Morgunblaðið - 02.06.1987, Síða 4

Morgunblaðið - 02.06.1987, Síða 4
4 B /IÞROTTIR ÞRŒUUDAGUR 2. JÚNÍ 1987 KNATTSPYRNA / SPÁNN Spennan enn í hámarki REAL Madrid og Barcelona sigruðu bæði um helgina og er Barcelona því enn tveimur stigum á eftir Real, þegar liðin eiga eftir þrjá leiki. Hugo Sanchez skoraði þrennu í 4:0 sigri Real gegn Sporting Gijon í Madrid. Þar með hefur Sanc- ÞYSKALAND hez skorað 33 mörk, en Gary Lineker, sem tryggði liði sínu 1:0 sigur gegn Real Mallorca á útivelli, er með 20 mörk. Real leikur gegn Mallorca um næstu helgi, en Barcelona fær Espanol í heimsókn. Verði liðin jöfn að stigum í lokin, gilda innbyrðis leikimir og þar hefur Barcelona vinninginn, sex stig gegn tveimur. Bayem vantar aðeins eitt stig BAYERN Miinchen vantar nú aðeins eitt stig til að verða meistari í Þýskalandi. Liðið gerði jafntefli um helgina, 2:2, gegn Homburg eftir að hafa verið 2:0 yfir í hálfleik. Menn eru á þvi að áfallið frá því í Evrópuleiknum gegn Porto hafi kom fram í seinni hálfleiknum hjá Bayern. Um næstu helgi leikur liðið svo á heimavelli gegn Bayer Uerdingen. Michael Rummenigge skoraði fyrra mark Bayem á 18. mín. með skalla og Ludwig Kögl, sem skoraði í úrsltaleiknum gegn Porto, skoraði FráJóhanniInga síðara markið Gunnarssynií skömmu síðar. En Þýskalandi leikmenn Homburg gáfust ekki upp. Liðið er í þriðja neðsta sæti deildar- innar en réði engu að síður lögum og lofum á vellinum í síðari hálf- leik. Það vom Klaus Muller og Uwe Freiler sem gerðu mörk liðsins. Hamburger SV gerði jafntefli á útivelli gegn Köln. Ditmar Jakobs skoraði fyrir Hamburger á á 58. mín. en á síðustu mín. leiksins jafn- aði Stefan Engels úr vítaspymu. Köln sótti meira í byijun, en síðan tóku leikmenn Hamburger leikinn í sínar hendur og vora óheppnir að sigra ekki. Borassia Mönchengladbach vann sinn 7. sigur í röð, nú gegn Borass- ia Dortmund fyrir framan 54.000 áhorfendur í Dortmund. Heimaliðið hefur staðið sig mjög vel að undanf- ömu enftir ótrúlega slaka byijun hafa leikmenn Gladbach heldur bet- ur tekið sig saman í andlitinu og hafa nú svo gott sem tryggt sér UEFA-sæti næsta vetur. Liðið er án efa það skemmtilegasta í deild- inni í dag og sigurinn á Dortmund var sanngjam. Atli Eðvaldsson lék með Uerdingen er liðið sigraði Frankfurt 1:0 á heimavelli en Láras Guðmundsson var á bekknum, og verður sjálfsagt ekki meira með í vetur þar sem hann hefur þegar verið seldur til Kaiserslautem þar sem hann mun sila næsta vetur. Stuttgart tapaði fyrir Bochum á heimavelli þriðja árið í röð þó liðið sé eitt það neðsta í deildinni. Símamynd/Reuter Uwe Rahn skoraði annað marka Gladbach um helgina. Meistararnir fagna Símamynd/Reuter Philippe Fargeon, fyrir miðri mynd, skoraði sigurmark Bordeaux gegn St. Etienne á föstudagskvöldið og tryggði liði sínu þar með meistaratitilinn. FRAKKLAND Bordeaux meistari BORDEAUX tryggði sér á föstudagskvöldið franska meistaratitilinn með 1:0 sigri á heimavelli sínum gegn St. Eti- enne. Á sama tíma tapaði Marseille í París fyrir Paris SG 0:2, þannig að Bordeaux hefur fjögurra stiga forystu fyrir síðustu umferðina. að var Philippe Fargeon sem skoraði sigurmark hinna ný- krýndu meistara á 33. mín. leiksins gegn St. Etienne. Þar með var titil- inn endanlega í höfn. Mörk Paris SG í sigrinum gegn Marseille gerðu Omar Sene og Safet Susic. Þetta var í þriðja sinn á fjórum áram sem Bordeaux verður meist- ari, en Paris SG sigraði í deildinni í fyrra. Liðið byijaði afleitlega í haust, en braggaðist þó er á leið og er rétt fyrir ofan miðja deild nú. ■ Úrslit/BI ■ Staðan/B15 PORTÚGAL Filho skoraði fjögur í síðasta leiknum JUARY Filho, sem skoraði sig- urmark Porto gegn Bayern Miinchen í úrslitum Evrópu- keppni meistaraliða í síðustu viku, skoraði fjögur mörk í síðasta deildarleik Porto um helgina. Porto vann falllið Elvas 6:0 að viðstöddum 90 þúsund áhorf- endum. Benfíca, sem þegar hafði tryggt sér meistaratitilinn, gerði 1:1 jafntefli við Braga, og jafnaði Car- los Manuel fyrir meistarana. Benfica og Sporting leika til úrslita í bikarkeppninni um næstu helgi, en þar sem Benfica tekur þátt í Evrópukeppni meistaraliða ásamt Porto í haust, keppir Sporting í Evrópukeppni bikarhafa, hver sem úrslit verða á sunnudaginn. Guim- araes, Chaves og Belenenses taka þátt í Evrópukeppni félagsliða. KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN Boston sigraði í austurdeiídinni BOSTON vann Detroit 117:114 á laugardaginn í æsispennandi leik og vann seri'una 4-3. Tveir lykilmenn Detroit skullu harka- lega saman í lok þriðja leik- tímabils, annar rotaðist og lék hvorugur meira með. Detroit sigraði þar með í austurdeild- inni fjórða árið í röð og leikur til úrslita við Los Angeles La- kers. Hitinn í Boston var 35 gráður á celsíus og var álíka heitt í höllinni, því þar er engin loftkæl- ing. En leikmenn létu það ekki á sig fá, skiptu ört um Frá Gunnari búninga og léku vel. Valgeirssynií Enginn samt betur Bandaríkjunum en Bjrdi sem lék allan leikinn, var frábær og skoraði 37 stig fyrir Boston. Hjá Detroit skoraði Joe Dumars 35 stig, sem er persónulegt met, og var bestur í jöfnu liði. Leikurinn var mjög jafn, í hálfleik var staðan 56:55 fyrir Detroit og þegar átta sekúndur vora eftir af þriðja leiktímabili hafði liðið enn eins stig forystu, 80:79. En þá kom rothöggið. Winnie Johnson og Adr- ian Dantiey skullu saman, Dantley var fluttur rotaður á sjúkrahús, Johnson reyndi að leika, en hélt ekki jafnvæginu og sat á bekknum til loka. Þetta var of mikið fyrir Detroit og liðið hefur ekki náð að sigra í Boston í fimm ár. Boston hefur átt við mikið mótlæti að stríða í úrslitakeppninni, aðeins Larry Bird hefur sloppið við meiðsli. Liðið leikur fyrsta leikinn gegn Lakers í Los Angeles í kvöld, en Lakers hefur hvílt í átta daga. Bos- ton sigraði í deildinni 1968 og 1969, en síðan hefur engu liði tekist að sigra tvö ár í röð. Flestir telja að róður Boston gegn Lakers verði erfiður og er Lakers yfírleitt spáð 4-1 eða 5-2 sigri. En ekki er hægt Larry Bird lék stórkostlega í úrslltakeppninnl gegn Detroit. að afskrifa meistarana og verða úrslitaleikimir öragglega spenn- andi. ENGLAND Connor til Portsmouth ALAN Ball, stjóri Ports- mouth, sem vann sér rétt til að leika í 1. deild á næsta keppnistímabili eftir 27 ára fjarveru, keypti í gærfram- herjann Terry Connor frá Brighton. Connor, sem er 24 ára blökkumaður, var kjörinn knattspymumaður ársins hjá félagi sínu í vetur, en það féll niður í 3. deild FráBob og hafði hann Hennessy lýst þvi yfir að i Englandi þar vjidj hann ekki leika. Hann lék með Leeds áður en hann fór til Brighton. Ball greiddi Brigh- ton 200 þúsund pund fyrir Connor. Framheijar hjá Portsmouth í vetur vora Paul Mariner og Mick Quinn, en ball hefur ekki þótt veita af að styrkja hópinn fyrir slaginn í 1. deild. ______

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.