Morgunblaðið - 02.06.1987, Síða 3
fStargasttltlfitófe /ÍÞRÓTTIR
ÞRWJUDAGUR 2. JUNI1987
B 3
HREYSTl
Teygjuæfingar eru nauðsynlegar í líkaxnsrækt.
Vöðvar styttast við einhæfa áreynslu og þjálfun.
Best er að teygja rækilega eftir hvem æfíngatíma.
Teygjur eða teygjuæfíngar
eru nauðsynlegar í þjálfun
og líkamsrækt. Sjá má að sum
dýr teygja sig rækilega eftir
svefn eða kyrrstöðu, og sama
gera margir menn. Þessar teygj-
ur eru ósjálfráð
viðbrögð til að liðka
limina og losa um
stirðleika. Eftir
mikla áreynslu er
einnig nauðsynlegt
að teygja sig. Það
er vegna þess að
vöðvaáreynsla, sérs-
taklega ef hún er
einhæf, getur valdið
varanlegri styttingu
á vöðvum og sinum.
Teygjur eru aðal-
lega tvenns konar,
spennu-teygjur og
rykkjateygjur.
Spennuteygjur eru
gerðar þannig að
vöðvamir eru teygð-
ir varlega en ákveð-
almenning fyrr en á síðustu
árum. Teygjuæfíngar og árang-
ur af notkun þeirra hafa verið
vísindalega rannsökuð og það
kemur í ljós að teygjur draga
úr vöðvastyttingu, auka liðleika,
Teygið vel
Teygjuæfingar eru nauösynlegar til að viðhalda
mýktinni og nauðsynlegt er aö teygja reglulega
ið, þar til í þá fer að verkja (þó bæta árangur afreksmanna og
ekki mjög sárt). Þeim er síðan
haldið teygðum í 10—30 sekúnd-
ur f senn. Þá er slakað á teygj-
unni og vöðvamir spenntir með
átaki í 5—15 sekúndur. Síðan
er teygt á þeim aftur á sama
hátt og í upphafí. Teygjuæfíng-
um er erfítt að lýsa, en ef til
vill má útskýra aðferðina með
dæmi, einni teygjuæfíngu sem
flestir skokkarar þekkja vel.
1. Upphafsstaða. Standið bein,
um það bil armlengd frá vegg,
með handleggi rétta beint fram
þannig að fíngurgómar snerti
vegginn.
2. Teygjustaða. Leggið lófana
flata á vegginn, beygið í oln-
bogum og hallið beinum líkama
fram án þess að hælar lyftist
frá gólfi. Hallið ykkur fram þar
til tekur í kálfavöðvana. Haldið
þessari stöðu í um það bil 20 sek.
3. Spennustaða. Farið aftur í
upphafsstöðu. Lyftið ykkur
síðan uppá tábergið og tæmar,
eins hátt og mögulegt er, í 10
sek. þannig að átaksspennan
myndist í kálfavöðvunum.
4. Endurtekningar. Farið aftur
niður í upphafsstöðu og hailið
ykkur síðan fram í teygjustöð-
una. Þetta má endurtaka
nokkmm sinnum og með tíman-
um lengjast kálfavöðvamir og
teygjumar verða auðveldari og
ekki eins sárar.
Teygjuæfíngar af þessu tagi
hafa lengi verið notaðar við sér-
staka líkamsþjálfun og meðferð,
en hafa ekki náð almennri út-
breiðslu hjá íþróttamönnum eða
draga úr tíðni álagsmeiðsla.
Þjálfarar og íþróttakennarar
mæla yfírleitt með sérstakri
teygjuþjálfun fyrir íþróttamenn.
Ekki er síður ástæða til að
mæla með teygjuæfíngum fyrir
almenningi til að draga úr þeim
stirðteika, sem allir fínna fyrir
með aldrinum.
Ryklqateygjur eru ekki vinsælar
núna, þær em jafnvel á bann-
lista hún þjálfumm og íþrótta-
kennumm, því að þær geta
valdið meiðslum. Eina slíka
rykkjateygju þekkja flestir. Þá
er staðið beinum fótum, beygt
fram í mjöðmum og baki, fingur-
gómar teygðir í átt að gólfí og
gerðir rykkir niður þar til tekst
að snerta gólfíð. Rykkimir, sem
þessu fylgja, valda óeðlilegu
álagi á liðbönd og liði, sérstak-
lega í bakinu, en teygja senni-
lega ekki varanlega á vöðvum.
í lok umræðu um teygjur er
rétt að benda á að lærðustu
menn greinir á um það hvemig
best er að teygja, þ.e. tímalengd-
ir teygju, hvíldarbil á milli,
tímalengdir vöðvaspennu, end-
urtekningar o.s.frv. Það er því
engin algild regla til um teygj-
umar, frekar en annað sem
viðkemur árangri í líkamsrækt
og þjálfun. Nauðsynlegt er að
gera teygjumar varlega. Munið
að það era vöðvamir, sem eiga
að togna, en ekki má leggja
óeðlilegt álag á liðbönd og liða-
mót.
Jóhann Heiðar
Jóhannsson
Júnígetraun íþróttablaðs Morgunblaðsins er hér með hafin, en hún verður með sama sniði
oggetraunin sem var í maí. { þremur íþróttablöðum, blaðinu í dag, íþróttablaðinu 10. júní
og íþróttablaðinu 16. júní, birtast nokkrar spumingar og fyrstu stafírnir í réttum svöram
hverju sinni mynda eitt orð. Orðin þijú mynda svo lausnarsetninguna sem beðið er um.
Þátttakendur fylla alla þrjá svarseðlana út og klippa þá út úr blaðinu, setja saman í umslag
og senda til Morgunblaðsins fyrir 23. júní, en þá rennur skilafrestur júnígetraunar út.
Umslögin skulu merkt:
1. íslendingur vann bronsverðlaun í júdó á Ólympíuleikunum 1984.
Hvað heitir hann?
Svar: _____________
2. Með hvaða enska knattspyrnuliðijeikur lan Rush?
Svart EfotaBSIBjas
3. Frá hvaða
i Íslendin^ur leikurmeð þýska handknattleiksliðinu Gumm-
Svar:
íþróttagetraun
Morgunblaðsins,
Morgunblaðið,
Aðalstræti 6,
101 Reykjavík.
Getraunin er nú sem áður ætluð unglingum og yngri lesendum blaðsins, 16 ára og yngri,
og verða þrír vinningshafar verðlaunaðir. Allir fá þeir vegleg verðlaun, m.a. íþróttagalla og
íþróttatösku, en sá sem á fyrstu réttu lausnina sem upp kemur, hlýtur aðalverðlaunin, sem
era boðsferð á Wembley-leikvanginn í Englandi í ágúst og á opnunarleik enska
keppnistímabilsins, sem Englandsmeistarar og ensku bikarmeistaramir í knattspymu leika.
Þangað fer Sigurður Samúelsson frá ísafirði, vinningshafi númer eitt í maígetraun og nú er
bara að sjá hver verður sá heppni eða sú heppna í júnímánuði. Alls fara þrír vinningshafar í
þessa ævintýraferð, því enn ein íþróttagetraun verður haldin í júlímánuði. Og nú er bara að
spreyta sig á getrauninni, svara öllum spurningunum í blöðunum þremur í júní og freista þess
að vinna til þessara veglegu verðlauna.
----------------------------------------------------------->g_ -----------
J ÚNÍGETRAUN
1 ■ Hvaða stórmót í íþróttum fór fram í Mexíkó sumarið 1986?
Svar: ZZI.......................................................................
2. Hvaða hlaupakona úr FH á íslandsmet í 1500, 3000 og 10.000 metra hlaupi?
Svar: EZl.......................................................................
3. Hvaða lið varð Englandsmeistari í knattspyrnu í vor?
Svar: ZZI.......................................................................
4. Hvað er sá krakkaleikur kallaður þegar tvö lið kasta bolta á milli sín yfir hús?
Svar: ZZI.......................................................................
5. Hvaða félag er núverandi íslandsmeistari karla í knattspyrnu?
Svar: ZZI.................................................................
6. Tveir íþróttafréttamenn starfa á ríkisútvarpinu. Annar heitir Samúel Örn Erlingsson, en
hvað heitir hinn?
Svar: ZZl.......................................................................
7. Hvað heitir fyrirliði 1. deildarliðs Þórs á Akureyri í knattspyrnu?
Svar: □.........................................................................
8. Hvaða þekktur handknattleiksmaður er sonur Sveins Björnssonar, forseta ÍSÍ?
Svar. l l..r ..•B.B.B.i.ii.iiiiiiiiia
Lausnarorð:
Natn:
Heimili: ..........................
Sími:
Munið að senda ekki svörin fyrr en allir þrír hlutar júnígetraunar hafa birst 16. júní. Skilafrestur er til
23. junf.