Morgunblaðið - 21.07.1987, Síða 2

Morgunblaðið - 21.07.1987, Síða 2
2 B HUrgunfrlaMb /ÍÞRÓTTIR ÞRJÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987 KNATTSPYRNA / 1. DEILD Hjólhestaspyrna Morgunblaðið/Sverrir Sævar Jónsson reynir hér hjólhestaspyrnu að marki Víðis en án árangurs. Valsmenn reyndu ýmislegt í gær en flest án árangurs enda var vöm Víðismenna þétt fynr og þeir börðust hart fyrir stiginu. Geysileg barátta VÍÐISMENN gerðu enn eitt jafnteflið í 1. deildinni í knatt- spymu í gærkvöldi er þeir mættu Valsmönnum að Hlíðar- enda. Geysileg barátta þeirra og óskabyrjun dugði til að fá eitt dýrmætt stíg. Víðismenn skoruðu strax á ann- ari mínútu leiksins og fengu þvi óskabyrjun. Klemenz Sæmunds- son skallaði henti sér fram og skaliaði að marki en SkúliUnnar Guðmundur Bald- Sveinsson ursson, sem nú stóð skrífar ; mar^i Vals, varði vel, boltinn fór í stöngina og þaðan barst knötturinn fyrir markið. Vilberg Þorvaldsson var fyrstur að honum og renndi í netið. Eftir þetta réðu Valsmenn gangi leiksins að mestu. Þeir fengu mikið af marktækifærum í leiknum en gekk bölvanlega að nýta sér þau. Skot þeirra fóru í vamarmenn, í samheija, í stangimar eða þá að Gísli Heiðarsson, markvörður Víðis, bjargaði vel. Ef boitinn fór framhjá honum var einhver vamarmaður til taks og bjargaði áður en knötturinn fór yfir marklínuna. ■ Mark lá í loftinu allan leikinn og á 27. mínútu skoraði Magni Blöndal Pétursson fallegt mark. Hann fékk boltann út á móti sér, rétt fyrir utan teig, skaut föstu skoti með jörðu í bláhomið. Fallegt mark hjá Magna. Valsmenn sóttu áfram en allt kom fyrir ekki. Víðismenn fengu síðan tækifæri til að komast yfir aftur rétt fyrir leikhlé en Hilmar Sig- hvatsson var á marklínunni og bjargaði skalla sem Guðmundur missti yfir sig. Síðari hálfleikur var enurtekning á þeim fyrri. Valur sótti en inn fór boltinn aldrei. Eina breytingin var veðrið. Hann hafði hangið að mestu þurr í fyrri hálfleik en nú byijaði að rigna heil ósköp og varð völlur- inn erfíður fyrir bragðið. Víðismenn vom að mestu í vöm og gekk þeim vel að leika hana, með þá bræður, Daníel og Vilhjálm Ein- arssyni, sem bestu menn ásamt Guðjóni Guðmundssyni sem aldrei gefst upp. Gísli stóð sig líka mjög vel í markinu og varði nokkrum sinnum meistaralega. Valsmenn sóttu mikið en sóknir þeirra voru hálf vandræðalegar margar hveijar. Leikur liðsins var góður þegar enginn tmflaði þá en þeir réðu illa við stutta spilið á erfið- um vellinum. Sævar, Guðni og Þorgrímur vora bestir. Valsmenn era betri knattspymu- menn en lið Víðis, en það er ekki alltaf nóg. Leikmenn liðsins hafa ekki náð að sýna sitt rétta andlyt síðan þeir gerðu jafntefli við KR fyrir nokkra og eftir jafnteflið í gær getur allt gerst í deildinni. Eyjólfur Olafsson dæmdi erfiðan leik vel. Mikið var um brot þar sem völlurinn var mjög háll og erfitt að fóta sig á honum. ■ Úrsllt/B14 ■ Staðan/B14 BIKARKEPPNI ÍBK áfram Sigraði KR eftirframlengda viðureign ÍBK sigraöi KR 3:2 í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í Keflavfk í gærkvöldi eftir fram- lengingu. Staðan f hálfleik var 2:0 fyrir KR, Keflavíkurstúlk- urnar jöfnuðu í sfðari hálfleik og tryggðu sér svo sigur f fram- lengingu. Kolbrún Jóhannsdóttir skoraði bæði mörk KR-stúlknanna. Það fyrra eftir tíu mínútur; hún fékk þá stungusendingu inn fyrir miHil^H vömina og skoraði Ema öragglega. Seinna Lúöviksdóttir markið kom eftir skrifar hálftíma leik. Eftir homspymu og þvögu við mark ÍBK barst boltinn til Kolbrúnar sem afgreiddi hann öragglega í netið. Ifyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn, en KR átti hættulegri sóknir. ÍBK sótti svo aftur meira í seinni hálf- leiknum og skoraði tvö mörk. Inga Bima Hákonardóttir minnkaði muninn á 60. mín.; skot hennar var í bláhomið af stuttu færi, óveij- andi. Helga Eirfksdóttir jafnaði svo á 70. mín. með skalla eftir fyrirgjöf. í framlengingu var hart barist og var það Agústa Ásgeirsdóttir sem skoraði sigurmarkið með þramu- skoti utan úr teig eftir homspymu. Valur-Vídir 1 : 1 Hlíðarendavöllur 1. deild, mánudaginn 20. júlí 1987. Mark Vab: Magni Blöndal Pétursson (27.) Mark Víðis: Vilberg Þorvaldsson (2.) Gul spjttld: Gísli Byjólfsson (9. mín.) og Sævar Leifsson (55. mín.), báðir úr Víði. Dómari: Eyjólfur ólafsson 8. Lið Vals: Guðmundur Baldursson 2, Þorgrímur Þráinsson 3, Magni Biöndal Pétursson 2, Jón Grétar Jónsson 1, Sævar Jónsson 3, Guðni Bergsson 3, Hilmar Sighvatsson 2, (Siguijón Kristj- ánsson vm. á 78. mín. lék of stutt), Valur ValBson 2, Ólafur Jóhannesson 1, Ingvar Guðmundsson 2, Njáll Eiðsson 2. Samtals: 23. Lið Víðis: Gísli Heiðarsson 4, Bjöm Vilhelmsson 2, Vilhjálmur Einarsson 3, Daníel Einarsson 3, Guðjón Guðmunds- son 3, Vilberg Þorvaldsson 1, Grétar Einar8Son 1, GIsli Eyjólfsson 1, Sævar Leifsson 2, Svanur Þorsteinsson 1, Klemenz Sæmundsson 2. Samtals: 28. SPURT ER / Hverjir verða íslandsmeistarar í knattspyrnu? Spurt á Valsvelli fyrir leik Vals og Eria Sigur- bjömsdóttir Valur, það er alveg á hreinu. Þeir era með gott lið og ég held þeir séu með besta liðið í deildinni. KR- ingar eiga þó möguleika á að vinna en Valur hefur það. Ég býst við að FH og Víðir falli í 2. deild. iis i gærkvöldi SirrýH. Haraldsd. Valur auðvitað! Þeir era með besta liðið. Það verður að visu ekki langt í KR- ingana en Valsmenn era bestir og hljóta að vinna. Það verða líklegast FH og Völsungur sem falla í 2. deild. Sumariidi Andrésson Mér sýnist Valsmenn vera með sterkasta liðið og þeir verða íslandsmeistarar. Þór o g KR koma fast á hæla þeim og síðan Fram- arar. Víðir og FH falla en ég vona samt að ÍBK falli frekar en FH. Halldórsson Ekki nokkur vafi á því að Valurvinnur, þ.e.a.s. ef besta liðið vinnur en í fót- bolta er ekki spurt um það. Ég vona bara að það verði lið úr Reykjavík og einnig vona ég að lið að norðan falli, frekar en héðan. Þórhallsd. Enginn spuming. Það verður Valur, þeir eru best- ir. KR-ingar verða í öðra sæti og ætli að FH falli ekki en um hitt liðið veit ég ekki því ég hugsa ekki um botninn, þarf þess ekki því Valur er ekki þar. Jón Haukur Baldvinsson Ég held það verði Valur. Þeir eru góðir og mér finnst þeir reyndar vera bestir og vona því að þeir vinni. KR-ingar verða næstir. Pétur og Andri era bestir þar. Víðir og FH falla í 2. deild.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.