Morgunblaðið - 14.12.1986, Side 22

Morgunblaðið - 14.12.1986, Side 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 félk í fréttum 'f,fp ■ ■‘te Þessi mynd var tekin í vor af Jean-Claude Duvalier og konu hans á altaninu við villu þeirra hjóna á Rívíerunni. Lítillátur ljúfur kátur leikur sér við máta... Baby Doc hvers manns hugljúfi Illa settur jólasveinn! Nú sem styttist í jólin verður algeng- ara að sjá jólasveina og ails kyns furðuverur nálægt byggðum. Flestir jóla- sveinar eru feitir og sællegir og þurfa litlu að kviða, enda vandir að krækja sér í bita með ýmsum brögðum. Jólasveinn þeirra í Spéspegli, eða Spitting Image, á hins vegar í nokkrum erfíðleikum, því hann er bæði atvinnu- laus, gamall og lúinn. Jólalagið sem hann syngur er Santa Claus Is On The Dole, sem þýða má „Jóli er á bísanum". Lagið íjallar um gamlan skeggjaðan karl, sem er þunglyndur vegna þess að atvinnuleysisbæturnar hrökkva ekki fyr- ir öllum þeim gjöfum, sem hann vildi geta gefið. Það er Kór trúleysistrúboðs- ins, sem syngur með þeim gamla. sveini»u,[l1. H aldi fólk að Jean-Claude Duvalier sé óalandi og óferjandi í alla staði, verða þeir leiðréttir hér með, því að nú fer annað og betra orð af foringjanum. Rétt er það að hann var ein- ræðisherra og kúgari hinn versti, en fregnir frá Cannes herma að hann sé stakt séntil- menni í daglegri umgengni. Fyrir skömmu var þann mann ekki að fínna í hinum siðmennt- aða heimi, sem hafði eitthvað fallegt að segja um forsetann fyrrverandi, en nú er það að breytast. T.d. sagði breski veggjatenn- ismeistarinn Mark Moran það um daginn að gaman væri að leika veggjatennis við Duvalier og að hann væri góður íþrótta- maður sem kynni að tapa. „Hann hendir spaðanum aldrei frá sér“, segir Moran. Ekki er víst að þessi skapstill- ing komi Baby Doc inn um hlið Himnaríkis, en hún hefur unnið honum sess í Mougins-sveita- klúbbnum skammt frá Cannes. „Herra Duvalier er einn kurteis- asti og nærgætnasti leikmaður sem hefur leikið hér“, er haft eftir Moran. Duvalier býr skammt frá klúbbnum í villu, sem er í eigu Khasoggi-fjölskyldunnar. Hann kemur í klúbbinn öðru hveiju, vanalega einn síns liðs og án þess að miklar eða augljósar öryggisráðstafanir séu gerðar. Að því er klúbbgestir segja hefur Baby Doc vanalega hægt um sig, forðast deilur og drykkjuskap. Eins hefur verið eftir því tekið að hann hefur enn ekki boðið neinum klúbbfélög- hættir hans hafa breyst mjög um heim til sín. Þykja mönnum til hins betra. s ffjjte * w mg A , Mj Wfj C JipHPMm Jól í New York Nú er óðum að færast jólaskap í fólk — menn byrjaðir að huga að gjöfum, kökubakstri, eldamennsku og öllu því umstangi sem afmælishátíð Frelsarans fylgir. Eins og löggera ráð fyrir er reynt að gera sér dagamun og m.a. er búið að hengja upp skreytingar í Austurstræti og kveikt verður á jólatrénu á Austurvelli nú í dag. Ekki alls fyrir löngu var kveikt á jólatrénu á torginu við Rockefeller Center í New York. Eins og sjá má er ekki staðnæmst við að kveikja á myndarlegu tré heldur þeyta neon- englar lúðra sína. Arlega hefur verið kveikt á tré við Rockefeller Center frá fjórða áratugnum, en það voru byggingarverkamenn við bygginguna, sem reistu fyrsta tréð og skreyttu það.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.