Morgunblaðið - 05.06.1987, Side 28
es a
28 B
raei iwút ,g HUOAauTaö'? .oiaAjaMuo^oM
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
SJÓNVARP /ÚTVARP
L4UG4RD4GUR
6. júní
16.30 iþróttir
Umsjónarmaöur Bjarni Felixson.
18.05 Garðrækt
6. Tómatar og gúrkur.
Norskur myndaflokkur í tíu þáttum.
Þýðandi Jón O. Edwald. (Nordvision
— Norska sjónvarpið.)
18.30 Leyndardómar gullborganna
(Mysterious Cities of Gold). Fjórði
þáttur. Teiknimyndaflokkur um þrjú
börn og félaga þeirra í leit að gull-
borg i Suður-Ameriku á tímum
landvinninga Spánverja þar í álfu.
Þýðandi Sigurgeir Steingrímsson.
19.00 Litli prinsinn
Nýr, bandariskur teiknimyndaflokk-
ur gerður eftir þekktri barnasögu
eftir franska rithöfundinn og flug-
, manninnAntoinedeSaint-Exupéry.
! 19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Smellir — The The II
Umsjónarmenn: Skúli Helgason og
Snorri Már Skúlason.
20.00 Fréttir og veður
20.35 Lottó
20.40 Fyrirmyndarfaðir
(The Cosby Show). Lokaþáttur.
Bandarískur gamanmyndaflokkur
með Bill Cosþy í titilhlutverki. Þýð-
andi Guðni Kolbeinsson.
21.10 Kristinn Sigmundsson
Sjónvarpsþáttur um Kristin Sig-
mundsson óperusöngvara. Fylgst
er með Kristni við söng og undirbún-
ing og talað er við nokkra sam-
ferðamenn á lífsleið hans og
listabraut. Þátturinn er gerður í til-
efni af því að Kristinn verður fulltrúi
Sjónvarpsins í árlegri söngkeppni
ungra einsöngvara í Cardiff í Wales
síðar í þessum mánuði. Umsjón
Elísabet Þórisdóttir. Stjórn Tage
Ammendrup.
21.60 Hrafninn flýgur
Kvikmynd frá 1984 eftir Hrafn Gunn-
laugsson, ásamt forspjalh við leik-
stjórann. Aöalhlutverk: Jakob Þór
Einarsson, Edda Björgvinsdóttir,
Egill Ólafsson, Helgi Skúlason og
Flosi Ólafsson. Kvikmyndataka
Tony Forsberg.
Myndin gerist á víkingaöld og lýsir
því hvernig ungur (ri kemur fram
hefndum fyrir grimmdarverk sem
i íslendingar hafa unnið í heimkynn-
um hans.
23.60 Jamaíkakráin — Fyrri hluti
(Jamaica Inn). Ný, bresk sjónvarps-
mynd gerð eftir samnefndri skáld-
sögu eftir Daphne du Maurier sem
komiö hefur út á íslensku. Leik-
stjóri Lawrence Gordon Clark.
Aðalhlutverk: Jane Seymour, Patrick
McGoohan, Trevor Eve, John
McEnery, Billie Whitelaw og Peter
Vaughan.
Sagan gerist á öldinni sem leið. Ung
stúlka fær athvarf hjá skyldmennum
sem búa á eyðilegum stað úti við
hafið. Þar eru framin myrkraverk
sem söguhetjan fær veður af og
eftir það er líf hennar í hættu. Þýð-
andi Guðni Kolbeinsson. Síöari hluti
er á dagskrá á annan í hvítasunnu.
1.40 Dagskrárlok.
SUNNUD4GUR
Hvítasunnudagur
7. júní
14.15 Leöurblakan
(Die Fledermaus). Óperetta eftir Jo-
hann Strauss flutt í Ríkisóperunni i
Munchen á nýársdag. Bæverskur
kór og hljómsveit flytja ásamt ein-
söngvurum. Hljómsveitarstjóri
Carlos Kleiber. Leikstjóri Otto
Schenk. Aðalhlutverk: Pamela Co-
burn, Eberhard Wáchter, Brigitte
Fassbánder, Edita Gruberova og
Wolfgang Brendel.
Efni: Vinirnir Eisenstein óg dr. Falke,
uppnefndur Leðurblakan, fara á
dansleik hjá Orlovsky prinsi sem
þekktur er fyrir skemmtileg sam-
kvæmi. En Eisenstein veit ekki að
þetta kvöld ætlar vinur hans að
launa honum Ijótan grikk. Þýðandi
Óskar Ingimarsson. (Evróvisjón —
Þýska sjónvarpið.)
17.00 Hátíðarmessa í Grindavíkur-
kirkju. Séra Örn Bárður Jónsson
predikar.
18.00 Úr myndabókinni
57. þáttur. Umsjón: Agnes Johans-
en.
19.00 Fífldjarfir feðgar
(Crazy Like a Fox). Fimmti þáttur.
Bandarískur myndaflokkur í þrettán
þáttum. Aðalhlutverk Jack Warden
og John Rubinstein. Þýðandi Gauti
Kristmannsson.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá næstu viku
Kynningarþáttur um útvarps- og
sjónvarpsefni.
20.40 Trúarleg dægurtónlist
Umsjón: Bjarni Dagur Jónsson og
Gunnbjörg Óladóttir. stjórn: Sigurð-
ur Snæberg Jónsson.
21.25 Pye í leit að paradis
(Mr. Pye). Nýr flokkur. Fyrsti þáttur.
Breskur framhaldsmyndaflokkur í
fjórum þáttum geröur eftir skáld-
sögu eftir Mervyn Peake. Aðalhlut-
verk: Derek Jacobi og Judy Parfitt.
Sagan gerist á eynni Sark á Ermar-
sundi. Ey þessa hefur sérvitringur-
inn Harold Pye valið til að birta
eyjarskeggjum kærleiksboðskap
sinn og gera hana að sælustað á
jörðu. En margt fer ööruvísi en hann
ætlar. Þýóandi Kristmann Eiðsson.
22.15 Vígsluhátíð í Vínarborg
Sjónvarpsupptaka frá kvöldskemmt-
un við opnun nýrrar menningarmið-
stöövar 17. síðasta þessa mánaðar.
Þar komu fram St. Martin in the
Fields, Peter Alexander, ballett-
flokkur Vínaróperunnar og annar
dansflokkur til, Agnes Baltsa, Gil-
bert Becaud, José Carreras, Kór
alþjóðaskólans í Vín, Placido Dom-
ingo, Udo Jurgens, Jerry Lewis,
Barry Manilow, Alla Pugatskova,
Vínardrengjakórinn og Sinfóníu-
hljómsveit Vínarborgar. (Evróvisjón
— Austurríska sjónvarpið.)
00.50 Dagskrárlok.
AIMUD4GUR
Annar í hvítasunnu
8. júní
18.30 Hringekjan
(Storybreak). Sjöundi þáttur. Banda-
rískur teiknimyndaflokkur. Þýðandi
Óskar Ingimarsson. Sögumaöur
Valdimar um Flygenring.
18.66 Steinn Markó Pólós
(La Pietra di Marco Polo). Fjórði
þáttur. ítalskur myndaflokkur fyrir
börn og unglinga. Þýðandi Þuríður
Magnúsdóttir.
19.20 Fréttaágrip á táknmáli
19.25 (þróttir
Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Kvöld í Rauðu myllunni
(Femmes, femmes, femmes). (
þessum franska sjónvarpsþætti er
fylgst með skemmtiatriðum á leik-
sviði veitingahússins sögufræga,
Rauðu myllunnar í París. Eins og
hefðin býður setja fagrar konur
mestan svip á sýninguna, meðal
þeirra er söng- og dansmærin
Debbie de Coudreaux og að sjálf-
söðgu kan-kan-dansflokkurinn.
22.00 Jamaíkakráin — Síðari hluti.
(Jamaica Inn.)
Ný, bresk sjónvarpsmynd gerð eftir
samnefndri skáldsögu eftir Daphne
du Maurier sem komið hefur út á
íslensku. Leikstjóri Lawrence Gor-
don Clark. Aðalhlutverk: Jane
Seymour, Patrick McGoohan, Tre-
vor Eve, John McEnery, Billie
Whitelaw og Peter Vaughan.
Sagan gerist á öldinni sem leið. Ung
stúlka fær athvarf hjá skyldmennum
sem búa á eyðilegum stað úti við
hafið. Þar eru framin myrkraverk
sem söguhetjan fær veður af og
eftir það er líf hennar í hættu. Þýð-
andi Guðni Kolbeinsson.
23.40 Fegurðardrottning (slands 1987
Bein sending frá úrslitakeppni og
krýningu.
00.15 Dagskrárlok,
ÞRIÐJUDAGUR
9. júní
18.30 Villi spæta og vinir hans.
21. þáttur. Bandarískur teikni-
myndaflokkur. Þýðandi: Ragnar
Ólafsson.
18.55 Unglingarnir í hverfinu.
Annar þáttur. Kanadískur mynda-
flokkur í þrettán þáttum. Hér eru á
ferðinni gamlir kunningjar, Krakk-
arnir i hverfinu, sem nú eru búin
að slíta barnsskónum og komin í
unglingaskóla. Þýðandi: Gunnar
Þorsteinsson.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Poppkorn.
Umsjón: Guðmundur Bjarni Harðar-
son, Ragnar Halldórsson og Guðrún
Gunnarsdóttir. Samsetning: Jón
Egill Bergþórsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Vestræn veröld. (Triumph of the
West.)
Lokaþáttur: Framtíðin á næsta leik.
Heimildamyndaflokkur frá breska
sjónvarpinu (BBC). Umsjónarmað-
ur: John Roberts sagnfræðingur.
Þýðandi og þulur: Óskar Ingimars-
son.
21.36 Morðstundin. (Time for Murd-
er.)
Lokaþáttur — Þrettándinn. Breskt
sakamálaleikrit. Þýðandi: Jóhanna
Þráinsdóttir. Þátturinn er alls ekki
við barna hæfi.
22.25 Nýjasta tækni og vísindi.
Efni: Veðurspár í sjónvarpi, korta-
gerð, stöðlun og ný mynd um
rannsóknir í Laxeldisstöðinni í Kolla-
firði. Umsjón: Sigurður H. Richter.
23.00 Dagskrárlok,___________________
AHCNIKUDKGUR
10. júní
18.30 Úr myndabókinni.
Endursýndur þáttur frú 7. júní.
Umsjón: Agnes Johansen.
19.30 Hver á að ráða? (Who’s The
Boss?)
12. þáttur. Bandarískur gaman-
myndaflokkur um einstæðan föður
sem vinnur eldhússtörfin fyrir önn-
um kafna móður. Aðalhlutverk:
Tony Danza, Judith Light og Kather-
ine Helmond. Þýðandi: Ýrr Bertels-
dóttir.
20.00 Fréttir og veður.
20.40 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Spurt úr spjörunum.
Átjándi þáttur. Spyrlar: Ómar Ragn-
arsson/Kjartan Bjargmundsson.
Dómari: Baldur Hermannsson.
Stjórn upptöku: Ásthildur Kjartans-
dóttir.
21.15 Garðastræti 79 (79 Park
MICHAEL LAIUDON
SNÝR AFTUR
Af nokkrum nýjum þáttum á Stöð 2
Michael Landon á Miklubrautinni.
Michael Landon, dýrlingur-
inn úr sunnudagsþáttunum
Húsið á sléttunni, er aftur kom-
inn í sjónvarpiö og í þetta sinn
er hann engill. Nýjustu þættirn-
ir hans eru nú sýndir á Stöð
2, heita Miklabraut (Highway
to Heaven) og í þeim leikur
hann engilinn Jonathan Smith,
sem sendur hefur verið á jörð-
ina til að sýna verðleika sína
og væntanlega sanna að hann
eigi fullan rétt á himnaríkisvist.
Eða eins og hann segir sjálfur:
„Stjóri sendir mig að hjálpa
fólki á ýmsum stöðum."
Þættir Landons eru hluti af
margskonar nýmeti sem Stöð
2 hefur nýlga tekið til sýninga
eða er að taka til sýninga þessa
dagana. Þáttur Landons er einn
af fjórum nýjum framhalds-
þáttum. Hinir þrír eru: Dagar
og nætur Molly Dodd (The Da-
ys and Nights of Molly Dodd),
Dagbók Lyttons (Lytton’s
Diary) og Flugumenn (I Spy).
Að auki mun Stöð 2 sýna þætti
Lucille Ball vikulega í sumar.
„Molly Dodd" er gaman-
myndaflokkur og fer Blair
Brown með titilhlutverkið í hon-
um. Dodd vinnur á fasteigna-
sölu. Mamma hennar botnar
ekkert í hinum hraða New
York-stíl dóttur sinnar, lyftu-
vörðurinn í húsi Dodd hatar
Ijóðin hennar svona eins mikið
og hún hatar lyftustjórnina
hans og yfirmaðurinn hennar
er fyrrum elskhugi sem langar
til að drepa sig. Dodd er skilin
við eiginmann sinn en hann er
sífellt að heimsækja hana. Flor-
ence mamma hennar finnur
litla gleði í þeirri staðreynd að
dóttir hennar vill ekki giftast
aftur eða eignast börn; lyftu-
Peter Bowles í Dagbók Lyttons.
vörðurinn Davey hefur enga
formlega þjálfun fengið í þeirri
list að stjórna lyftu og fólk þarf
ýmist að klifra uppúr lyftunni
hans eða hoppa oní hana og
þrátt fyrir sjálfsmorðshótanir
frá yfirmanninum sínum á skrif-
stofunni er Dodd ákveðin í því
að láta hann sigla sinn sjó.
Sumsé, amerískir gamanþætt-
ir.
Það má vera að fóik eigi í
erfiðleikum með að ímynda sér
Bill Fyrirmyndarföður Cosby í
leyniþjónustuleik með byssu í
hönd eða i karate- og júdóstell-
ingum. En vegir sjónvarpsins
eru órannsakanlegir. Flugu-
menn eru meira en tuttugu ára
gamlir spennuþættir með Cos-
by og Robert Culp í aöalhlut-
verkum en í þeim leika þeir
leyniþjónustumenn í gerfi tenn-
isleikara (Culp) og þjálfara hans
(Cosby), sem ferðast um heim-
inn og lenda í ýmsum ævintýr-
um. Leikurinn berst víða, til
Indlands og Japan, Ástralíu og
Evrópu, en í kynningu með
þáttunum er tekið fram að
Flugumenn séu fyrstu hasar-
þættirnir fyrir sjónvarp sem
teknir eru á tökustöðum í þeim
löndum sem þeir gerast í en
ekki í upptökuverum.
Og að lokum er það Dagbók
Lyttons. Það eru spennuþættir
sem gerast í breska blaðaheim-
inum og með aðalhlutverkið fer
annar góðkunningi úr sjón-
varpinu, nefnilega Peter
Bowles sem lék herragarðs-
eigandann í gamanþáttunum
Ættaróðalið.
í þetta sinn leikur hann Ne-
vill Lytton, slúðurdálkahöfund á
Fleet Street, sem fremstur er
á meðal jafningja í að bera slúð-
ur til fólksins. Hann er því
hataður og dáður í senn en
hann lendir í vondum málum
þegar í Ijós kemur að einhver
safaríkasta slúðursagan hans
til þessa er lygi frá rótum. Lög-
sókn fylgir í kjölfarið og er staða
Lyttons og orðstír í veði. Til að
bjarga sér leitar hann uppi
heimildarmenn sína og kemst
að því að hann var sjálfur fórn-
arlamb samsæris en spurning-
in er hvort hægt sé að birta
sannleikann, eins og segir í
dagskrárkynningu.