og bátsins sem var fyrir innan þröskuldinn. Við höfðum 8 tommu sveran nælonkaðal, sem við festum í vélskófluna og í bátinn. Síðan keyrðum við bátinn í áttina að þröskuldinum og vélskóflan tók slakann af kaðlinum. En við keyrð- um vélina alltaf meira og meira, jukum stöðugt kraftinn, og þegar vélin var komin á fullt og nælonkað- allinn var strengdur í botn — hann var þá orðinn 2ja tommu mjór í strekkingunni — hjuggum við á kaðalinn, og báturinn þaut af stað. Við höfðum ekki nema 30 metra til að ná að minnsta kosti 6 mflna ferð og freista þess að komast yfir klappimar. Og það skipti engum togum — bátnum var eins og skot- ið úr teygjubyssu, og hann ruddist upp á skerið, lagðist fjári mikið — en það tókst. Andartak stansaði hann á hæsta skerinu, en rann síðan niður af því og út á auðan sjó. Þetta var engu lflct og í rauninni ævintýralegt að það skyldi takast. Ég man að Goðinn átti að koma og draga okkur þama út og um það hafði verið samið, en hann tafð- ist, þurfti að bjarga eða draga út bát á leiðinni, og það hefði verið komið fram yfir flóðið, þegar hans var von. Goðinn kallaði í okkur skammt frá Þorlákshöfn, en þá vomm við að sigla inn í Þorláks- höfn á Bjarma. Ég veit ekki til þess að bát hafi nokkum tíma verið skotið á þennan hátt yfir skeijagarð, enda varla við að búast. Við höfðum geysimikla öxi til þess að höggva á kaðalinn, enda mátti það vera mikið verkfæri á svo sveran kaðal þótt hann væri orðinn vel strengdur og allmjór. En við urðum að binda þann sem hjó, því að hann varð að nota báðar hendur á öxina og óbundinn hefði hann hrokkið um koll því að hnykk- urinn var svo mikill. Á léttu nótunum í Tungu Léttur húmor hefur löngum fylgt samfélaginu austur í Tungu, enda við hæfi þegar veiðimenn eiga í hlut. Eyjólfur Konráð sagði mér einu sinni eftirfarandi sögu sem hann hafði mikið gaman af. Það var að lokinni veiðiferð að Kristinn var á leið í bæinn ásamt fleiri mönn- um og var skrafað um heima og geima á leiðinni. Skyndilega segir Helgi Bergs bankastjóri upp úr þuiru: „Kristinn, hvað heitir hann hinn hundurinn þinn, ég er ekki að meina Eykon, heldur hinn.“ Beling aðmíráll lagði áherslu á það í íslenskunámi sínu, sem hann náði afburðaárangri í, að læra snjallar setningar sem svör við ýmsum spumingum. Allir sem þekkja Eyjólf Konráð vita um skjót viðbrögð hans og blússandi atorku- semi, þar sem allt verður að framkvæma samstundis og helst fyrr. Þegar Beling aðmíráll lék sér að því í einum veiðitúr austur í Tungu að lýsa Eyjólfi Konráð í sem fæstum orðum, þá sagði hann að Eyjólfur væri eins og vitlaus mús í vatnskeraldi. Þetta þótti Eyjólfi gott. Allir slíkir taktar verða til í góð- um félagsskap, og Eyjólfur Konráð hefur alltaf haft gaman af að gefa færi á sér, bókstaflega nýtur þess, því það kryddar tilveruna. Sjálfur er hann launstríðinn og til í tuskið, þegar svo ber undir. Ýmis formleg- heit eiga ekki heldur heima innan landhelgi hópsins, þótt oft þurfí réttan stað og stund til þess að bijóta ísinn. Snorri Hallgrímsson var til dæmis ákaflega formfastur maður og ekki allra. Þegar þeir Eykon og Snorri fóm í fyrsta skipti saman austur í Tungu í veiði ferðuð- ust þeir tveir saman og Eykon hafði það á tilfínningunni að hann, lög- fræðingurinn, væri ekki í miklu áliti hjá lækninum. Þeir festu bflinn illi- lega við Hnausa í Meðallandi og urðu að moka snjó og aur frá hon- um. Þar sem þeir lágu báðir í blotanum undir bflnum til að reyna að losa hann segir Eyjólfur við Snorra: „Réttu mér skófluna?" Gjörið þér svo vel,“ svaraði Snorri. En það leið samt ekki á löngu, þar til engar þéringar tíðkuðust þeirra i millum. í gestabók Gyðu og Kristins í sumarhúsi þeirra gætir ýmissa grasa, og margar vísur gefa skemmtilega mynd af félagsskapn- um, vísur sem má ef til vill segja að hafí átt við á einum stað og einu sinni. Þær em tilfallandi eins og gengur og gerist í gestabókum, en em hluti af mannlífi staðarins og undirstrika sérstöðu þess. Einu sinni fóm þeir félagar aust- ur í ofsaveðri og hörkusandbyl. Þetta var ein af þessum norðaustan stormskotum, sem gerir stundum í Skaftafellssýslu, og það vár óvíst hvort þeir kæmust yfir Mýrdals- sand, en það hafðist með hörkunni. Þetta var 31. mars 1977. Þá var kveðið: Bílinn sandsins hreggið hjó und Hafurseyjar rana. Varð þá bæði um og ó Eykon hrútabana. Nokkmm sinnum hefur Kristinn lent í slíkum sandstormi á Mýr- dalssandi að bílrúðurnar áveðurs hafa orðið hvítar af sandblæstri og lakk eyðilagst. Þetta er ámóta og að lenda í hörðuin snjóbyl, nema þama er um að ræða fljótvirka sandblástursvél. Þegar Kristinn var á sínum tíma að glíma við Polar- quest og var að gefast upp á honum, kom fulltrúi Lloyds til landsins til þess að reyna að meta stöðuna og kanna hvort annar aðili ætti að taka við björgunartilraunum. Krist- inn ók erlenda fulltrúanum austur og niður að sjó að strandstað og lenti í blússandi sandstormi á sandinum. Kristinn ók þó mjög greitt eftir stikum um vatnasvæðið í engu skyggni og síðan í sand- bylnum á sandinum án þess að sjá nokkuð. Fulltrúi Lloyds spurði, hvort þetta væri ekki alveg sérstakt á sandinum, en Kristinn svaraði því til, að þetta væri ósköp venjulegt. Vegna sandbylsins sáu þeir aldrei strandaða skipið, en hins vegar lá ljóst fyrir hjá fulltrúa Lloyds að heppilegri menn væri ekki hægt að fá til verksins en þá, sem óðu sand- byl og yfir vötn eins og ekkert væri sjálfsagðara. Þann 31. mars 1978 er þessi vísa Jóhannesar rituð í gestabókina, en haustið áður hafði Eyjólfur Konráð sett allt á annan endann á Norður- landi, þegar hann hótaði sjálfur að skjóta hrút til þess að knýja fram sláturleyfí í Skagafírði fyrir aðila, sem vom ekki vinir Sambandsins. Víðfræg ljósmynd birtist af Eyjólfí með byssuna og hrút einn, allvæn- an. Þeir veiðifélagar í Tungu vom hins vegar nýkomnir austur eftir slarkferð yfir Mýrdalssand. Mýrdalssandinn allan út Eyjólf sé ég skálma. Er hann að flýja undan hrút eða honum Pálma. Þann 1. apríl sama ár gerir Jó- hannes svo Hrútsvísur: Eykon sat með angri og sút yfir tómu glasi. Einu sinni átti ég hrút, átti hrút á grasi. Eykon hló og hélt um stút, hress og drykkjugiaðun A Króknum hef ég kálað hrút og kallast vígamaður. Sögu bar hann Eykon út, sem engan trúi ég blekki: í Skagafirði skaut ég hrút eða skaut ég hrútinn ekki. VkísKc, ad kALLIMN Bl3\NN AD I k mannfólkið OG HIN DÝRIN BÓKAÚTGÁFAN ■'Á ■ - NOATUN ^ Nógar vörur í Nóatúni | ■ HVITARLAX FR OSINN HVÍTÁRLAX Vi 345,- pr. kg. REYKTUR HVÍTÁRLAX Vi 895,- pr. kg.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.