Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 3
/ÍÞRÓTTIR MWVnOJDAGUR 10. JÚNÍ 1987 C 3 HREYSTl Hvað er á döfinni fyrir skokkara í sumar? Víðavangs- og götuhlaupaskrá FRÍ kemur út tvisvar á ári. Skokkskóli Trimmnefiidar ÍSÍ heldur áfram í júní. Flestir skokkarar hafa gam- an af þvi að hlaupa með öðrum og sumir taka þátt í keppni öðru hvoru. Það er oft erfítt að fylgjast með því sem er á döfmni í skokki og hlaup- um, því að trimm fær mun minna rými í fjölmiðlum en keppnisíþróttir. Frjálsíþróttasam- band Islands lætur gefa út Víðavangs- og Götuhlaupaskrá. Síðasta skrá var send út í janúar 1987 og segir frá hlaupum, tímabilið janúar—ágúst 1987. Næsta skrá kemur líklega út í septem- ber. Þessar skrár má_ fá á skrifstofu FRÍ í íþróttamið- stöðinni í Laugardal í Reykjavík (Pósthólf 1099, 121 Rvík, símar 91-83386 og 83686). Hlaupin eru öllum opin, hvort sem þeir eru meðlimir í íþróttafélagi eða ekki. Vega- lengdir eru frá 2 km upp í 42,2 km. í flestum hlaupanna eru veitt verðlaun í mörgum aldurs- flokkum karla og kvenna og stundum ýmis konar aukaverð- laun. íþróttamenn í öðrum greinum, t.d. sundmenn og skíðamenn, taka oft þátt í hlaup- um til að halda sér í þjálfun meðan keppni í þeirra aðalgrein liggur niðri, en það má endur- taka að hlaupin eru öllum opin. Álafosshlaup FRÍ þann 17. júní er fyrsta hlaupið á sumar- skránni. Hlaupið er frá Kaup- félaginu í Mosfellssveit meðfram Vesturlandsvegi niður að Höfða- bakka, síðan Bíldshöfða, Eiliða- vog, Hoitaveg og Engjaveg inn á Laugardalsvöll. Þetta hlaup er um 13 km langt og er ágætt fyrir nokkuð vana skokkara. Olympíuhlaup verður haldið laugardag 20. júní, en það er ekki á skránni. Þetta er 10 km langt hlaup og skokk ætlað fyr- óvanir geta gengið, skokkað eða hlaupið hluta af leiðinni. Að hlaupinu loknu er gott að fara í sund eða gufubað á Laugar- vatni til að liðka þreytta og stirða vöðva. Slgur Mesti sigurinn er að Ijúka keppni hress og ómeidd- ur. Reykjavíkur-maraþon er næst á skránni, sunnudaginn 23. ágúst. Það var haldið í fyrsta sinn 1984 og þá mættu til leiks um 250 manns. Þátttakendum hefur síðan farið stöðugt fjölgandi og í sumar er búist við meira en 1000 manns. Hægt er að velja milli þriggja vegaiengda. Heiit maraþon 42,2 km er einungis fyrir vel þjálfaða hiaupara og skokkara; hálft maraþon 21,1 km er hæfilegt fyrir mjög vana hlaupara og skokkara, en stysta hlaupið 7 km getur hentað öllum þeim, sem skokka og hlaupa reglulega. Það er gaman að taka þátt í slíku fjöldahlaupi og „keppa“ við sjálfan sig og aðra. Gaman er að fá viðurkenningu að hlaupi loknu, en mesti sigur- inn er að ljúka hlaupi hress og ómeiddur. Skokkskóli. Trimmnefnd ÍSÍ hefur fengið vanan hlaupara og skokkara, til að leiðbeina skokk- urum í nokkur skipti fyrir trimmhelgina 20.—21. júní nk. Þessir skokktfmar hófust fimmtudaginn 4. júní. Þeir eru ætlaðir þeim sem eru óvanir eða 'Hveraveilir 2 ~ F Gulifoss 93 ir almenning og hefst við íþróttaleikvanginn í Laugardal. Veglegar viðurkenningar verða veittar 1000 fyrstu hlaupurun- um. Bláskógaskokk HSK sunnudag- inn 6. júlí. Hlaupið hefst við Gjábakka austan Þingvalla- vatns. Vegalengdin er um 16 km. Leiðin liggur um hóla og hæðir, akveginn yfir Lyngdals- heiði til Laugarvatns. Þetta er skemmtilegt hlaup í fögru um- hverfí, en það er ekki nema fyrir nokkuð vana skokkara að hlaupa alla leið. Þeir sem eru lítið vanir skokki. Stuðst verður við skokkbækling trimmnefndar ÍSÍ hvað varðar upphitun, skokk, göngu og teygjuæfíngar. Næstu tímar veða á leikvangin- um í Laugardal kl. 19, fimmtu- dag 11. júní, mánudag 15. og fimmtudag 18. júní. Fóik þarf að mæta í léttum og skjólgóðum fötum, í skokkskóm og hafa sumarskapið meðferðis. Sumir taka sundföt með og fara í sund- laug eða heitan pott á eftir. Jóhann Heiðar Jóhannsson. If IR|IÁTO|IH| Annar hluti íþróttagetraunar Morgunblaðsins í júnímánuði birtist hér í blaðinu í dag, en fyrstu stafimir í réttum svörum við spumingunum hér mynda annað lausnarorðið í setningunni sem beðið er um að þessu sinni. Þriðja orðið myndast svo að viku liðinni og verður þá lausnarsetningin komin heim og saman. Þegar allir þrír hlutar júnígetraunar hafa birst 16. júní hafa þátttakendur svo viku skilafrest, eða til dagsins 23. júní, en að kvöldi hans verða allar lausnir að hafa borist og er því vissara fyrir þátttakendur að vera snemma í því að senda svarðseðla sína til Morgunblaðsins í umslagi merktu: 1. íslendingur vann bronsverðlaun í júdó á Ólympíuleikunum 1984. Hvað heitir hann? Swar- Fgi-PRÍKSZO** wwaa ■ icu <■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■«■■■■*•■■••■■■■■■■■ 2. Með hvaða enska knattspyrnuliði leikur ian Rush? Svar* 0 XKFfc wwaa ■ I----1 ■■ n ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■ 3. Frá hvaða stað kemur Ragnheiður Runólfsdóttir, margfaldur íslandsmeistari í sundi? ^ Swar: 1(17,1 .................................... 4. Hvaða íslendingur leikur með þýska handknattleiksliðinu Gumm- ersbach? Svar: É ............... íþróttagetraun Morgunblaðsins, Morgunblaðið, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík. Að þessu sinni er keppt um samskonar verðlaun og veitt vom þremur heppnum þátttakendum í maígetrauninni, en þá hlaut Sigurður Samúelsson, 14 ára ísfirðingur, aðalverðlaun sem eru ferð til Englands í ágúst og þar á léik Englandsmeistara og ensku bikarmeistaranna í knattspymu um Góðgerðarskjöldinn. Nafn Sigurðar kom fyrst upp þegar dregið var úr réttum lausnum, en þau tvö næstu voru nöfn þeirra Gústafs Eli Teitssonar, 14 ára Reykvíkings, og ívars Arnar Benediktssonar, 9 ára pilts frá Akranesi, og hlutu þeir, ásamt Sigurði, að launum íþróttagalla og íþróttatöskur frá Henson, Morgunblaðsbol og Morgunblaðsklukku. Það eru því vegleg verðlaun sem bíða þeirra þriggja þátttakenda, sem þann 24. júní verða dregnir úr réttum svörum, og umslagið sem þar kemur fyrst mun innihalda nafn þess stráks eða þeirrar stelpu, sem verður samferða Sigurði Samúelssyni í ævintýraferðina til Englands. Hver þriðji ferðafélaginn verður kemur svo í ljós að lokinni síðustu getrauninni í júlímánuði. --------------------------------------------------------------_>g------------------ JÚNÍGETRAUN 1 ■ Hver á íslandsmetið í spjótkasti karla? Svar 2. Fyrir hvað stendur skammstöfunin FH? Svari 3. Hvað nefnist golfvöllur Golfklúbbs Suðurnesja? Svar: □............................................... ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ 4. Hvaða alþingismaður leikur í 1. deild karla í knattspyrnu í sumar? Svar: □.......................................................... ■■■■■■■■■■■■■■ 5. Hvað heitir Ungmennafélagið á Árskógsströnd? Svar: EZI....................................................................... Lausnarorð: .................................................................... Nafn: ........................................................................... Heimili: ........................................................................ Sími: ............................................ Aldur: ....................... Munið að senda ekki svörin fyrr en allir þrír hlutar júnígetraunar hafa birst 16. júní. Skilafrestur er til 23. júní.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.