Morgunblaðið - 10.06.1987, Side 9
/ÍÞRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
C 9
„SVFR býður nú
upp á ódýr veiðileyfi
við allra hæfi“
- segir formaðurinn Jón G
Á SÍÐASTA aðalfundi Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur var
gerð dulítil uppstokkun. For-
maðurinn, Ólafur G. Karlsson,
gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs og var varaformaðurinn,
Jón G. Baldvinsson, einróma
kjörinn til að taka við sœtinu.
Þá kom nýr maður inn í emb-
œtti varaformanns, Friðrik Þ.
Stefánsson, og trúlega eru
þeir Jón og Friðrik yngsta
formannapar SVFR frá upp-
hafi. Það þótti eigi ótilhlýði-
legt að hitta Jón að máli í
tilefni embættistöku hans,
einkum vegna þess kannski,
að nýir straumar eru farnir
að leika um heim stangveið-
innar hér á landi, mikil
vakning er meðal þjóðarinnar
um ágæti sportsins, en hátt
verð laxveiðileyfa stoppar
hins vegar marga af. Jón svar-
ar hór á eftir ýmsum spurn-
ingum m.a. um hvað SVFR
er að gera, ætlar að gera til
að koma til móts við nýja og
breytta eftirspurn: Eftir sil-
ungsveiði og laxveiði í ódýrari
kantinum þar sem útivistin
er í fyrirrúmi, góð von er á
laxi án þess að fjárhagur
neytenda verði lagður í rúst.
Jón: „Eins og komið hefur fram,
þá var samþykkt einróma til-
laga frá Rafni Hafnfjörð á aðal-
fundinum þess eðlis að SVFR
reyndi að ná í leigu
boðlegri silung-
sveiði með góðri
aðstöðu fyrir þá
sem veiðileyfí
keyptu. Það var
strax farið að
vinna í þessu enda lögð áhersla á
að koma einhveiju slíku í gagnið
fyrir sumarið. Þá var það að
S VFR tók á leigu alla veiði í Geita-
bergsvatni í Svínadal fyrir ofan
Hvalfjörð, einnig eina stöng í
Þverá í Svínadal, en hún rennur
úr Geitabergsvatni til Þórisstaða-
vatns. Laxastönginni í Þverá
fylgja tvær silungsveiðistangir í
vatninu og afnot af veiðihúsi sem
félagið keypti á staðnum. Þannig
var, að veiðifélagið Straumar var
með þetta í leigu, en félagar
Strauma eru margir eða flestir
félagar í SVFR og þegar þessu
máli var ýtt úr vör komu þeir til
okkar og buðu okkur að ganga
inn í tíu ára leigusamning sem
þeir höfðu gert. Þama sýndu
Straumamenn mikla félagsholl-
ustu.“
Þess má geta; að mikið er af físki
í Geitabergsvatni, urmull af smá-
silungi og vænir fískar í bland og
geta einstaklingar orðið býsna
stórir. Síðustu sumur hafa veiðst
allt að 8-9 punda silungar í vatn-
inu, en allur þorrinn er auðvitað
miklu smærri eins og gengur. Þá
veiðast ævinlega síðsumars þar
nokkrir laxar. Þverá er vatnslítil,
en getur orðið að all stæðilegum
læk í vætutíð, jafnvel smáá. Við
slík skilyrði vill laxinn frekar
halda til í læknum en f vatninu,
enda straumsækinn fískur. Þá
getur verið gott til fanga þama
og oftast er það þannig, aið um
jafna veiði er ekki að ræða, en
einstaka menn vinna happdrættis-
vinning. Mörg dæmi eru um að
menn hafí dregið laxa upp í
tveggja stafa tölur á einum degi
í Þverá og það laxa allt að 20
pundum. I fyrra veiddust þama
eitthvað um 40 laxar sem var
þrælgott miðað við úrkomuleysi
og af þeim sökum hreina vöntun
á þeim skilyrðum sem þama þykja
best.
Þetta var útúrdúr blaðamanns,
en þess má geta, að veiðileyfí í
þessa verstöð em hræódýr miðað
við það sem nú tíðkast. En hvað
meira, Jón Baldvinsson?
„Já, við erum búnir að ná tíu
daga úthaldi í Veiðivötnum á
Landmannaafrétti, 10 stöngum
og afnot af þremur sumarhúsum
Baldvinsson
sem standa við Ijaldvatn. Þetta
er mikil veiðiparadís og silungur
rokvænn. Víst er að þessi leyfí
eiga eftir að seljast vel, en það
veiddust allt að 14 punda urriðar
í Veiðivötnum í fyrra og heildar-
veiði var með besta móti."
Var ekki eitthvað rætt um
ódýra en þó boðlega laxveiði? „Jú
og við höfum nú tekið á leigu
svæði í Hvítá í Ámessýslu fyrir
löndum Kiðjabergs og Hests.
Þama hefur til þessa einungis
verið höfð netaveiði og það með
góðum árangri. En það er engin
reynsla komin á þetta sem lax-
veiðisvæði og óvíst hvort þama
veiðist umferðarfiskur eða lax
sem leggst þama og heldur til.
Við emm mjög bjartsýnir á að
þama sé ekki einungis að hafa
göngulax, landeigendur hafa sagt
okkur að á minnsta kosti einum
stað stökkvi laxinn mikið og það
bendir eins og veiðimenn vita
fremur til þess að þá sé legulax.
Þá er stór hluti þessa 5-6 kíló-
metra svæðis ókannaður bæði
með net og stöng. Þetta veiði-
svæði er á hóflegu verði, veitt er
á fjórar stangir og veiðimenn fá
inni í eyðibýli á staðnum. Það er
dálítið frumstætt enn sem komið
er, en stendur til bóta. Þama er
laxinn oft mjög stór og við höfum
fregnað að á þessum slóðum sé
mjög svipuð aðstaða og á næsta
veiðisvæði fyrir ofan, hjá Gísla-
stöðum. Þar hefur verið veitt með
einni stöng og veiði verið góð, vel
á annað hundrað laxar í fyrra og
slatti af þeim laxi alvöru stórlax,
20 pund og meira.“
Fleiri svæði? „Ekki sem stend-
ur, en auðvitað eram við sífellt
að líta í kringum okkur en við
verðum að feta okkur áfram var-
lega og varast að láta ekki nota
okkur til þess eins að sprengja
upp verð á einstökum ám, en slíkt
hefur borið við. Við höfum á hinn
bóginn einbeitt okkur að því að
bæta aðstöðuna við rótgrónu stað-
ina okkar, þannig höfum við
nýlokið við að setja niður merki
við alla veiðistaði Norðurár í
Borgarfirði og unnið er að því að
koma upp leiðbeiningum um vega-
kerfíð til veiðistaða í Elliðaánum,
en það er vægast sagt flókið mál
fyrir marga að rata þar um, enda
alltaf verið að brejrta vegum eða
loka á þessum slóðum. Svo má
ekki gleyma öðra í sambandi við
Norðurá. Við höfum ákveðið að
lækka fæðiskostnað um helming
eftir 15. ágúst og er það gert til
að gefa fleiram kost á að veiða í
ánni, gjarnan fólki sem vildi frek-
ar fara í Norðurá en þarf að halda
fast um budduna. Ef tveir fara
saman myndu þannig sparast
9.000 krónur."
Að lokum, er hægt að fá ein-
hver veiðileyfí ennþá?
„Ég er að vísu aðeins með lista
yfír það sem var fáanlegt 1. maí
síðastliðinn, en eftir að veiðin
byijaði fór strax að hreyfast salan
aftur. En miðað við þennan lista
var enn hægt að fá leyfi í ám
eins og Norðurá, Leirvogsá,
Stóra-Laxá, Ásgarðs-, Bfldfells-
og Syðri-Brúarveiðum í Soginu,
Gljúfurá, Miðá í Dölum, Laugar-
bakkasvæðinu í Ölfusá, Snæfoks-
staðasvæðinu í Hvítá, Langá á
Mýram, Blöndu o.fl., að ógleymd-
um auðvitað nýju svæðunum,
Kiðjabergi í Hvítá og Geitabergs-
vatni og Þverá í Svínadal."
Formenn á góðri stund
Nýkjörinn formaður, Jón G. Baidvinsson, t.h. og fráfarandi formaður, Ólaf-
ur G. Karlsson, á góðri stund i opnun I Norðurá.
Veiði
Guðmundur
Guðjónsson
skrifar
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Bird fór á kostum
og Boston vann Lakers
Larry Bird fór á kostum í þriðja úrslitaleiknum í NBA-deildinni um helgina og
var aðalmaðurinn á bak við sigur Boston gegn Lakers. Staðan í einvíginu er
nú 2-1 fyrir Lakers og tveir næstu leikir verða leiknir í Boston og verður fróð-
legt að fylgjast með þeim.
Boston náði að
stöðva sigur-
göngu Lakers
BOSTON Celtics tókst það
ótrúlega og sigraði Los Ange-
les Lakers, 109:103, íBoston
Garden f úrslitum NBA á laug-
ardaginn. Þetta var þriðji leikur
þessara liða, en Lakers vann
tvo fyrstu leikina með nokkrum
yfirburðum. Með þessum sigri
gera leikmenn Boston sár von-
ir um að hljóta „heimsmeist-
aratitilinn“ f 17. sinn. En það
lið sem fyrr vinnur fjóra leiki
stendur uppi sem sigurvegari.
Boston hefur verið mjög sterkt
á heimavelli og hefur aðeins
tapað þremur leikjum þar í tvö ár.
Næstu tveir leikir fara fram á
■■■■■■ heimavelli þeirra,
Frá Gunnari Boston Garden.
Valgeirssyni i Lakers byrjaði betur
Bandarikjunum og hafði 29:22 ^
eftir fyrsta leik-
hluta. í öðram leikhluta náði Boston
mjög góðum leik og náði þá 80
prósent skotnýtingu og komst yfír
60:56 í hálfleik.
Boston hélt uppteknum hætti í
þriðja leikhluta og hafði 13 stiga
forskot eftir hann, 87:74. í íj'órða
leikhluta leiddi Boston með 8 til 10
stigum þar til 3 mínútur vora eftir
að Lakers náði að minnka muninn
í 5 stig, 104:99. Þá tók Boston leik-
hlé og hélt síðan forskotinu út
leikinn.
Larry Bird var bestur í liði Boston
og skoraði 30 stig. Bakvörðurinn,
Dennis Johnson, kom næstur með
26 stig. Gamla kempan Kareem
Abdul Jabbar var stigahæstur hjá
Lakers með 32 stig. Magic Johnson
gerði 27 stig og tók 11 fráköst og
átti 9 stoðsendingar og var bestur.
James Worthy, sem hefur verið
jafnbestur hjá Lakers, brárt hins-
vegar í þessum leik. Hann skoraði
9 stig í fyrsta leikhluta, en aðeins
tvær körfur eftir það.
Útslagið í þessum leik gerði góð
sóknamýting Boston og eins réðu
þeir hraðanum í leiknum eftir fyrsta
leikhluta. Þeir náðu 17 sóknarfrá-
köstum á móti 8 hjá Lakers. Þetta
var tvímælalaust langbesti ieikur
Boston í ár.
Fjórði leikurinn fer fram í dag.