Morgunblaðið - 05.06.1987, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
B 23
var fleira sem vakti athygli okkar
í búðinni en þessi egypsku og
afrísku áhrif.
Gamaldags hringir, iokkarog
hálsfestir héngu þarna upp á vegg
innan um krómaðar keðjur og
nútímalegar nælur. — Eruðþið
kannski farin að flytja inn erlenda
aettargripi? spurðum við í sakleysi
okkar. „Nei, ekki er það nú al-
veg,“ svaraði Guðfinna hlæjandi,
„þetta eru allt nýir gripir, þó þeir
virðist ævagamíir." — En svo við
snúum okkur aftur að frumskóg-
artískunni, kaupa konur á öllum
aldri þessa stóru skartgripi?
„Auðvita eru yngri konurnar al-
mennt hrifnari af þessu en hinar
eldri" viðurkenndi Guðfinna.
„Konur á miðjum aldri vilja venju-
lega fíngerðari hluti, en þetta er
þó ekki algilt. Það eru til konur á
öllum aldri, sem eru óhræddar við
Þrátt fyrir fornlegt útlit eru
þetta ekki ævafornir ættargrip-
ir heldur splunkunýtt skart frá
versluninni Messing.
að breyta til. Eina skiptingin, sem
ég hef orðið vör við er sú að yngri
konurnar virðast hrifnari af silfri,
þær eldri kjósa heldur gullið. En
„demantaralþýðumannsins",
blessaðar semalíurnar, eru hins-
vegar sígildar, nokkuð sem allar
konur kaupa, hvort sem þær eru
ungar eða fullorðnar," sagði Guð-
finna Svavarsdóttir.
„Skartgripatískan er
flókið fyrirbæri"
— f ullyrðir Sigurður G. Stein-
þórsson, gullsmíðameistari
„Já, skartgripatískan er
skemmtilega flókið fyrirbæri, svo
ekki sé nú meira sagt," sagði Sig-
urður G. Steinþórsson, gullsmíða-
meistari hjá Gulli og silfri, er hann
var inntur eftir skoðun sinni á
straumum og stefnum í greininni.
„Það má eiginlega segja að hún
breytist á svona 3ja—5 ára fresti,"
bætti hann við. „En orsakir breyt-
inganna eru oft æði langsóttar.
Fæstir gera sér t.d. grein fyrir því
að sennilega eru þeir Reagan og
Gorbatsjof einhverjir mestu
áhrifavaldar á skartgripasviðinu í
dag. Þeir geta gerbreytt verðinu
á gulli með einni eða tveimur
setningum og það hefur svo aftur
áhrif á alla skartgripahönnun og
sölu í heiminum. Ef gullið hækk-
ar, þá smækka gripirnir og öfugt.
Giftingarhringirnir eru eitt besta
dæmið um þetta. Meðan gullverð-
ið var hvað lægst hefðu þessir
örmjóu og fíngerðu hringir, sem
eru hvað vinsælastir í dag, þótt
ósköp aumingjalegir, bera vott
um lítil fjárráð, ef ekki bara fá-
tækt," sagði Sigurðurog brosti
út í annað. „Annars gildir það um
þessa tísku eins og alla aðra að
hún gengur í hringi. Þessu til
sönnunar get ég nefnt að hlutir
eins og skyrtuhnappar og bindis-
prjónar sem sáust varla í fjölda
ára eru nú aftur orðnir geysivin-
sælir."
— En nú hefur framleiðsla á
„gervi-skartgripum" aukist mjög.
Hefur þetta ekki komið niður á
sölugullsog silfurs?
„Nei, þófurðulegt sé, þá virðist
þetta gervigull vera hrein viðbót.
Eftirspurnin eftir vönduðum
skartgripum hefurekki minnkað,
þrátt fyrir allt. Ætli við séum ekki
bara glysgjarnari nú en áður, eig-
um meira af öllu," svavarði hann
oghló. — En er þá ekkert sem
mótarskartgripatískuna öðru
fremur í dag? „Jú, sennilega eru
demantar og perlur meira áber-
andi nú en oft áður," svaraði
Sigurður eftir svolitla umhugsun.
„Salan á þeim hefur aukist veru-
lega. Annars held ég að flestir,
konur sem og karlar, fylgi bara
sinni eigin stefnu í skartgripavali,
hafi fyrirfram mótaða skoðun á
hvað þeim finnst fallegt. Sumir
vilja jafnvel ná hughrifum sínum
fram í skartgripunum og til að
koma til móts við þá bjóðum við
t.d. upp á teikniþjónustu hérna.
Fólk getur látið okkur fá skissur
af hlutnum og við teiknum hann
upp, reynum að ná þvífram, sem
viðskiptavinurinn vill, það skiptir
nefnilega höfuðmáli að hann sé
ánægður þegar upp er staðið,"
sagði Sigurður G. Steinþórsson
að lokum.
Texti:
INGER ANNA AIKMAN
Hársnyrtistofan
Snyrtistofan
SALOON
RITZ
Laugavegi 66, 2.h
S: 22460 og 22622
Vantar þig faglegar
ráöleggingar?
Þá erum við ávallt
til reiðu.
Hárgreiðslu- og hárskerameistarar,
snyrtifræðingar og
fótaaðgerðameistari.
Höfum opið í aHt sumar.
Tískuföt
fyrir
stóra
„VERSLUNIN Manda tóktil starfa
fyrir tæpum tveim árum, en frá
því f september á sl. ári höfum
viö eingöngu verið meö kvenfatn-
að í yfirstæröum" segir María
Manda ívarsdóttir, eigandi versl-
unarinnar M. Möndu í Kjörgaröi.
María Manda segist hafa orðið
vör, hve erfitt það var fyrir stúlkur
og konur sem þurftu á yfirstærðum
að halda að fá á sig föt. „Ég fór
því smátt og smátt að panta inn
meira í yfirstærðum, og frá því í
september hef ég eingöngu verið
með fatnað í stærðunum 44-56,
en mesta salan er í númerum frá
48-52."
-Eru það konur á einhverjum
ákveðnum aldri sem koma til þín?
„Nei, það koma hingað ungar
stúlkur jafnt sem eldri konur. Við
verslum föt okkar aðallega inn frá
Frakklandi og Ítalíu, frá fyrirtækj-
um sem framleiða eingöngu föt í
yfirstærðum. Þá látum við einnig
sauma hluta af fatnaðinum hér
heima. Við reynum að bjóða upp
á tískufatnað, því konur hafa kvart-
að yfir því að hann hafi ekki fengist
í yfirstærðum fram að þessu."
- vj
J.S. HELGASON HF.
Draghálsi 4. Símar: 91-37450 & 91-35395.