Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.04.1987, Blaðsíða 20
20 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 A DRömNSJ'ffl Umsjón: Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir Ásdís Emilsdóttir Séra Svavar A. Jónsson Kristinfræðin og fermingarfræðslan „Leita skal sem nánastrar sam- vinnu við skólann um kristindóms- fræðsluna og fermingarundirbún- inginn. Gengið er út frá því að skólamir veiti þá fræðslu í kristn- um fræðum, sem gildandi námskrá fyrir nemendur á fræðsluskyldualdri mælir fyrir.“ Úr samþykkt Prestastefnu 1965. „Fermingarfræðsla kirkjunnar er frábrugðin kristindómsfræðslu skólanna og hlýtur að teljast þýð- ingarmeiri en hún fyrir eflingu trúar." „Skylt er að geta þeirrar krist- indómsfræðslu, er fram fer innan hins almenna skólakerfís. Þar er margs góðs að vænta, ekki sist eftir tilkomu nýrrar námsskrár í kristnum fræðum og marghátt- aðra umbóta, er sigla í kjölfar hennar. íslenzka þjóðkirkjan hlýt- ur að ætlast til þess, að skólinn leggi hverri kynslóð veigamikinn homstein staðgóðrar þekkingar á kristnum fræðum." „Eigi að síður má búast við því, að kennsla á almennum skóla verði að jafnaði eðlisóskyld ferm- ingarfræðslu. Skólinn miðlar vitneskju um Jesúm Krist, sögu þjóðar hans og kirkju. Fermingar- fræðarinn boðar fagnaðarerindið um Jesúm Krist til trúar. Kristin- dómsfræðsla skólanna er í veig- amiklum efnum hliðstæð annarri upplýsingu, er þar fer fram og felst í aðviðun staðreynda." Úr greinargerð kirkjufræðslu- nefndar til Kirkjuþings 1980. „í lögum um grunnskóla er sagt að skólinn eigi að veita kennslu i kristnum fræðum og fræðslu um önnur trúarbrögð. I markmiðsgreinum grunn- skólalaga er sagt að starfs- hættir skólans skuli mótast af umburðarlyndi, kristilegu sið- gæði og iýðræðislegu viðhorfi. Enn fremur er skólanum gert að temja nemendum víðsýni og efla skilning þeirra á mannieg- um kjörum og umhverfi og náms í kristnum fræðum samd- skyldum einstaklingsins við ar.“ samfélagið. í samræmi við Úr aðalnámskrá grunnskóla þetta eru greinar um markmið í kristinfræði 1976. í markmiðsgreinum grunnskólalaga er sagt að starfshættir skól- ans skuli mótast af umburðarlyndi, kristilegu siðgæði og lýðræðis- legu viðhorfi. * A Golgata Á krossi hékk hinn saklausi, sonur Guðs, fórnarlamb haturs og vonsku. Spjót miskunnarleysisins nam síðu hans, blóð vall út, og jörðin litaðist rauðu. Sólin sortnaði, og gaf ekki skin sitt, andlit Föðurins sneri sér undan, og fólkið fylltist ótta. Á Golgata opnaðist brunnur hins eilífa lifs, í heilögu blóði Krists, sem úthellt var til fyrirgefningar syndanna, öllum þeim sem trúa á hinn krossfesta. Ljóð og mynd eftir Eggert E. Laxdal. Með því óskum við lesend- um góðra bænadaga og friðsælla stunda í kirkju. Kirkjustund gefur frið í hjarta. Hvað finnst þeim um sam- starf kirkju og skóla? Helga Hjartardóttir, kennari í Grunnskóla Akrahrepps í Skagafirði: Ég hef oft undrazt þolinmæði í garð skólans á fermingarárinu, umburðarlyndi prestanna og til- litsleysi skólastjóranna. Það er auðvelt að fella fermingarfræðsl- una inn í stundatöflu skólanna. Það er líka auðvelt fyrir kirkjuna að fara þess á leit við skólana að þeir taki tillit til þess á þessu ári að skólabömin vinna þá að ferm- ingarstörfum. Það væri t.d. hugsanlegt að þau fengju frí úr skólanum í nokkra daga til að vinna að fermingarstörfum. Hermann Guðmundsson, skóiastjóri í Laugalandsskóla í Holtum, Rangárvailasýslu: Þegar ég er spurður að því hvemig skólinn standi að kristin- fræðikennslu er því að svara að ég set yfírleitt saman kennslu í Samband kírkju og skóla Aldrað fólk minnist þess þegar presturinn húsvitjaði og lét það lesa. Upphaflega var fræðsla al- mennings í höndum kirkjunnar og þessi lestrarpróf voru arfur þess tíma. Lestrarkunnáttan og kristinfræðikennslan fóru hönd í hönd. Dr. Bjarai Sigurðsson frá Mosfelli segir frá því í ritgerð sinni „Upptök fermingar og fræðslu- skyldu" hvemig prestar urðu lærifeður alþýðunnar hér á landi á 18. öld þegar þeir Ludvig Harboe síðar Sjálandsbiskup og Jón Þorkelsson skólameistari komu til landsins. Prestunum var þá falin öll umsjá með fræðslu unglinga og fermingin varð horn- steinn bamafræðslunnar í næst- um tvær aldir. Skylt var að öll böm í söfnuðinum skyldu fermast og skyldi ekkert undanskilið svo að ekkert manngreinarálit vrði. Árið 1880 var prestum falið að sjá um að öll böm, sem til þess teldust hæf, lærðu að skrifa og reikna. Fengju böm á einhveiju heimili ekki fullnægjandi upp- fræðslu í þessu tilliti, annað hvort fyrir hirðuleysi eða mótþróa hús- bænda, bar prestinum að sjá til þess í sameiningu við hrepps- nefndina eða bæjarstjómina, að baminu yrði komið fyrir annars staðar. Síðan komu hin fyrstu fræðslulög nr. 59/1907. Síðar hefur það gerzt hér á landi sem annars staðar að kirkja og skóli hafa aðgreinzt. Hér er kristinfræði kennd í skólum vegna tengsla ríkis og kirkju. Þó er það ekki alltaf ljóst hvemig sú kennsla er og hvernig hún á að vera og hvaða skyldur skólastjórar og kennarar hafa í þeim efnum. Dálítil tortryggni hefur stundum Það er auðséð hvað mikilvægt það er — og líka svo miklu ánægjulegra — þegar kirkjan og skólinn styðja hvort annað. ríkt milli skóla og kirkju varðandi þetta. Kirkjan hefur stundum ta- lið skóla láta kristinfræðikennslu sitja á hakanum, kristinfræðitíma falla niður ef nauðsyn þætti að taka tíma til annars og kennara komast upp með slælega kennslu. Frá skólanum hafa heyrzt raddir um alltof mikinn tíma til ferming- arundirbúnings á kostnað skóla- lærdómsins. Það er auðséð hvað mikilvægt það er — og líka svo miklu ánægjulegra — þegar kirkj- an og skólinn styðja hvort annað. Þegar kemur að fermingarfræðsl- unni fínnst tíðum glöggt hvaða böm hafa notið góðrar kristin- fræðikennslu. Það verður baminu ugglaust ómetanlegt nesti til lífsferðarinnar að njóta góðrar kristinfræðikennslu í skólanum sem í kirkjunni. Við hyggjumst nú grennslast dálítið fyrir um samband skólans og kirkjunnar í uppeldisstarfínu og leita svara við hlutverki skólans í kennslu kris- tinna fræða. kristinfræði og samfélagsfræðum. Umsjónarkennarar hvers bekkjar skipuleggja svo kennsluna en ég set upp hvaða greinar þeir taki fyrir og hvaða tímafjöldi eigi að vera. Ég er hræddur um að stund- um fái kristinfræðin ekki þann tíma, sem hún ætti að fá. Kennar- ar eru samt jákvæðari nú í garð kristinfræðinnar en þeir voru á tímabili. Ég held að sú tízka sjö- unda áratugarins að vera á móti kristinfræðikennslunni, sé að hverfa. Kennarar í 5., 6. og 7. bekk, sem kenna kristinfræði hér, eru jákvæðari en kennarar voru oft áður. Séra Hjálmar Jónsson, pró- fastur á Sauðárkróki: Mér sýnist að kristinfræði- kennslan í skólunum fari fyrst og fremst eftir kennurunum. Sumir annast þessa kennslu mjög vel en aðrir ekki og ég tel að þeim sé kennslan oft í sjálfsvald sett. Fermingarbömin þurfa að fá tíma til að sinna fermingarstörfunum þann vetur, sem þau standa yfír. Þess vegna hef ég venjulega sam- band við aðra aðila, sem annast félagsstarf með fermingarbömun- um á öðrum sviðum og bið þá að taka tillit til fermingarstarfanna svo að bömunum verði ekki of- þyngt með margvíslegu félags- starfi þennan vetur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.