Morgunblaðið - 02.06.1987, Qupperneq 11
fttgygunftjjgftfo /IÞROTTIR ÞKŒXIUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
B 11
MAAAAARK
Boltinn í netinu - í 19. skipti í deildarkeppninni í vetur. Amór stekkur hátt í loft upp eftir að hafa skallað knöttinn í
markið hjá Mechelen án þess að markvörður liðsins fengi neitt við ráðið.
Einbeittur
Takkfyrir mig
Amór fagnaði innilega með áhangendum Anderlecht eftir að hann skoraði 19.
mark sitt á tímabilinu á laugardag. Hér sendir hann aðdáendum sínum koss....
nneisiarar
Lið Anderlecht, sem tryggði sér meistaratitilinn á laugardaginn. Arnór Guðjohn-
sen er lengst til vinstri í fremstu röð. Hinn þekkti Enzo Scifo, sem seldur hefur
verið til AC Mílanó á Italíu, er annar frá hægri í ffemri röðinni og við hlið
hans, lengst til hægri,
Aðdáendur Amórs
Það var glatt á hjalla hjá leikmönnum, forráðamönnum og áhangendum belgíska knatt-
spyrnufélagsins Anderlecht á laugardaginn er liðið tryggði sér belgíska meistaratitilinn í
20. sinn á 40 árum. Arnór Guðjohnsen hafði ekki síst ástæðu til að fagna því auk meist-
aratitilsins nældi hann í markakóngstitil deildarinnar. Einar Falur Ingólfsson, Ijósmyndari
Morgunblaðsins, var í Belgíu um helgina og fylgdist með Arnóri. Látum svo myndirnar á
síðunni tala...
Hinn nýkrýndi markakóngur belgísku 1. deildarinnar í knattspymu er einbeittur á svip; fljótur að líta upp þegar hann Þessir belgísku aðdáendur meistaranna voru mættir með íslenska fánann á
fær knöttinn, leitar að samheija eða brýtur sér leið sjálfur í gegnum vöm andstæðinganna. leikinn - og varla er nokkur í vafa til heiðurs hverjum fáninn er ætlaður.