Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 SKOTVÖPNl Blóðbað með blessun stjórnvalda Pearl Court, gata í Northglenn- úthverfinu í Denver, virðist ekki vera mjög friðsæll staður. Það sýndi sig í apríl síðastliðnum þegar Volosin-hjónin efndu til veislu á heimili sfnu. Um klukkan hálftólf um kvöldið brá einn gestanna sér yfír götuna lemjandi pönnu og hrópaði ókvæðis- orð að nágrönnunum, Guenther- hjónunum, sem þá voru að taka á sig náðir í svefnherberginu sínu. Kölluðu þau á lögregluna en þegar hún kom á vettvang sögðu Volosin- hjónin, að gesturinn háværi væri búinn að jafna sig og orðinn hinn rólegasti. Lét lögreglan það gott heita. Skömmu síðar heyrðu Guenther- hjónin, að barið var harkalega að dyrum og fór þá Pamela Guenther niður til að athuga hvað á gengi. Segir hún, að þar hafi verið kominn Michael Volosin, sem hafi þrifið í hana og kastað henni upp að veggn- um. David Guenther gerði þá það, sem allir góðir bandarískir eigin- menn hefðu gert í hans sporum: hann náði í byssu og skaut á fólkið. Skotin lentu í Josslyn Volosin, 25 ára gamalli móður lítils drengs, Michael manni hennar og einum gesta þeirra. Þegar lögreglan kom var Josslyn látin. Það undarlegasta við þetta allt saman er, að þegar málið kom fyr- ir rétt fjórum mánuðum síðar, var David Guenther sleppt og allar ákærur gegn honum felldar niður. Var það í samræmi við gildandi lög í Colorado en þau leyfa fólki að skjóta hvern þann sem ryðst inn á heimili þess ef það hefur minnsta grun um, að hætta sé á ferðum. Þessi lög eru dálítið öfgafullt dæmi um sambandið milli fjandvin- anna, Bandaríkjamannsins og byssunnar. Annars vegar er litið á byssuna sem samgróna sjálfri þjóð- arsálinni en hins vegar sem hrylli- lega martröð, sem enginn endir ætlar að verða á. Um þessar mundir eru sex ár lið- in frá því að reynt var að ráða Reagan forseta af dögum en samt sem áður hefur afstaða hans til byssunnar ekkert breyst og hann er ævifélagi í Bandaríska skotfélag- inu, einhveijum öflugasta þrýsti- hópnum í Washington. í augum þeirra, sem beijast gegn óheftri byssueign, eru þessi samtök upp- spretta alls ills. Afleiðingamar af ástfóstrinu, sem Bandaríkjamenn hafa tekið við byssuna, eru skelfílegar hvemig sem á þær er litið. Tvöfeldni Banda- ríkjamanna í þessum efnum kemur vel fram á veggspjaldi frá samtök- um, sem beijast gegn byssunni, en þar má meðal annars sjá marg- hleypu í fánalitunum, með stjörnum og strípum. Á það er bent, að á spjaldinu árið 1983 hafí byssur ver- ið notaðar til að drepa átta manneskjur í Bretlandi, 35 í Japan, 7 í Svíþjóð „... og 9.014 í Banda- ríkjunum. Guð blessi Ameríku." Heildartalan er enn hræðilegri. Rúmlega 20.000 bandarískir borg- arar falla árlega fyrir byssunni, þar af 11.000, sem svipta sig lífi. Dag hvem er byssan notuð til að myrða 25 Bandaríkjamenn. í skoðanakönnunum kemur það fram, að af þessum og öðrum ástæðum vilja 60% Bandaríkja- manna setja byssueigninni þrengri skorður, en þrátt fyrir það sam- þykkti þingið í fyrra með miklum mun að slaka á lögum og reglugerð- um þar að lútandi. Ástæðan er einföld: Bandaríska skotfélagið með sínum þremur milljónum félaga og veltu upp á 60 milljónir dollara hefur óhemju áhrif á bandaríska þinginu. Nærri helmingur þing- manna nýtur stuðnings félagsins og sumir mikils, til dæmis Phil Gramm, öldungadeildarþingmaður frá Texas, sem áríð 1985 fékk 332.000 dollara frá félaginu. Talsmenn skotmannanna klifa stöðugt á því, að strangari lög um byssueign komi að engu haldi en staðreyndimar tala þó allt öðru máli. Augljósasta dæmið er Kanada þar sem gilda ákaflega ströng lög um skotvopn. Sama árið og 9.000 Bandaríkjamenn vom myrtir með byssu vom menn, sem aðeins sex Kanada- fengu þau örlög. SIMON HOGGART Yildu Bretar þá sænsku feiga? Lítið lát ætlar að verða á deil- unum um Jane Homey, sænsku þokkadísina, sem danska andspymuhreyfíngin tók af lífi á stríðsámnum. Er því nú haldið fram, að breska leyniþjónustan hafi skipað fyrir um dauða henn- ar. Frode Jacobsen, einn af frammámönnunum í dönsku and- spymuhreyfingunni, hefur nú loksins skýrt í smáatriðum frá dauða Jane Homey í janúar árið 1945 og heldur hann því fram, að breska leyniþjónustan (MI6) hafí haft samband við landflótta leyniþjónustumenn úr danska hernum í Stokkhólmi og beðið um, að Horney yrði fyrirkomið. Vill Jacobsen, að breska leyniþjónust- an staðfesti þessa frásögn og skýri frá ástæðunum. I mörgum bókum um ævi og örlög Jane Homey hefur henni ýmist verið lýst sem njósnara fyr- ir nasista eða sem glæsilegu en saklausu ævintýrakvendi, sem notaði sér ástandið og fór lítt í manngreinarálit í æsilegu ástalífí sínu. Jacobsen segist skýra frá þessu núna vegna bókar, sem kom út í febrúar, eftir danska blaðamann- inn og rithöfundinn Erik Nör- gaard en þar er Jane Homey sýknuð af allri njósnasök. Við samningu bókarinnar fór Nör- gaard í gegnum 3.000 dönsk og sænsk skjöl og komst að þeirri niðurstöðu, að ekkert benti til, að Homey hefði svikið danska and- spymumenn í hendur Gestapo- Segir hann, að engum hafí stafað hætta af henni og að sænska leyniþjónustan hafí verið búin að hreinsa hana af öilum grun. Eftir stríð sat Frode Jacobsen í dönsku bráðabirgðastjóminni, sem fjallaði m.a. um þau mann- dráp, sem framin höfðu verið á hemámsárunum. Segir hann, að Jane Homey hafí verið „vel kunn- ug bresku leyniþjónustumönnun- um í Stokkhólmi og þýsku leyniþjónustumönnunum ekki síður. Ég er viss um, að Bretarn- ir vissu um og höfðu áhyggjur af starfí hennar sem boðberi miH' Kaupmannahafnar og Stokk- hólms í sambandi við tilraunir DROTTINN MINN DÝRIU Guðsmaðurinn byssuglaði ÞAÐ verður ekki með sanni sagt um séra Eladio Blanco, að hann hafi verið í hópi þeirra sálna- hirða, sem reyna að hafa áhrif á sóknarbömin sín með góðu og grandvöm lífemi. Að launa illt með góðu eða bjóða fram hina kinnina var guðsmannin- um fjarri skapi. Þegar hann var á sínum reglulegu fyllirístúrum á þorpskránum kom það ekki ósjaldan fyrir, að hann yrði saupsáttur við einhvern drykkjufélagann og slíkar deilur var hann vanur að útkljá með því að bregða byssu undan prests- hempunni. í síðasta mánuði lenti þessi UMBÆTURI byssuglaði klerkur loksins á bak við lás og slá en þá hafði hann gengið svo langt að skjóta á kirkjugesti við útför í bænum Pexeiros-Os Blancos í Galisíu á Norðvestur- Spáni. Verið var að jarðsyngja Felicitu Gomez, sem kvatt hafði þetta líf í hárri elli, og þegar séra Blanco hafði klárað sig af athöfninni sagði hann syrgjendunum, 300 talsins, að hann nennti ekki að labba með líkinu síðasta spölinn, hin látna hefði „ekki sótt messu reglulega og ætti ekki skilið að fá kristilega greftmn". Ættingjar hinnar látnu og aðrir viðstaddir undu þessu illa og fundu að því við prestinn, að lítið færi fyrir hans kristilega kærleiksþeli. Presturinn brá þá upp byssunni sinni, skaut fjómm skotum að fólk- inu og særði eitt sóknarbamið á fæti. Að því búnu flýði hann af hólmi og faldi sig á prestssetrinu þar til þjóðvarðliðar komu og sóttu hann. Þorpsbúamir segja, að komið hafí í Ijós, að prestssetrið hafi verið líkast vopnabúri og lögreglumenn hafa upplýst, að þar hafí fundist hríðskotabyssa, fjórar haglabyssur, þrír rifflar, tvær skammbyssur og marghleypa. Vilja plokka fjaðrirnar af forréttindafólkinu EINS og kunnugt er af fréttum er baráttan gegn spillingu og óeðlilegum forréttindum flokksbroddanna ofarlega á baugi í Sovétríkjun- um um þessar mundir. Fyrrverandi félagi í stjórnmálaráðinu á það nú t.d. yfír höfði sér að vera „skikkaður lil“ eins og það heitir aust- ur _þar og jafnvel dreginn fyrir rétt. I tvo áratugi var Dinmukhamed Kunayev flokksleiðtogi í sovétlýðveldinu Kazakhstan, sem er að mestu byggt múhameðstrúarmönn- um, eða þar til hann var sviptur enqþætti í desember sl. Var hann náinn skjólstæðingur Brezhnevs heitins forseta en hefur nú verið sakaður um að „ýta undir spillingu og mútu- þægni og halda hlífiskildi ýfir óheiðarlegum embættismönnum". Á blaðamannafundi í janúar sl. sagði eftir- maður Kunayevs, að flokksbroddamir í Kazakhstan og öll hirðin í kringum þá hefðu skipt á milli sín þriðjungnum af öllum matvæl- um í ríkinu og fjórum fimmtu af öllum nýjum íbúðum, sem byggðar voru í höfuðborginni. Á síðasta stjórnarári Kunayevs fluttu sové- skir fjölmiðlar margar fréttir um hneykslismál og spillingu og á sama tíma birtist í blöðunum hvert lesendabréfið á fætur öðru þar sem ráð- ist var á forréttindastéttina í flokknum, á sérverslanirnar fyrir flokksbroddana og sérskól- ana fyrir bömin þeirra. Einni af kunnustu „spetz-mag“ (sérverslun- unum) í miðborg Moskvu hefur nú verið lokað svo lítið bar á, „vegna viðgerðar" að sögn, og orðrómur er á kreiki um að Gorbachev og hans menn ætli að endurskoða allt forréttindakerfíð. Á árum áður var þetta kerfí réttlætt þannig, að það hefði verið sjálfur Lenín, sem kom því á. Sannleikskomið í því er það, að á dögum borgarastríðsins árið 1918 og skömmtunarinn- ar leyfði Lenín æðstu mönnum flokksins aðgang að sérstökum matarbirgðum til að þeir gætu sinnt landsstjóminni í stað þess að vera á sífelldum þönum eftir mat ofan í sig og sína. Þetta á ekki lengur við en forréttindakerfið er hins vegar orðið svo rótgróið, að hver ein- asta háskólastofnun, ráðuneytin og jafnvel stærstu verksmiðjumar eru með sérverslanir fyrir sína útvöldu þar sem boðið er upp á ka- víar, innfluttan fatnað, reyktan lax og eftirsótt- ar bækur. Þetta em þó smámunir hjá forréttind- um sjálfs flokksaðalsins, sem er með sérskóla fyrir bömin sín, sumarhús í sveitinni og gengur fýrir með bíla og utanlandsreisur. Það yrði vinsælt hjá sovéskum almenningi að fækka þessum bitlingum en hætt er við, að andstaðan við Gorbachev aukist um leið hjá þeim, sem best hafa búið um sig í kerfinu. MARTIN WALKER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.