Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 8
s c JH*r0tmJ>Io!>it> /ÍÞRÓTTIR MWVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987 + KNATTSPYRNA / 2. DEILD ÍBÍ - Leiftur 1:2 Leiftur gerði góða ferð til Isafjarðar LEIFTUR sigraði ÍBÍ, 2:1, á grasvellinum á ísafirði í 2. deild karla á laugardaginn. ísfirðing- ar sitja nú einir í neðsta sœti deildarinnar eftir fjórar um- ferðir. Heimamenn urðu fyrir miklu áfalli fyrir leikinn er tveir fastamenn liðsins, Benedikt Einars- son og Ólafur Petersen, meiddust { upphitun og gátu Amór ekki tekið þátt í lein- Jónatansson Um. Þriðji ísfírðing- s[krí^i!rð urinn, Guðmundur tsahrð! Gíslason, varð einn- ig að fara útaf meiddur eftir 20 mínútna leik. Það má því segja að liðið hafí riðlast verulega við þetta og aldrei náð sér á strik. Leiftur skoraði fyrsta markið á 35. mínútu. Róbert Gunnarsson skoraði úr miðjum vítateig eftir að mark- vörður ísfírðinga hafði slegið boltann út eftir skot fyrir utan og þannig var staðan í hálfleik. Gestimir bættu öðru marki við á 81. mínútu. Hafsteinn Jakobsson gerði það með skalla eftir hom- spymu. Fimm mínútum síðar minnkaði Oddur Jónsson muninn fyrir heimamenn er hann skoraði af stuttu færi eftir sendingu frá Kristni Kristjánssjmi. Leikurinn var ekki góður. Þóf- kenndur og lítið um samleik. Leftursmenn vom meira með knött- inn en náðu ekki að skapa sér mörg færi. Þeir áttu þó skot í stöng í upphafí leiksins. Robert Gunnars- son var besti leikmaður þeirra. Óskar Ingimundarson var góður framan af og eins var Þorvaldur ömggur í markinu. Hjá ísfírðingum var Kristinn Kristjánsson skástur. Maður leiksins: Róbert Gunnarsson. Einherji - Þróttur 2:1 Einhevji í öðru sæti Einheiji sigraði Þrótt Reykjavík með tveimur mörkum gegn einu í 2. deild á Vopnafirði á laugar- daginn. Með sigrinum færðist Einheiji upp í 2. sæti deildarinnar. Leikurinn fór nokk- uð jafnt af stað. En fljótlega varð ljóst að bæði liðin ætiuðu sér sigur í þessum leik. Það var svo á 29. Bjöm Bjömsson skrifarfrá Vopnafirði mínútu að Einheiji komst yfír með marki Eiríks Sverrisson, sem skor- aði með skalla af stuttu færi. Sigurður Halivarðsson jafnaði síðan fyrir Þrótt á 36. mínútu með skoti úr þvögu. Staðan 1:1 í hálfleik. Sfðari hálfleikur einkenndist af töluverðri hörku beggja liða. Á 55. mínútu skoraði Baldur Kjartansson fallegt mark fyrir heimamenn. Hann skoraði eftir fyrirgjöf frá Við- ari Siguijónssyni. Þróttarar reynu síðan allt hvað þeir gátu til að jafna, en máttu sín lítils gegn staðföstu liði Einheija sem átti heldur auðvelt með að veija þetta forskot og vann með tveimur mörkum gegn einu. Sigurður Hallvarðsson var besti leikmaður Þróttar, en hjá Einheija var Baldur Kjartansson bestur. Maður leiksins: Baldur Kjartansson. 4. DEILD Hvatarmenn á á sigurforaut Markaregn í Kópavoginum Hvatberar hafa staðið sig vel í 4. deild. Þeir hafa vakið athygli fyrir fum- lega búninga. ÞAÐ VAR sannarlega marka- hátíð í Kópavoginum er Augnablik og Armann mætt- ust. Augnablikið færði Ár- menningum vænan lúðubita fyrir leikinn, en skoraði síðan þrjú mörk án þess að Ármenn- ingum tækist að svara fyrir sig. Leit þvf út fyrir stórsigur Kópa- vogsbúa en Ármenningar gáfust ekki upp og náðu að jafna leikinn. í riðlinum gerðu Stokkseyri og Grundarfjörður jafntefli, 1:1. m Ib-riðli lögðu Hvatberar Víking frá Ólafsfirði 2:0 og gerði Jóhann Armannsson bæði mörk þeirra Hvatbera. Grótta er efst í riðlinum tgmKKKMM eftir 1:4 sigur á Andrés Reyni H. í c-riðli Pétursson lögðu ungmennafé- skrifar lagsdrengimir úr Víkveija Snæfell 3:2 í jöfnum og spennandi leik. Hvera- gerði heldur áfram á sigurbraut og nú urðu Léttismenn fyrir barðinu á þeim, 0:2. Mörk þeirra Hvergerð- inga gerðu Kristján Theodórsson og Ólafur Jósefsson. Á Hólmavík lögðu Bólvíkingar heimamenn 0:3 og gerði Jóhann Ævarsson öll mörkin. Á Bíldudal áttu heimamenn ágætan leik en það dugði ekki gegn^Hnífsdælingum og töpuðu þeir 1:3. í e-riðli lagði UMFS Kormák í miklum markaleik 7:2. Þjálfari UMFS, Garðar Jónsson, gerði 4 mörk í leiknum en Tómas Viðarsson, Birgir Össurarson og Bjöm Friðþjófsson sáu um hin þijú. Mark Kormáks gerði Bjarki Har- aldsson en eitt var sjálfsmark. Hvöt hélt áfram sigurgöngu sinni og sigraði Árroðann örugglega 4:0. Óll mörkin komu í fyrri hálfleik og jafnaðist þá leikurinn, en á þessum úrslitum sést að þeir verða sterkir í sumar. í f-riðli sigraði Æskan Vask 6:1 en ieik Austra frá Raufarhöfn og HSÞ var frestað til 16. júní. A Austfjörðum sigraði Leiknir F. Hött 1:0 í baráttuleik. Knattspyman sem boðið var upp á var ekki upp á marga físka en þeim mun meiri barátta. Það var Sigurður Einars- son sem skoraði fyrir Leikni. Hrafnkell sigraði Súiuna í miklum markaleik. Þeir Hrafnkelsmenn sýndu mikla samstöðu og skiptu mörkunum bróðurlega á milli fímm manna: Jóns Jónassonar, Sigurðar Péturssonar, Alberts Jenssonar, Ríkharðs Garðarssonar og Ingólfs Amarssonar. Súlan lét hins vegar Jónas Ólafsson sjá um bæði mörk sfn. Á Seyðisfirði sigraði Huginn Val Rf. 4:1 í góðum leik. Gott spil sást hjá Seyðfirðingum og ef þeir halda þannig áfram ættu þeir góðan möguleika á að komast aftur upp f 3. deild. Valdimar Júlíusson og Sveinbjöm Jóhannsson skoruðu báðir tvö mörk fyrir heimamenn en Lúðvík Vignisson minnkaði muninn fyrir Val. STJARNAN tapaði óvænt fyrir Njarðvfk, 0:2, á heimavelli sinum í Garðabænum. Þetta var sanngjarn sigur hjá Njarðvíkingum, en Stjörnu- menn virtust eitthvað utan- átta. Það voru þeir Jón lafsson og Trausti Hafsteins- son sem sáu um mörkin. Fylkir styrkti stöðu sína á toppi deild- arinnar með góðum sigri í Grindavík. Lítil knattspyrna sást í leiknum, en þeim mun meiri barátta. Dómari leiksins þurfti að gefa tveimur leik- mönnum rautt spjald og var mikið um pústra þar fyrir utan. Annað óvænt tap á heimavelli gerðist í Sandgerði en þar töp- uðu heimamenn fyrir Aftureldingu 0:3. Þetta var sanngjam sigur hjá ■Bl Mosfellingum og Andrés sést á þessum sigri Pétursson að þeir eru til alls skri(ar lfklegir í deildinni í sumar. Þeir Óskar Óskarsson, Einar Guðmundsson og gamla brýnið Ríkharð Jónsson sáu um að sigurinn lenti þeirra megin. ÍK lagði Skallagrím með mörkum Harðar Sigurðssonar og Steindórs Elíssonar. í leik nýliðanna Hauka og Leiknis R. náðu Breiðhyltingar leik. Það var fyrirliði Leiknis, Atli Þór Þorvaldsson, sem skoraði sigur- markið 5 mínútum fyrir leikslok. í B-riðli fór fram heil umferð. Tindastóll lagði Sindra 0:2 á úti- velli í sanngjömum sigri. Markvörð- ur Tindastóls, Gísli Sigurðsson, sýndi stórgóðan leik og kom í veg fyrir að Sindramenn næðu að minnka muninn. Á Neskaupstað lagði Þróttur Reyni frá Árskógsströnd 4:1. Það bar helst til tíðinda að illa gekk að fá dómara á leikinn og þurfti að bíða eftir dómaranum frá leiknum á Eskifírði. Þetta er að sjálfsögðu ekki gott til afspumar og er von- andi að slíkt komi ekki fyrir aftur. Annars var sigur Þróttar öruggur eins og sést á tölunum og sáu þeir Eysteinn Kristinsson, Gestur Magnason, 2, og Ólafur Viggósson um mörkin en Heimir Bragason skoraði fyrir Reyni. Á Eskifírði gerðu Austri og Magni jafntefli, 1:1. Magnamenn virkuðu í betra formi en náðu ekki að knýja fram sigur. Mark Austra gerði Bogi Bogason en Eymundur Eymunds- son skoraði fyrir Magna. FRJALSAR / HASTOKK Sjöberg stökk 2,36 m Patrik Sjöberg frá Svíþjóð náði besta árangri sem náðst hefur í heiminum í ár er hann stökk 2,36 m í hástökki á móti í Eberstadt í Vestur-Þýskalandi um helgina. Heimsmetið í hástökki 2,41 m á Sovétmaðurinn, Igor Paklin. Sjö- berg á heimsmetið í hástökki innanhúss, 2,32 metrar. Hann fór yfír þá hæð í fyrstu tilraun áður en hann lét hækka í 2,36 metra. Þorvaldur Jónsson, markvörður Leifturs, hefur staðið sig vel það sem af er íslandsmótini í 2. deild. Lið hans er nú í 4. sæti eftir fjórar umferðir. Njarðvík vann Stjömuna 3. DEILD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.