Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 B 33 I ÞINGHLÉI --------------- - STEFÁN FRIÐBJARNARSON Meðalævi íslendinga lengri en annarra þjóða: Heilsurækt - heilsu- vernd - lækningar Mesti kaupmáttur bóta almannatrygginga Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið ráðstafar 40% ríkisútgjalda - Kaupmáttur ellilífeyris með tekjutryggingn og heimilisuppbót hefur vaxið síðustu misseri og hefur ekki verið meiri áður. Gamalt fólk, sem hefur ekki annan lífeyri en frá Almannatryggingxim og á ekki íbúð, er þrátt fyrir það sá þjóðfélagshópurinn sem lakast er settur í samfélaginu. „Heilbrigði er meðal þeirra lífsgæða sem mest eru metin nú á dögum. Heilbrigði er hvort tveggja í senn dýrmætasta eign hvers einstaklings og um leið ein verðmætasta auðlind hverrar þjóðar...“. Svo segir í skýrslu Ragnhildar Helgadóttur, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, til Alþingis. Þar segir ennfremur: „Það hefur verið 'ljóst um nokkurt skeið að lífshættir ein- staklinga og umhverfið ráða miklu um heilsufar og framvindu þess. Viðfangsefni heilbrigðis- þjónustunnar eru því ekki eingöngu að Iækna og hjúkra, heldur ekki síður að koma i veg fyrir sjúkdóma...“. Nút ímaleg markmið heilbrigð- isþjónustu eru þrennskonar: * 1) heilsurækt , þ.e. að efla sjálfsábyrgð einstaklingsins á eigin heilsufari og gera lionum betur kleift að efla eigin hreysti og heilbrigði. * 2) heilsuvernd, sem beinist að þekktri áhættu í umhverfi eða hjá einstaklingunum sjálfum (mengun, reykingar, offita, há blóðfita, ónóg hreyfing o.sv.fv.) og kosta kapps um að draga úr og helzt útrýma einstökum áhættuþáttum. * 3) læknis- eða sjúkraþjón- usta , þ.e. að sinna sjúkum, og kosta kapps um að bjarga lífi þeirra, draga úr þjáningum og örkumlum. Útgj aldaráðuneyti Undir heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytið heyra tveir mjög stórir útgaldaliðir: heilbrigðiskerfið og al- mannatryggingar (lífeyris- og sjúkratryggingar). Arið 1985 var hlutfall heilbrigðis- og trygginga- mála í heildarútgjöldum ríkissjóðs (A-hluta) 38,7%, 1986 37,4% og 1987 (áætlun) 40,4%. Menntamála- ráðuneytið, sem er annað stærsta ráðuneytið að útgjöldum, vantar allnokkuð á að vera hálfdrættingur heilbrigðis- og tiyggingaráðuneyt- isins að þessu leyti. Fáar þjóðir hafa jafn góða heil- brigðisþjónustu og við íslendingar eða jafn greiðan aðgang að slíkri þjónustu, enda er almennt heil- brigðisástand hér á landi með því bezta sem þekkist í veröldinni. Eng- ar þjóðir búa t.d. að lengri meðalævi en Islendingar og Japanir, þó þar komi fleiri aðbúðarþættir við sögu en heilbrigðiskerfið. Fjármunir, sem varið hefur verið til þessara málaflokka, skila þannig „arði“, þótt efalítið megi nýta þá betur sumstaðar á þessum vett- vangi með hagræðingu, aðhaldi og „hvetjandi" þáttum í rekstrarskipu- lagi. Heilsugæzlustöðvar Samkvæmt lögum um heilbrigð- isþjónustu er landinu skipt í átta læknishéruð. Þeim er síðan skipt í tuttugu og sjö heilsugæzluum- dæmi. Alls eru 74 heilsugæzlu- stöðvar á svokallaðri landsbyggð en 5 í Reykjavík (ráðgerðar 11). Frumvarp um heilsugæzlu á Reykjavíkursvæðinu og öðrum þétt- býlissvæðum hefur verið lagt fram til kynningar. Samkvæmt því verð- ur vald og ábyrgð sveitarfélaga aukið á þessum vettvangi. Heilsugæzlustöðvar eru reknar af bæjar- og sveitarfélögum, en ríkið greiðir bróðurhluta kostnaðar: laun lækna, hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra. Alls eru 19 heilsugæzlu- stöðvar reknar í tengslum við sjúkrahús. Heilsugæzlustöðar eru með þrennu móti: H2-stöðvar 33 talsins (tveir læknar, auk annars starfs- liðs), Hl-stöðvar 19 talsins (einn læknir, auk starfsliðs) og H-stöðvar 27 talsins (hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir, en læknir kemur reglu- bundið til móttöku sjúklinga). Á sl. tveimur árum (1985 og 1986) var fullgert og fullbúið nýtt húsnæði fyrir heilsugæzlu á 10 stöðum: Ólafsvík, Hólmavík, Norð- urfirði á Ströndum, Hvammstanga, Sauðárkróki, Reykjahlíð við Mý- vatn, Hofi í Öræfum, Sandgerði og Reykjavík (Heilsugæzlustöð Hlíða- hverfis). I ár verður unnið við nýbygging- ar heislugæzlustöðva á eftirtöldum stöðum: Stykkishólmi, Akranesi, Blönduósi, Akureyri, Þórshöfn, Djúpavogi, Hafnarfirði og Reykjavík (við Hraunberg og á horni Garðastrætis og Vesturgötu). Kostnaði við heilsugæzlustöð lýk- ur ekki með lyktum byggingar. Þá taka við kaup á fjölþættum tækjum og búnaði, síðan fylgir viðamikill, viðvarandi rekstrarkostnaður. Um áramótin 1986-7 vóru starfandi 130 læknar og 170 hjúkrunarfræðingar og ljósmæður í heilsugæzlutstöðv- um. Af 190 starfandi tannlæknum í landinu starfa og 15 að staðaldri í heilsugæzlutstöðvum (yfirleitt sjálfstætt). Fjárveitingar ríkisins til bygging- arframkvæmda sjúkrahúsa, heilsu- gæzlustöðva og læknisbústaða vóru 204,5 m.kr. 1985, 243,3 m.kr. 1986 og 451,1 m.kr. (áætlun) 1987. Framvindan í rekstri sjúkrahúsa Helztu breytingar í rekstri sjúkrahúsa á þessu kjörtímabili hafa verið þrennskonar: 1) aukning starfsemi, sem fyrir var, 2) ný starf- semi, einkum á sviði dagvistunar og hjúkrunar aldraðra, 3) breyting á fjármögnum, þ.e. flutningur sjúkrahúsa af daggaldakerfi yfir á fjárlög. Ríkisspítalar vóru færðir á fjár- lög 1977. Þessu kerfi fylgdi sú einföldun að greiðslur komu beint úr ríkissjóði, samkvæmt árlegri áætlun eða fjárveitingu með hlið- sjón af henni. Daggjöld vóru hinsvegar greidd af sjúkratrygg- ingadeild Tryggingastofnunar ríkisins eftir á, samkvæmt reikn- ingi. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og St. Jósefspítali að Landkoti fara síðan yfir á fjárlög 1983. Þréttán sjúkarhús til viðbótar flytjast á fjár- lög 1986, þar á meðal Borgarspítal- inn í Reykjavík. Samanburður á „rekstrarhalla" sjúkrahúsa 1983-1986 sýnir „minni halla“ fjárlagasjúkrahúsa. Breyt- ingar á rekstrarskipulagi ríkisspít- ala hafa og leitt til verulegrar hagræðingar. Af nýjungum í rekstri sjúkrahúsa á þessu árabili rísa hæst: * 1) Hjartaskurðlækningar í Landspítala. * 2) Unglingageðdeild Landspít- ala við Dalbraut. * 3) Sérstök áhætturannsóknar- stofa og ný aðstaða fyrir veirurann- sóknir. * 4) Dagvistir sjúkra. Þeirra á meðal Hlíðarbær (sem vistar 20 alzheimersjúklinga) og heimili fyrir M.S.-sjúklinga með 15 vistrými. Fyrirferðarmesta breytingin í spítalarekstri felst þó í þjónustu við aldraða, sem hlýtur vaxa áfram utalsvert í næstu framtíð, vegna breytinga í aldursskiptingu þjóðar- innar. Ný endurhæfingardeild var og tekin í notkun við Borgarspítala og nýjar sundlaugar við Hrafnistu í Hafnarfirði og Grensásdeild Borg- arspítala. Áf öðrum breytingum í spílala- rekstri næstliðin ár má nefna: * Tæplega 100 ný hjúkrunar- rými fyrir aldraðra (Dalvík, Akur- eyri, Garður, Ólafsfjörður, Stokkseyri og Sauðárkrókur). * Barnageðdeild Borgarspítala (Kleifarvegi 15). * Stækkun taugadeildar (7 rúm) og bæklunarlækningadeildar (13 rúm) á Landspítala. * Stækkun geðdeildar Fjórð- ungssjúkrahúss Akureyrar (10 rúm). * Dagvistarrýmum hefur fjölgað um 170-180 á hjúkrunarheimilum fyrir aldraðra. Fjölþætt verkefni Engin leið er að gera fjölþættum verksviðum heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytis tæmandi skil í stut.tri frásögn. Því verður að bregða upp svipmyndum: A) Heilbrigðisráðherra hefur skipað nefnd undir forystu Bryn- jólfs Sigurðssonar, prófessors, sem gera á úttekt á forsendum álagn- ingar á lyfjum, svo og á tilögum álagningarinnar. B) Lögð hefur verið fram landsá- ætlun um forvarnir gegn langvinn- um sjúkdómum. Sérstök áherzla er lögð á eftirtalda áhættuþætti: tó- baksreykingar, rangar neyzluvenj- ur, misnotkun áfengis og - - ávanaefna, hreyfingarleysi, streitu- valda og umhverfishættur. C) Aukin áherzla er lögð á heilsuverndarþætti, t.d. með eftirliti og fræðslu í skólum og í samstarfi við íþróttahreyfinguna. D) Heilbrigðisráðherra hefur kynnt manneldismarkmið Manneld- isráðs íslands, sem m.a. felast í ráðleggingum um fæðuval í því skyni að efla heilbrigði þjóðarinnar. E) Nýlega skipaði heilbrigðisráð- herra nefnd um varnir gegn slysum undir forystu Salome Þorkelsdóttur, ^ alþingismanns, sem gera tillögur um markvissa sarhræmingu á störf- um þeiira er vinna að slysavörnum. F) Átak hefur verið gert í tann- verndarmálum. Tannheilsudeild í ráðuneytinu hefur m.a. beitt sér fyrir fræðsluefni í sjónvarpi, út- varpi, blöðum og tímaritum og hefur fjármagn til þess starfs verið stóraukið í því skyni m.a. að draga úr kostnaði við tannviðgerðir: G) Sérstök deild starfar innan ráðuneytisins að málefnum aldr- aðra. Ráðherra skipar og þijá menn í samstarfsnefnd um málefni aldr- aðra, en verkefni hennar er markað í lögum, m.a. að meta þarfir aldr- aðra í einstökum byggðarlögum: vistunarþörf, heimahjúkrun og heimaþjónustu. H) Framkvæmdasjóður aldraðra (stofnaður 1981), sem styrkir bygg- ingu þjónustustofnana fyrir aldr- aða, hefur veitt um 670 m.kr. frá upphafi til slíkra stofnana, þar af 330 m.kr. samtals 1985 og 1986. Fjármagn till sjóðsins hefur tvöfald- ast að raungildi á síðustu tveimur árum. I) Gripið hefur verið til marg- þættra og kostnaðarsamra aðgerða i - vegna alnæmis , eins hættulegasta smitsjúkdóms sem nú heijar á mannkyn. Kannað hefur verið, hvort íslenzka sjúkahúsakerfið er þess megnugt að taka við sjúkling- um með alnæmi, sem líkur standa til að þurfi á sjúkrahúsvist að halda næstu ár. Niðurstaðan var sú að svo sé næstu 3-5 árin. Fjármagn hefur fengist til að koma upp sérs- takri áhætturannsóknarstofu vegna alnæmis ogannarra veirusjúkdóma. Höfuðárherzla erlögð á upplýsinga- starfum varnirgegn sjúkdómnum. * J) Síðast en ekki sízt má nefna að ríkisstjórnin samþykkti í marz- mánuði 1986, að tillögu heilbrigðis- ráðherra, að vinna að landsáætlun , ^ / heilbrigðismálum með hliðsjón af stefnu Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar, sem nefnd hefur verið „Heilbrigði allra árið 2000". Var skýrsla um þá áætlun lögð fyrir Alþingi í marzmánuði sl. Bætur almannatrygg- inga Bætur almannatrygginga hafa hækkað myndarlega 1985-1986 og umfram hækkun vísitölu kauptaxta verkafólks. Mest munar um hækk- un sem gerð var 1. desember 1986. Fjárveitingar til almannatgrygg- inga voru á árinu 1985 tæplega 7,500 milljónir króna, eða 28,7% _ af fjárlögum. Á síðast liðnu ári var þessi íjárveiting 10,200 milljónir króna, sem samsvaraði 27,2% af fjárlögum liðins árs. Á yfirstand- andi ári nemur fjárveitingin 11,400 milljónum Rróna, sem er rétt um fjórðungur áætlaðra heildarút- gjalda ríkissjóðs. Skýringin á lækkandi hlutfalli er að meginhluta sú að sjúkrahús hafa í vaxandi mæli verið færða af daggjöldum (tryggingum) yfir á fjárlög. Ef kaupmáttur elli- og örorkulíf- eyris er settur á 100 1980 var hann 99,2 í árslok 1982, 79,8 í árslok 1983, 90,6 í árslok 1984, 95,1 í árlok 1985 og 112,2 í árslok 1986. Kaupmáttur lífeyris hefur ekki ver- ið meiri á þessu tímabili. Engu að síður er hlutur þeirra, sem ekki hafa úr öðru að spila en bótum al- mannatrygginga, ekki sá sem vera þyrfti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.