Morgunblaðið - 02.06.1987, Side 5
|llor$si<iMaMft /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
B 5
LANDSLIÐIÐ
Er landsliðið á réttri leið?
Verður leikið „með hjartanu" á morgun,
eða „leiðinlegur" vamarieikur?
Islenska landsliðið leikur
fimmta leik sinn í 3. riðli
Evrópukeppninnar í knatt-
spymu á Laugardalsvelli á
morgun og eru mótherjamir að
þessu sinni Austur-Þjóðverjar.
Margir hafa velt
úrsltium fyrri leikja
okkar í keppninni
fyrir sér og þá hvort
liðið sé á réttri leið.
Við gerðum jaftitefli
við Sovétmenn og
Frakka hér heima í
fyrra, töpuðum
siðan í Austur-
Þýskalandi í fyrra
haust og í París í
vor. Við töpuðum
báðum leikjunum
0:2. Eftir leikina hér
heima í haust voru
menn bjartsýnir á
að íslenska liðið
væri á réttri leið, lið-
ið lék skipulega og
hélt boltanum mun
betur og meira en
það hafði gert lengi. Eftir tvo
tapleiki, þar sem leikin var vam-
arleikur og boltanum haldið eins
og frekast var unnt til þess að
hinir skoruðu ekki, hafa menn
efast um þær sælutilfinningar
sem hrísluðust um menn eftir
leikina hér á landi f haust.
þeir gerðu bara ekki neitt."
Sú var tíðin að ísland fékk
slæma skelli þegar leikið var við
sterkar knattspymuþjóðir. Eitt
var þó hægt að dáðst að í fari
leikmanna. Þeir gáfu sig alla í
leikinn og börðust til síðasta
blóðdropa. Meiri hraði var i
leiknum og þar af leiðandi meira
gaman að horfa á. Nú virðist
markmiðið vera að leika upp á
sem minnst tap, eitt til tvö mörk
eru í lagi, en alls ekki láta rass-
skella sig. Mætti ég þá frekar
A róttlr lelð?
Er Sigfried Held með landsliðið okkar 6 réttri leið?
Hvernig verður leikskipulagíð á morgun, varnarleik-
ur eða skemmtilegur sóknar- og baráttuleikur?
Mnttlrtll lelks
Arnór, Ragnar og Atli eru allir mættir til leiks og tilbúnir að berjast til
sigurs gegn Austur-Þjóverjum á morgun.
Leikirnir í Austur-Þýskalandi og
Frakklandi voru leiðinlegir á að
horfa, að minnsta kosti fannst
mér það. Okkar leikmenn eru
flestir atvinnumenn og kunna
sitt fag, og þeir sem ekki eru
atvinnumenn em mjög sjóaðir í
knattspymunni. Það sem mér
fannst leiðinlegt við þessa tvo
leiki var hve gífurlega varkárir
okkar menn voru. Það virtist
vera skipun að halda boltanum
og leikmenn tóku þá skipun svo
alvarlega að þó svo við værum
þrír í skyndisókn á móti einum
vamarmanni var boltinn gefinn
til baka og reynt að vinna tfma.
Þessi lýsing er auðvitað talsvert
oröum aukin en þó ekki fjarri
sanni.
Eftir leikinn í Frakklandi sagði
einn þarlendur blaðamaður við
mig er ég spurði hann um leik-
inn: „AUir vom svo uppteknir
af því að gera engin mistök að
biðja um fjöraga rassskellingu
á morgun en hundleiðinlegan
vamarleik þar sem markmiðið
er að tapa með sem minnstum
mun. fsland hefur það góðum
ieikmönnum á að skipa að þó
svo hraðinn sé keyrður aðeins
upp þarf ekki að óttast rassskell-
ingu, ef allir ieikmenn gefa sig
í leikinn af fullri einurð.
Ásgeir Sigurvinsson er eini leik-
maðurinn í fslenska iiðinu á
morgun sem lék í leiknum eftir-
minnilega árið 1975 þegar við
unnum Austur-Þjóðveija á
Laugardalsvelli með tveimur
mörkum gegn einu og skoraði
Ásgeir þá sigurmarkið með
fallegu langskoti. Vonandi fá
áhorfendur að sjá jafn Qörugan
leik, þar sem leikmenn íslands
leika með hjartanu frá fyrstu
mfnútu.
Skúli Unnar
Sveinsson
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
Pólvevji tekur
við Valsliðinu
ir góðir leikmenn. Ég á erfitt starf
framundan, en skemmtilegt."
Bogdan landsliðsþjálfari benti Vals-
mönnum á Modrowski, en þeir
Bogdan vora saman í handbolta-
skóla og hafa leikið í sama „old-
boys“ liði í Póllandi undanfarin ár.
Valsmenn gerðu þriggja ára
rammasamning við Modrowski; sem
verður endurskoðaður árlega. Áætl-
að er að vígja nýja íþróttahúsið við
Hlíðarenda 6. september og verða
því allir heimaleikir Vals á heima-
velli í framtíðinni.
Pólverjinn, Stanisla Wodrowski,
hefur verið ráðinn þjálfari meistara-
flokks Vals í handknattleik.
STANISLA Modrowski frá Pól-
landi hefur verið ráðinn þjálfari
1. deildarliðs Vals í handbolta.
Gengið varfrá samningum um
helgina og fer Modrowski til
Póllands í dag, en kemur aftur
í lok júlí. Hann er 37 ára.
Eg lék með pólska unglinga-
landsliðinu, þjálfaði bandaríska
kvennalandsliðið 1978, en hef síðan
leiðbeint og kennt við handbolta-
skóla í Varsjá,“ sagði Mordrowski
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann sagðist hlakka til að koma
til íslands. „Ég hef verið að skoða
myndbönd með leikjum Vals frá því
í vetur og veit að í liðinu era marg-
MorgunblaÖiÖ/Bjami
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Einar Asbjöm í Fram
Einar Ásbjöm Ólafsson knatt-
spymumaður úr Keflavík hefur
gengið til liðs við Framara. Gengið
var frá félagaskiptum á laugardag-
inn og verður hann því löglegur
með Fram 30. júní.
„Ég hef ekki verið í náðinni hjá
Peter Keeling, þjálfara ÍBK, og því
ekkert annað að gera en að reyna
eitthvað nýtt. Ég hef æft mjög vel
síðan í janúar og stefni nú á að
komast í hópinn hjá Fram," sagði
Einar Ásbjöm í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
Hann hefur verið framkvæmda-
stjóri knattspymuráðs ÍBK, en lét
einnig af því starfi um helgina þar
sem það gæti ekki farið saman að
Ieika með öðra liði. Einar er 27 ára
og á að baki fjölmarga leiki með
meistaraflokki IBK og Víði.
Elnar Ásbjöm Ólafsson hefur
gengið úr ÍBK í Fram.
■ ERIK Willaarts, sem hefur
skorað 24 mörk í vetur fyrir
Utrecht í Hollandi og er næst
markahæstur, leikur í Þýskalandi á
næsta keppnistímabili. í fyrra lék
hann með minni háttar áhuga-
mannafélagi, en nú hefur Gladbach
greitt 300 þúsund dollara fyrir
kappann.
■ ALBERT Mónakóprins kunni
vel við sig á meðal íslensku kepp-
endanna á ólympíuleikum smá-
þjóða. Eins og áður hefur verið
greint frá, bauð hann Ragnheiði
Runólfsdóttur, sunddrottningu, í
mat og skoðunarferð, en ívar
Webster, körfuknattleikskappi,
eyddi einnig miklum hluta frítíma
síns með prinsinum og fór vel á
með þeim.
■ VILDÍS Kr. Guðmundsson
var endurkjörin formaður Badmint-
onsambands íslands á ársþinginu,
sem haldið var fyrir skömmu. Aðrir
í stjóm eru Magnús Jónsson,
Sigriður M. Jónsdóttir, Elín Agn-
Ivar Webster
og prins Albert
Það fór vel á með þeim Albert Mónakó-
prins og ívar Webster körfuknattleiks-
manni á Ólympíuelikum smáþjóða í
Mónakó í síðasta mánuði.
arsdóttir og Pétur Hjálmtýsson.
í varastjóm eru Lilja Jónsdóttir,
Friðrik Halldórsson og Hörður
Þórleifsson.
■ VÍK URFÉTTIR í Keflavík gera
íþróttum hátt undir höfði og var
viðtal við þjálfara ÍBK, Peter Keel-
ing’, eftir sigur þeirra á Völsungum
í fyrsta leik Islandsmótsins í sfðasta
tölublaði. Við grípum hér niður í
viðtalið: ,,„Ég ber mikla virðingu
fyrir Valsliðinu og þjálfara þess, Ian
Ross. Þeir era að mínu mati með
bestu vömina, en við eram með
bestu vömina samkvæmt stigatöfl-
unni. Ég hef heyrt að Valsmenn
ætli að dvelja á hóteli fyrir þennan
leik svo mikilvægan telja þeir hann
vera. En við ætlum að gera okkar
til að þeir verði að dvelja á hóteli
í eina viku eftir þennan leik,“ sagði
Peter Keeling."
Það er svo spuming hvort liðið hefði
þurft að dvelja í viku á hóteli eftir
leikinn. En eins og kunnugt er rass-
skelltu Valsmenn ÍBK, unnu 7:1.