Morgunblaðið - 27.03.1987, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1987
C 13
—
•wTTff
• \ •' . ' !
VIÐKVÆM HÚÐ
ER VIÐKVÆMT MÁL
Alltof oft er alhæft um áferð hörundsins og flestar
tegundir fegrunarlyfja flokkast í þrennt — fyrir eðli-
lega húð, fyrir feita húð og fyrir þurra húð. Þeir sem
hafa atvinnu sína af fegrun og snyrtingu leiða oftast
hjá sér viðkvæma húð, en það er einmitt þessi húð-
gerð sem krefst mestrar aðgæzlu og umönnunar.
Viðkvæmri húð hættir til að flagna og hlaupa upp í rauða flekki,
auk þess sem fjöldi snyrtiefna veldur ertingu.
Eftir því sem litaraftið er Ijósara aukast líkur á því að viðkom-
andi sé með viðkvæma húð. Rauðhært fólk er þar á fremsta bekk.
Viðkvæmni húðarinnar er því yfirleitt arfgeng. Þó er það athugunar-
vert að sumt fólk getur baðað sig í lútsterkum hreinsiefnum,
andlitsvötnum og rakakremum án þess að húðin láti á sjá, á sama
tíma og fjöldi fólks getur ekki einu sinni leyft sér tilraunir með slík
efni.
Skýringin er sú að uppbygging húðarinar er afar mismunandi.
Viðkvæm húð er langtum þynnri en öll önnur húð og því er hún
fljótari að taka til sín öll virk efni sem eru í snyrtiefnunum. Þegar
viðkvæm húð er annars vegar verða áhrif efnanna líka mun hastar-
legri en ella. í viðkvæmri húð eru líka fleiri mastfrumur en í annarri
húð, en mastfrumur teljast til frumutegundar í bandvefnum sem
myndar „histamín" við skemmdir á húðinni.
Þegar mastfrumur verða fyrir árás sterkra efna, s.s. ilmefna eða
andlitsvatn, sem herpir saman húðina, framkalla þær „histamín"
úr bandvefnum. Auk þess á viðkvæm húð bágt með að halda í sér
raka, sem viðheldur frísklegri áferð húðarinar. í gegnum þunna húð
sjást sprungnar háræðar líka betur en í gegnum þykka og sterka
húð.
Utanaðkomandi áhrif hafa því miður líka skaðleg áhrif á við-
kvæma húð. Má þar telja sólarljósið, miðstöðvarhita, breytingar á
hitastigi og loftslagi, áfengi og streitu. Sé húðin yfirmáta viðkvæm
kann að vera á ferðinni sjúkdómur sem kallaður er „rosacea" og
birtist í því að húðin á andlitinu þýtur upp og roðnar mjög mikið,
háræðar springa og bólga og bólgublettir undir húðinni koma í Ijós.
„Rosacea" er dæmigert merki um mikla viðkvæmni húðarinar og
getur orsakazt af hverju því sem stuðlar að útvíkkun æða í andlit-
inu, s.s. mikið af krydduðum mat, heitum drykkjum og hitabreyting-
um.
Augljóslega þarf umönnun viðkvæmrar húðar allan sólarhringinn
að hafa forgang. Eingöngu skal nota mild snyrtiefni sem eru laus
við ilm. Hreinsun slíkrar húðar gegnir tvíþættu hlutverki: Að halda
henni hreinni og að viðhalda réttu sýrustigi hennar án þess að
svipta hana náttúrlegum efnum sem græða hana og næra.
einstaklingur af hverjum tuttugu
er með ofnæmi gegn efnum eða
fæðutegundum. Sem dæmi má
nefna súkkulaði sem er algengur
ofnærnisvaldur. Það getur haft
áhrif á miðtaugakerfið og orsakað
mígreni og hegðunarvandamál.
Slík ofnæmisviðbrögð eru ýmist
væg eða mjög hastarleg, og stund-
um koma þau í Ijós á nokkrum
mínútum. '
Leiki grunur á því að ákveðin
fæðutegund orsaki vægt ofnæmi
er auðvelt að ganga úr skugga um
það með því að útiloka hana algjör-
lega um tíma. Ráðlegt er líka að
skrásetja nákvæmlega allt sem
maður lætur ofan í sig — hvert
einasta snifsi — og bókfæra jafn-
framt öll sérstök viðbrögð líka-
mans, hvort sem um er að ræða
þreytu, svima, deyfð, kláða eða
verki hvers konar. Brýnt er að leita
síðan álits læknis og næsta skrefið
er yfirleitt það að fara á strangan
matarkúr þar sem einskis er neytt
af því sem oft vill orsaka ofnæmi.
Venja er að útiloka egg, fisk, kjöt
mjólkurmat og alla unna matvöru
og síðan er fylgst nákvæmlega
með líðan og viðbrögðum sjúkl-
ingsins.
HEYSOTT
Langalgengasti og jafnframt
hættuminnsti ofnæmissjúkqlómur-
inn er heysótt, þar sem einkennin
eru nefrennsli, sárindi í augum og
hnerri. Þetta alþekkta fyrirbæri
hefur löngum verið talið stafa af
viðkvæmni gagnvart frjókornum
úr grasi eða blómum, enda verður
þess helst vart yfir hásumarið. I
Bretlandi fara nú fram rannsóknir
á því hvort ekki megi halda þessu
ofnæmi í skefjum með því ótíklega
móti að eta frjókorn. Tilraunir fara
þannig fram að sjálfboðaliðar, sem
haldnir eru heysótt, hafa verið
fengnir til að taka inn blómafrjó-
kornatöflur í umsjá Dennis
Stanworth hjá Rheumatology and
Allergy Research Unit, en læknir-
inn er þeirrar skoðunar að frjókorn-
in komi að góðum notum í
viðureign við þessa tegund of-
næmis. Um þessar mundir eru
tilraunir sumarsins í þann veginn
að leiða í Ijós árangur og í fram-
haldi af því verður ákveðið hvort
þeim verður haldið áfram.
Áður en skorið verður úr um
gagnsemi frjókorna að þessu leyti,
er ástæða til að minna á það að
í febrúarmánuði er rétti tíminn fyr-
ir þá sem þjást af heysótt til að
fá „anti-histamín"-sprautur sem
eiga að gagnast næsta sumar.
VIÐKVÆMUR
HÁRSVÖRÐUR
Viðkvæm húð takmarkast ekki við andlitið. Hún breiðir sig
út um allan líkamann, einnig hársvörðinn sem sjaldnast
fær nægilega góða umönnun. Yzta lag hársvarðarins er
þakið dauðum keratínfrumum, rétt eins og önnur húð á
líkamanum, og yfirborðið ér dálítið sýrukennt. Þeir sem eiga við
sérstök huðvandamal að stríða, s.s. of feita húð eða of þurra,
mega bóka að þannig er hársvörðurinn líka. Hvers konar erting,
hvort sem hun stafar af tíðum og harkalegum hárþvotti, jafnvel
með sterkum alkalískum efnum, örvar húðina til aukinnar fram-
leiðslu á keratíni. Þar sem húðin er á þessum stað þakin hári veitist
ekki auðvelt að losa sig við þessar dauðu húðfrumur. Smám sam-
an fjölgar þeim og þær koma fram í dagsljósið sem litlar hvítar
flögur. Þetta er með öðrum orðum hin alræma flasa.
Það er ekki aðeins erting sem framkallar flösu. Hún getur líka
orsakazt af streitu, veikindum og óhollu mataræði þar sem fjörefni
skortir. Vert er þó að taka fram að flasa er ekki smitandi og hún
er ekki sönnun þess að hárið sé óhreint. Flasa er aðeins merki
þess að endurnýjun húðarinnar sé afbrigðileg.
Til þess að halda flösu í skefjum eða útrýma henni skal gæta
þess að nota ekki sterk og sótthreinsandi hárþvottaefni, sem ein-
ungis orsaka álag á hársvörðinn og þurrka efsta lag húðarinnar.
Mild hárþvottaefni og skolefni halda aftur af mikilli fitumyndun um
leið og þau hrinda frá sér lausum flögum og halda hárinu hreinu
og gljáandi.
Til þess að lækna flösu eru einnig til sannkölluð undraefni sem
vandasamt er að fara með. Þau eru því einungis notuð á hár-
greiðslustofum. Notkun þeirra er tímafrek og krefst þjálfunar. Efnin
eru borln í hársvörðinn, sem síðan er nuddaður áður en efnin eru
látin virka drjúga stund.
Hárþurrkan er svarinn óvinur þeirra sem eru með viðkvæman
hársvörð og sama er að segja um krullujárn og heitar rúllur. Ekki
þarf að taka fram að öll sterk efni — permanent, litunarefni og
aflitunarefni — eru varasöm. Slík efni er yfirleitt alls ekki ráðlegt
að nota í heimahúsum og raunar er meðferð þeirra aðeins á færi
góðra fagmanna.
Ef flasan verður þrálát og ofangreind ráð duga ekki er tímabært
að leita til sérfræðings, sem hefur ráð á hinum ýmsu lyfjum og
efnum sem of langt væri að telja upp hér. Það er lika til í dæminu
að flasa stafi af psoriasis. Þær flögur sem birtast hjá psoriasis-
sjúklingum er raunar alls ekki rétt að kalla flösu. Þar sem ekki er
vitað um orsakir psoriasis er erfitt að eiga við þennan sjúkdóm
og segja má að hann só ólæknandi enn sem komið er. Þó er hægt
að halda honum í skefjum með ýmsum ráðum.
Þegar hársvörðurinn flagnar getur verið um fleiri orsakir að
ræða en að ofan greinir, en um leið og þess verður vart að venju-
leg ráð duga ekki til úrbóta er sjálfsagt að leita læknis.
VILTU KOMAST I HOP ANÆGÐRA VEISLUHALDARA ?
ftp n
} sSj.
I
tSnMim
: ..............
T-J í :
á ertu best settur með
fallegu einnota dúkana
okkar. Þeir tryggja þér vel
dúkað borð og auðveldan eftirleik.
Einnota borðdúkarnir ífá DUNI
eru fallegir og sterkir og fást í 7
mismunandi litum sem þú velur
efitir tilefni veislunnar.
Dúkarnir eru í rúllum, 40 m lang-
ir og 1.25 m breiðir; þú þarft aðeins,
að klippa af rúllunni þá lengd sem
hentar þér hverju sinni og allt
smellpassar!
- Og verðið kemur þér þægilega á
óvart.
FAIMIMIR HF
Bíldshöfða 14, sími 672511
Aðrir söluaðilar:
Rekstrarvörur,
Réttarhálsi 2, Reykjavík, sími 91-685554
Osta- og smjörsalan sf., Hafsteinn Vilhjálmsson, Þ. Björgúlfsson hf., heildverslun, M. Snædal, heildverslun,
Bitruhálsi 2, Reykjavík, sími 91-82511 Hlíöarvegi 28, ísafirði, sími 94-3207 Halnarstræti 19, Akureyri, sími 96-24491. Lagarfelli 4, Egilsstöðum, sími 97-1715
H. Sigurmundsson hfheildverslun,
Vestmannaeyjum, símar 98-2344/2345