Morgunblaðið - 27.03.1987, Blaðsíða 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1987
HVAÐ
ERAD
GERAST
UM
ígina ?
Þá veröur opnaö aftur með sýn-
ingu um íslenska árabátinn og
byggir sú sýning á bókum Lúðvíks
Kristjánssonar „fslenskum sjávar-
háttum". Til sýnis verða kort og
myndir úr bókinni auk ve iðarfæra,
líkana o.fl..
Listasafn Einars
Jónssonar:
Þetta er þriðja samsýning feðgin-
anna hér á landi og stendur hún til
5. apríl. Sýningin er opin virka daga
kl. 16-20, en laugardaga og sunnu-
dagakl. 14-22.
FÉLAGSLÍF
Kvennalistinn,
Reykjanesi:
Opið hús og
flóamarkaður
Kvennalistinn í Reykjaneskjör-
dæmi er með opið hús og flóamark-
að í nýja kosningahúsnæðinu að
Réykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði, á
laugardaginn kl. 15. Hittumst allar
ívöflukaffi. Allirvelkomnir.
MÍR:
Mimino
Ásunnudaginn kl. 16verður
sovéska kvikmyndin „Mimino" sýnd
í bíósal MÍR að Vatnsstíg 10. Mynd
þessi vargerð 1977 og er leikstjór-
inn Georgí Danelía einn kunnasti
kvikmyndaleikstjóri Sovétríkjanna
nú á dögum og einkum kunnurfyrir
myndir í léttum dúr. Aðgangur að
kvikmyndasýningum MIR er ókeypis
og öllum heimill meðan húsrúm leyf-
ir.
Kvennalistinn:
Laugardagskaffí á
Víkinni
Hvernig skilgreina norrænir karl-
menn sig? Ingibjörg Hafstað svarar
þessari áleitnu og spennandi spurn-
ingu í laugardagskaffi Kvennalistans
á Hótel Vík laugardaginn 28. mars
kl. 14. Kaffi og með því að hætti
Kvennalistans. Allir velkomnir.
Ámagarður:
Námsstefna um
sifjaspell
Á laugardaginn kl. 14 halda nemar
í félagsráðgjöf við Háskóla íslands
námsstefnu um sifjaspell í stofu 301
íÁrnagaröi. Markmiöið með þess-
ari námsstefnu er að halda áfram
þeirri umræðu sem hafin er um mál
þetta og miðla upplýsingum og
fræðslu um það.
Til liðs við sig hafa þau fengið
Ingu Huld Hákonardóttursem fjallar
um sifjaspell á fyrri öldum. Séra
Ólaf Odd Jónsson en erindi hans
nefnist „Siðfræði kynlífsins", Högna
Óskarsson, geðlækni, með erindi
sem hann nefnir „Sifjaspell, hvers
vegna ekki?" og Guðrúnu Jónsdótt-
ur, félagsráðgjafa.sem nefnir erindi
sitt „Sifjaspell, goðsögn eða veru-
leiki".
Hótel Örk:
Hlaðborð,
sund og sauna
„Brunch" að amerískum sið á
Hótel Örk á sunnudögum milli kl.
12 og 15. Orðið „Brunch" samanst-
endur af ensku orðunum breakfast
og lunch sem þýða morgunverður
og hádegisverður. Hér er um að
ræða hlaðborð með köldum og
heitum réttum, s.s. stórsteikum,
síld, eggjum.beikoni og ávöxtum.
Matargestirfá frítt í sundlaug og
sauna. Helmings afslátturerfyrir
börnundir 12 ára aldri.
Fastar áætlunarferðir eru farnar
frá Umferðamiðstöðinni til Hvera-
gerðis.
SÖFN
Ásgrímssafn:
Opið sunnudaga,
þriðjudaga og
fimmtudaga
Ásgrímssafn er opið sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga milli kl.
13.30 og 16.
Póst- og síma-
minjasafnið:
Opið á sunnudögum
og þriðjudögum
Póst- og símamálastofnunin hef-
ur opnað safn, Póst- og símaminja-
safnið, í gömlu símstöðinni að
Austurgötu 11 í Hafnarfirði. Þar
getur að líta safn fjölbreytilegra
muna og tækja er tengjast póst-
og símaþjónustu á Islandi. Fyrst um
sinn verður safnið opið á sunnudög-
um og þriðjudögum kl. 15-18.
Aðgangur er ókeypis. Þeir sem vilja
skoða safnið utan opnunartíma hafi
samband við safnvörð í síma
54321.
Þjóðminjasafn íslands:
Opið fjóra daga
vikunnar
Þjóðminjasafn íslands er opið
laugardaga, sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 13.30 til
16.00.
Árbæjarsafn:
Opið eftir
samkomuiagi
Enginn fastur opnunartími er yf ir
veturinn en safnið er opið eftir sam-
komulagi. Sfminn er84412.
Þjóðminjasafn íslands:
Vaxmyndasýning-
unni í Bogasal lýkur
31.mars
Laugardaginn 31.jan. varopnuð
í Bogasal Þjóðminjasafnsins sýning
á 32 vaxmyndum af þekktum mönn-
um, íslenskum og erlendum.
Vaxmyndasafn þetta gáfu Óskar
Halldórsson útgerðarmaðurog börn
hans íslenska ríkinu til minningar
um ungan son og bróður, Óskar
Theodór, sem fórst með línuveiðar-
anumJarlinumárið 1941.
Vaxmyndirnar verða til sýnis á
venjulegum opnunartíma Þjóð-
minjasafnsins, aðgangseyrir er kr.
50, en ókeypis fyrir börn og ellilífeyr-
isþega. Sýningunni lýkur 31. mars.
Sjóminjasafnið:
Lokað vegna
breytinga
Sjóminjasafn íslands verður lok-
að vegna breytinga þangað til í
byrjunjúní.
Safn og garður
Listasafn Einars Jónssonar er
opið alla laugardaga og sunnudaga
kl. 13.30 til 16. Höggmyndagarður-
inneropinndaglegafrákl. 11 til 17.
LJÓSM YNDUN
Norræna húsið:
MYNDLLST
Sjálfsmyndir sæn-
skra Ijósmyndara
Nú hefur verið sett upp í anddyri
Norræna hússins Ijósmyndasýning
sem beryfirskriftina „Sjálfsmyndir
22 sænskra Ijósmyndara".
Að sýningu þessari stendur fyrir-
tækið DOG i Stokkhólmi, en þaö er
í eigu sex Ijósmyndara og hafa þeir
að markmiði að dreifa þekkingu á
Ijósmyndalist í háum gæðaflokki
með því að gefa út Ijósmyndabækur
og gangast fyrir Ijósmyndasýning-
um ásamt fleiru í þeim dúr.
Að þessu sinni leituðu þeir til 24
Ijósmyndara og svöruðu 22 af þeim
og sendu myndir eftir að hafa feng-
ið árs frest til þess að vinna þær.
Myndirnareru mjög fjölbreytilegar
en sameiginlegt þema þeirra allra
er, að þetta eru allt sjálfsmyndir.
Sýningin stendurtil 21. apríl og
er opin á venjulegum opnunartima
Norræna hússins kl. 9-19 á virkum
dögumog 12-19ásunnudögun.
Aðgangurerókeypis.
MYNDLIST
Ásmundarsalur:
Teikningarog
skúlptúr
Kristján Guðmundsson hefur
opnað sýningu í Ásmundarsal við
Freyjugötu. Að þessu sinni sýnir
Kristján teikningar og skúlptúr sem
hann hefur unnið að á síðasta ári
og fram á þennan dag. Ekkert þess-
ara verka hefur áður verið á sýningu
að einu undanskildu í Finnlandi sl.
vor.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14-18.30 og stendur til 29. mars.
Gallerí Borg:
Seinni sýningarhelgi
Daða Guðbjörns-
sonar
Nú stenduryfirsýning Daða Guð-
björnssonar í Gallerí Borg við
Austurvöll. Á sýningunni eru olíu-
málverk, vatnslita- og pastelmyndir
og einnig grafíkverk unnin á síðast-
liðnumtveimurárum.
Sýningin er opin virka daga kl.
10-18, nema mánudaga kl. 12-18.
Um helgareropið kl. 14-18. Sýning-
in stendurtil 31. mars.
Listasafn íslands:
Yfirlrtssýning á
verkum Sigurðar
Sigurðssonar
Nú stenduryfiryfirlitssýning á
verkum Sigurðar Sigurðssonar í
Listasafnilslands. Sýningin spannar
allan listferil Sigurðar allt frá skólaá-
rum og þartil á þessu ári. Á
sýningunni eru alls 98 verk, olíu-
myndirog pastelmyndir.
I tilefni sýningarinnar hefur verið
gefin út vönduð sýningarskrá með
fjölda mynda. Einnig hefurverið
gefiö út plakat í lit.
Sýninginstendurtil 20. apríl og
eropinvirkadagakl. 13.30-16 en
13.30-19 um helgar.
Gallerí Svart á hvítu:
Olíumálverk Grétars
Reynissonar
í Gallerí Svart á hvítu við Óðin-
storg hefur verið opnuð sýning á
olíumálverkum Grétars Reynisson-
ar.
Þetta er þriðja einkasýning Grét-
ars en hann sýndi í Nýlistasafninu
1981 og 1986. Hann hefur tekið
þátt í fjölda samsýninga hér á landi
og má þar á meðal nefna Gull-
ströndin andar 1983, HAM 1983
og Listasafn íslands 100 ára 1984.
Sýningin er opin alla daga nema
mánudaga kl. 14-18.
Egilsbúð,
Neskaupstað:
Alda Sveins-
dóttir sýnir
Um þessar mundir heldur Alda
Sveinsdóttir sýningu á Olíukrítar- og
akvarellmyndum í Egilsbúð, Nes-
kaupstað. Sýninginunni lýkur á
sunnudag og fer síðan hluti mynd-
anna, sem alls eru 25, á samsýn-
ingu fjögurra kvenna frá Norðfirði
til vinabæja á Norðurlöndum.
Gallerí Gangskör:
Kristjana Samper
sýnir
Kristjana Samper hefur opnað
sýningu á teikningu og skúlptúr í
Gallerí Gangskör, Amtmannsstíg 1.
Á sýninguni eru 19 verk sem flest
eru unnin á þessu ári. þetta er önn-
ur einkasýning Kristjönu en hún
sýndi skúlptúrað Kjarvalsstöðum
fyrirtveimurárum.
Sýningin stendurtil 3. apríl og
eropin virkadaga kl. 12-18ogum
helgar 14-18.
Listasafn ASÍ:
Steinþór Gunnars-
son og Sigrún
Steinþórsdóttir Egg-
ensýna
Steinþór Marínó Gunnarsson og
Sigrún Steinþórsdóttir Eggen hafa
opnaö myndlistarsýningu í Lista-
safni ASÍ, Grensásvegi 16. Steinþór
sýnir vatnslitamyndir, einþrykk og
pastelmyndiren Sigrún myndvefn-
að.
Nýlistasafnið:
Guðbergur Auðuns-
son sýnir
8. einkasýning Guðbergs Auð-
unssonar stendur nú yfir í Nýlista-
safninu, Vatnsstíg 3b.
Á sýningunni verða um tuttugu
málverk unnin á síðstliðnum fjórum
árum. Meginuppistaöa sýningarinn-
ar eru verk byggð á íslendingasög-
unum.
Sýningin er opin frá kl. 14-22 um
helgar en 16-20 virka daga.
Gallerí Grjót:
Sverrir Ólafsson
sýnir
Sverrir Ólafsson heldur einkasýn-
ingu í Gallerí Grjót, Skólavörðustíg
4a. Hann sýnir skúlptúra og andlits-
grímur unnar í málma.
Sýningin er opin alla virka daga
kl 12-18 og kl. 14-18 um helgar.
Sýningin stendur út mánuðinn.
Kjarvalsstaðir:
Síðasta sýningar-
helgi á Tvíæringi
FÍM
Samsýning Félags íslenskra
myndlistarmanna er nú haldin í
austursal Kjarvalsstaða en henni
lýkur á sunnudag. Sýningin verður
opin daglega kl. 14-22.
Sú nýbreytni hefur átt sér stað á
sýningarhaldi FÍM að nú verður sýnt
að vorlagi í stað hinna árlegu Haust-
sýninga og er ætlunin að sýna
annað hvert ár. Hefur sýningin hlo-
tiðnafniðTvíæringurFIMogmun '
væntanlega ganga undir þessu heiti
í náinni framtíð.
Málverka- og skúlpt-
úrasýning
í vestursal Kjarvalsstaða stendur
nú yfir málverkasýning Guðrúnar
T ryggvadóttur og í vesturforsal er
verið að sýna skúlptúra eftir
Hansínu Jensdóttur.
Gallerí Skip:
Sigurrós Baldvins-
dóttir sýnir
Sigurrós Baldvinsdóttirsýnir 38
olíumálverk í Gallerí Skip, Skipholti
50c (sama húsi og Pítan). Þetta er
fyrsta einkasýning Sigurrósar. Sýn-
ingin er opin frá 13-17 virka daga
enfrá 15-18 um helgar. Sýningin
stendurtil 1. april.
Norræna húsið:
Sjávarlandslag
Nú stendur yfir í Norræna húsinu
sýning sem ber yfirskriftina Sjávar-
landslag.
Hér eru á ferðinni málverk eftir
tvo norska málara, Olav Stremme
og Björn Tufta og skúlptúrar eftir
Sigurð Guðmundsson.
Olav Stromme (1909-78) er af
þeirri kynslóð norskra listamanna
sem varð fyrir áhrifum af alþjóðleg-
um straumum í málaralist um 1935,
einkum súrrealisma. Hann er nú
viðurkenndur brautryðjandi nútíma-
málaralistar þar í landi.
Björn Tufta er aftur á móti af
yngstu kynslóð norskra listamanna.
Hann kom fyrst fram á sýningu
1979 með stóra landslagsmynd.
Björn Tufta hefurað mestu haldið
sig við slíkar myndir en túlkað yrkis-
efnið á sinn eigin hátt. Myndir hans
þykja minna á myndir Olav Stromme
frá fimmta áratugnum og erfróðlegt
að bera saman myndir þeirra á sýn-
ingunni.