Morgunblaðið - 02.06.1987, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 02.06.1987, Qupperneq 9
HtojpinMaftifr /ÍÞRÓTTÍR ÞRWJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987 B 9h Idarkeppninnar - skoraði eitt í síðasta leiknum og því samtals 19 í vetur: titillinn var í höfn og báru Arnór á höndum sér lengi eftir leikinn. Búningurinn tættur utan af honum í minjagripi! Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson ingu, eins og sést á þessari mynd. Amór slapp ekki inn í búningsklefa liðsins fyrr en löngu eftir leik - og var síðasti ía að hylla íslensku hetjuna! 19. markinu fagnað Fögnuður Amórs var innilegur eftir að hann skoraði sitt 19. mark í vetur^. Hann hljóp beint til áhorfenda og gladdist með þeim - hér stekkur hann upp fyrir framan þá. lautað var til leiksloka" Morgunblaðið/Einar Faiur Ingólfsson mta og síðasta mark Anderlecht. að skora í leiknum. Ég vissi ekki fyrr en eftir leikinn hvort þeir sem voru næstir hefðu skorað, þannig að það var vissulega mikill léttir þegar ég skoraði. Og eftir á er það auðvitað æðislega gaman að hafa orðið markakóngur," sagði hann. Og hvemig var svo markið á laugar- daginn: „Eg skoraði með skalla eins og svo oft í vetur. Það kom sending á fjærstöngina, Kmcevic var þar og skallaði til baka fyrir markið þar sem ég kom inn í eyðu og skallaði í markið." Amór hefur mest skorað 7 mörk áður í belgísku deildar- keppninni á einu keppnistímabili, enda hefur hann hingað til leikið á miðjunni. „í vetur hef ég mest ver- ið á hægri kantinum og á miðjunni reyndar líka en fengið fijálsræði í sókninni og nýtt mér það.“ Þess má geta að Francois, sem var helsti keppinautur Arnórs um markakóngstignina, skoraði ekki um helgina og lauk því tímabilinu með 17 mörk. Jafn mörg mörk skor- aði svo einn leikmanna Lokeren, sem gerði tvö um helgina. Amór byrjaði keppnistaímabilið mjög vel og sagði það hafa verið mikilvægt. „Ég byijaði á þvi að skora strax í fyrsta leiknum í deild- inni í haust, það skipti mig miklu máli og sjálfstraustið óx svo jafnt og þétt í vetur.“ Anderlecht var með þriggja stiga forskot eftir fyrri umferðina. „En allt liðið datt svo niður í mars. Þá áttum við einmitt marga af mikil- vægustu leikjum vetrarins; í Evrópukeppninni, bikarkeppninni og mættum erfiðustu liðunum í deildinni. Þá voru landsleikir á dag- skrá og margir landsliðsmenn eru í liðinu. Það var okkar óheppni að liðið lék einmitt illa á þessum kafla. En við náðum að rífa okkur upp úr þessu - þó samt ekki nógu vel fyrr en nú í síðustu þremur eða fjór- um leikjum í deildinni fannst mér. Við náðum þó yfirleitt stigunum en spiluðum ekki eins vel og við eigum að geta fyrr en núna alveg undir lokin." 20. meístaratHill Andertectrt á 40 árum Þetta er 20. meistaratitill And- erlecht á siðustu 40 árum og þriðja árið í röð sem liðið verður meistari nú. Amór hefur verið hjá liðinu þessi þijú ár en sagði þennan titil skipta sig mestu máli þar sem hann hefði nú loks verið þátttakandi allan tímann sem unnið var að því að ná honum. „Þetta er mitt mest áber- andi keppnistímabil og mér fínnst ég eiga miklu stærri þátt í þessu en áður; þegar maður er meiddur er maður allt út undan á vissan hátt,“ sagði hann. Mikið hefur verið ritað um hugsan- leg félagaskipti Amórs að undanf- ömu; þar á meðal að vestur þýska félagið Köln hafí mikinn áhuga á að fá hann til sín. Hann vildi ekki segja néitt ákveðið um þessi mál að svo stöddu, sagðist fara út strax á fimmtudag og héldi þá viðræðum við forráðamenn Anderlecht. Hann staðfesti að hann hefði einnig rætt við forráðamenn Kölnar-liðsins og enn fleiri lið væm reyndar einnig inni í myndinni. Búningurinn rlfinn utan af Ar- nóHI Eins og Einar Falur Ingólfsson, ljós- myndari Mórgunblaðsins, sem var á leiknum í Antwerpen á laugardag- inn, lýsir hér á síðunni, vom fagnaðarlætin gífurleg eftir að leiknum lauk. Amór lýsti því þann- ig: „Fólk flykktist inn á völlinn um leið og leikurinn var búinn og áður en ég vissi af var búið að rífa utan af mér peysuna, sokkana og skóna! Ég stóð eftir á stuttbuxunum ein- um. Svo vom einhveijir sem ætluðu að rífa buxurnar utan af mér en mér tókst að koma í veg fyrir það og flýja inn í búningsklefa fyrir rest. Eg hefði verið glæsilegur ef þeir hefðu náð af mér buxunum, nakinn þarna úti á miðjum velli!!“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.