Morgunblaðið - 14.12.1986, Qupperneq 30
OvJ t MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14, DESEMBER 1986
IJE liEIMI W\VIEMYNE'ANNA
Atriði úr „The Hustler" sem Robert Rossen gerði fyrir tæpum þrjátíu árum með Paul Newman f aðal-
hlutverki. The Hustler er ein besta myndin sem Newman hefur leikið í.
Martin Scorsese leikstýrir Paul Newman
í „The Color of Money“:
Eddie Felson
30 árum síðar
Paul Newman fylgist með félaga sfnum Tom Cruise f „The
Color of Money", sem Martin Scorsese stýrði. Myndin er
óbeint framhald af „The Hustler".
|t M artin Scorsese neitar því að
1^1 nýja myndin hans, The Col-
or of Money, só beint framhald
af The Hustler (Svindlarinn), mynd-
inni sem Paul Newman lók í fyrir
25 árum og nú er talin sígild, þrátt
fyrir að Newman leiki sama mann-
inn í nýju myndinni. Hann var
nýbúinn að gera Afther Hours þeg-
ar Paul Newmann hringdi og bað
hann ákaft að vinna með sér að
þessari mynd. Scorsese gat engu
lofað, en fékk handritið sent og las
það. Scorsese fannst handritið
alltof bókmenntalegt, enda skrifað
beint eftir samnefndri bók Walter
Tevis (sem einnig samdi The Hustl-
er). Scorsese samþykkti að gera
myndina ef handritið væri endu-
runnið undir hans stjórn.
Hvers vegna vildi Paul Newman
fá Martin Scorsese til liðs við sig?
Svariö er einalt: leikarinn upp-
götvaði að hann og leikstjórinn
eiga margt sameiginlegt, m.a. það
að þora að taka áhættur. Newman
hefur aldrei fallið algerlega inn í
formúlu stórstjarnanna úr
Hollywood, hann á það til að leika
menn sem eru ekki allir endilega
geðslegir, jafnvel skúrka (Hud). Og
flestar persónur í myndum Scor-
seses eru utangarðsmenn (Mean
Streets, Taxi Driver, Raging Bull).
Scorsese sá hér möguleika á góðri
samvinnu, ágætri kvikmynd, ekki
síst vegna þess að höfuðpersónan
í The Hustler, Eddie Felson, þrífst
á stöðum sem falla Scorsese eink-
ar vel í geð, nefnilega billjardstof-
um og börum. Og síöast en ekki
síst: Scorsese hefur dáð Newman
frá barnæsku.
Fyrir þá sem ekki þekkja The
Hustler skal þess getiö að Eddie
Felson, eða Fast Eddie eins og
hann var kallaöur, var ungur snill-
ingur í billjard sem vann sig í álit
hjá þeim sem stjórna þeirri iþrótt
(spilltir að sjálfsögðu) og fékk í lok-
in að spreýta sig gegn meistara
íþróttarinnar, þeim Feita, sem
Jackie Gleason lék meistaralega.
Síðustu 30 mínútur myndarinnar
snerust eingöngu um kyngimagn-
að einvígi þeirra.
En hvað hefur svo orðið um
Eddie Felson á þessum tæpu
þrjátíu árum sem liðin eru? Það
var höfuövandamálið við samningu
kvikmyndahandritsins, hvað er
Eddie Felson að bralla þessa dag-
ana? Newman og Scorsese
samþykktu fljótt að fá leikritaskáld-
ið Richard Price til verksins; hann
á að baki leikritin The Wanderers
og Blóöbræður. Það er ekki nokkur
vegur að lýsa Eddie Felson eins
og hann er í dag fyrr en maöur
hefur séð myndina, en Scorsese
segir okkur þó að Eddie sé hættur
að leika billjard sjálfur, og spilar
aldurinn þar vitanlega inn i, en
þess í stað leitar hann uppi efni-
lega spilara og spilar með þá, það
er að segja, gefur þessum efnilegu
tækifæri til að keppa en tryggir
sjálfum sér væna sneið af peninga-
Jólamynd Laugarásbíós árið
1982 er líka ein af jólamynd-
um bíósins í ár. Það er hin
geysivinsæla og margfræga
barnamynd Stevens Spielberg,
E.T., sem hann gerði eftir hand-
riti Melissu Mathison.
Það kom í Ijós í sumar þegar
E.T. var aftur sett í dreifingu um
heimsbyggðina fjórum árum eft-
ir að hún var frumsýnd, að hún
nýtur ennþá talsverðra vin-
sælda. Hún halaði til að mynda
inn nokkrar milljónir dollara í
Bandaríkjunum.
E.T. fékk mjög góða aðsókn
þegar hún var sýnd í Laugarás-
bíói jólin '82 eins og annarstaðar
á jarðarkringlunni og þeir fjöl-
kökunni sem allt snýst um. Til
þess þarf Eddie að spilla ungu
mönnunum og í The Color of Mon-
ey er það Tom Cruise sem leikur
nemanda Eddies og síðar erki-
keppinaut. Tom Cruise þykir sýna
ótrúleg listræn tilþrif, ótrúleg
vegna þess að fyrri myndir hans
hafa ekki gefiö neina vísbendingu
um að í honum búi leikari.
mörgu sem sáu hana þá þekkja
hið Ijúfa ævintýri um geimver-
una, sem verður eftir þegar hún
kemur með félögum sínum í
rannsóknarferð til jarðarinnar
og kynnist nokkrum krökkum,
sem skjóta yfir hana skjólshúsi.
Strákurinn Elliott verður sér-
stakur vinur hennar og felur
hana fyrir vísindamönnum sem
vilja krukka í hana og á síðustu
stundu tekst geimverunni að
hafa samband við plánetuna
sína í þriggja milljóna Ijósára
fjarlægð, og félagar hennar
koma eftir henni.
Þetta er vinsælasta myndin
sem Spielberg hefur gert hingað
til og það eitt ætti að vera nokk-
ur sönnun um ágæti hennar.
Laugarásbíó
Geimálfurinn
snýr aftur
Löggan í
Beverly Hills II
Löggan i Beverly Hills (Bev-
erly Hills Cop), hvers fram-
leiðendur segja að sé vinsæl-
asta gamanmynd sem gerð
hefur verið, gengur bráðlega
undir svolitla nafnabreytingu
eigi allsjaldgæfa í henni
Hollywood. Héðan í frá mun hún
vera kölluð Löggan í Beverly
Hills I því Löggan í Beverly Hills
II er komin á skrið með Eddie
Murphy í aðalhlutverkinu sem
fyrr. Judge Reinhold, John Ash-
ton og Ronald Cox munu einnig
endurtaka sín hlutverk í nýju
myndinni.
Framleiðendur myndarinnar
heita Jerry Bruckheimer og Don
Simpson og þeir virðast hafa
komist yfir góða formúlu að
metsölumyndum. Löggan í Bev-
erly Hills hefur gefið af sér meira
en 350 milljón dollara sem er
ekki slæmt þegar haft er í huga
að hún kostaði ekki nema 15
milljónir fyrir tveimur árum. Þá
gerðu þeir Top Gun (sýnd í
Regnboganum), sem gefið hefur
230 milljónir af ser frá því hún
var frumsýnd í vor, og þeir gerðu
einnig Flashdance fyrir þremur
árum fyrir átta milljónir dollara
en hún hefur halað inn 370 millj-
ónir. Hverri mynd fylgdi hljóm-
plata sem einnig náði metsölu.
Þannig að þegar fréttist af fram-
haldsmynd „Löggunnar" urðu
margir til að sjá dollaramerki
blikka.
„Við erum ekkert sérstaklega
á þeirri línu að gera framhalds-
myndir," sagði Simpson. „Þetta
er meira eins og sería — líkt og
„Indiana Jones" eða James
Bond. Eddie fer á ólíka staði og
lendir í ólíkum æfintýrum. Birg-
itte Nilsen, eiginkona Sylvesters
Stallone, fer með aðalkvenhlut-
verkið í myndinni en hún var
ekki í frummyndinni. Við ákváð-
um að gera þessa mynd af því
að sú fyrri náði svo miklum vin-
sældum, það var gaman að gera
þá mynd og Eddie var til í tusk-
ið. Það yrði engin mynd án
hans."
Aðrir af upprunalega liðinu
voru ekki eins ómissandi. Leik-
stjórinn Martin Brest, sem
leiksýrði „Löggunni", hafnaði
boði um að leikstýra framhalds-
myndinni og handritshöfundarn-
Geimálfurinn, E.T.
Eddie Murphy
ir eru einnig nýir. Leikstjóri nýju
myndarinnar er Tony Scott,
Bretinn (bróðir Ridleys) sem
leikstýrði Top Gun.
Framleiðendurnir, Bruck-
heimer og Simpson, hyggjast
vinna í nánu sambandi við
stjórnarstofnanir í Washington
þegar þeir gera sínar næstu
myndir. Þeir náðu góðu sam-
bandi við Pentagon þegar þeir
gerðu Top Gun, sem gaf ró-
mantíska og dýrðlega mynd af
lífi hermanna. Framleiðendurnir
sögöu í blaðaviðtali að þeir
hefðu nýlega ferðast til Wash-
ington að ræða framtíðarverk-
efni sín við háttsetta aðila í
Pentagon, CIA og nokkrum öðr-
um stjórnarstofnunum og
varaforseta Bandaríkjanna, Ge-
orge Bush, að auki sem stjórnar
herferð gegn eiturlyfjum í
Bandaríkjunum. Þeir létu vel af
för sinni og höfðu ekki áhyggjur
af því að þeir mundu ritskoða
handrit í framtíðinni til að fá
aðstoð frá Washington. Pentag-
on neitaði á sínum tíma að
aðstoða við gerð myndarinnar
„An Officer and a Gentleman"
vegna þess að sumum yfir-
mönnunum þar geðjaðist ekki
að ákveðnum persónum og
samböndum, en myndin var
samt gerð. Don Simpson var
framkvæmdastjóri þeirrar
myndar. „Við munum ekki sam-
þykkja ritskoðanir," er haft eftir
honum.