Morgunblaðið - 14.12.1986, Side 29

Morgunblaðið - 14.12.1986, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14: DESEMBER 1986 C 29 1ER AKANDI SVARAR I SIMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MANUDEGI TIL FÖSTUDAGS m(u--------- Frábærar móttökur Pétur frá Hópferðum Péturs hringdi: Þann 25.nóv. þurfti fólkið af deild 15 á Kleppsspítala að rýma deildina einn dag vegna viðgerða eða endurbóta. Var því boðið að Vistheimilinu Ási í Hveragerði. Og í stuttu máli sagt, viðtökurnar voru stórkostlegar, matur var framreiddur og heilt hús stóð gestunum til boða. Sjúkrahúsið á Selfossi bauð í kaffi og þar voru sömu móttökur. Og seinast gaf Blómatorg jólastjörnur á flestar geðdeildir Landspítalans og Kleppsspítala. Fyrir þennan ánægjulega dag vil ég þakka fyr- ir hönd okkar allra, því það er ekki síður vert að geta þess sem vel er gert en hins sem aflaga fer. Þakkir til S veiris Haraldur Þorbjörnsson hringdi og vildi þakka Sverri Stormsker fyrir frábæra hljóm- plötu. Oánægð með breyttan frétta- tíma sjónvarps Kristbjörg hringdi: Mér finnst þessi hringlanda- háttur í sambandi við fréttatíma ríkissjónvarpsins okkar alveg til skammar. Sjálf vil ég hafa frétt- irnar 19.30 og ég hef heyrt marga samsinna því, þar á meðal barna- fólk með mjög ung böm. Og ég er óhress með viðbrögð formanns útvarpsráðs í þessu máli og tel að hinn þögli meirihluti vilji frétt- irnar kl.19.30. A ekki að prenta Refsku að nýju? Skagstrendingur hringdi: Um daginn var ég staddur í borginni og gerði ég mér þá m.a. ferð í einar þijár bókabúðir að leita bókarinnar Refsku eftir Kristján J. Gunnarsson. Ég komst að því loks að hún er uppseld og nú leikur mér forvitni á að vita hvort ekki á að prenta hana á nýjan ieik? Bylgjan gagn- rýnd Hlustandi hringdi: Ég hef að undanförnu hlustað mikið á Bylgjuna. En ef ég á að segja eins og er þá er ég rétt að gefast upp á því því að þeir virð- ast varla eiga aðrar plötur í eigu sinni en nýju Stuðmannaplötuna. Öllu má nú ofgera og em það vinsamleg tilmæli til þeirra að hvíla hana nú svolítið. Tapaði gullarm- bandi Rannveig hringdi: Ég tapaði gullarmbandi um daginn. Ohappið varð við Um- ferðarmiðstöðina í Reykjavík, eða í Selfossrútunni, eða fyrir utan afgreiðslu sérleyfisferða á Sel- fossi. Armbandið er eins og svolítið gróf kaðalsnúra og er finnandi beðinn að hringja í s.94-1362. Þakklæti til Guð- mundar Þóra Jónsdóttir hringdi og vildi þakka Guðmundi Guðmund- arsyni fýrir grein hans um nútíma ljóð sem birtist í Morgunblaðinu fyrir nokkm. Vill Þóra skora á fleiri að láta heyra í sér um þetta mál. Þá vill hún þakka ríkisút- varpinu fyrir góða þætti sem að undanförnu hafa verið í bæði út- varpi og sjónvarpi. Hvar fæst bókin? Kona úr Garðabænum hringdi: Hvar fæst bókin „Bæði og“ eftir Rögnu S. Gunnarsdóttur. Ég hef hvergi fundið hana þrátt fyrir mikla leit. Týndi úri Brynhildur hringdi: Um tíuleytið á laugardaginn 6.des. týndi ég Seikó Quarts úri fyrir utan Hagkaup. Úrið er mjög vandað, ólin úr krókódílaskinni, gull utan um skífuna sem er fer- hyrnd en allt er úrið mjög þunnt. Finnandi vinsamlegast hringi í s.10529 eftir kl.19 eða hafi sam- band við upplýsingar í Hagkaup. Hefur ríkisút- varpið einka- leyfi á áfengis- auglýsingum? Dóra hringdi: Mig langar til að spyija for- ráðamenn ríkisrekna útvarpsins okkar að því hvort þeir hafi einka- leyfí til að auglýsa áfengi. Á þriðjudaginn 9.þ.m. var þar þáttur um jólaglögg og nokkm eftir hann heyrði ég að fyrirtæki var að aug- lýsa jólaglögg til sölu. Vitið þið ekki að jólin em hátíð bamanna og að sú hátíð getur hæglega breyst í martröð ef áfengi er með í spilinu? Hvers vegna má ekki einu sinni gleyma gróðafíkninni og reyna að njóta lífsins án þess að vilja græða á náunganum? I þessu tilviki er eins gróði oft annars tár. Er það þess virði? Fann úr í Seljahverfi Skilvís hringdi og sagðist hafa fundið kvenmannsúr í Seljahverfí í Reykjavík. Upplýsingar í s.77517. Ekki truf la myndrokkið Piltur hringdi og vildi koma þeirri áskomn til Stöðvar 2 að hún hætti að tmfla myndrokkið. MUGGS-SPILIN Jólin nálgast „Allir fá þá eitthvaðfallegt í það minnsta kerti og spil. “ HÓFÍ áritar bók sína DAGBÓK FEGURÐAR- DROTTNINGAR í verslun okkar í Nýja Bæ ídagmilli kl.l4ogl6. Sendum áritaöar bækur í póstkrufu. EYMUNDSSON Nýja Bæ, Eiðistorgi 11 Sími: 611700 Opnið þessa eilífu þögn heyrnarskertra Kæru hrafnaklukkur sjón- varpsins. Mig langar til að tala til ykkar nokkur orð, benda með þeim á leið, er gæti orðið ykkur og lág- kúrulegri fomeskju þjóðarinnar til upphefðar ef þið sjálfir viljið svo vera láta. Textið allt íslenskt efni, bundið og óbundið í sjónvarpinu, opnið þessa eilífu þögn heyrnar- skertra, sem annars ekkert kærleiksorð fær rofið. Eins og nú er, emm við ekki samfélag í mannfélagsstíg þjóð- félagsins og sjónvarpið því ekki allra landsmanna. Tárin sem felld em yfir þessu miskunnarlausa óréttlæti em ekki til þess fallin að falla í lífsbikar þeirra ráða- manna, að ómælanlegri sorg manns og örvæntingu. „Hver er að dómi æðsta góður. Hver er hér smár og hver er stór. I hveiju strái er tíminn gróður. í hveijum dropa reginn sjór.“ Virðingarfyllst, heyrnarskert. Gódan daginn! Urvals skemmtisögur frá Sögusafiii heimilanna SONUR EYÐIMERKURINNAR LMarshaU SÖGUSAm HEIMIbWriA Verð m.sk. kr. 995.- Verð m.sk. kr. 875.- Verð m.sk. kr. 875.- Verð m.sk. kr. 795.- Verð m.sk. kr. 795.-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.