Morgunblaðið - 02.06.1987, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 02.06.1987, Qupperneq 7
ptargaitiMa&ifr /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 2. JÚNÍ1987 B 7 KNATTSPYRNA 1. DEILD Sanngjam sigur Framara gegn slöku Skaga3iði íslandsmeistarar Fram unnu góðan og sannfærandi sigur á bikarmeisturum Akranes í I. deild sl. laugardag í frekar tilþrifalitlum leik á Akranesi. Þrátt fyrir óskabyrjun Skaga- manna dugði hún skammt. Þeir fengu vítaspyrnu á 8. mínútu sem dæmd var eftir að Aðalsteini Víglundssyni var Frá hrint innan víta- Sigþórí teigsins. Heimir Eiríkssyni Guðmundsson skor- aði að öryggi úr vítaspymunni. Heimamenn fengu skömmu síðar gott tækifæri þegar Sveinbjörn einlék skemmtilega fram völlinn og átti hörkuskot á markið rétt utan vítateigs en Frið- rik markvörður varði mjög vel með því að slá boltann í horn. Eftir þetta náðu Framleikmennirnir undirtök- unum og áttu nokkur góð færi áður en jöfnunarmarkið kom. Það var á 29. mínútu. Dæmd var aukaspyma frá vinstri hliðarlínu sem Pétur Ormslev framkvæmdi. Hann sendi knöttinn vel fyrir mark Skaga- manna og þar kom Viðar Þorkels- son á fullri ferð og skallaði knöttinn í netið. Framarar héldu uppteknum hætti eftir jöfnunarmarkið, sóttu látlaust að marki heimamanna og náðu for- ystunni á 38. mínútu þegar Kristinn Jónsson skoraði af stuttu færi einn og óvaldaður í víteig Skagamanna ÍA-Fram 1 : 3 Akranesvöllur, 1. deild, laugárdaginn 30. maí 1987. Mark Akranes: Heimir Guðmundsson (8.). Mörk Fram: Viðar Þorkelsson(29.), Kristinn Jónsson (38.), Pétur Ormslev (65.) Gul spjöld: Aðalsteinn Víglundsson IA, Sveinbjöm Hákonarson ÍA, Pétur Ormslev Fram, Þorsteinn Þorsteinsson Fram. Rauð spjöld: Enginn. Áhorfendur: 916. Dómari: Eyjólfur Ólafsson 6. Lið ÍA: Birkir Kristinsson 3, Jón Áskels- son 2, Heimir Guðmundsson 2, Sigurður Lárusson 2, Sigurður B. Jónsson 2, Valgeir Barðason 2, (Guðmundur Matt- híasson vm.á 60 mín,2), Sveinbjöm Hákonarson 3, Aðalsteinn Víglundsson 2, Ólafur Þórðarson 2, Guðbjöm Tryggvason 2, Þrándur Sigurðsson 2, (Haraldur Ingólfsson vm.á 60 mín.,2). Samtals: 24. Lið Fram:Friðrik Friðriksson 2, Þor- steinn Þorsteinsson 3, Jón Sveinsson 2, Pétur Ormslev 3, Viðar þorkelsson 3, Kristinn Jónsson 2, Amljótur Davíðsson 3, Pétur Amþórsson 4, Krist- ján Jónsson 2, Janus Guðlaugsson 3, Ormarr Örlygsson 3,(Jón Oddsson vm.á 84 mín.lék of stutt). Samtals:30. og vörnin víðsijarri. Framarar hefðu getað bætt við þriðja markinu mínútu fyrir leikhlé en þá skaut Pétur Ormslev yfir Skagamarkið af stuttu færi. Framarar byijuðu seinni hálfleikinn af sama krafti og þeir enduðu þann fyrri. Strax á fyrstu mínútunum átti Pétur Amþórsson hörkuskot í þverslá og hann fékk annað tæki- færi skömmu síðar þegar hann slapp inn fyrir vörn Skagamanna en skotið geigaði. Akumesingar gerði tvær breytingar á liði sínu um miðjan hálfleikinn. Haraldur Ingólfsson og Guðmundur Matthíasson komu þá inn í stað Þrándar og Valgeirs og hafði þessi breyting jákvæð áhrif á liðið. Litlu munaði að Haraldur skoraði með sinni fyrstu snertingu en þá átti Aðalsteinn góða sendingu fyrir mark Fram og hörkuskalli Haraldar fór rétt yfir þverslá. Þriðja mark Fram kom síðan á 65. mínútu. Þá átti Ormar sendingu fyrir markið og Pétur Ormslev skallaði inn óáreittur við nærstöng- ina og þar má segja að punkturinn hafi verið settur yfir iið í leiknum. Um liðin er það hægt að segja að Fram liðið kom greinilega til þess að sigra eftir afleitt gengi á undaf- ömum vikum. Pétur Arnþórsson og nafni hans Ormslev voru bestu menn liðsins. Akranesliðið er í lægð eftir gott gengi á undanfömum vik- um og náði engin leikmaður sér sérstaklega vel á strik. Helst mætti nefna Sveinbjöm og Birki mark- vörð.Vömin átti slakan dag og mörkin sem liðið fékk á sig átti hún að geta komið í veg fyrir. ■ Staðan/B15 2. DEILD KARLA Loks sicjur hjá Eyjamönnum ÍBV lyfti sér af botni 2. deildar með 3:1 sigri gegn UBK í Eyjum á laugardaginn. Staðan í hálf- leik var 1:0 fyrir heimamenn. Hvassviðri var á meðan leikn- um stóð og bar hann þess glögg merki. Breiðablik byijaði með vindinn í bakið og sótti nokkuð stíft í upphafi leiks, en Eyjamenn vörðust vel og gáfu þeim ekkert eftir. Á 25. mínútu náði Frá Gunnarí Ómar Jóhannsson Má boltanum af einum Sigurfmnssyni Breiðabliksmanni, sendi á Berg Ágústsson, sem brunaði upp allan kantinn og gaf á gömlu kempuna Tómas Pálsson, sem skoraði af ör- yggi fyrsta markið. í síðari hálfleik voru Eyjamenn með vindinn í bakið. Þeir nýttu sér það vel og skoruðu tvö mörk. Fyrst skoraði Bergur Ágústsson með þru- muskoti frá vítateigshomi. Elías Friðriksson skoraði síðan þriðja markið eftir þvögu, sem myndaðist eftir homspymu. Eftir markið gáfu Eyjamenn aðeins eftir og Blikar náðu að minnka muninn rétt fyrir leikslok með marki Rögnvaldar Rögnvaldssonar. Eyjamenn unnu þama sinn fyrsta sigur í deildinni í ár og ekki er hægt að segja annað en sigurinn hafi verið sanngjam. Leikmenn liðs- ins börðust vel og uppskáru samkvæmt því. Endurkoma þjálfar- ans, Tómasar Pálssonar, í liðið hafði líka góð áhrif. Allir leikmenn liðsins léku vel og er erfítt að gera upp á milli þeirra. Þó var Jón Bragi Amar- son þeirra bestur og komust sóknarmenn Breiðabliks lítið áleiðis gegn honum. Breiðabliksliðið olli miklum von- brigðum í þessum leik. Liðið lék ekki góða knattspymu og hafði maður oft á tilfinningunni að leik- menn skorti áhuga til að vinna leikinn. Hjá þeim skaraði enginn framúr nema þá helst Ólafur Bjömsson. Það er alveg ljóst að þeir verða að taka sig verulega saman í andlitinu ef þeir ætla að blanda sér í toppbaráttuna í deild- inni í ár. Róber Jónsson dæmdi ágætlega. Maður lciksins: Jón Bragi Amarson. ■ StaAan/B 15 Sanngjam Einherjasigur gegn ísfirðingum EINHERJI vann ísafjörð 2:1 á Vopnafirði á iaugardaginn og var það fyrsti sigur heima- manna í deildinni í ár. I sfírðingar hófu leikinn og léku undan vindi. Liðin skiptust nokk- uð jafn á með að sækja fyrstu mínútumar. Einheiji tók forystuna með fallegu marki Frá Kristjáns Davíðs- Bimi sonar á 10. mínútu. Bjömssyni Fimm mínútum síðar jafnaði svo Ól- afur Petersen fyrir ísfirðinga. En það stóð ekki jafnt lengi og á 20. mínútu skoraði Kristján Davíðsson aftur og staðan í leikhléi 2:1. Einheiji sótti mun meira allan seinni hálfleikinn, þótt liðinu tækist ekki að skora fleiri mörk. Sama var með ísfirðinga. Þeirra sóknarlotur nýttust ekki heldur og lauk leiknum því með sigri Einheija, 2:1, og verða það að teljast sanngjöm úrslit. Besti maður IBÍ var Kristinn Kristj ánsson, en Kristján Davíðsson var bestur hjá Einheija. Madur leiksins: Kristján Davfdsson. Mark Duffleld (númer 13) skorar í eigið mark gegn Þróttl Þréttur sigraði KS í slökum leik „ÉG er að sjálfsögðu ánægður með stigin þrjú, en þetta var engin knattspyrna, mjög léleg- ur leikur. Við getum meira, en strákarnir spiluðu ekki með höfðinu að þessu sinni," sagði Gunnar Ingvason, þjálfari Þróttar, eftir 2:1 sigur gegn KS á Valbjarnarvelli á sunnudag- inn. Aðstæður vom góðar, en leikur- inn olli vonbrigðum. Mikið var um kýlingar út í loftið, samspil sást vart og það eina sem gladdi var glæsimark Bjöms Ingimarssonar undir lokin. Mark Duffield skoraði sjálfsmark um miðjan fyrri hálfleik og Daði Harðarson bætti öðm við fyrir Þrótt úr vítaspymu skömmu áður en Bjöm minnkaði muninn. „Hugarfarið var ekki rétt hjá okk- ur. Við áttum færi, en Þróttur sigraði með miðlungsleik. Við fáum Víking í heimsókn á föstudaginn og þá kemur í ljós, hvort við ætlum að vera með í toppbaráttunni eða ekki,“ sagði Gústaf Bjömsson, þjálfari KS. Maður leiksins: Mark Duffield. Ósanngjamt SELFYSSINGAR voru heppnir, þegar þeir unnu Leiftur 1:0 á Selfossi á sunnudaginn. „Við vorum þungir og slakir, en Leiftursmenn voru á siglingu allan tímann," sagði Magnús Jónatansson, þjálfari Selfoss, eftir leikinn. Tæplega 500 áhorfendur sáu mikinn baráttuleik. Heima- menn vom öllu sterkari. í fyrri hálfleik og þá skoraði Jón Gunnar Bergs mjög fallegt mark. Páll Guð- mundsson fékk gott tækifæri til að bæta öðm við skömmu síðar, en dæmið gekk ekki upp. Leiftursmenn komu tvíefldir til leiks í seinni hálfleik og áttu hreinlega leikinn. Þeir sóttu stíft, en gæfan var ekki með þeim. Rangstöðumark var réttilega dæmt af og Hafsteinn Jakobsson skaut í stöng úr víta- spymu. Tíminn leið og Ólafsfírðing- amir urðu að bíta í það súra epli að tapa leiknum. Þetta var fyrsti sigur Selfoss í deild- inni í ár, „en við verðum að spila mikið betur, ef við ætlum að vera með í toppbaráttunni," sagði Magn- ús þjálfari. Anton Hartmannsson, markvörður, var bestur heima- manna. Leiftursmenn hafa leikið vel í byij- un móts, liðið er sterkt og leikmenn- imir ná vel saman, en lánið lék ekki við þá á Selfossi. Hafsteinn var bestur í jöfnu liði. Friðjón Edvaldsson dæmdi rólegan leik ágætlega, sýndi fjórum leik- mönnum gula spjaldið og einn fékk rautt utan vallar. Maður leiksins: Hafsteinn Jakobsson. Víkingar efstir VÍKINGAR eru einir í efsta sæti 2. deildar í knattspyrnu eftir að þeir unnu ÍR á Valbjarn- arvelli í gærkvöldi með tveimur mörkum gegn einu í slökum leik. Víkingur er með níu stig, hafa unnið alla sína leiki, en Þróttur er í öðru sæti með sex stig. Trausti Ómarsson skoraði fyrsta markið og þó svo það væri ágætt mark í sjálfu sér var það hálf klaufalegt. Stefán Aðalsteins- son tók aukaspyrnu langt úti á velli og náði Trausti að breyta stefnu boltan með höfðinu þannig að hann hafnaði í bláhominu. Markvörður ÍR hefði átt að ná boltanum en var hinn rólegasti á marklínunni og treysti á vörnina sem svaf á verðin- um. ÍR átti nokkur færi sem ekki tókst að nýta og voru þeir Heimir Karls- son og Páll Rafnsson stórhættulegir við mark Víkinga. Páll komst með- al annars einn inn fyrir vömina en Jón Otti markvörður Víings sá við honum á síðustu stundu. Klaufalegt hjá Páli sem er ekki vanur að mis- nota færi sín á þennan hátt. Heimir skaut þmmuskoti skömmu síðar en Jón Otti varði meistaralega í horn. Páll jafnaði metin á 53. mínútu, renndi sér laglega fyrir bolta sem var að fara framhjá stönginni, eftir skot, eða fyrirgjöf, frá Þorvaldi Steinssyni, og náði að setja hann í netið. Guðmundur Pétursson skor- aði síðan sigurmarkið á 72. mínútu með góðu skoti eftir skemmtilega sókn Víkinga. Víkingar em með heilsteiptara lið og sigur þeirra var sanngjarn. ÍR- liðið hefur of marga veika hlekki til þess að geta náð langt en inn á milli em góðir leikmenn sem nýtast ekki gegn jafnsterkum liðum eins og Víkingi. Ekki vom margir sem stóðu sig vemlega vel í leiknum en Jóhann Þorvarðarson skilaði hlutverki sínu á miðjunni í fyrri hálfleik og sem vamarmaður í þeim síðar vel. Jón Otti var góður í markinu og Heimir og Páll vom bestir ÍR-inga. Maður leiksins: Jóhann Þorvarðarson ■ Staðan/B 15

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.