Morgunblaðið - 27.03.1987, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 27. MARZ 1987
C 5
*
A vinnustofu
Grétars Reynissonar
ii
MorgunblaðiÖ/Július
Grétar á vinnustofunni.
Skyssan af leikmyndinni limd á
gluggarúðuna og í hœgra horninu
má sjá hluta myndarinnar eftir
soninn.
„Nei, það er frekar að ég fái
hugmyndirnar hór og fari með þær
í leikhúsið, sjáðu" og nú tekur hann
niður blaðið af rúðunni, „þessa
hugmynd fékk ég hérna allt í einu
í sambandi við svið í Nemendaleik-
húsinu í Lindarbæ, það veröur
kross, átta sviðsbrúnir, geri aðrir
betur, þetta kom allt í einu yfir mig.
Ég kem úr nýlistadeild Mynd-
lista - og Handíðaskólans og er í
eðli mínu skúlþtúristi, en hef alltaf
penslað og teiknað eitthvað, og
leikmynd er skemmtileg hugmynd
utan um sterk form. En þessi vinna
í leikhúsinu er ílla launuð, þó svo
að leikmyndateiknari sjái að mestu
um sjónræna þáttinn, teikni bún-
inga, sjái um lýsingu og þesshátt-
ar. Níutíu og fimm prósent af vinnu
minni í leikhúsinu er hugmynda-
vinna, en um áttatíu prósent af
vinnutímanum fer í ailskyns redd-
ingar. Ég gæti hugsað mér að vera
nokkurs konar hugdettufræðingur
í leikhúsinu, koma með hugmyndir
og uppástungur, en þurfa ekki að
sjá um framkvæmdina nema að
litlu leyti. Vinna í leikhúsi byggir
lika á stöðugum málamiðlunum og
því er ekkert yndislegra en að
koma hingað eftir vinnu í leikhús-
inu og vinna í friði, hér er miklu
meira frelsi.“
- En getur það ekki líka verið
erfitt?
„Jú, jú, það er það. En menn
hafa oft svo þröngan ramma til að
athafna sig í, oft er ramminn á
stærð við frímerki. Sem dæmi má
nefna lögin í sönglagakeppninni,
lögin eru öll svotil eins, enda
ramminn mjög þröngur. Hér hef
ég frelsi til að mála það sem ég vil
á strigann. En maður verður að
hafa tíma til að vinna, og þó svo
það komi svotil ekkert á strigann
svo dögum og vikum skiptir, þá
er ekki þar með sagt að ekkert sé
að gerast, maður sofnar á kvöldin
með hausinn fullan af hugmynd-
um.“
- vj
Creda
tauþurrkarar
Verð 5 kg.
14.900 kr. staðgr.
Verð 4,5 kg.
19.000 kr. staðgr.
Viðja
Rafbúðin
Stapafeil
Vörumarkaðurinn
Blaðburóarfólk
óskast!
AUSTURBÆR GRAFARVOGUR
Þingholtsstræti o.fl.
Sóleyjargata
Laufásvegur 2-57
Hverfisgata 4-62 o.fl.
Gerðhamrar
Dverghamrar
Krosshamrar
Hesthamrar
NILFIS
GS90
arai
LETT, LIPUR OG VANDVIRK
Aðeins 6,1 kg á svifléttum hjólabúnaði.
Stillanlegt sogafl og afbragðs sogstykki.
STERK OG TRAUST
Reynslan sannar rekstraröryggi og
einstaka endingu.
HAGKVÆM OG HEILNÆM
10 litra poki og svo frábær ryksíun að
hún hreinsar einnig andrúmsloftið.
Nýlegar hollusturannsóknir leiddu í Ijós
að flestar ryksugur rykmenga loftið,
sumar hrikalega.
Já, svona er NILFISK: Vönduð og tæknilega ósvikin, gerð til að vinna sitt verk,
fljótt og vel, ár eftir ár, með lágmarks truflunum og tilkostnaði.
NILFISK
HEIMSINS BESTA RYKSUGA
Stór orð, sem reynslan réttlætir
/Fdnix
HÁTÚNI6A SlMI (91)24420
„ Gott veganesti sem
við búum aiitafað“
Pálmi Ingólfsson og Christine
Buchholz voru meðal þátttak-
enda á hjónahelgi sem haldin var
í nóvember síðastliðnum. Þau
sögðust hafa frétt af þessu hjá
kunningjafólki rétt áður en þau
giftu sig, verið hvött til þátttöku
og litist vel á. „Við vissum ekkert
hvað viö vorum að fara út í, en treystum kunningja-
fólkinu sem sagði að þetta ætti vel við okkur og
við myndum svo sannarlega njóta helgarinnar. Við
gerðum það líka þegar til kom. Það er ýmislegt
sem kom á óvart en við komum út reynslunni
ríkari og með gott veganesti."
Það er alveg sama hvaða aöferðum reynt er
að beita til að fá nánari vitneskju um innihald
helgarinnar, ekkert fæst upp gefið nema að þetta
sé ógleymanlegt.
— Breytti þetta sambandi ykkar að einhverju
leyti?
„Samband okkar hefur alltaf veriö opið og gott
en líklega hefur það gert okkur enn opnari fyrir
hvort öðru.
— Búið þið enn að reynslunni sem þið öðluðust
þarna?
„Þarna var fólk sem hafði verið í hjónbandi í
mörg ár og reynslunni ríkara. Það má kannski
segja að við höfum verið bólusett rækilega fyrir
ýmsu sem ekki má koma fyrir í hjónabandinu.
í framhaldi af þessu berst talið
að fjármögnuninni til að halda
slíkar helgar. Kemur í Ijós að búið
er að borga helgarnar fyrirfram og
þátttakendum boðið hverju sinni
án nokkurra skuldbindinga. Hins-
vegar er fólki gefinn kostur á að
leggja málinu lið í lokin og láta fé
af hendi rakna ef það vill. „Hingað
til hefur starfsemin verið fjármögn-
uð á þennan hátt og aldrei verið
vandamál.
Hér á landi hefur varla verið
hægt að anna eftirspurn," segja
þau Örn Bárður og Bjamfríður og
það kemur á daginn að kominn er
langur biðlisti á næstu helgi sem
er að hefjast og strax er farið að
falast eftir þátttökuheimild á seinni
helgina sem er í október næstkom-
andi. Á annað hundrað hjón hafa
nú þegar tekið þátt í þessu starfi
hér á landi.
„Hingað til hefur verið mest um
að hjón milli þrítugs og fertugs séu
þátttakendur, en einnig yngri og
eldri enda er þetta fyrir hjón á öll-
um aldri. Skýringarnar á því eru
eflaust margvíslegar, en hinsveaar
telja þau hjón það líka vera mjög
hentugt, hjónin séu þá tíðast búin
að vera gift í nokkurn tíma, þekkj-
ast orðið vel og eru vel undir þetta
búin. Talið er að hjón gangi í gegn-
um erfiðustu tímabil hjónabands-
ins á fyrstu fimm árunum og aftur
eftir um það bil fjórtán ára sam-
búð. Kann þetta að skýra aldurs-
dreifinguna að einhverju leyti.
„Hjónabandinu er í þessum til-
vikum gert mjög hátt undir höfði
og lögð á það áhersla hve það sé
mikils virði þannig að þessar helg-
ar eru ekki hugsaðar fyrir ógifta.
Samsvarandi hefur þó verið starf-
rækt erlendis fyrir trúlofað fólk,
ekkjur og ekkla en til þannig sam-
funda hefur ekki verið stofnað til
ennþá hér á landi.
— Merkið þið sjáanlegan
árangur hjá hjónum sem taka
þátt í svona námskeiði?
Bjarnfríður telur það án efa.
„Það voru til dæmis hjón sem
höfðu misst barnið sitt. Konunni
fannst hún hafa verið eins og í
lausu lofti frá þeim degi, en sagði
eftir helgina að hún væri að'finna
að nýju að hún væri til.“ Þá sögðu